Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 39

Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 39 Heimsmeistaraeinvígið aftur jafnt: Kasparov vann bið- skákina glæsilega Skák Bragi Kristjánsson Heimsmeistarinn .Gary Ka- sparov vann öruggan sigur í biðskák 8. einvígisskákarinnar um heimsmeistaratitilinn í Sevilla í gær. Karpov reyndi óvænta leið eftir bið, en Kasparov fómaði tveim mönnum fyrir hrók og vann með glæsilegri sókn. Skáksérfræðingar hrósa Kasp- arov mjög fyrir góða taflmennsku í áttundu skákinni, sem talin er sú besta í einvíginu. Hann hefur þar með jafnað stöðuna í einvíg- inu, og virðist kominn í mikinn ham. Fyrrverandi heimsmeistari, Anatoly Karpov, átti sér ekki við- reisnar von í áttundu skákinni. Ef til vill hefur hann enn verið að syrgja úrslit þeirrar sjöundu, en þar komst hann mjög nálægt sigri. Hann tefldi áttundu skákina óvirkt og kom engum vömum við. Karpov verður því að sætta sig við jafna stöðu í einvíginu í stað þess að komast tveim vinningum yfir á laugardag, eins og útlit var fyrir. Áttunda skákin fór í bið í gær- kvöldi í eftirfarandi stöðu: í blaðinu í gær vantaði hvítu drottninguna á dl og er beðist velvirðingar á þeim bagalegu mi- stökum. Kasparov lék síðast 42. f4, og biðleikur Karpovs eftir 25 mínútna umhugsun var: 42. — exf4 Hraustlega leikið í biðleik, en Karpov hefur ekki löngun til að tefla stöðuna eftir 42. - Hee8, 43. Haf2 og hótunin f4-f5 er afar óþægileg. 42. Rgxf4 - He5!? Eftir 43.-Bxf4, 44. Rxf4 - Hef6, 45. Haf2 er svartur í mjög erfiðri stöðu, t.d. 45. - De8, 46. Dc2 og við hótuninni 47. Rxg6 er lítið að gera (46. - Bf5, 47. Rxh5-i— gxh5, 48. Bxf5 o.s.frv.). 44. Rxg6! - Hxfl, 45. Dxfl - Hxe4, 46. dxe4 - Kxg6, 47. Hf2 - De8 Eftir 47. - Bg7, 48. Hf7 - Be6, 49. He7! - Bxd5, 50. Df5+ —■ Kh6, 51. Dg5+ verður svartur mát á g7. 48. e5 Með þessari peðsfóm kemur hvítur í veg fyrir að svarta drottn- ingin fái góðan reit á e5. 48. — dxe5 Ekki gengur 48. - Dxe5, 49. He2 — Dh8 (annars kemur 49. Re7+) 50. Dbl+ - Kf7, 51. He7+ og svartur verður mát. 49. Hf6+ - Kg7 Eða 49.-Kh7, 50. Hf7+ - Kg8, 51. Re7+ og vinnur létt. 50. Hd6 og Karpov gafst upp, því eina leiðin til að koma í veg fyrir 51. Df6 er 50. - Df7, en þá fær hvítur auðunnið endatafl eftir 51. Dxf7+ — Kxf7, 52. Hxh6 o.s.frv. Staðan í einvíginu er nú jöfn, og verður níunda skákin tefld í dag, ef Karpov tekur sér ekki frí til að jafna sig eftir hörmungamar. Kasparov og Karpov við upphaf áttundu skákarinnar. Rcuter Christopher Walken í mynd- inni Vitni á vígvelli. Laugarásbíó: Vitni á vígvelli LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýningar á myndinni Vitni á vígvelli þar sem Christopher Walken og Hywel Bennett fara með aðalhlutverkin. Myndin fjallar um Stevens fréttamann ABS-fréttastofunn- ar sem er sendur með hraði til Beirút til að hlaupa í skarðið fyrir félaga sinn sem veiktist skyndilega. Skömmu eftir komu Stevens gefur ung kona sig á tal við hann og spyr hvort hann hafi áhuga á að tala við einn af foringjum PLO-manna, Yass- in. Stevens þiggur boðið og hittir manninn sem lýsir því yfir að tímabært sé að ræða við Israels- menn og jafnvel friðmælast við þá og hætta hryðjuverkum. Ekki líður á löngu þar til aðrir foringj- ar PLO hafa samband við Stevens og vilja vita við hvem hann hafl rætt því Yassin hafí farið úr borginni tveim dögum áður en viðtalið hafí átt sér stað, segir m.a. í frétt frá kvikmynda- húsinu. Um 44.000 tonn af loðnu veidd Um 2.100 krónur greiddar fyrir hvert tonn LOÐNUVEIÐI fer nú vaxandi, enda fleiri skip haldin til veið- anna og aðstæður hafa verið góðar undanfarna dag. Bræla hamlaði þó veiðum á þriðjudag. Alls hafa frá upphafi vertíðar veiðst um 44.000 tonn. Verð fyrir hvert tonn upp úr sjó er víðast hvar nálægt 2.100 krón- um. Á laugardag tilkynntu eftirtalin skip um afla: Öm KE 750 tonn til Krossaness, Skarðsvík SH 650 til Siglufjarðar, Kap II VE 720 til Vestmannaeyja, Hrafn GK 650 til Bolungarvíkur, Rauðsey AK 630 til Bolungarvíkur, Þórður Jónasson EA 720 til Krossaness, Gullberg VE 620 til Hafnarfjarðar og Magnús NK 470 til Siglufjarð- ar. Á sunnudag vom eftirtalin skip með afla: Guðrún Þorkelsdóttir SU 720 til Eskifjarðar, Súlan EA 760 til Raufarhafnar, Jón Finnson RE 1.050 til Siglufjarðar og Hrafn GK 300 til Bolungarvíkur. Á mánudag tilkynntu eftirtalin skip um afla: Þórshamar GK 550 til Bolungarvíkur, Sighvatur Bjamason VE 700 til Eyja, Skarðsvík SH 600 til Siglufjarðar, Öm KE 700 til Krossaness, Hrafn GK 650 til Krossaness, Börkur NK 1.170 til Neskaupstaðar, Rauðsey AK 600 til Bolungarvík- ur, Magnús NK 530 til Siglufjarð- ar og Víkingur AK 900 tonn til Akraness. Á þriðjudag hafði eitt skip til- kynnt um afla, Þórður Jónasson EA með 400 tonn til Krossaness. Nú hefur verið hætt að styðjast við mælingar á fítu og þurrefni í loðnu við verðmyndun. Ákveðið fast verð gildir þess í stað fyrir hverja lest, en verksmiðjumar sjálfar taka þessar mælingar til að fylgjast með nýtingu hjá sér. Unglingabók í bandi og kilju MÁL og menning hefur gefið út bókina Vinur minn Lúki, sem er unglingasaga eftir Chriostine Nöstlinger. í fréttatilkynningu frá útgefanda segir: „Söguhetjumar, Maríanna og Lúki, hafa verið vinir síðan þau vom smákrakkar. Maríanna hefur alltaf haft Lúka í vasanum, en þeg- ar hann kemur heim til Vínarborgar úr sumarskólanum í Englandi er hann gerbreyttur; byltingarmaður bæði í klæðaburði og hegðun. For- eldrar hans verða hissa, kennaram- ir hneykslaðir, skólafélagamir stórhrifnir — nema Maríanna, hún veit ekki alveg hvemig hún á að bregðast við. Vinur minn Lúki er 196 bls. að stærð og er í nýjum flokki bama- og unglingabóka frá Máli og menn- ingu sem koma út bæði í bandi og í kilju. Það er Jómnn Sigurðardótt- ir sem þýðir söguna en káputeikn- ingu gerði Brian Pilkington. Bókin er gefín út með styrk úr þýðingar- sjóði og prentuð hjá Norhaven bogtryggeri a/s í Danmörku. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Byggingaframkvæmdir við íbúðir aldraða við Kirkjuveg 11 í Keflavík ganga samkvæmt áætlun. Verkið er unnið af Húsagerðinni sf. í Keflavík. 19 íbúðir fyrir aldraða í Keflavík: Um 80 umsóknir bárust KefUvik. Byggingaframkvæmdir á 19 ibúðum fyrir aldraða eru nú í fullum gangi og er ráðgert að þær verði teknar í notkun i júní á næsta ári. Mikill áhugi er hjá eldri borgurum í bænum fyrir þessum íbúðum og nú hafa um 80 umsóknir borist til bæjaryfir- valda um úthlutun. „íbúðimar em sérstaklega hann- aðar og miðaðar við að aldraðir geti búið sem lengst, ömggu og sjálfstæðu búi fram eftir ævi- kvöldi," sagði Hannes Amar Ragnarsson formaður bygginga- nefndar í samtali við Morgunblaðið. Hannes sagði að nú væm rúm- lega 500 íbúar Keflavíkur orðnir 65 ára og eldri og væm 38 íbúðir fyrir aldraða í notkun. í bígerð væri að byggja 100 íbúðir sem væm sérstaklega ætlaðar öldmðum og væri þetta fyrsta skrefíð í þeim áfanga. BB Háskólinn: Fyrirlestur um sí- frera og freðmýrar VIACHESLAV N. Konischev, prófessor við landafræðideild Moskvuháskóla, heldur fyrirlest- ur í stofu 101 i Odda í kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 20:30. Fyrirlersturinn er haldinn á veg- um jarðfræðiskorar Háskóla íslands og fjallar um sífrera og freðmýrar. í fréttatilkynningu frá jarðfræði- skor HÍ segir, að Sovétmenn hafi manna mest og best rannsakað þessi fyrirbæri og séu komnir lengst í mannvirkjagerð og nýtingu jarð- efna við þessar aðstæður. I fynr- lestrinum mun prófessor Konischev segja frá freðmýmm í Sovétríkjun- um svo og frá hinni þykku íshellu, sem liggur undir öllum norðan- verðum Sovétríkjunum. í fyrirlestr- inum verður gerð grein fyrir uppmna sífrerans og freðmýranna svo og núverandi frostfyrirbæmm á yfírborði og vandamálum vegna yfírborðsleysinga. Hann mun gera grein fyrir mannvirkjagerð og vandamálum sem þeim fylgja á hinm sífreðnu svæðum og lausn vandamálanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.