Morgunblaðið - 04.11.1987, Side 57

Morgunblaðið - 04.11.1987, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 57 Afmæliskveðja: Guðjón Emils- son sjötugur Á göngu okkar gegnum verald- arinnar lystigarð mætum við fjölda fólks. Flestir hendast fram hjá án nokkurra afskipta, aðrir staldra við litla stund og nokkrum kynn- umst við náið. Þau kynni geta verið margþætt og skilja eftir eða marka misdjúp spor í vitundinni, hreyfa hina ólíku strengi sálarlífs- ins misfast. Við nefnum það gjaman viðkynningu í minninga- bókum. Hvort sú viðkynning verður langæ og djúpstæð eða líkist ljósbroti fer eftir skapgerð hvers og eins. Það er sagt, að fólk sé ýmist opið eða lokað, rétt eins og Ijóðið. Ég mun teljast í síðari flokknum og kynni mín af samborgurunum mótast þar af, á nokkra kunningja og fáa vini. Þess vegna eru þeir mikils virði. í dag, 4. nóvember, staldra ég því við í lystigarðinum, sest undir naktar bjarkir og rifja upp kynni mín af Guðjóni Emilssyni. Hann er sjötugur í dag. Ekki var ætlun- in að skrifa um hann ævisöguþátt, heldur rétt að kasta á hann kveðju, sæll nafni og þakka þér frábæra viðkynningu! Að eiga vináttu og hafa átt vin- áttu manns á borð við þennan nafna minn, má líkja við verð- tryggða innistæðu í hinum eilífa gjaldeyrissjóði mannlegra sam- skipta, þar sem innistæðan ávaxtast og rýrist ekki við verð- fall annarra gjaldmiðla. Guðjón er einn af þeim samferðamönnum mínum, sem hvað hæst hefur ris- ið, mannkostir hans slíkir, kjarkur hans og dugnaður mikill. Guðjón Emilsson er borinn og bamfæddur Seyðfirðingur, fædd- ur á svonefndum Hánefsstaðaeyr- um. Hann ólst upp við sjósókn og landbú, en faðir hans fékkst við hvoru tveggja jöfnum höndum. Sá atvinnuvegur er svo til að hverfa af sjónarsviðinu. Guðjón mun hafa ætlað að leggja fýrir sig sjó- mennsku, því hann lauk prófi úr Stýrimannaskólanum 1942. Hann hafði áður verið formaður á dekk- bát er gerður var út frá Eyrunum fyrir austan. En það fór á annan veg. Laust fyrir miðjan fímmta ára- tuginn kvæntist Guðjón Dagrúnu Gunnarsdóttur, ættaðri úr Breiðd- al austur. Hófu þau búskap við Faxaflóann í skjóli Esjunnar, þar sem sólsetrið er fegurst á jarðríki. Þar búa þau enn. Um svipað leyti og þessar breyt- ingar urðu á högum nafna míns, fór hann að vinna í Vélsmiðjunni Héðni hf. og einnig að kenna und- arlegs lasleika. Hann leiddi til þess, aðjáfnvægisskyniðtruflaðist Morgunblaðið/Ingólfur Friðgeirsson Mikið fjölmenni tók þátt i göngunni. Eskifjörður: Fjölmenn ganga fyrir bættri umferð þátt í göngunni, bæði böm og full- orðnir, og var gengið frá Eskigrilli, innst í bænum, og út að félags- heimilinu Valhöll. Á göngunni báru bömin borða og skilti með ýmsum umferðaráróðri og hvatningu til ökumanna um betri umferð. Að lok- inni göngunni bauð JC bömunum á diskótek í félagsheimilinu, þar sem enn meiri umferðaráróðri var komið á framfæri. — Ingólfur Eskifirði. MIKIÐ fjölmenni tók þátt í göngu sem JC-félagið á Eskfirði stóð fyrir laugardaginn 24. októ- ber sl. Tilefni göngunnar var landsátak sem JC-hreyfingin á íslandi stóð fyrir og helgað var öryggismálum. Að sögn Guðrúnar Karlsdóttur, forseta JC-Eskifjarðar, veir ákveðið í félaginu á Eskifírði, að einkum skyldi unnið að öryggi í umferð- inni. Til að vekja athygli á þeim málum stóð JC fyrir ofangreindri göngu, og sagði Guðrún að hátt á þriðja hundrað manns hefðu tekið Guðrún Karlsdóttir, forseti JC á Eskifirði. Á göngunni báru börnin borða og skilti með ýmsum umferðará- róðri og hvatningu til ökumanna um betri umferð. svo, að Guðjón hefur síðan verið fatlaður. Ekki gátu læknavísindin ráðið við þennan sjúkdóm og töldu læknar, að Guðjón næði ekki háum aldri. Þá var hann um þrítugt. Þetta fór á annan veg og veit enginn, hver þar hefur ráðið gangi mála. Að verða fatlaður um þrítugt er mikið áfall. Þá fyrst reynir á sálarþrekið og samskiptin við sína nánustu, hversu vel menn sigrast á slíku mótlæti._ Þetta tókst Guð- jóni Emilssyni. Ég hef þekkt hann náið í þriðjung aldar. Hann hefur aldrei notið örorkubóta, heldur unnið sem vaktmaður í Héðni langan vinnudag og vafalítið einn elsti starfsmaður þar. Guðjón lét aldrei bugast, var yfírleitt léttur í lund, greiðvikinn, gamansamur og traustur. Þau hjón hafa eignast fjögur mannvænleg börn, sem öll- um hefur vegnað vel, enda haft að heiman gott veganesti. Guðjón Emilsson er einn af hin- um hljóðu hetjum þjóðlífsins. Nú, eftir sjötíu ára göngu í gegnum lífsins lystigarð, hefur hann áun- nið sér rétt til áhyggjulausra ellidaga. Ég veit, að skapanornim- ar sjá gegnum fíngur við hann, því það á hann vissulega skilið. Nafni minn. Við hjónin og böm okkar árnum þér og þínum allra hei'la og þökkum margan greiðann í okkar garð. Ég þykist vita, að þér fínnst þetta raus í mér pir- randi, en jafnframt að það er vináttuvottur. Sjáumst svo hressir. Lif heill. Guðjón Sveinsson Veggflísar Karsnesbraut 106. Simi 46044 — 651222. ZéntiS - orugg gæði - 6 MISMUNANDI GERÐIR • KIWISULTA • BLÁBERJASULTA • JARÐABERJASULTA • APRIKÓSUSULTA • HINDBERJ ASULTA • ÁVAXTASULTA BLÖNDUÐ ft Heildsölubirgðir: Þ. Marelsson Hjallavef;i 27, 104 Reykjavik ST 91-37390 - 985-20676 ZENTIS VÖRL'R FVRIR VANDLATA - Miðsvæðis á rólegum stað í borginni. - 100 glæsileg herbergi með stórum þægilegum rúmum. - Hentug samliggjandi herbergi fyrir fjMskyldur. - Jfitasjónvarp, minibar og hárþu/rka á hverju herbergf - Verið velkomin. * • I SigtúátSS, 105 Reykjavtk Sími (91) 689000 y

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.