Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
Leikfélag Reykjavíkur:
Samkeppní um leikritun
Sérstaklega auglýst eftir barnaleikritum
LEIKFÉLAG Reykjavíkur
áætlar að flytja í hið nýja Borg;
arleikhús leikárið 1989-90. í
tengslum við flutninginn
gengst félagið nú fyrir leikrit-
asamkeppni og nemur verð-
launafé samtals I milljón
króna. Verðlaunuð verða ann-
ars vegar barnaleikrit og hins
vegar leikrit sem ekki eru
bundin því skilyrði.
Hallmar Sigurðsson leikhús-
stjóri sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Leikfélagið vænti þess
að fá útúr samkeppninni leikrit
sem væru nægilega góð til að eiga
erindi á fjalir Borgarleikhússins
og er vonast til að eitthvert verð-
launaverkanna verði á efnisskrá
félagsins fyrsta leikárið í nýju
húsi. Aðspurður hvers vegna sérs-
taklega væri auglýst eftir bamale-
ikritum sagði Hallmar að vegna
aðstöðuleysis hefði Leikfélagið
lítið getað sinnt yngstu kynslóð-
inni en úr því hyggist menn bæta
um leið og flutt verður í nýja hús-
næðið .
Hallmar kvaðst vonast til að
leikritaskáld sæju sér akk í því
að senda inn verk í samkeppnina
og að þau teldu verðlaun í sam-
keppni sem þessari eftirsóknaverð,
ekki síður vegna þess virðingar-
auka sem sigri fylgir en fjár-
hagslegs ávinnings.
Dr. Richard Botta Morgunblaðið/ Óiafur K. Magnússon
Þurfum að stuðla að auk-
inni eftirspum eftir fiski
- segir kanadískur sérfræðingur sem starfað hefur hérlendis
DOKTOR Richard Botta er
kanadískur matvælafræðingur
sem síðastliðið ár hefur verið við
rannsóknir á losi i fiski hjá Rann-
sóknastofnun Fiskiðnaðarins.
Dr. Botta er starfsmaður
kanadiska sjávarútvegsráðu-
neytisins og kostar það dvöl hans
hérlendis en Rannsóknastofnun
Fiskiðnaðarins hefur látið í té
aðstöðu og lagt út fyrir beinum
kostnaði við rannsóknimar. Dr.
Botta hefur haft samráð við dr.
Jónas Bjarnason um rannsóknir
sinar og benda niðurstöðurnar
meðal annars til að með stjómun
veiðiálags og minni geymslu
fisks á is, megi nýta stærri hluta
þorskaflans en hingað til í dýr-
ustu pakkningar. Dr. Botta er
nú á förum til Kanada og ræddi
Morgunblaðið við hann um rann-
sóknirnar og samstarfið við
islenska stafsbræður.
Stækka markað- auka
eftirspurn
Kanadamenn hafa löngum verið
í hópi helstu keppinauta Islendinga
Ríkismat sjávar-
afurða krefst
þess að síldin
verði geymd inni
að lokinni söltun
SÖLTUNARSTÖÐIN Bergsplan
á Reyðarfirði var í gær svipt
leyf i til sildarsöltunar vegna þess
að húsnæði skorti til að geyma
síldartunnuraar inni að lokinn
söltun. Eigandi plansins, Gunn-
laugur Ingvarsson, segir að
unnið að sé að byggingu bráða-
birgðahúsnæðis til að framfylgja
kjánalegum reglum Ríkismats
sjávarafurða. Hann vonist því til
að málið leystist strax.
Samkvæmt reglugerð um sfldar-
söltun skal öll sfld geymd í kæli-
geymslum að lokinni söltun. Hins
vegar var undanþága gefín frá
þessu á síðustu vertíð og nú, en
á Bandaríkjamarkaði og því eiga
kannski fáir von á því að þjóðimar
taki höndum saman um að rann-
saka hvemig megi bæta nýtingu
hráefnis en dr. Botta telur að sam-
starfið sé báðum gagnlegt og
mikilvægt. „Þegar bandarískur
neytandi kaupir ólystugan eða illa
unninn físk, held ég að hann spyiji
sjaldnast hvort fískurinn sé frá
Kanada, íslandi eða einhveiju öðru
landi. Hins vegar er líklegt að næst
þegar hann langar í fisk muni hann
eftir misheppnaðri máltíð og fái sér
hamborgara eða kjúkling í staðinn.
Þess vegna held ég að Kanada-
mönnum og íslendingum sé báðum
jafnmikilvægt að bæta afurðir
sínar, tryggja að neytendur verði
ekki fyrir vonbrigðum og stuðla
þannig að stærri markaði, aukinni
eftirspum eftir fiski,“ segir dr.
Botta. „ Samstarfið er til komið
vegna þess að ég komst í samband
við Jónas Bjamason og Grím Vald-
imarsson forstjóra þessarar stofn-
unar á ráðstefnu í Kanada og við
sáum að við vorum að vinna við
skyld verkefni. Við töldum að við
gæmm hagnast á því að slá saman
og því varð það úr.
framleiðendum gert að geyma
sfldina inni. Undanþága frá kæli-
geymslum verður hins vegar ekki
veitt á næsta ári, enda verður sfldin
þá að langmestu leyti komin í plast-
tunnur, sem þola sólarljós illa og
er þá hætt við að sfldin verkist
ekki, séu tunnumar geymdar utan
dyra.
Gunnlaugur Ingvarsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að sér
þætti einkennilegt að sömu reglur
giltu ekki um alla. Aðrir hefðu feng-
ið gula spjaldið þó þeir hefðu ekki
geymsluspláss, en hann fengið það
rauða strax. Hann hefði því ekki
fengið að salta á þriðjudag, en von-
aðist til að fá að halda áfram í
dag, tækist að koma tunnunum inn.
Brábirgðahúsnæði væri f smíðum
og jafnframt væri möguleiki á að
koma tunnunum inn í geymslur
Sfldarverksmiðja ríkisins, þar sem
loðnubræðsla væri engin um þessar
mundir.
Nú hefur verið saltað í um 4.400
tunnur á Bergsplani.
Los verst þegar nær-
ingarástand er hæst.
„Rannsóknir okkar beindust að-
allega að físki sem veiddur var við
vestan- og suðvestanvert landið.
Frá marslokum tii maíbyijunar
bætir fískur á því svæði mestu við
þyngd sína segja og einmitt þá er
hann viðkvæmastur fyrir losi og
getur allt að 25% aflans farið í blokk
og maming í stað, 10-15% sem telja
má óhjákvæmilegt. Fyrir bragðið
nýtist aflinn ver til flökunar en
æskilegt er og aflaverðmæti minnk-
Leikfélag
VI sýnir ein-
þáttung eft-
ir Dario Fo
LEIKFÉLAG Verslunarskóla ís-
lands, „Allt milli himins og
jarðar", frumsýndi í gærkvöldi
„Næturbrölt á Kóngsbakka“, tvo
einþáttunga í léttum dúr eftir
Dario Fo; „Betri er þjófur í húsi
en snurða á þræði“ og „Þegar þú
verður fátækur skaltu verða
kóngur“. Leikstjóri er Einar Jón
Briem.
Sýningar fara fram í sal Verslun-
arskólans við Ofanleiti 1 og er önnur
sýning fímmtudaginn 5. nóvember
og þriðja sýning föstudaginn 6. nóv-
ember.
Bolungarvík:
Þrír sækja um
bæjarstjórann
Bolungarvík.
ÞRÍR sóttu um starf bæjarstjóra
í Bolungarvík sem nýlega var
auglýst laust til umsóknar. Um-
sóknirnar voru kynntar á bæjar-
ráðsfundi í gær og verða teknar
til afgreiðslu á bæjarstjóraar-
fundi á morgun.
Umsækjendumir em: Ólafur
Kristjánsson skólastjóri Tónlistar-
skóla Bolungarvíkur, Grímur
Hannesson rafvirki í Noregi og Karl
Á. Gunnarsson Keflavík. Ólafur er
forseti bæjarstjómar og hefur hann
gegnt starfi bæjarstjóra frá því Guð-
mundur Kristjánsson bæjarstjóri lést
f síðasta mánuði.
Gunnar
ar. Það er eðlilegt að stjórnvöld
taki mið af þessu við stjómun veiða
og lokanir svæða. Einnig væri æski-
legt að rannsaka frekar hvemig
þessu er varið til dæmis undan
Norður- og Austurlandi, þar gæti
næringarástand verið hæst og los
mest einhveija aðra mánuði."
Annar þáttur sem hefur mikið
að segja um los í fískinum er hve
lengi hann er geymdur á ís. Fiskur
sem geymdur er á ís í 10 daga fer
illa af losi og er því mikiklvægt að
stilla geymslunni og lengd veiði-
ferða í hóf svo nýting aflans líði
ekki fyrir.
Dr. Botta kveðst vera hrifínn af
því hvemig staðið er að rannsókn-
um á þessu sviði hérlendis. „Sér-
fræðingamir hér em fáir en færir
og það má segja að þeir séu gjör-
nýttir eins og reyndar aðstaðan.
Sama opinbera stofnunin annast
hér rannsóknir fyrir ríkisstjómina
og í nokkmm mæli útseld verkefni
fyrir atvinnufyrirtæki. Auk þess em
margir starfsmanna kennarar við
háskólann og hér fá stúdentar að-
stöðu við rannsóknarverkefni og
jafnvel sumarvinnu. Þannig sinnir
Rannsóknastofnun fískiðnaðarins
verkefnum sem mundu dreifast á
þijár eða fjórar stofnanir og fyrir-
tæki heima í Kanada. Ég efast um
að hægt sé að fínna hagkvæmara
fyrirkomulag en auðvitað þýðir
þetta jafnframt að hvers einasta
starfsmanns bíður alltaf fullt borð
af óunnum verkefnum," sagði dr.
Richard Botta að lokum.
FLYTJA varð einn mann á slysa-
deild eftir harðan árekstur
tveggja bifreiða á mótum
Kleppsvegar og Dalbrautar í
hádeginu i gær. Maðurinn mun
vera nokkuð mikið slasaður.
Áreksturinn varð skömmu fyrir
Eins og áður sagði er verðlauna-
féð samtals kr. 1 milljón króna og
verður 300 þúsundum varið til 1.
verðlauna í hvorum flokki en dóm-
nefnd, skipuð þeim Hallmari
Sigurðssyni, Hafliða Arngrímssyni
leikhúsfræðingi og Sigríði Hagalín
leikkonu, hefur fijálsar hendur um
skiptingu verðaluna að öðru leyti.
Verðlaun eru óháð höfundalaunum
ef verkin verða valin til flutnings
hjá félaginu. Verðlaunaféð er
verðtryggt miðað við lánskjarraví-
sitölu 1841 stig.
Skilafrestur í leikritasamkeppn-
inni er til 31. október 1988 og er
áætlað að dómnefnd skili úrskurði
sínum 15. janúar 1989.
23 Islending-
ar eldri
en 100 ára
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni eru 23 ísiendingar 100
ára gamlir eða eldri, samkvæmt
skrá frá 1. desember, 1986.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni mun Sigurður Þor-
valdsson, til heimilis að Sleitustöð-
um 1 í Skagafjarðarsýslu, vera elsti
íslendingurinn sem nú er á lífí, en
hann verður 104 ára gamall þann
23. janúar nk. Fimm elstu núlifandi
íslendingamir eru, auk Sigurðar:
Ingibjörg Daðadóttir, Ámatúni 3,
f. 19/5, 1884; Ingilaug Teitsdóttir,
Tungum 2, f. 4/8, 1884; Aldís Ein-
arsdóttir, Kristnessjúkrahúsi, f.
4/11, 1884; og Hólmfríður Bjöms-
dóttir, Sunnuhlíð við Kópavogs-
braut, f. 8/11, 1884.
Ranghermt var í Morgunblaðinu
á laugardaginn sl. að Aldís Einars-
dóttir, sem nú dvelst á Kristnes-
sjúkrahúsi, væri elsti núlifandi
íslendingurinn.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
kl. 13 í gær. Önnur bifreiðin lagð-
ist mikið saman við áreksturinn og
varð að kalla til tækjabifreið
slökkviliðsins til að ná ökumannin-
um út úr flakinu. Hann var síðan
fluttur á slysadeild.
Rey ðarfj örður:
Bergsplan svipt
söltunarleyfinu
Á slysstað Morgunblaflið/Júllus
Slasaðist í árekstri