Morgunblaðið - 04.11.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
Sorp á
sýningu
LANDV'ERND hefur sett upp
óvenjulega sýningu í glugga versl-
unarhúss Domus á Laugarvegi.
Þar er til sýnis það sorp sem
meðal íslendingur skilur eftir sig
að á hveiju ári.
Talið er að 380 tonn af sorpi liggi
eftir hvern íslending á ári eða alls
93 þúsund tonn af sorpi eftir íslensk
heimili. Þar við bætast 130 þúsund
tonn frá iðnaðar og atvinnufyrirtækj-
um.
Að sögn Svanhildar Skaftadóttur
framkvæmdastjóra Landvemdar vill
félagið með þessu móti meðal annars
vekja athygli fólks á því hve lítill
gaumur er gefinn að þvf hvemig sorpi
er fyrirkomið eða eytt. Um næstkom-
andi helgi heldur félagið aðalfund
sinn á Flúðum og er yfirskrift hans
„Úrgangur og endurvinnsla". Þar
flytja erindi Birgir Ásgeirson um-
hverfisskipulagsfræðingur _ hjá Holl-
ustuvemd ríkisins, Sveinn Ásgeirsson
verkstjóri hjá endurvinnsludeild
Sindra stáls og Skúli Ingimundarson
viðskiptafræðingur. öllum er heimil
aðgangur frá klukkan 13.30 á laugar-
dag.
Sýningargluggi Landverndar á Laugarvegi Morgunbiaðifl/Julius
VEÐUR
IDAGkl. 12.00:
r r
Heimild: Veðursiola Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 4.11.87
YFIRLIT é hódegl í gcer: Við strönd Grœnlands, vest-norð-vestur
af Veatfjörðum, var 990 mb lœgðarmiðja og önnur heldur grynnri
við Jan Mayen, báðar á lelö norð-austur. Yfir Bretlandseyjum var
1037 mb hœð.
Langt suð-vestur ( hafi var 990 mb lægð á leið noröur. Hiti átti
að breytast litið.
SPÁ: ( dag veröur suðlaag átt á landlnu, viða kaldi. Um sunnan-
og vestanvert landið verður rignlng eða súld en þurrt að kalla á
Norður- og Norð-austurlandi. Hiti verður 5—8 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FIMMTUDAGUR OG FÖSTUDAGUR: Sunnan- og suö-austanátt
og hlýindi um allt land. Súld eða rigning á Suður- og Vesturlandl
en aö meatu þurrt norðan- og austanlands.
Heiðskírt
TÁKN:
o
a Léttskýjað
■Qk Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstlg:
" Vlndörln sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ # / * Slydda
/ * /
# ■» #
* * * * Snjókoma
# # #
•j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Suld
OO Mistur
_j- Skafrenningur
Þrumuveður
'M? >f*| VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl v*4ur Akureyrl 7 »ký|aft Raykjavlk 6 úrkoma
Björgvln 9 léttakýjað
Halslnkl e slcýjaft
Jan Mayen 1 moldrok
Kaupmannah. 10 skýjaö
Narssaraauaq #6 tnjóél
Nuuk #6 snjóél
Ósló +1 Þokuruönlngur
Stokkhólmur 9 léttskýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 18 rlgning
Amaterdam 12 léttskýjaft
AÞena vantar
Barcelona 19 mlstur
Berlln 8 akýjað
Chlcago 14 hálfskýjað
Fenayiar 1B þokumóða
Frankfurt 10 skýjað
Glasgow 11 skýjaft
Hamborg 9 þokumóða
Las Palmas 24 léttakyjað
London 11 alekýjað
LosAngeles 14 léttakýjað
Lúxemborg 9 akýjað
Madrfd 16 rignlng
Malaga 19 þokumófta
Mallorca 21 lltkýjað
Montreal 6 altkýjað
NewYork 12 léttakýjaft
Parfa vantar
Róm 20 léttakýjað
Vfn B akýjað
Washlngton 11 þokumóða
Wlnnlpeg 2 alakýjað
Valencla 16 rlgnlng
Saltað í 20.000
tunniir dag hvem
Búið að salta í 138.000 tunnur
SÍLDARSÖLTUN gengur nú
mjög vel eftir að samningar tók-
ust um sölu saltsildar til Sov-
étríkjanna. Veiði er mikil og
saltað í um 20.000 tunnur hvern
sólarhring. Frá þvi um helgi hef-
ur verið saltað í um 80.000
tunnur fyrir Sovétmenn og alls
nam söltun á þriðjudagskvöld
138.000 tunnum.
Saltað er á svæðinu frá Vopna-
firði og suður um til Akraness, en
sfidin veiðist að mestu inni á fjörð-
um frá Seyðisfírði og suður í
Reyðarfjörð. Mest hefur verið saltað
á Eskifírði, en Pólarsfld á Fáskrúðs-
firði er hæsta stöðin. Á mánudags-
kvöld var söltun eftirfamandi:
Vopnafjörður 6.132 tunnur, Borg-
arfjörður eystri 1.064, Seyðisfjörð-
ur 14.034, Neskaupstaður 625,
EskiQörður 21.075, Reyðarfjörður
15.774, Fáskrúðsfjörður 12.377,
Stöðvarfjörður 3.899, Breiðdalsvík
4.314, Djúpivogur 4.566, Homa-
§örður 15.314, Vestmannaeyjar
3,895, Þorlákshöfn 2.607,
Grindavík 8.621, Keflavík 274,
Reykjavík 642 og Akranes 3.007
tunnur.
Hæstu söltunarstöðvamar em:
Pólarsfld, Fáskrúðsfirði 9.738 tunn-
ur, Fiskimjölsverksmiðja Homa-
Qarðar 8.944 og Strandarsíld,
Seyðisfirði með 7.562 tunnur.
Fjórtánda starfsár Kammersveitar
Reykjavíkur:
Kvöldstund með
Mozart í Askirkju
FJÓRTÁNDA starfsár Kammer-
sveitar Reykjavíkur hefst með
tónleikum í Áskirkju á sunnudag-
inn kemur, 8. nóvember, klukkan
20.30. Tónleikarnir nefnast
Kvöldstund með Mozart og þar
verða ieikin þijú af kammer-
verkum Mozarts, en á milli þeirra
verður lesið úr bréfum tón-
skáldsins og sagt frá lífi þess.
Þorsteinn Gylfason héfur tekið
saman textann og Gunnar Eyj-
ólfsson les.
Þau verk sem leikin verða á tón-
leikunum heita: Kvintett fyrir hom
og strengi K. 407, Kvintett fyrir
óbó og strengi K. 407 og Kvintett
fyrir klarinett og strengi K. 581.
Joseph Ognibene leikur á hom,
Kristján Þ. Stephensen á óbó og
Guðni Franzson leikur á klarinett.
Þrír tónleikar til viðbótar eru
fyrirhugaðir síðar á starfsárinu.
Jólatónleikar verða haldnir í Ás-
kirkju sunnudaginn 20. desember.
Þar verða leikin verk eftir Vivaldi,
Tartini, Giuliani og Manfredini. Ein-
leikarar verða Lárus Sveinsson,
Ásgeir H. Steingrímsson, Rúnar
H. Vilbergsson, Laufey Sigurðar-
dóttir og Amaldur Amarson.
Á þriðju tónleikum vetrarins, sem
haldnir verða 7. febrúar í Bústaða-
kirkju, verður minnst 150 ára
afmælis Max Bruchs. Leikin verða
verkin: Tríó fyrir klarinett, lágfiðlu
og pianó op. 83 og Septett í Es-dúr
op. posth. fyrir klarinett, hom, fag-
ott, tvær fiðlur, selló og kontra-
bassa, auk verksins Canticle II,
„Abraham og ísak“, op. 51. fyrir
kontratenór, tenór og píanó eftir
B. Britten. Sverrir Guðjónsson og
Gunnar Guðbjömsson syngja og
Þorsteinn Gauti Sigurðsson leikur
á píanó.
Fjórðu og síðustu tónleikamir
verða haldnir 13. mars. Þar mun
Blásarakvintett Reykjavíkur flytja
tvö verk af efnisskrá tónleika sinna
í Bretlandi og Svíþjóð á næsta ári,
eftir þá S. Barber og G. Ligeti og
einnig verður kvintett op. 39 eftir
S. Prokofief á dagskránni.
Stjóm Kammersveitar Reykja-
víkur skipa Rut Ingólfsdóttir, Auður
Ingvadóttir og Sesselja Halldórs-
dóttir.
Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda:
Rækjukvóta verði skipt
milli veiða og vinnslu
FULLTRÚI Félags rælqu- og hörpudiskframleiðenda í ráðgjafar-
nefndinni um stjórnun fiskveiða hefur lagt fram tillögu í nefndinni
þess efnis að kvóta á úthafsrækjuveiðar verði skipt jafnt miili
skipa og vinnslustöðva. Hann segir, að þó raunhæfara mætti telja
að allur kvótinn kæmi til vinnslustöðvanna eins og væri á innfjarða-
rækju, væri þarna um að ræða málamiðiun í því skyni að setja
niður deilur milli greinanna. Hann segir ennfremur að til greina
kæmi að frystiskipin yrðu með sérkvóta.
Guðmundur Stefán Maríasson,
framkvæmdastjóri félagsins, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að með
þessu gæti náðst samræming og
jafnvægi milli vinnslu og veiða.
Þá yrði minni spenna milli veiða
og vinnslu og hugsanlega væri
hægt að fella niður yfirborganir á
afla framhjá skiptum, sem nú
væru aðallega í formi framlags
•vinnslustöðvanna í veiðarfæra-
kostnaði og öðrum útgerðarkostn-
aði. Með því móti hefðu þessar
yfirborganir ekki komið sjómönn-
um til góða.
Guðmundur sagði, að um þessa
tillögu hefði verið full samstaða
innan félagsins. Menn hefðu miðað
við heildarafla eins og í tillögum
sjávarútvegsráðuneytisins upp á
36.000 tonn. Miðað yrði að ein-
hveiju leyti við vinnslugetu og
framleiðslu síðustu ára og að fleiri
leyfi til rækjuvinnslu yrðu ekki
gefin út. Með þessu móti kæmi
heldur minna í hlut stóru verk-
smiðjanna, en vannýttar verk-
smiðjur fengju tækifæri til betri
nýtingar. Þá skertist möguleiki
þeirra minni á því að ná til sín
auknum afla. Þannig gæfu allir
eitthvað. Jafnframt þyrfti að koma
í veg fyrir, að þeir, sem ekki nýttu
veiðileyfi sín, fengju ekki úthlutað-
an kvóta.