Morgunblaðið - 04.11.1987, Síða 34

Morgunblaðið - 04.11.1987, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 Sendiherra Svía í Rúm- eníu kallaður heim Stokkhólmi, Reuter. SVÍAR hafa ákveðið að kalla heim sendiherra sinn í Rúmeníu. Astæðan er óánægja Svía með neitun rúmenskra yfirvalda við beiðni um að rúmenskur lög- fræðingur fái að koma til sænskrar eiginkonu sinnar. Talsmaður sænsku stjómarinnar, Sven G. Linder, sagði að sendiherr- ann hefði verið kallaður heim til skrafs og ráðagerða vegna máls Stoican-hjónanna, en muni snúa aftur til Rúmeníu þegar málið sé ieyst. Lottó: Lánsamur blaða- fulltrúi Springfield, Reuter. DAVID Fields, blaðafulltrúi Ja- mes Thompson, ríkisstjóra í Illinois, datt heldur betur í lukku- pottinn í gær er hann vann 6,7 milljónir dollara, jafnvirði 253 milljóna króna í ríkislottóinu. Fields er 36 ára og fyrrum blaða- maður hjá United Press Intematio- nal (UPI). Hann sagðist ætla að halda áfram blaðafulltrúastarfínu þrátt fyrir auðæfín. Fields vann helming stóra potts- ins, rúmar 13 milljónir dollara, því annar maður hafði líka allar tölur réttar. Fyrsta útborgun nemur 335.834 dollurum og síðan fá þeir hvor um sig 343.000 dollara ávísun árlega næstu 19 árin. Fields var með svokallaðan áskriftarmiða og rennur áskriftin út í næstu viku. Ætti hann því að eiga fyrir endumýjuninni. Mihail Stoican er rúmenskur lög- fræðingur, sem kynntist sænskri konu sinni fyrir 13 áram, er hann var við nám í Svíþjóð. Þau gengu í hjónaband í Búkarest í fyrra og eiga litla dóttur. Skömmu eftir brúðkaupið fór Anna-Lisa Stoikan heim til Svíþjóðar með bamið. Anna-Lisa hóf 30 daga hungur- verkfall fyrir utan rúmenska sendiráðið í Stokkhólmi 1. október síðastliðinn, en Mihail hefur verið neitað um að fara frá Rúmeníu. Sænsk yfírvöld hafa sagt að þau styðji Stoikan-hjónin og hafa kraf- ist þess að Mihail fái að flytja til Svíþjóðar. Á föstudaginn var sögðu stjóm- völd í Rúmeníu að ekki væri hægt að leyfa Mihail Stoikan að fara frá Rúmeníu vegna þess að hann hefði haft aðgang að ríkisleyndarmálum er hann starfaði hjá ríkisfyrirtæki. Sænsk stjómvöld hafa vegna þess- arar neitunar kallað sendiherrann heim og Anna-Lisa segist ætla að halda áfram hungurverkfallinu þar til eiginmaður hennar fær að yfir- gefa Rúmeníu. Reuter Karl og Díana í V-Þýskalandi Karl Bretaprins og eiginkona hans, Díana prinsessa, heilsa aðdáendum sínum í Bonn í gær. Hjónin hafa undanfama daga heiðrað Vestur- Þjóðveija með nærvera sinni. í gær sóttu þau heim nemendur og kennara skóla sem rekinn er á vegum breska sendiráðsins í Bonn og flykktist hópur manna að til að beija hina tignu gesti augum. America’s Cup: 21 klúbbur tilkynnir þátttöku San Diego, Reuter. ALLS hefur 21 siglingaklúbbur tilkynnt þátttöku í siglinga- keppninni America’s Cup, sem fram fer við San Diego í Kali- fomíu árið 1991. Um helgina rann út frestur, sem siglingaklúbbar höfðu til að til- kynna þátttöku í America’s Cup. Þrír brezkir klúbbar tilkynntu þátttöku á lokadegi og eru sigl- ingafélögin því orðin 21. Á þessu stigi liggur ekki fyrir hversu margar skútur koma til með að keppa því hvert siglingafélag get- ur sent fleiri en eina. America’s Cup-keppnin var háð við Fremantle í Ástralíu í byijun þessa árs og endurheimti þá Bandaríkjamaðurinn Dennis Connor bikarinn. Varnarmálaráðherrafundur NATO: Ræða eflíngu kjamorku- vama Vestur-Evrópu Monterev í Kaliforníu. Reuter. Monterey í Kalifomíu, Reuter. FJÖLGUN bandarískra vamarmálaráðherrar Atlants- ananefnd bandalagsins í kali- sprengjuflugvéla í Vestur-Evr- hafsbandalagsins velta fyrir sér forniska bænum Monterey. ópu er meðal þeirra kosta, sem á fundi sínum í kjarnorkuáætl- Fundarefni ráðherranna er Umbótastefna Gorbachevs Sovétleiðtoga: Gagnrýni Boris Yeltsin endur- speglar alvarlegan ágreining Leiðtogafundinum var frestað sökum deilna sovéskra ráðamanna BORIS Yeltsin, yfirmaður Moskvudeildar sovéska kom- múnistaflokksins og einn dyggasti stuðningsmaður Mik- hails Gorbachev, gagnrýndi stjómarhætti Sovétleiðtogans harðlega á fundi miðstjómar flokksins þann 21. október. Ónafngreindir sovéskir emb- ættismenn segja að frestun sú sem varð á fyrirhuguðum fundi Gorbachevs og Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta hafi komið til vegna deilna þessara innan Kremlarmúra. Er Gorbachev hafði tekist að lægja ófriðar- öldurnar tilkynnti hann Bandaríkjastjórn að hann væri reiðubúinn að koma til leið- togafundar í Washington þann 7. desember næstkomandi. Frestun fundarins þykir hins vegar sýna að deilumar um stefnu Gorbachevs innan so- véska valdakerfisins séu alvar- legs eðlis og búast megi við ágreiningi um framkvæmd umbótastefnunnar á næstu árum. Yeltsin gegnir ýmsum ábyrgð- armiklum embættum. Hann er sem fyrr sagði formaður Moskvu- deildar kommúnistaflokksins, situr í miðstjóminni og á einnig sæti í stjómmálaráði Sovétríkj- anna, sem fulltrúi án atkvæðis- réttar. Að sögn sovésku embættis- Yegor Ligachev. mannanna hélt Yeltsin óvænt ræðu er miðstjóm flokksins kom saman til fundar þann 21. fyrra mánaðar. Sagði hann umbóta- stefnu stjómvalda snúast um of um persónu Gorbachevs og það kynni ekki góðri lukku að stýra um framgang stefnunnar. Urðu miðstjómarmennimir að vonum undrandi þar sem Yeltsin hefur ævinlega fylgt Gorbachev dyggi- lega að málum. Tilkynnti Yeltsin að hann hefði afráðið að segja af sér embætti flokksleiðtoga í Moskvu þar sem hægt hefði miðað í umbótaátt í borginni einkum sökum þvermóðsku skriffinna. Fáeinum dögum síðar tilkynnti Boris Yeltsin. Yeltsin að sér hefði snúist hugur. Sovéskur embættismaður sagði hins vegar að Yeltsin myndi líklega gegna stöðunni að minnsta kosti fram yfír býltingarafmælið þann sjöunda þessa mánaðar. Eft- ir það gæti allt gerst. Yeltsin gagnrýndi ekki einungis Gorbachev heldur veittist hann einnig að Yegor Ligachev, hug- myndafræðingi flokksins sem gengur næstur; Gorbachev að völdum. Sagði hann viðhorf Ligac- hevs vera „kuldalegt". Ligachev brást hinn versti við og sagði Yeltsin vera lélegan stjómanda. Kvaðst Ligachev hafa varað við því árið 1985 að Yeltsin yrði gerð- ur að flokksleiðtoga í Moskvu þar eð hann væri ekki hæfur til starf- ans. Vandamál Moskvubúa mætti því rekja til slælegar stjómunar Yeltsins. Sökum þess hve náin samvinna hefur verið með þeim Gorbachev og Yeltsin era um- mæli Ligachevs einnig túlkuð sem árás á Gorbachev. Fundarmenn deildu hart og herma fréttir að fjölmargir þeirra hafí tekið upp hanskann fyrir Gorbachev. Anatoli Lukyanov, sem á sæti í miðstjóm flokksins, sagði á blaðamannafundi síðasta laugar- dag að Yeltsin hefði gagnrýnt framgöngu ráðamanna og hótað að segja af sér. Af orðum hans mátti ráða að Yeltsin myndi afram gegna stöðu flokksformanns í Moskvu þar sem hann hefði „við- urkennt mistök sín“. Þótt 300 menn sitji í miðstjóm sovéska kommúnistaflokksins er fátftt að deilt sé þar af slíkri hörku. Þykja þetta váleg tíðindi fyrir Gorbachev og er talið að deila þessi hafí veikt nokkuð stöðu hans. Telja vestrænir sérfræðing- ar um málefni Sovétríkjanna að deilur róttækra umbótasinna og þeirra sem vilja fara hægar í sak- imar muni setja svip sinn á sovésk stjómmál á næstu áram líkt og gerst hefur í Kína allt frá því stjómvöld þar gerðust umbótas- innuð árið 1978. Heimildír: The New York Ti- mes og Financial Times. hvernig halda megi uppi trúverð- ugri kjarnorkufælingu eftir að skamm- og meðaldrægar flaugar Bandaríkjanna verða upprættar, samkvæmt væntanlegum af- vopnunarsáttmála risaveldanna. Á blaðamannafundi á mánudag vildi Caspar Weinberger, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, ekkert segja um hvaða möguleikar yrðu ræddir. „En við viljum ekki útiloka neitt, sem við megum [skv. gerðum samningum] gera, sem eflt getur áframhaldandi fælingu,“ sagði embættismaður nokkur, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Kjamorkuáætlananefnd NATO, sem kemur saman tvisvar á ári, þarf nú að glíma við tvöfaldan vanda: í fyrsta lagi hvemig bregð- ast eigi við upprætingu meðal- drægra kjamorkuvopna og í öðra lagi hvemig mæta eigi ofurefli kommúnistaríkjanna í hefðbundn- um vígbúnaði. Vestrænir embættismenn lögðu á það áherslu að engar ákvarðanir yrðu teknar á fundinum, en sögðu að meðal þess, sem helst væri til umræðu, væri að taka í notkun stýriflaugar, sem skotið væri úr flugvélum. Slíkum skeytum yrði beint að hemaðarmannvirkjum í Sovétríkjunum, hvort sem þeim yrði skotið úr B-52 vélum, sem staðsett- ar era í Bandaríkjunum, eða F-lll, sem eru í Evrópu. í síðustu viku sagði sendiherra Bandaríkjanna í aðalstöðvum Atlantshafsbanda- lagsins, Alton Klein, að einnig kæmi til greina að treysta á stýriflaugar um borð í kafbátum. í kjarnorkuáætlananefnd NATO sitja vamarmálaráðherrar 14 NATO-ríkja. Þá situr Einar Bene- diktsson, sendiherra og fastafulltrúi íslands hjá Atlantshafsbandalag- inu, fundinn sem áheymarfulltrúi íslendinga og er það í fyrsta sinn, sem íslendingar fylgjast með störf- um nefndarinnar. ERLENT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.