Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 55

Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 55 Ég les — því er ég Meira framboð — minni útlán bókasafna eftirHrafnA. Harðarson Síðustu mánuði hef ég iðulega verið spurður hvort útlánum Bóka- safns Kópavogs hafí ekki fækkað síðan Stöð 2 kom til sögunnar, og nýju útvarpsstöðvamar. Ég hef svarað ýmsu til — eftir því hvemig skapið hefur verið í það og það sinnið. Én nú langar mig til að leggja út af þessari spumingu. Þegar útvarpið hóf útsendingar á sínum tíma heyrðust raddir um það að kirkjur yrðu óþarfar, því messum yrði einfaldlega útvarpað til allra landsmanna og þjóðin gæti þar með sparað sér kirkjubygging- ar, kirkjuklæðnað og messuferðir. Þegar stálþráðurinn og síðar segulbandið komu til sögunnar sögðu ýmsir frómir spámenn að dagar bókarinnar og skríbenta væm taldin höfundar, bæði skáldsagna, leikrita og ljóða, myndu einfaldlega lesa verk sín upp á þráð og fólkið hlýddi á ómfagrar raddir þeirra með hjálp þessarar undursamlegu tækni. Þegar sjónvarp íslendinga hóf útsendingar drógust útlán almenn- ingsbókasafna mikið saman í 2—3 ár og framsýnir hugsuðir sögðu fyr- ir um endalok bóklesturs. Þegar fólksbillinn fór að verða almenningseign og menn gerðu sér ljósa kosti hans sögðu spekingamir að hesturinn, þarfasti þjónninn, myndi deyja út og yrði aðeins til sýnis í dýragörðum og náttúmgripa- söfnum. Þegar myndbandið haslaði sér völl og leigumar spmttu upp um borg og bí sagði fólkið: Nú er úti um bókina og bókasöfnin, bíóin og leikhúsin, og sinfóníuna og jafnvel árshátíðir og þorrablót. En hver hefur þróunin orðið? Þegar tölvuvísindin og efnafræð- in lögðu gmnn að fjöldaframleiðslu á ódýmm einkatölvum og ferming- arböm ekki lengur spurð hvort þau vildi heldur hest með tilbehör eða ritsafn Jóns Trausta heldur hvort þau vilji IBM PC, Maclntosh eða Atlantis-tölvu, þá segja menn að nú sé bókin endanlega dauð og söfn- in þar með. Nú þurfí menn varla að hugsa lengur — hvað þá leggja saman eða draga frá: tölvan getur gert það fyrir okkur, og betur en við sjálf. Ekki er lengur þörf, segja menn, að taka rangar ákvarðanir, gera vitlausar áætlanir í stjómun fyrirtækja, heimila eða þjóðarbú- skapnum. Jú, tölvan sér fyrir þessu öllu og við getum hætt að hugsa. En hver er þróunin? Staðreyndin er sem betur fer sú, að þrátt fyrir allar þessar tækninýj- ungar heldur bókin enn velli. Hún er að vísu í nokkurri lægð í svipinn, reyndar aðallega útlánsbókin á bókasöfnunum, en hún hefur áður fallið í lægð, en risið við á nýjan leik. Bykkjur og tmntur hafa sjaldan eða aldrei verið fleiri í landinu — þrátt fyrir gífurlega flölgun fólks- bíla, kirkjubyggingar em heill kapítuli út af fyrir sig með nýja strauma; tjaldbúðastíll, skútustíll og kubbastíll. Og í dag em til fleiri rithöfundar og skáld en nokkm sinni áður. Og þrátt fyrir undramátt tölvunnar og tölvuvæðingar Alþingis og ráðu- neyta, að ógleymdri fjölgun þing- manna, sýnist mér að ekki hafí fækkað vitlausum ákvörðunum og samþykktum. Og bókaútgefendur og bóksalar keppast við að segja okkur að bók- sala og bókaútgáfa hafí aldrei verið blómlegri. Svo varla er ástæða til að örvænta um framtíð bókarinnar og bókmenningar, þótt eitthvað hafí dregið úr útlánum Bókasafns Kópa- vogs. Drífíð ykkur bara að fá ykkur skírteini og fáið lánaðar bækur til að lesa — þar með getið þið hjálpað okkur að snúa vöm í sókn. En þrátt fyrir þessar bjartsýnu nótur er því ekki að leyna að bóka- verðir og aðrir, sem bera hag bókarinnar fyrir bijósti, hafa nokkr- ar áhyggjur af framvindu mála. Erfingjar lands og menningar Alvarlegust í mínum augum er áberandi fækkun bama og unglinga meðal gesta bókasafna. Því takist ekki að glæða lestraráhuga meðal þessara þegna, sem erfa munu landið og menninguna, þá er hætt við að íslendingum framtíðarinnar gangi verr að viðhalda og auðga íslenska menningu. Ritmálið, hið skrifaða orð (hvort sem það er á pappír eða seguldisk) er og hefur verið samnefnari íslenskrar menn- ingar, sama hvað hver segir. Ástandið í sumum löndum í þessu tilliti er orðið vægast sagt ískyggi- legt — kannanir þar sýna í auknum mæli að færri og færri geta lesið sér til gagns og gamans — og ólæsi í heiminum fer vaxandi þrátt fyrir alla tilburði til að uppræta það. Og hvers virði em þá skriflegar upplýs- ingar um skaðsemi reykinga eða mengunar, um réttindi og skyldur þegna heimsins og um eyðni, ef fólk kann ekki að lesa þær? Og hvers virði eru Snorri Sturluson, Shakespeare og Laxness ef fólk hættir að nenna að kunna að lesa og glápir á Rambó í staðinn? Islensk mynd- bandamenning-? Einn fyrrverandi menntamála- ráðherra hafði fjálg orð um framtíð myndbandagerðar með auknu frelsi í fjölmiðlum, sérstaklega í garð auglýsingamynda. Þessi ráðherra hefur svo sannarlega reynst sann- spár: íslensk auglýsingamyndageð er komin í fremstu röð í heiminum. En hvað kemur það íslenskri menn- ingu við? Hreint ekki neitt. Enda þótt einhver amerískur rit- höfundur hafí aflað sé heimsfrægð- ar með því að raða saman — og gefa út á bók — sundurleita auglýs- ingatexta, þá er það vonandi ekki til marks um framtíðarstefnu í íslenskum bókmenntum. Og enda þótt íslensk fíjáls sjónvarpsstöð hafí afrekað það helst í kvikmynda- gerð að framleiða sjúklega eftiröp- un á lélegum þýskum framhalds- myndaflokki, þá vona ég svo sannarlega að það sé ekki framtíðin í íslenskri sjónvarpsmyndagerð. Og hvemig er umhorfs á svo- nefndum myndbandamarkaði, hverslags mjmdefni er á öllum þess- um leigum? Að sjálfsögðu bæði gott og vont. Hið vonda — ég hika ekki við að segja vonda — er í meirihluta. Kyss-kyss- og bang- bang-myndir, oft 2. eða 3. flokks, þa sem ofbeldið og innihaldslaust klámið er meginþráður, varla örlar á listrænum tilburðum. Og illa tal- andi leikarar rembast við að líta út eins og mannkynsfrelsarar með þjóðrembu. Yfír 90% af þessu efni er vaðall til dægrastyttingar — og fátt væri illt um það að segja, ef vandað væri til þess — en því er ekki að fagna. „íslenskir textar" era á flestum myndböndum, en því set ég gæsa- lappir að álitamál er hvort kalla megi þetta íslenskan texta. „Mér langar — ég vill — okkur hlakkar til“, þessi dæmi era aðeins brot af þessum íslensku textum. Þeir sem séð hafa sér arð í því að fjölfalda og dreifa myndböndum hér á landi hafa ýmist ekki vit eða vilja til að vanda sig: hvorki á texta með upplýsingum á kápum né texta með tali myndanna — og enginn Hrafn A. Harðarson „Myndbandið er komið til að vera með okkur, til góðs eða ills. Okkar er valið. I sjálfu sér er þessi nýi miðill ómetanleg tækninýjung, sem alls ekki ætti að vera bókinni tíl bölvunar. Þvert á móti geta kvikmyndir, ef þær eru vel gerðar og efni valið af kostgæfni, eflt bókina og lesandann og giætt áhuga á bókum og lestri.“ veitir þessu aðhald — því t.a.m. þeir sem „gagnrýna" myndbönd í blöðum virðast undir sömu sökina seldir. Og nú á þessum frelsistímum kemur auðvitað ekki til greina að „hið opinbera" megi skipta sér af þessari atvinnugrein. Svo halda menn, að því er virðist, að íslensku- kennarar grannskólanna megi við margnum. Ég er illa svikinn ef ekki kæmi í ljós, væri það kannað á annað borð, að tjónið sem ein mynd- bandsskoðun veldur ' málkennd bams/unglings er margfalt á við gagnið sem verða mátti af 2—3 kennslustundum í íslensku í skóla. Því miður. Vatíkan menntamála á íslandi virðist vera langt yfir það hafíð að skipta sér af, eða hafa áhyggjur af þessari þróun — nema það sé svo upptekið af öðram mikilvægari þáttum menningarlífsins eða telji sig ekki varða þessi þáttur vegna þess að hann fellur utan hugtaksins menntamál — les skólamál! Hvenær skyldu íslendingar fínna hjá sér hvöt til að skipa menningar- málaráðherra? \ Bókerbest . . . Spyiji einhver hvem §andann ég sé eiginlega að fara með þessu nöldri og hvað ég eigi við með menningar- og fræðsluefni, þá er þessu að svara. íslenska sjónvarpið hefur nýlega hafíð fjölföldun og dreifíngu á myndböndum með fræðsluefni: Stiklur Ómars Ragarssonar, veður- þættir, spænskukennsla, þættir um Afríku o.fl. og Námsgagnastofnun er loksins að rumsaka. Þetta er vel og þetta kalla ég fræðsluefni. En mjög mikið vantar á svo vel megi við una. Myndbandið er komið til að vera með okkur, til góðs eða ills. Okkar er valið. í sjálfu sér er þessi nýi miðill ómetanleg tækninýjung, sem alls ekki ætti að vera bókinni til bölvunar. Þvert á móti geta kvik- myndir, ef þær era vel gerðar og efni valið af kostgæfni, eflt bókina og lesandann og glætt áhuga á bókum og lestri. Það er reynsla bókavarða, að athyglisvert efni í sjónvarpi vekur forvitni og löngun til að kryfja efni til mergjar með því að lesa sér til um það í bókum. Myndrænt efni getur sjaldnast full- nægt þekkingarþörf fólks. Það geta bækur hins vegar. Og þessi áhugi vaknar nær eingöngu þegar um er að ræða fræðslu- eða menningar- þætti, ekki sápuóperar eða ramb- óskan trylling. Enn sem komið er er flestu fólki í blóð borin fróðleiksfysn — en hún hefur líka gengið í arf kynslóð fram af kynslóð. Hvað verður ef þessi dýrmæti hlekkur glatast? Að sjálfsögðu er allt fræðandi efni menningarlegt og skilin þarna á milli era óljós, en óþarft er að fjölyrða um það. Bókasafn Kópavogs bauð mynd- bandið velkomið í hillur sínar fyrir nokkram áram og á nú um eða yfír 400 bönd. Miklum vandkvæð- um er og hefur verið bundið að afla safninu efnis við hæfí: mynd- bandadreifíng kvikmyndahúsanna og annarra einkafyrirtækja hafa aðallega boðið kvikmyndir og hefur safnið leitast við að kaupa góðar myndir og þær sem byggjast á bók- menntaverkum og eða á sögulegum atburðum, sem dæmi_ má nefna Macbeth, Pétur mikli, Útlaginn. En fræðsluefni er vandfengið. Allar myndir Ósvalds Knudsen era til útleigu, mjög gott fræðsluefni og menningarlegt. Þýska sendiráðið hefur útvegað safninu ýmsar stutt- ar fræðslumyndir, m.a. um dýralíf og menningarlíf í Þýskalandi, en það er auðvitað með þýsku tali. Myndbandstæknin býður upp á ótal möguleika í miðlun þekkingar og menningar og er næstum óþol- andi að svo örðugt skuli vera að útvega slíkt efni á myndböndum. Þótt vafalaust væri gagnlegt að flytja inn erlent efni á útlendu máli, þá era ótal hömlur á innflutn- ingi þess, skattar og tollar. En aðallega áhugaleysi innflytjenda. Það er ekki laust við að það hvarfli að manni að íslenskir ráða- menn leggi beinlínis stein í götu þeirra sem ekki sætta sig við ein- tómt afþreyingarefni en vilja annað og meira, í stað þess að leggja sig fram um að greiða götur þeirra, með lögum, ef ekki vill betur. Annað dæmi um þennan menn- ingarfjandskap er sölugjald á innfluttum erlendum bókum. Eigum við að enda sem þröngsýnir eftirap- ar og eyða tómstundum okkar í gláp á engilsaxneskt frauð? Jónas Hallgrímsson og Snorri Sturluson lesa úr verkum sínum Hver vildi ekki geta hlustað á og séð á myndbandi Jónas og Snorra lesa úr verkum sínum og segja frá tilurð þeirra? Þessu er því miður ekki að heilsa af tæknilegum ástæðum. En hvað geram við í dag til þess að tryggja að kynslóðir framtíðarinnar geti notið þess að hlusta og horfa á alla Snorrana og Jónasana á okkar tækniöld miðla • af snilld sinni og andagift? Eða eig- um við þess kost hér og nú, að labba okkur á myndbandaleigu, eða næsta bóksafn, og velja myndband eða hljóðsnældu með Guðbergi Bergssyni, Jakobínu Sigurðardótt- ur, Jóni úr Vör eða Vilborgu Dagbjartsdóttur? Eða getum við fengið lánaða miðla sem fjalla um nýja málverkið, íslenska leiklist, Atla Heimi og Jón Ásgeirsson? Nei, því miður. Og ástæðan er ekki tæknileg. Hún er einfaldlega mann- dómsskortur, níska og/eða and- legur sljóleiki. Það er svo dýrt, segja menn, að gera myndband um menn og málefni líðandi stundar, menn- ingu og listir. Markaðurinn er svo lítill o.s.frv. En ég spyr á móti: Hver borgar fyrir allar þessar glæsilegu auglýsingar á skjánum sem þröngvað er upp á okkur dag eftir dag? Kálfskinn nútímans = mynd-/hljóðband Hveijir skyldu hafa blætt í öll kálfskinnin sem notuð vora í hand- ritin okkar, sjálfan lykilinn að frelsi okkar og sjálfstæði? Vora það hug- sjonamenn, stórhuga athafnamenn, embættismenn, bankar eða verslan- ir, eða „hið opinbera". Svari þeir sem vita. íslensk menning á í vök að veij- ast. Hún er á undanhaldi fyrir ásókn erlendrar kaupmenningar og tísku- tildurs. Og það sem verra er: við virðumst fljóta sofandi að feigðar- ósi, svo andvaralaus eram við. Einstaka tilfelli um viðleitni til að veijast má nefna, en því miður era það undantekningar: Sögu- snældan hefur gefíð út hljóðsnældu fyrir böm, Ásmundarsafn gaf út myndband um konur í list Ásmund- ar, nokkrir rithöfundar hafa gefíð út hljóðsnældur með eigin upplestri (Kristinn Reyr, Pjetur Hafstein Lárasson, Ingó) og Bókasafn Kópa- vogs hefur tekið upp á myndband viðtal við einn mesta plötusafnara landsins, Stefán Á. Guðjónsson og dagskrá með Matthíasi Johannes- sen, og loks ber að nefna Martein Sigurgeirsson, sem gert hefur nokkur myndbönd um líf og starf í Kópavogi. En flest er þetta gert af hugsjón eingöngu, án fjárhags- legs bolmagns til að kynna þetta eða vanda sem skyldi. Ég get ekki, og vil ekki trúa því að íslendingar, með íslensk stjóm- völd í fylkingarbijósti, séu svo gjörsamlega kæralausir í menning- armálum, sem blasir við í ofan- greindu máli. Einhver önnur skýring hlýtur að vera á þessu: vantar pening, segja menn. Ekki vantar pening til að reisa Berlínar- múr um Þjóðarbókhlöðu (er hann ætlaður til vemdar íslenskri bók- menningu eða til að vama mönnum aðgangs að henni?), enda þótt ekki sé hægt að flytja þangað inn fjör- egg þjóðarinnar. Ekki vantar pening til að gefa upp skuldir eins fallits bankaræfíls, svo bjóða megi hann til sölu ef einhver skyldi vilj’- ann. Ekki vantar pening í kringlur og ieifar, ekki júróvisjón og ekki í ráðhús. Þetta hlýtur bara að vera einhver menningarflensa, sem þá vonandi gengur yfír og framundan hlýtur að vera betri tíð með blóm í haga. Höfundur er forstöðumaður Bókaaafns Kópavogs. ZENTIS örugg gæði - KOKUKREM 2 MISMUNANDl GERÐIR • SÚKKULAÐIKREM • MÖNDLU NOUGA KREM Heildsölubirgðir: Þ. Marelsson I Hjðlhvegi 27, 104 Reykjjvik j S* 91-37390 - 985-20676 ZENTIS VORUR'FYRIR VANDLATA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.