Morgunblaðið - 04.11.1987, Side 25
25
Árangnr vinnur traust
Innstreymi erlends lánsfjár hefur
skapað vandamál á undanfömum
árum og hið opinbera hefur gengið
á undan með erlendar lántökur. Sú
stefna hefur síðan verið tekin upp
að reyna að færa erlendar lántökur
og ábyrgð á þeim yfír á einkaaðila.
Það var jákvætt og því kom sú
ónauðsynlega ráðstöfun stjómar-
innar að takmarka heimildir einka-
aðila til lántöku vegna kaupleigu
og fjármögnunarleigu verulega á
óvart. Það skref sem nú á að stíga
með því að gefa innlendum aðilum
kost á að lána útlendingum fé er
mun líklegra til að skila árangri og
mun heilbrigðari viðbrögð við vanda
vegna erlendrar lántöku heldur en
boð og bönn. í reynd hefur verið
meira og minna takmarkað eða
bannað að taka erlend lán allan
lýðveldistímann en samt erum við
stórskuldug í útlöndum. Þessi boð
og bönn hafa ekki skilað árangri
fremur en verðstöðvun til að lækka
verðbólgu. En það sem þarf að gera
er að koma umbótunum í fram-
kvæmd strax og fara í gang með
umfangsmikinn áróður og kynningu
til þess að fólk taki við sér.
A þessari stundu er aðeins hægt
að spá fyrir um verðbólgu á næsta
ári og væntanlega atburðarás.
Skattahækkanir ríkisstjómarinnar
minnka líkumar á árangri en fyrir-
hugaðar aðgerðir í peningamálum
auka þær. Meginmáli skiptir að
árangur af aðgerðum stjómarinnar
komi sem fyrst fram. Verðbólgan
verður að vera dottin niður um og
eftir áramót til þess að góðar líkur
séu á skynsamlegum samningum.
Ef fólk sér árangur í hendi hef
ég ekki trú á að það vilji glutra
niður tækifærinu tii þess að lifa við
lága verðbólgu. En árangurinn
verður að sjást ef hægt á að vera
að treysta stjóminni. Með skatta-
hækkunum og verðhækkunum á
opinberri þjónustu er búið að taka
svo mikið til baka af því sem talað
var um að stjómvöld hafa almennt
séð glatað trausti. Og traustið
vinnst ekki aftur nema að árangur
sjáist.
Ríkisstjómin verður því að leggja
allt kapp á markvissar aðgerðir í
peningamálum ef hún á að geta
vænst þess að verðbólga verði lítil
á næsta ári. Líkumar á árangri í
þeim efnum em fyrir hendi en
stjómin verður að breyta þeim mik-
ið sér í hag.
Þjóðhagsáætlun hvílir á
pólitískum forsendum
í þjóðhagsáætlun koma fram þær
forsendur sem fjálagafrumvarpið
hvílir á. Þessar forsendur eru bæði
efnahagslegar og pólitískar. Á und-
anfömum árum hafa pólitískar
forsendur þjóðhagsáætlana brostið
með kerfísbundnum hætti. Til-
hneiging hefur verið til þess að
vanmeta ýmsar þjóðhagsstærðir
s.s. samneyslu, einkaneyslu og þjóð-
arframleiðslu. Á mynd 2. sjáum við
nokkra þætti úr fyrirliggjandi áætl-
un og hvemig þeir líta út þegar
tekið er tillit til frávika fyrri ára.
I núverandi áætlun er einka-
neysla talin aukast um 0,5% að
magni til á næsta ári en á gmnd-
velli fyrri reynslu má búast við 4,5%
aukningu. Spáð er 2,0% magnaukn-
ingu á samneyslu en fyrri reynsla
segir þá 5,8% aukning. Þjóðhags-
áætlun segir 3,1% aukningu verða
á innflutningi en reynslan segir þá
7,8%. Þjóðarframleiðslan á að vera
óbreytt að magni til en dómur sög-
unnar er 3,1% aukning. Endurtaki
sagan sig má búast við um átta
milljarða króna viðskiptahalla á
næsta ári eða um 3,5% af þjóðar-
framleiðslu.
Núverandi ríkisstjórn nýtur þess
að hafa ekki fortíð í áætlanagerð
af þessu tagi. Því er ekki unnt að
fullyrða með sama hætti og á und-
anfömum ámm að pólitískar
forsendur bresti.
Hins vegar er því ekki að neita
að mér þykir tekjuspá áætlunarinn-
ar vera full íhaldssöm. Jafnvel þótt
staðgreiðsla verði komin á um ára-
mót trúi ég því ekki að atvinnutekj-
ur á næsta ári verði óbreyttar að
raungildi m.v. þetta ár. Sérstaklega
þykir mér það ólíklegt ef verðbólgan
verður jafn lág og stefnt er að. Það
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
er staðreynd að lækkandi verðbólga
og umbætur á peningamarkaði hafa
gjörbreytt rekstrarskilyrðum
íslensks atvinnulífs. Stjómendur
fyrirtækja hafa getað einbeitt sér
að því að bæta reksturinn í stað
þess að eyða tímanum í að fínna
leiðir til þess að veijast verðbólg-
unni. Fyrirtækin hafa því aukið
framleiðni og verðmætasköpun og
starfsfólk þeirra hefur notið þess í
hærri launum. Það sem hefur gerst
í fyrirtækjunum hveiju og einu em
ekki hlutir sem auðvelt er að semja
um í kjarasamningum vegna þess
að hver vinnustaður er heimur út
af fyrir sig. En fó'.kið hefur notið
velgengninnar og kaupmáttur er
nú hærri en nokkm sinni fyrr.
Mér þykir ólíklegt að þessi þróun
stöðvist ef verðbólgan næst niður.
En spumingin er hvort þessi tekju-
aukning fer öll út í aukna neyslu
eða hvort unnt er að auka spamað-
inn. Og þar koma til aðgerðir
stjómarinnar í peningamálum. Þær
þurfa að takast vel ef búast á við
auknum spamaði.
Sá uppgangur sem hefur verið í
helstu útflutningsgreinum okkar á
undanfömum ámm er nú líklega
að taka enda. Sjávarútvegurinn á
erfíðara en áður með að standast
stöðugt gengi. Eina vonin til þess
að hann geti það og jafnframt tek-
ið þátt í samkeppninni um vinnuafl-
ið er að verðbólgan snögglækki
niður fyrir 10%. Ef hún lækkar og
spamaður eykst gæti þjóðarfram-
leiðslan jafnvel vaxið án þess að til
kæmi innflutningur á erlendu fjár-
magni.
Fastir liðir eins
og venjulega?
Ef við skoðum þjóðhagsáætlun-
ina í ljósi hefðbundinna frávika má
sjá náið samhengi á milli útkomunn-
ar og þess að það mistekst að ná
niður verðbólgu og hemja skulda-
söfnun erlendis. Sú atburðarás
gæti orðið að vemleika ef ríkis-
stjómin kemur ekki umbótum
sínum í framkvæmd fyrr en eftir
dúk og disk og stendur slælega að
kynningu á hinum nýju spamaðar-
kostum. Verðbólgan verður þá
áfram á 20%—30% stiginu þegar
að samningum kemur í lok janúar
eða bytjun febrúar og enginn trúir
því lengur að dugur sé í stjóminni
enda ráðherrar og þingmenn stjóm-
arflokkanna ömgglega þá eins og
nú í innbyrðis deilum.
Framhaldið gæti orðið á þá leið
að verðbólgusamningar væm gerðir
í lok febrúar og gengið fellt til þess
að koma til móts við útflutnings-
greinamar. Sú afsökun væri notuð
af hálfu stjómarinnar að allt væri
hvort eð er ábyrgðarleysi aðila
vinnumarkaðarins að kenna en
skýring annarra að ríkisstjómin
hefði þá þegar klúðrað svo mörgu
að það munaði ekki um þótt gengis-
felling kæmi til viðbótar. Þá væri
almennt agaleysi í peningamálum
og ríkisstjómin sjálf djarftækust í
að taka erlend lán. Því myndu út-
flutningsgreinar beijast í bökkum
þrátt fyrir gengissig en launaskrið
grassera vegna þeirrar eftirspumar
sem innstreymi af lánsfé skapaði.
Einkaneysla, samneysla og inn-
flutningur myndu því aukast
stómm og átta milljarða viðskipta-
halli verða að vemleika.
Við skulum hætta hér sögunni
áður en við fáum þunglyndiskast.
Ríkisstjórnin í
aðalhlutverkinu
Núverandi ríkisstjóm hefur lagt
fram stefnupakka með blöndu af
skattahækkunum, aðhaldi í ríkisút-
gjöldum og ýmsum merkum
nýmælum í peningamálum. Fram
til þessa hefur mest farið fyrir
skattahækkunum sem færa stjóm-
ina að mörgu leyti fjær settum
markmiðum en minna hefur farið
fyrir því sem getur skilað stjóminni
árangri. Hún verður því að breyta
um áherslur. Númer eitt, tvö og
þijú verður að vera að koma umbót-
um í peningamálum í verk og sjá
til þess að þær skili tilætluðum ár-
angri.
Það væri hægt að afskrifa áætl-
anir ríkisstjómarinnar strax ef ekki
komu til fyrirhugaðar aðgerðir í
peningamálunum. Og það hik sem
virðist vera á því að koma þeim
fram er ekki traustvekjandi.
Reyndar gæti ríkisstjómin aukið
líkumar á árangri með því að gera
enn frekari umbætur á peninga-
málasviðinu. Það þarf að afnema
hólfaskiptinguna á lánamarkaðnum
og fyrstu skrefin í þá átt em einka-
væðing ríkisbanka og fjárfesting-
arlánasjóða. Strax á morgun ætti
að taka ágætu tilboði 33 aðila um
kaup á hlutabréfum ríkissjóðs í
Útvegsbankanum. Síðan þarf enn
frekar að hreinsa til í gjaldeyrislög-
gjöfínni og rýmka heimildir til
viðskipta erlendis. Núverandi fyrir-
komulag stendur framþróun fyrir
þrifum á ýmsum sviðum
Sé litið á áætlanir stjómarinnar
í heild verður að segja að það er
tvísýnt um árangur. Því er nauðsyn-
legt að láta það hafa forgang sem
helst getur orðið til að snúa líkunum
á árangri til betri vegar.
Ég held að enginn óski annars
en að efnahagslegur árangur náist
á næsta ári. Og ég held líka að
allir aðilar sem hlut eiga að máli
hljóti að vera tilbúnir til að leggja
sitt af mörkum til þess að kveða
niður verðbólgudrauginn. En ríkis-
stjómin er sjálf í aðalhlutverkinu.
Það þýðir ekki fyrir hana að gleyma
sinni rullu og kenna svo aukaleikur-
um um ef sýningin er hrópuð niður.
Höfundur er framkvæmdastjári
Verzlunarráðs fslands.
Bændaskólinn Hólum: >
Námskeið í
loðdýrarækt
BÆNDASKÓLINN Hólum í
Hjaltadal heldur námskeið í loð-
dýrarækt dagana 6. til 7.
nóvember.
Eins dags námskeið í mati á feld-
gæðum verða haldin dagana 6. - 9.
nóvember. Þá verður námskeið í
samvinnu við Búnaðarfélag íslands
fyrir ráðunauta og aðra sem starfa
við flokkun á mink föstudaginn 6.
nóvember. Síðan gefst bændum kost-
ur á slíku námskeiði ásamt nemend-
um og starfsmönnum skólans er
sinna loðdýrarækt dagana 7. til 9.
nóvember. Leiðbeinendur eru tveir
danskir flokkunarmenn.
Þar sem feldur minka er almennt
ekki orðinn fullþroskaður á þessum
tíma voru hátt á annað hundrað
minkar af skólabúinu settir í myrkv-
un til að flýta feldmyndun þeirra.
Gefst þátttakendum þvi kostur á að
handleika dýr með fullþroskaðan
feld, áður en minkar í landinu hafa
almennt náð því stigi.
Einnig verður boðið upp á nám-
skeið í förgun og fláningu á mink
og verkun minka- og refaskinna.
5 MISMUNANDI GERÐIR
• Súkkulaöisósa • Bláberjasósa
• Hindberjasósa • Jarðaberjasósa
• Kirsuberjasósa
Heildsölubirgðir:
I P.Marelsson
Hjallavegi 27, 104 Reykjavik
g 91-37390 - 985-20676_
ZENTIS VÖ.RUR FYRIR VANDLÁTA
INNRfTUN TIL
13.NÓV.
SÍMI:
621066
RITARANÁMSKEIÐI 16.11.
HÉR KYNNAST RITARAR
HÁUM, ALPJÓÐLEGUM
STAÐLl í STARFI SÍNU.
Samtök ritara og íslandsdeild
Evrópusamtaka ritara (EAPS) standa
að námskeiðinu. Nokkur starfsreynsla
er nauðsynleg til þátttöku í námskeiði
þessu.
MEÐAL EFNIS: Skipulagning og
tímastjórnun • Starfssvið ritara
• Samskipti á vinnustað • Efling
sjálfstrausts • Tölvukynning.
LEIÐBEINENDUR: María Sigmunds-
dóttir, Snjólaug Sigurðardóttir, Guðrún
Snæþjörnsdóttir og Kolþrún Þórhallsdóttir.
TÍMI OG STAÐUR: 16.-18. nóvemþer kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15.
621066
HVERT ER AUT VIÐSKIPTAMANN-
ANNA Á PÉR OG ÞINNI VÖRU?
Getur bætt þekking á þörfum neytenda og áformum
þeirra fært þér forskot í samkeppninni og aukið
hagnaðinn? Þátttakendur semja spurningalista, taka
úrtök og vinna úr niðurstöðum.
LEIÐBEINANDI: Dr. Benedikt Jóhannesson, tölfræðingur.
TÍMI OG STAÐUR: 16. og 17. nóv. kl. 13.30 til 17.30 að Ananaustum 15.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
__________________________TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SRf.__________________
INNRITUN ER AÐ LJÚKA í: Samskipti við fjölmiðla 9.-10. nóv., Ákveðniþjálfun fyrir
konur 10.-11. nóv. og Vörusýningar 13. nóv.
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
GYLMIR/SIA