Morgunblaðið - 04.11.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
41
Utanríkisráðherra:
Endurskoðun olíu-
kaupa hótað við
síldarsamninga
STEINGRÍMUR Hermannsson
utanríkisráðherra sagði á Al-
þingri í fyrradag, að hann hefði
haft samband við sendiherra
Sovétrikjanna hér á landi sl.
föstudag og tjáði honum að ef
slitnaði upp úr síldarsamningum
þessara þjóða yrðu öll viðskipti
landanna, þar með olíuviðskiptin,
tekin til endurskoðunar. Fram
kom að samráð var haft við við-
skiptaráðherra um þessa ákvörð-
un. Sama dag gengu Sovétmenn
að skilmálum íslendinga um
kaup á 200 þúsund tunnum af
síld á 11% hærra verði í dölum
en á síðasta ári.
milljónum króna, féllu niður væri
ekki lengur jafnvægi í viðskiptun-
um. Ég veit að hann hafði samband
við Moskvu strax en ég get ekkert
fullyrt um hvaða áhrif þetta hafði
á samningana," sagði Steingrímur.
Steingrímur sagði að núverandi
sendiherra Sovétmanna á íslandi,
Igor Krasavin, væri mjög velviljaður
og hefði gert sér góða grein fyrir
þeim eftirköstum sem það hefði
getað haft í för með sér ef slitnaði
upp úr samningaviðræðunum um
siidarkaupin.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, tók í gær sæti á Alþingi
í fyrsta sinn. Kemur hann inn sem varamaður Svavars
Gestssonar, er heldur til New York á þing Sameinuðu þjóð-
anna strax að loknum landsfundi Alþýðubandalagsins.
^ Morgunblaðið/Sverrir
Asmundur á Alþingi
Allirámóti
Dounreay
HJÖRLEIFUR Guttormsson
(Abl.-Al.) mælti í gær fyrir til-
lögu sem hann og þingmenn úr
öllum flokkum, nema Sjálfstæð-
isflokki, flytja um að kjarnorku-
rendurvinnsíustöðinni í
Dounreay verði mótmælt. Sagði
hann m.a. að geislamengun haf-
svæða gæti ógnað lífríki sjávar
og fiskveiðum okkar.
Ragnhildur Helgadóttir (S.-Rvk.)
sagði þetta vera tillögu um efni sem
allir gætu verið sammála um. Bæði
fyrrverandi og núverandi ríkisstjóm
hefðu haft þetta mál í athugun og
beitt sér fyrir mótmælum á mis-
munandi vettvöngum. Einnig væri
það á dagskrá væntanlegrar heim-
sóknar iðnaðarráðherra til Bret-
lands. Þar myndi hann meðal
annarra hitta að máli Skotlands-
málaráðherra Breta.
„Ég vil taka það skýrt fram að
auðvitað eiga Gunnar Flovenz og
hans menn heiðurinn af samningun-
um,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son við Morgunblaðið. „En það er
rétt að ég kallaði á sendiherrann
og benti honum á að ef þessi kaup
á síld féllu niður hlyti það að leiða
til endurskoðunar okkar á heildar-
viðskiptum við Sovétmenn.
Þegar ég var þar í opinberri
heimsókn í vor lagði Ryzckov for-
setisráðherra mjög mikla áherslu á
að jafnvægi væri í viðskiptum þjóð-
anna. Ég benti sendiherranum á
að svipað gilti af okkar hálfu og
ef þessir samningar, sem námu 700
Dómsmálaráðherra:
Fullgilding samnings gegn pynt-
ingum er fremst í forgangsröð
FULLGILDING samnings Sameinuðu þjóðanna um bann gegn
pyntingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi
meðferð eða refsingu hefur verið sett efst í forgangsröð þeirra
samninga sem ísland hefur undirritað og bíða nú fullgildingar.
Kom þetta fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guð-
rúnar Helgadóttur um hvað liði fullgildingu samningsins. Hann
var undirritaður fyrir íslands hönd 4. febrúar 1985.
AIÞMMil
Jón Sigurðsson, dómsmálaráð-
herra, sagði ekki vanta vilja af
íslands hálfu til að fullgilda samn-
inginn en vanda þyrfti verkið.
Utanríkisráðherra hefði sett samn-
ing þennan fyrst í forgangsröð
þeirra samninga sem ísland hefði
undirritað og biðu nú fullgildingar.
Um þetta væri hann sammála ut-
anríkisráðherra.
Meðal þeirra atriða sem nú væru
til athugunar nefndi dómsmálaráð-
herra m.a. að ekki lægi fyrir alveg
skýr skilgreining á hvað teldist
pynding samkvæmt samningnum.
Það lægi því ekki ljóst fyrir, án ítar-
legrar athugunar, hvort íslensk
hegningarlög veitu refsivemd
gagnvart öllum tegundum af pynd-
ingum.
Dómsmálaráðherra sagði einnig
að við fullgildingu samningsins
Viðskiptaráðherra:
Viðskiptaráðherra svaraði í
gær fyrirspurn Skúla Alexand-
erssonar um hvað Flugleiðir
hefðu greitt fyrir leigu á Fok-
Skjaldborg
um ríkis-
bankana
Á FUNDI þingflokks Borgara-
flokksins 2. nóvember sl. var
eftirfarandi ályktun samþykkt
samhljóða:
„Þingflokkurinn mótmælir hug-
myndum viðskiptaráðherra og
ríkisstjómarinnar um að breyta
ríkisbönkum í hlutafélagabanka.
Þessi samþykkt á sérstaklega við
þá umræðu, sem hefur átt sér stað
um Búnaðarbanka íslands og vænt-
anlega breytingu á eignarhluta
ríkisins í honum.
Borgaraflokkurinn hvetur lands-
menn alla til að mynda skjaldborg
um ríkisbankana."
ker-vél Landhelgisgæslunnar,
TF-Sýn, á árinu 1986 og þessu
ári. Þá var spurt hvort þær tekj-
ur hafi verið notaðar til kaupa á
nýjum og bættum tækjakosti fyr-
ir Landhelgisgæsluna. í svari
viðskiptaráðherra kom m.a.
fram að tekjur af leigu hefðu
verið 7,45 milljónir samtals og
hefði þeim verið varið til tækja-
kaupa fyrir Landhelgisgæsluna.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, sagði leigugreiðslur Flug-
leiða hafa verið 6,7 milljónir á árinu
1986 en 750 þúsund krónur það
sem af væri þessu ári, eða samtals
7,45 milljónir króna. Leigutekjum
þessum hefði að stærstum hluta
verið varið til greiðslu á milligjöf
vegna makaskipta á þyrlu af gerð-
inni Hughes 500 D og annarar af
gerðinni AS 350 (TF-Gró). Verð-
munur þyrlanna var 5,8 milljónir.
Einnig hefðu verið keypt upp-
tökutæki fýrir TF-SÝN til skráning-
ar á stjórn vélarinnar og fjarskipt-
um. Verð þessara tækja var 1,4
milljónir og er þá kostnaður við
ísetningu ekki meðtalin. Þessi út-
gjöld væru því a.m.k. á við leigu-
tekjur.
Viðskiptaráðherra sagði þessa
tækju íslensk stjómvöld á sig skyld-
ur sem taka þyrfti afstöðu til
hvemig yrði fullnægt. Mætti þar
nefna að tryggja skal að kennsla
og upplýsingar um bann við pynd-
ingum verði gagngert innifalin í
þjálfun löggæslumanna, starfsfólks
heilsugæslu, yfirheyrslu eða með-
ferð hvers þess manns sem sætir
handtöku, varðhaldi, eða fangelsun
af nokkm tagi og að aðildarríki
skulu tilgreina bann þetta í reglum
þeim eða fyrirmælum sem sett eru
með hliðsjón af skyldum og verk-
sviði allra slíka starfsmanna.
Taka þyrfti afstöðu til hvaða
starfsstéttir væri átt við og hvemig
hægt væri að taka framangreinda
kennslu upp með beinum hætti í
nám þeirra.
Stuttar þingfréttir
Leigutekjur af TF-SÝN
hafa farið tíl tækjakaupa
Fundur var í sameinuðu þingi
í gær. Á fundinum voru lögð
fram þrjú ný þingmál.
Norræni fjárfesting-
arbankinn
Ríkisstjómin hefur lagt fram
frumvarp um að heimilt verði að
auka hlutafé Islands í Norræna
fjárfestingarbankanum um 7,2
milljónir sérstakra dráttarréttinda
(SDR) og leggja fram 7,5% þeirr-
ar fjárhæðar.
Viðmiðun við verð-
tryggingu
Kristín Einarsdóttir (Kvl.-Rvk.)
spyr viðskiptaráðherra hvort hann
hafi einhver áform um að endur-
skoða samsetningu lánskjaravísi-
tölu eða að taka upp aðra
viðmiðun við verðtryggingu.
Dreifing útvarps og
sjónvarps
Níu þingmenn Framsóknar-
flokksins hafa lagt fram þings-
ályktunartillögu um dreifingu
útvarps og sjónvarps. Lagt er til
að á næstu þremur árum verði
nægjanlegt fjármagn tryggt svo
að koma megi upp þeim búnaði
sem þarf til þess að allar útsend-
ingar Rikisútvarpsins frá stöðvum
þess í Reykjavík náist hvar sem
er á landinu.
Kosið í Norðurlandaráð
Kosið var í Norðurlandaráð í
gær. Kosin voru sem aðalmenn
þau Ólafur G. Einarsson (S.-Rn.),
Páll Pétursson (F.-Nv.), Eiður
Guðnason (A.-Vl.), Sverrir Her-
mannsson (S.-AL), Valgerður
Sverrisdóttir (F.-Ne.), Guðrún
Helgadóttir (Abl.-Rvk.), Óli Þ.
Guðbjartsson (B.-Sl.).
Uppsagnir á Orku-
stofnun til umræðu
Jón Sigurðsson, viðskipta- og
dómsmálaráðherra.
fyrirspum gefa tilefni til að velta
fyrir sér hvort fjármagna mætti
tækjakaup Landhelgisgæslunnar að
einhverju leyti með leigu á tækjum
hennar, þ.e. flugvélum og skipum.
Taldi hann að það ætti að megin-
stefnu til ekki að gera. Hinsvegar
gætu komið upp undantekningartil-
felli þar sem nauðsynlegt væri að
Landhelgisgæslan tæki að sér verk-
efni sem aðrir aðilar hérlendis gætu
ekki innt af hendi.
UPPSAGNIR átján starfsmanna
á Orkustofnun, komu til umræðu
í sameinuðu þingi í gær í kjölfar
fyrirspumar frá Steingrími J.
Sigfússyni (Abl.-Ne.) til Friðriks
Sophussonar, iðnaðarráðherra.
Uppsagnirnar taka gildi um
næstu áramót.
Friðrik Sophusson, iðnaðar-
ráðherra, sagði þessar uppsagnir
vera til komnar fýrst og fremst
vegna samdráttar í verkefnum hjá
stofnuninni og þar með sértekjum
hennar. Ef ákveðið hefði verið að
seinka þessum uppsögnum hefði
það einungis haft í för með sér að
segja hefði upp fleiri starfsmönn-
um. Samdrátturinn væri raunar
meiri en uppsagnimar gæfu til
kynna þar sem ekki yrði ráðið í ný
störf á næsta ári.
Fjórir þingmenn úr þremur flokk-
um, þau Steingrímur J. Sigfússon
(Abl.-Ne.), Hjörleifur Guttormsson
(Abl.-Al.), Álbert Guðmundsson
(B.-Rvk.) og Kristín Einarsdóttir
(Kvl.-Rvk.) gagnrýndu uppsagnim-
ar og töldu að bíða hefði átt eftir
afgreiðslu íjárlaga.