Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
23
Hvað verður um Krýsuvík?
Frá Krýsuvík. Lj6sm./Kr.Ben
eftirJóhann
Guðjónsson
Umræða um landeyðingu og
landgræðslu hefur verið þó nokkur
í sumar og eru menn yfirleitt sam-
mála að ástandið sé víða slæmt í
þeim málum og þörf sé aðgerða.
Framkvæmdaaðilar eru í flestum
tiifellum ríki eða sveitarfélög og nú
r íður á að þau undirbúi verkefni
næsta sumars tímanlega.
Á árinu 1936 tók ríkið eignar-
námi jarðimar Krýsuvík og Stóra-
Nýjabæ sem voru eign Einars
Benediktssonar skálds. Var það
gert vegna óska Hafnarfjarðarbæj-
ar sem taldi sig vanta land til
virkjunar hita, landbúnaðar, gróð-
urstöðva, ræktunar og útivistar.
Fjórum ámm síðar var lögunum
breytt og verður þá Hafnarfjarðar-
bær eigandi að Kleifarvatni og
landinu þar suður af allt fram á
Krýsuvíkurbjarg. Annað land jarð-
anna féll undir ríkissjóð vegna
beitarákvæða. Ekki ætla ég hér að
blanda mér í deilur um eignarhald
landsins heldur halda mig við það
svæði sem til Hafnarfjarðar telst
og hvemig bæjarfélagið hefur
ávaxtað þessa eign sína.
Nú er landi bæjarins skipt milli
tveggja áhugamannafélaga um
húsdýraeldi. Annars vegar er það
hestamannafélagið Sörli, sem hefur
á leigu land sunnan Kleifarvatns,
en hins vegar hefur Fjáreigendafé-
lag Hafnarfjarðar á leigu landið frá
gamla Krýsuvíkurbænum og suður
á Krýsuvíkurbjarg. Landið sem
þessi tvö félög skipta þannig á milli
sín er ftjósamasta og besta búfjár-
ræktarsvæðið. Þar skiptast á þurrir
móar, votlendi auk ræktaðra, fram-
ræstra túna. Leigan sem þessi félög
greiða er eingöngu að girða löndin
og sjá um viðhald girðinganna, svo
ekki er hægt að segja að um okur-
leigu sé að ræða. Samt sem áður
hefur orðið misbrestur á því að fé-
„Það er spurning hvort
ekki ætti að lögsækja
félagið fyrir illa með-
ferð á landinu og svik
á samningum um girð-
ingar og sáningu. Þetta
land er alls ekki nauð-
synlegt fyrir hesta-
menn. Þeir geta leigt
jörð annað hvort á Suð-
urlandi eða upp í
Borgarfirði og flutt
hesta sína þangað til
sumarbeitar.“
iögin haldi þessi leigugjöld, sérstak-
lega hefur hestamannafélagið
staðið sig illa, svo nú er land þeirra
opið sauðfé frá afréttarlöndunum í
kring.
Ef litið er á sögu Krýsuvíkur
kemur margt þar fram um gróður-
far sem vekur furðu okkar í dag.
Þar kemur fram að skógur var í
Krýsuvík fyrir ekki meir en 150
árum. Þar sést nú ekki ein einasta
hrísla. Beitarland var þar einnig
mjög gott. Það sést m.a. á réttar-
rústum vestan Krýsuvíkurbæjarins.
Rústimar em þama á melhól og
ekki stingandi strá í kring. Hverjir
byggja fjárréttirá gróðurlausum
jökulurðum? Einnig er til ömefnið
Trygghólamýri, þar er nú engin
mýri því allur jarðvegur og þar með
jarðvatnið er horfið út í veður og
vind. Samkvæmt sögunni var
Krýsuvík talin með betri búfjáijörð-
um á íslandi, en nú er svo komið
að landið þar er allt í tötrum, rofa-
börð og blásnir melar. Á árinu 1986
gerði gróðumýtingardeild Rann-
sóknarstofnunar landbúnaðarins
ástandskönnun á landi Krýsuvíkur.
Ástandskönnunin „leiddi í ljós mjög
rýmandi gróðurfar graslendis og
lyngheiðar sem leggja til 88% af
nýtanlegum fóðureiningum".
„Ástand nýgræðu er einnig mjög
slæmt" segir í sömu skýrslu. Þetta
þurfti svo sem ekki að koma á
óvart. Hestamenn fengu beitar-
hólfið sitt stækkað 1982 vegna
svipaðrar niðurstöðu sömu rann-
sóknarstofnunar á landi þeirra þá.
Nú er bara stærra land rótnagað
af hestum en þá var.
í framhaldi af þessum niðurstöð-
um ástandskönnunarinnar benti
gróðurvemdamefnd Hafnarfjarðar
í vor á þá staðreynd að eitthvað
yrði að gera í málinu strax í sum-
ar. Bæjarráð Hafnarfjarðar óskaði
eftir tillögum frá nefndinni og sam-
þykkti hún samhljóða þann 19.
september síðastliðinn eftirfarandi
tillögur:
1. „Hestamannafélaginu Sörla
verði sagt upp leigu á landi sínu
undireins og Hafnarfjarðarbær
taki að sér landgræðslu á því
svæði strax næsta sumar."
Það er spuming hvort ekki ætti
að lögsækja félagið fyrir illa með-
ferð á landinu og svik á samningum
um girðingar og sáningu. Þetta land
er alls ekki nauðsynlegt fyrir hesta-
menn. Þeir geta leigt jörð annað
hvort á Suðurlandi eða upp í Borg-
arfirði og flutt hesta sína þangað
til sumarbeitar.
2. „Á næstu fimm árum verði sauð-
fjárbeit hætt á landi fjáreigenda-
félagsins.“
Hér er ef til vill of vægt staðið
að málum því landið hefur verið
beitt langt um getu. Ekki virðast
fjáreigendur hafa miklar áhyggjur
af ástandinu því þann 24. október
voru enn um 150 kindur taldar í
Krýsuvík mánuði eftir að smalað
var. Greinilegt er að bændumir
geyma þar fé sitt miklu lengur en
eðlilegt getur talist um afréttarland.
Nú er liðið á annan mánuð án
þess að bæjarstjóm hafi afgreitt
málið, en eðlilegt hlýtur að teljast
að þessu máli sé flýtt meðal annars
vegna sauðfjárslátrunar. Fjáreig-
endur í Hafnarfirði teljast til
svokallaðra „hobbý“ bænda þ.e.
hafa ekki sauðfjárrækt sem aðalat-
vinnu og því engan fullvirðisrétt.
Nú nýverið hefur verið sett reglu-
gerð um stjóm sauðfjárframleiðslu
en þar er þeim, sem engan eða
óvemlegan fullvirðisrétt hafa,
greitt að fullu fyrir allt sitt sauðfé
gegn því að þeir hætti framleiðsl-
unni. Þetta er boð sem fjáreigendur
í Hafnarfírði geta nýtt sér og verða
að gera ef bæjastjóm samþykkir
að draga úr beit í Krýsuvík. Hafn-
firðingar hafa ekki annað beitar-
land fyrir sauðfé. Reykjanesskagi
og reyndar allt landnám Ingólfs er
ofbeitt og að blása upp og þörf er
á að afréttimar verði friðaðar fyrir
beit næstu áratugi.
Þess vegna er nauðsynlegt að
bæjarstjóm afgreiði þetta mál sem
fyrst svo ekki verði eitt árið enn
látið vaða á súðum í Krýsuvík.
Höfundur er formaður gróður-
vemdamefndar Hafnarfjarðar-
bæjar.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Sjö af væntanlegum keppendum í undankeppninni um titilinn fegurð-
ardrottning Suðurlands ásamt leiðbeinendum. Harpa Rós Björgvins-
dóttir, Ólöf Dagmar Úlfarsdóttir, Margrét Birgisdóttir, Auður Svala
Hreiðarsdóttir leiðbeinandi, Fjóla Grétarsdóttir Ungfrú Suðurland
1986, Kristrún Marvinsdóttir, Eygló Linda Hallgrímsdóttir, Ellisif
Malmo Bjarnadóttir og Anna Berglind Júlidóttir.
Ungfru Suðurland 1987:
Undankeppni i Hótel
Selfossi um næstu helgi
Selfossi.
16 STÚLKUR úr Ámes-, Rangár-
valla-, Vestur-Skaftafellssýslu og
Vestmannaeyjum munu taka þátt
í undankeppni að titlinum
Ungfrú Suðurland 1987. Keppnin
fer fram á dansleik Handknatt-
leiksdeildar Hveragerðis í Hótel
Selfossi næstkomandi laugardag.
Á dansleiknum verða 7 stúlkur
valdar til að taka þátt í lokakeppn-
inni um titilinn ungfrú Suðurland
sem síðan verður meðal keppenda
um nafnbótina ungfrú ísland.
Á sunnudag mættu sjö stúlkn-
anna á æfingu í Hótel Selfoss þar
sem Fjóla Grétarsdóttir Ungfrú
Suðurland frá í fyrra leiðbeindi
stúlkunum ásamt Auði Svölu Hreið-
arsdóttur sem tók þátt í keppninni
í fyrra.
Fjóla sem er frá Reykjum í Ölf-
usi varð fjórða í keppninni um
nafnbótina ungfrú ísland. Hún tók
þátt í Norðurlandakeppni um
ungfrú Norðurlönd og model Norð-
urlanda. Hún sagðist hafa mjög
gaman af að leiðbeina væntanleg-
um keppendum og að i svona
keppnum lærðist margt meðal ann-
ars sjálfstraust og sjálfsvirðing.
Stúlkumar sem taka þátt í
keppninni hafa náð 18 ára aldri og
eru valdar til keppninnar eftir
ábendingum.
- Sig. Jóns.
LOTUS 1-2-3 16.11.
INNRITUNTIL
13.NÓV.
SIMI:
621066
TÖFLUREIKNIR, GAGNASÖFNUN,
GAGNAVINNSLA.
FRAMSETNING í TÖLURÖÐUM
OG MYNDRÆN FRAMSETNING.
ÞAÐ ER LOTUS 1-2-3.
Breytirðu einu atriði, færðu nýja heildarmynd.
Breytirðu öðru, færðu aðra. Lotus 1-2-3 er vinsælasti
töflureiknirinn í Bandaríkjunum.
EFNI: Uppsetning reiknilíkana • Myndræn framsetning
• Tenging við önqur kerfi.
LEIÐBEINANDI: Bjarni Júlíusson, tölvunar- og rekstrarhagfræðingur.
TÍMI OG STAÐUR: 16.-19. nóv. kl. 13.30-17.30 að Ánanaustum 15.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ.
INNRITUN ER AÐ LJÚKA í: Multiplan 9.-11. nóv., Query (Svari)/IDDU 9.-11. nóv.
og Alvís fyrir stjórnendur 12.-13. nóv.