Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 58
7861 H3aMaVOVí .fc HUOAOIIHTVOIM .OKIAJ9VÍIT05IOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
58
Minning:
Birgir Grétars-
son - Hafnarfirði
Fæddur 31. mars 1967
Dáinn 27. október 1987
„Þeir sem Guðimir elska deyja
ungir." Þessi setning kom upp í
hugann þegar mér var tilkynnt að
Birgir frændi minn væri látinn eftir
harða lífsbaráttu vegna alvarlegs
vinnuslyss.
Birgir var fæddur 31. mars 1967
og því rétt tvítugur að aldri, elstur
þriggja sona Agnesar Eymunds-
dóttir og Grétars Geirs Guðmunds-
sonar, Olduslóð 45 í Hafnarfírði.
Ég átti þess kost að fylgjast með
frænda mínum strax fyrstu ár hans
í þessu lífi heima á Homafirði þar
sem foreldrar hans bjuggu fyrstu
hjúskaparár sín. Mér er Birgir
minnisstæður fyrir að vera sérstak-
Iega skýrt og greindarlegt bam,
enda var hann læs á bækur yngri
en gerist og gengur með böm. Það
kom líka fljótlega í ljós eftir að Birg-
ir hóf skólagöngu að hann var óvenju
góður námsmaður. Ég minnist þess
að þegar foreldrar hans fluttu í
Hafnarfjörð vildi starfsfólk skólans
þar flýta honum í námi. Það lýsir
vel viðhorfum foreldra hans til upp-
eldis bama að þau töldu honum best
borgið með jafnöldrum sínum og
félögum og ekki ástæðu til að hampa
hæfíleikum hans, þó svo að lokum
væri farið að ráðum sérfræðinganna
og lauk hann skyldunámi ári fyrr
en ætlast er til.
Birgir var hispurslaus og hrein-
skiptinn í allri framgöngu og laus
við allt sem kallast getur sýndar-
mennska. Þó Birgir væri góður
námsmaður gleymdi hann sér ekki
í bókalestri en tók jafnan mikinn
þátt í félagsstörfum enda félags-
lyndur og glaðlyndur að eðlisfari og
því vel liðinn og virtur af félögum
sínum.
Birgir hafði bytjað nám í raf-
magnsverkfræði við Háskóla Islands
og var búinn a marka sér lífsbraut.
Hann hafði ríka ábyrgðartilfinningu
og var tilbúinn að axla þá ábyrgð
að stofna heimili og eignast fjöl-
skyldu með unnustu sinni Hönnu
Björk Guðjónsdóttur. Einmitt þess
vegna lagði hann harðar að sér við
vinnu nú til að geta séð þeim betur
farborða þegar fjölga átti í fjölskyld-
unni.
Það er erfitt að skilja tilgang þess
lífs sem leggur svo mikið á unga
verðandi móður, foreldra, bræður og
aðra nánustu. En með æðruleysi,
kjarki og dugnaði þessar erfiðu vik-
ur hafa þau veitt hvert öðru
ómetanlegan styrk, vonandi styrk til
að auðvelda að umbera og komast
yfir sorgina. Birgis verður líka sárt
saknað af okkur öllum í móðurfjöl-
skyldu hans, sem reynt höfum að
efla Qölskyldutengslin sem mest og
áttum svo ánægjulegar stundir sam-
an síðastliðið sumar. En við eigum
líka bjartar minningar um góðan
dreng og erum þakklát fyrir að hafa
átt samleið með honum.
Megi Guð styrkja Hönnu Björk,
Agnesi, Grétar, Guðmund Lúðvík,
Inga Val og aðra sem um sárt eiga
að binda.
Blessuð sé minning hans.
Albert Eymundsson
Hvað kemur upp í hugann þegar
einn af vinunum fellur frá í blóma
lífsins? Minningar um góðar stundir
rifjast upp, minningar sem munu
lifa. Efst í hugum okkar er þakk-
læti fyrir að hafa kynnst Birgi
Grétarssyni. Það er erfitt að sætta
sig við að hann sé tekinn burt svo
snemma.
Við kynntumst Bigga þegar við
byijuðum allir í Flensborgarskóla
haustið 1982 og þar varð hann starx
framarlega í félagsstarfi. Hann
starfaði af miklum áhuga að öllu
því sem hann tók sér fyrir hendur
og var einatt hvetjandi fyrir okkur
sem unnum með honum. Biggi var
hrókur alls fagnaðar og minningam-
ar um hann eru minningar um
skemmtilegar samverustundir.
Við vonum að Guð veiti Hönnu
Björk, foreldrum Birgis og bræðrum
hans styrk til að takast á við þessa
miklu sorg.
Arnar Hannes Halldórsson,
Örn Almarsson.
Það er með djúpum söknuði sem
við kveðjum vin okkar og félaga,
Birgi Grétarsson.
Kynni okkar af Birgi hófust fyrir
alvöru í Flensborgarskóla þar sem
hann, ásamt okkur, hóf nám haustið
1982. Strax kom í ljós að hann hafði
mikinn áhuga á öllu sem hann tók
sér fyrir hendur. Hann var mjög
áberandi í félagslífinu enda drífandi
og góður stjómandi. Birgir var af-
burða námsmaður og gat því helgað
félagslífínu krafta sína okkur hinum
til mikillar ánægju. Hann var einnig
snjall ræðumaður og átti ávallt auð-
velt með að koma fyrir sig orði.
Meðal annars flutti hann ræðuna við
útskriftina vorið 1986.
Haustið eftir stúdentspróf hóf
hann nám í Háskólanum ásamt flest-
um okkar. Hann lagði stund á
rafmagnsverkfræði en það hafði
lengi verið draumur hans, enda
áhugi hans á tölvum og tækni á því
sviði mikill. Birgi sóttist námið vel
en ákvað hann að taka sér frí á
öðm námsári og stunda vinnu við
einn verklegan þátt námsins. Fríið
tók hann sér ekki síst til þess að
geta verið með unnustu sinni sem á
von á bami innan tíðar.
Við minnumst margra góðra
stunda sem við áttum saman í gegn-
um tíðina. Allra þeirra stunda sem
við sátum yfir kaffíbolla og ræddum
málin eða slógum á létta strengi,
enda var Birgir lífið og sálin í hveij-
um hópi.
Við sendum Hönnu, foreldrum
Birgis og bræðmm hans okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Björn, Halldór, Gunnar,
Steindór, Emil, Ragnar,
Pálmar, Sigurgeir, Ólafur
og Marinó.
Birgir Grétarsson er fallinn frá.
Horfinn. Samt verður hann alltaf
hjá okkur. Hann gaf okkur svo mik-
ið af sjálfum sér, hafði svo mikil
áhrif á okkur, að þótt hann sé ekki
verður hann samt alltaf.
Söknuður er hlutskipti kennarans.
Að þurfa að lokinni hverri vinnulotu
að kveðja og sjá á bak flestum sam-
verkamönnunum getur verið erfítt.
Einstaka sinnum hefur þó tekist vin-
átta milli mín og nemanda þrátt
fyrir múra hinna ólíku hlutverka.
Þá múra sem og aðra múra milli
fólks braut Birgir Grétarsson. Ég
varð þeirrar gæfu aðnjótandi að
hafa Birgi sem nemanda og bindast
honum einnig vináttuböndum.
Birgir Grétarsson var í flestu til-
liti óvenjulegur maður. Hann hafði
til að bera þá mannkosti, hæfileika
til hugar og handar, atorku og kraft,
sem mjög fáum er gefið. En okkur
hinum var dýrmætastur hæfileiki
hans til að gefa af sjálfum sér. A.f
öllu þessu sem hann hafði til að
bera gaf hann ótæpilega okkur sem
fengum að vinna með honum ótæpi-
lega.
Birgir virtist alltaf vera í góðu
skapi, alltaf brosandi, og það smit-
aði svo út frá sér að öllum leið vel
í návist hans. Glaðværð og kátína
fylgdu honum hvar sem hann fór.
Ef hann fékk áhuga á einhveiju
tókst honum alltaf að geisla þessum
áhuga svo til félaga sinna að þeir
hrifust með. Svo mikill var áhugi
hans og þeirra félaga á eðlisfræði
að á Vakningardögum, þegar hefð-
bundið skólastarf er brotið upp, vildu
þeir fá að vinna að eðlisfræðilegum
verkefnum. í þijá daga unnu þau
síðan að sérstökum verkefnum og
býr skólinn enn að þeirri vinnu. Eft-
ir að skóiavistinni Iauk hélt þessi
hópur saman, hádegisverðarídúb-
burinn hefur stækkað og hittist
reglulega. Þar var Birgir hrókur alls
fagnaðar án þess þó að stela sen-
unni frá öðrum.
Birgir lagði metnað sinn í allt sem
hann tók sér fyrir hendur. Metnaður
hans var að skila miklu verki og
góðu og oft fannst manni sem hann
hefði færst of mikið í fang og hefði
of mörg jám í eldinum. En með ein-
stökum krafti og vinnuþreki skilaði
hann alltaf sínu verki þó það þýddi
að stundum yrði hann að vinna
hvíldarlítið sólarhringum saman.
Slík var ábyrgðartilfinning hans.
Þessara hæfileika Birgis naut ekki
síst leikfélag Flensborgarskólans.
Birgir Grétarsson hefur verið tek-
inn frá okkur. Það sem hann gaf
okkur af sjálfum sér verður hins
vegar aldrei frá okkur tekið. Hann
var okkur fordæmi um það hvemig
við getum gert þennan heim betri.
Enginn veit það betur en þú, Hanna
Björk. Þið Birgir áttuð marga vini.
Við emm öll hjá þér.
Eggert Lárusson
í dag kveðjum við góðan vin okk-
ar, Birgi Grétarsson, sem lést eftir
harða baráttu upp á líf og dauða
þar sem maðurinn með ljáinn hafði
betur. Okkur þykir mjög sárt að
kveðja Birgi fyrír fullt og allt, í
blóma lífsins og þá sérstaklega þeg-
ar framtíðin var svo björt.
Á þessari sorgarstund koma upp
í hugann minningar um góðar sam-
verustundir, til dæmis þorrablótin
okkar og útilegur á sumrin, þar sem
gleðin og samstaðan var ávallt
ríkjandi. Birgir var sannur vinur vina
sinna og var hann alltaf tilbúinn að
rétta hjálparhönd þegar þannig stóð
á.
Það em aðeins ijórar vikur síðan
við samglöddumst einu pari úr hópn-
um þegar það gekk í hjónaband og
hver hefði trúað því þá að næst þeg-
ar hópurinn kæmi saman þá væri
það við útför eins okkar. Elsku
Hanna okkar, við vonum að góður
Guð gefí þér og ófæddu barni ykkar
styrk til að ganga í gegnum þessa
þungu raun. Við vottum þér og öðr-
um aðstandendum okkar dýpstu
samúð.
Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við
vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst
um í fari hans, getur orðið þér Ijósara í fjar-
veru hans, eins og flallgöngumaður sér
fyallið best af sléttunni."
(Úr Spámanninum eftir Kahlil Gibran.)
Halla, Óskar, Hrafnliildur,
Tommi, Didda, Pétur, Marta,
Valli, Inga Dóra, Ingi, Fanney,
Bárður, Aslaug, Þröstur, Júlla,
Jón og Brynhildur.
Slys gera ekki boð á undan sér,
og oft er eins og reiðarslagið falli
þar sem síst skyldi. I dag er Birgir
Grétarsson borinn til grafar, tvítug-
ur efnismaður sem hafði alla burði
til að lifa lífinu á farsælan hátt og
útilokað var annað en að spá glæstri
og gæfuríkri framtíð. En þá féll
höggið mikla, það hörmulega slys
sem nú hefur dregið hann til dauða.
Birgir var í fjögur ár nemandi í
Flensborgarskólanum og lauk þaðan
stúdentsprófi vorið 1986. Strax sem
nýnemi vakti hann athygli mína fyr-
ir einarða og þó kurteisa framkomu
og ótvíræða forystuhæfileika. Hann
var árinu yngri en flestir aðrir ný-
nemar, en þó virtist hann á margan
hátt standa framar að þroska, ekki
aðeins þeim heldur einnig mörgum
sem enn eldri voru. Hann var góður
námsmaður og sóttist námið vel, en
gaf sér þó tíma til að sinna mörgu
öðru um leið. Hann var afar félags-
lyndur og átti mörg áhugamál og
var því frá fyrstu tíð mjög virkur í
félagslifí nemenda og gegndi þar
ýmsum trúnaðarstörfum. Meðal
annars átti hann sæti í skólastjórn
fyrir hönd nemenda síðasta ár sitt
í skólanum og leysti þau störf af
hendi með mikilli prýði eins og ann-
að sem hann tók að sér. Hann var
einarður talsmaður umbjóðenda
sinna, ef því var að skipta, en um
leið sanngjam og fylgdi því einu sem
hann taldi sjálfur réttast hveiju
sinni.
Eftir að Birgir lauk stúdentsprófi
kom hann iðulega í heimsókn í skól-
ann til að spjalla við gamla kennara,
fá hjá þeim ráðleggingar og láta
vita hvemig gengi á nýjum náms-
vettvangi. Hann var jafnan aufúsu-
gestur, bæði vegna þeirrar tryggðar
sem þetta sýndi við skólann, en þó
enn frekar vegna hans sjálfs, vegna
þess hve skemmtilegur og gefandi
gestur hann var. En nú hefur snögg-
Kveðjuorð:
Guðmundur Benedikts
son á Barði íFljótum
Sælir eru dánir, þeir sem í Drottni deyja...
Þeir skulu fá hvíld frá erfíði sínu,
því að verk þeirra fylgja þeim.
(Op. Jóh. 14.13)
I dag verður til moldar borinn frá
Barðskirkju í Fljótum móðurbróðir
minn, sr. Guðmundur Benediktsson,
er varð bráðkvaddur sunnudaginn
25. október síðastliðinn á heimili
sonar síns og tengdadóttur á Voga-
braut 32 á Ákranesi.
Við fráfall hans streyma minning-
amar fram í hugann og allar eru
þær á einn veg, stafa frá sér fegurð
og birtu. Hér er elskulegt ljúfmenni
kvatt, sá glaði og góði drengur geng-
inn, sem hamingja var að eiga
samleið með á lífsveginum og njóta
návista við. Hann var gæddur þeim
fágætu eiginleikum að géta ævin-
lega hýrgað og glatt samferðamenn
sína, svo að tilveran fékk á sig bjart-
ara yfirbragð eftir en áður, svo
eðlislæg og smitandi var glaðværð
hans og góðvild. Sjálfan mig tel ég
hafa orðið að betri manni við að
kynnast honum, og eignast hann að
uppáhaldsfrænda og hollvini og
margir munu geta tekið undir þessi
orð, því að Guðmundur var hvers
manns hugljúfi og öllum þótti vænt
um hann, er höfðu af honum per-
sónuleg kynni. Því ríkir nú söknuður
í hugum fjölskyldu hans, ættingja
og vina, er hann er horfínn úr sam-
ferðahópnum, en fyrst og fremst
skipar þó þökkin til Guðs öndvegi í
hjörtum okkar fyrir að hafa gefíð
okkur hann að samferðamanni og
vini. Það lán fáum við, sem kynnt-
umst mannkostum hans seint full-
þakkað. „Þar sem góðir menn fara
eru Guðs vegir.“
Guðmundur Benediktsson var
Húnvetningur að ætt og uppruna.
Hann fæddist hinn 6. apríl árið 1901
á Hrafnabjörgum í Svínadal í Aust-
ur-Húnavatnssýslu og var því á 87.
aldursárinu er hann lést. Foreldrar
hans voru þau hjónin Benedikt Jó-
hannes Helgason, bóndi á Hrafna-
björgum, ættaður frá Eiðsstöðum í
Blöndudal og kona hans, Guðrún
Ólafsdóttir frá Guðrúnarstöðum í
Vatnsdal, en hún var alsystir Guð-
mundar Ólafssonar bónda og al-
þingismanns í Ási í sömu sveit.
Guðmundur missti föður sinn um 7
ára aldurinn og ólst síðan upp með
móður sinni meðal annars um nokk-
urt skeið í Ási hjá móðurbróður
sínum og konu hans og var þar þá
samtíða móður minni, sem þar ólst
upp.
Á skólaárunum vann hann oft í
Ási yfir sumartímann og hafði með
höndum um skeið bústjóm á búi
frænda síns. Þannig kynntist hann
öllum algengum sveitastörfum og
var hinn vaskasti maður til allra
verka, í senn kappsfullur og sam-
viskusamur.
En hugur hans stóð til mennta
lega verið bundinn endir á þessar
heimsóknir. Nú eru það minningam-
ar og minningin sem einar verða
eftir.
Við fráfall Birgirs Grétarssonar
hefur horfíð af sjónarsviðinu óvenju
efnilegur ungur maður. Við söknum
hans öll sem af honum höfðum ein-
hver kynni. Mestur er þó eðlilega
söknuður þeirra sem honum stóðu
næst. Fyrir eigin hönd og fyrir hönd
Flensborgarskólans votta ég þeim
dýpstu samúð á erfiðri stundu.
Kristján Bersi Ólafsson
Fyrstu viðbrögð okkar við fráfall
Bigga voru djúp sárindi og reiði yfir
óréttlæti lífsins. Maður skilur ekki
ráðstöfun almættisins að kalla burtu
svo ungan og þróttmikinn dreng sem
var rétt að byija líf sitt. í reiðinni
missir maður trúna, en veit um leið
að einmitt á slikri stundu er þörfín
fyrir hana mest.
Við höfðum ekki þekkt Bigga
nema í fáein ár, en samt átt með
honum svo margar góðar stundir.
Við fundum í honum góðan dreng
sem verða mundi samferðamaður í
gegnum lífið. Og ekki er langt síðan
við sátum með Bigga og fleiri vinum
undir hól við Klaustur og nutum
náttúrunnar og lffsins. Við gleymd-
um okkur við spjall, skoðunarferðir
og leiki sem gáfu baminu í okkur
lausan tauminn.
Biggi var afkastamikill námsmað-
ur, aðeins tvítugur og kominn í
háskóla. Eftir eitt ár í verkfræði
ákvað hann að fresta námi um hálft
ár til að fá betur undirbúið komu
bamsins þeirra Hönnu. En þegar
draumur um líf er að verða að vem-
leika knýr dauðinn skyndilega dyra.
Eftir stöndum við máttvana og smá,
en getum ekki annað en dáðst að
þreki Hönnu að takast á við svo
miskunnarlausan vemleika.
Tuttugu ár er em ekki langur tími
og síst til að fylla heila mannsævi.
Á stuttri ævi tókst Bigga samt að
skilja eftir sig spor, líf og ljúfa minn-
ingu. Þó ævi okkar hinna verði ef’
til vill lengri er ekki líklegt að við
munum og lokum gera betur.
Í minningunni sjáum við Bigga
brosandi og lífsglaðan, til staðar þar
sem eitthvað var að gerast í hópi
vina.
Guð styrki þig áfram, elsku
Hanna okkar, að takast á við það
sem framundan er. Guð tekur og
Guð gefur. Við hlökkum til að sjá
bamið ykkar komið í heiminn. Guð
veri með foreldmm Bigga og bræðr-
um og fjölskyldum ykkar beggja.
Obba og Freyr
og því hóf hann nám norður á Akur-
eyri og lauk þar stúdentsprófi vorið
1928. Var hann í hópi fyrstu stúden-
tanna, er brautskráðust frá Mennta-
skólanum á Akureyri en þeir vom
þá aðeins 5 er prófi luku. Guðmund-
ur hóf síðan nám við guðfræðideild
Háskóla Islands og lauk þaðan emb-
ættisprófi 23. júlí þá um sumarið
og fékk veitingu fyrir Barðspre-
stakalli 7. desember það sama ár.
Á skólaárunum' eignaðist Guð-
mundur marga góða félaga og vini,
en hann hélt tryggð við og góðu
sambandi þótt árin færðust yfir.
Glaðlyndi hans og spaugsemi,
hógværð hans og velvildarhugur
áttu ekki hvað sístan þátt í því, hve
vel honum varð til vina.
Mönnum leið svo vel í nærvem
hans. Glaðværðin geislaði af honum
og fáir munu þeir vera, er vom
fundvísari en hann á hið broslega í
tilvemnni og gátu nýtt sér það á
græskulausari og saklausari hátt en
hann.
Árið 1932 kvæntist Guðmundur
Guðrúnu Jónsdóttur frá Kimbastöð-
um í Borgarsveit í Skagafirði. Var
hún einstök gæðakona og var það
eitt stærsta lífslán Guðmundar að
eignast hana að lífsfömnaut. Þeim
hjónum var 5 barna auðið, en misstu
eitt þeirra, dreng, Ármann Bene-
dikt, nokkurra mánaða gamlan árið
1942 af völdum lungnabólgu. Börnin
þeirra önnur em öll á lífi, en þau
em: dr. Guðmundur efnaverkfræð-
ingur, tæknilegur framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðjunnar á Akranesi,
kvæntur þýskri konu, Hildi Guð-
mundsdóttur og eiga þau 3 böm,
Jón Björgvin, fulltrúi við Ríkisendur-
skoðun, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Ásu Stefánsdóttur og eiga