Morgunblaðið - 04.11.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
45
Svo sigra ég söknuð og amann,
og kveð yfír mold þinni minni
eins fíjálslega og sætum nú saman,
sem værir þú enn hjá mér inni.
Eg kveð þig með kærleikum góði
þig, drenginn minn dána, með ljóði.
En ekki í síðasta sinni.
Þú lifír mér allt eins og áður,
svo lengi ég hugsun er háður.
Þú gengur í götunni minni,
þú situr svo oft hjá mér inni.
Hver vorgeisli vaxandi fagur
er venslaður verunni þinni.
Þinn hugur hver hreinviðrisdagur,
því þaðan kom sál þín og sinni.
(Stephan G. Stephansson)
Elsku Ella systir og fjölskylda,
Guð styrki ykkur í sorginni, Heitar
bænir okkar og þakkir fyrir allt
fylgja Barða. Guð blessi hann um
alla eilífð.
Lalla, Ketill, Kolla, Birna,
Dísa, Stína og Bjössi.
Hann Barði er allur.
Við Islendingamir í Þrándheimi
fréttum haustið 1975 af landa
nokkrum, sem átti það til að taka
upp á ýmsu þegar sá gállinn var á
honum. Var ekki laust við að ýmsir
hneyksluðust svolítið á þessum til-
tækjum hans. Þeir sem gáfu sér
tíma til þess að kynnast honum,
fundu þó fljótt að á bak við bjó
viðkvæm sál og hrekklaus. Varð
okkur Barða fljótt til vina og þótt
þar væri stundum látið vaða á súð-
um og fleira gert en gott þykir, þá
er einskis að iðrast.
Barði lét sér ekki nægja að vera
í Þrándheimi, heldur fór hann víða
um Noreg til vinnu og náms. Meðal
annars vann hann um hríð í Norð-
ur-Noregi og í framahaldi af því
gaf hann mér flugfarmiða til
Tromsö, svo ég gæti heimsótt góðan
vin í vetrarfríinu mínu. Er það að-
eins eitt af mörgu sem ég á þessum
ágæta dreng að þakka.
Vorið 1978 kom ég í heimsókn
til íslands með hóp af 16 ára ungl-
ingum. Barði kom með sömu vél
og við og gerði hann það ekki enda-
sleppt við okkur. Hann hélt okkur
veislu og útvegaði blaðamann og
Ijósmyndara, svo hópurinn fékk af
sér mynd í íslensku blaði. Var þetta
blað fljótt að seljast upp í þeirri
sjoppu er næst var dvalarstað okk-
ar, og veit ég að krakkamir vom
Barða þakklát fyrir þennan óvænta
greiða. Ekki vora þau síður undr-
andi á höfðingsskap þeim, sem hann
sýndi þessu bláókunnuga fólki.
Leiðir skildu, þegar ég flutti
ásamt fjölskyldu minni til Dan-
merkur, og átti ég satt best að segja
varla von á því að þær lægju saman
aftur, nema endrum og sinnum á
flugvöllum eða lestarstöðvum. En
svo varð þó ekki. Eitt síðdegið,
þegar Heidi var að vesenast með
þvottinn, þá fínnur hún óvæntan
glaðning innan um sængurfötin.
Skömmu síðar kom ég heim úr
vinnu minni og við settumst niður,
alveg gáttuð á þessu og reyndum
að ímynda okkur, hver væri hér á
ferðinni. Ýmislegt benti til þess að
hér væri flugfarþegi kominn og
skyndilega rann upp fyrir okkur
ljós: Barði er mættur! Ég fór á stúf-
ana og fann hann fljótlega, þar sem
hann sat á notalegum stað í hróka-
samræðum við káta Dani. Urðu þar
fagnaðarfundir, en hann kom svo
með mér heim og bjó hjá okkur um
hríð. Fékk hann vinnu hjá gyðinga-
slátrara, sem útbjó kjöt fyrir
múhameðstrúarmenn (!) og
skemmtum við okkur oft við sögur
frá ýmsu kyndugu á þeim vinnu-
stað. Þar kom vel í ljós hversu
laginn Barði gat verið að segja frá
hlutum, svo þeir stóðu manni lif-
andi fýrir hugskotssjónum.
En einn daginn var hann horfinn
og síðar fékk ég kort frá honum,
þar semjiann var að vinna á fetju
í Grikklandi. Seinna var ég að segja
kunningja okkar frá þessu, en þá
sagði hann: Barði? Hann rekur búð
í Osló.
Þannig var Barði, sífellt að koma
manni á óvart, líka haustið 1982,
en þá átti ég erindi til Osló. Tók
hann fagnandi á móti mér og sagði
frá ýmsu því sem á dagana hafði
drifíð. Margt var að gerast og frá
mörgu að segja.
Og enn einu sinni kemur Barði
mér á óvart, en í þetta sinn era
fréttimar daprari en áður. Bíll er á
ferð, eitthvað fer úrskeiðis og öllu
er lokið. Og sömu tilgangslausu
spumingamar æpa á mann: Hvers
vegna hann? Hvers vegna núna,
þegar allt var farið að ganga honum
í hag? En svör fást engin og ekki
er um annað að ræða en að taka
því sem gerst hefur.
Við Heidi vottum aðstandendum
Barða okkar dýpstu samúð og von-
um að minningin um góðan dreng
megi styrkja þau í sorginni.
Matthías og Heidi Kristiansen
Skákfélag Hafnarfjarðar:
Jón L. Arnason sigraði
SKÁKFÉLAG Hafnarfjarðar
hélt skákmót í samvinnu við
Sparisjóð Hafnarfjarðar laugar-
daginn 24. október sl. Alls tefldu
56 skákmenn á mótinu.
Tefldar vora 11 umferðir eftir
Monrad-kerfi og sigurvegari varð
Jón L. Ámason með 9'/2 vinning,
2. til 4. sæti hlutu Ásgeir Þ. Áma-
son, Margeir Pétursson og Snorri
G. Bergsson með 8 vinninga. 5. til
8. sæti hlutu Elvar Guðmundsson,
Ögmundur Kristinsson, Hannes
Hlífar Stefánsson og Guðmundur
Siguijónsson, allir með 7V2 vinning.
Unglingaverðlaun hlaut Brynjar
Jóhannsson og Ingvar Ásmundsson
sigraði í öldungaflokki.
Aukaverðlaun vora veitt fýrir
Frá fjölteflinu sem var fyrir börn 5-15 ára. Þar tefldi Helgi Áss
Grétarsson, 10 ára, við 25 unglinga.
Jón L. Árnason varð sigurvegari
mótsins og tekur hann hér við
verðlaununum.
þann Hafnfírðing er bestum árangri
næði, jafnir vora Benedikt Jónasson
og Bjöm Freyr Bjömsson.
Fjöltefli fyrir böm 5-15 ára var
haldið sunnudaginn 25. október.
Þar tefldi Helgi Ass Grétarsson, 10
ára, við 25 unglinga. Tveir þátttak-
endur náðu að sigra og sjö gerðu
jafntefli.
Þessar telpur færðu Hjálparstofnun kirkjunnar rúmlega 2.600 kr.
um daginn, en það var ágóði af hlutaveltu sem þær efndu til. Þær
heita Eva Hrund Willatgen og Hennú Helga Hafsteinsdóttir.
Þesssar dömur Júlíana Bjarney Björnsdóttir og Inga Rún Bjöms-
dóttir héldu fyrir nokkru hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparsjóð Rauða
krossins og söfnuðu 110 kr.
*
MAZDA PICKUP
1988 árgerðin er nú fyrirliggjandi
með lengdu húsi, aflmikilli (high
torque) 2600 vél, vökvastýri og
16" hjólbörðum á hvítum sport-
felgum. Ennfremur margar aðrar
gerðir af pallbílum með bensín-
eða dieselvélum. Sérlega
hagstætt verð.
Opið laugardaga frá kl. 1—5
BILABORG HF
FOSSHÁLSI 1.SÍMI 68 12 99