Morgunblaðið - 04.11.1987, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 04.11.1987, Qupperneq 61
61 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 Hrafnhildur Guð- jónsdóttir - Minning Fædd 23. apríl 1930 Dáin 8. október 1987 Móðir okkar Haddy Friðriksson, fædd Hrafnhildur Guðjónsdóttir, lést 8. október 1987 á Eisenhower Memorial-sjúkrahúsinu í Palm Springs í Kalifomíu. Hún var 57 ára. Við hlið hennar voru böm hennar, Berglind, Friðrik Rúnar og Gunnar, einnig eiginmaður hennar og besti vinur, Guðni Karl Friðriks- son. Hrafnhildur lést úr krabbameini eftir nokkurra vikna legu á sjúkra- húsinu. Hún var með meðvitund fram undir það síðasta og minntist af ástríki allra þeirra er reyndust henni vel á lífsleiðinni. Margir vinir hennar, íslendingar og Bandaríkja- menn, heimsóttu hana í veikindum hennar. Síðustu orð hennar vom blessunaróskir og ástarkveðjur til sonar hennar og bróður okkar, Gísla Grétar Gunnarssonar, sem býr með fjölskyldu sinni í Reykjavík. Hrafnhildur var dóttir Guðrúnar Einarsdóttur og Guðjóns Pétursson- ar, en ekki varð af frekari samvem þeirra. Elskuleg amma okkar ól Hrafnhildi upp frá barnæsku, en síðar dvaldist hún á heimili Guð- jóns, föður síns, um tíma, þá ung stúlka. Þegar Hrafnhildur var 17 ára giftist hún Gunnari B. Gíslasyni og eignuðust þau saman tvo syni; Gísla Grétar, árið 1949, og Gunnar, árið 1950. Þau slitu samvistum eftir nokkurra ára hjónaband. Eftir skilnað þeirra Gunnars gift- ist Hrafnhildur Guðna K. Friðriks- syni og áttu þau saman tvö böm. Friðrik Rúnar, árið_ 1955, og Berg- lind, árið 1960. Árið 1957 fóm Hrafnhildur og Guðni með drengina Gunnar og Friðrik til Vancouver í Kanada, en Gísli varð eftir hjá föð- Minning: Fæddur 2. júlí 1898 Dáinn 21. október 1987 Með fáeinum orðum vil ég minnast móðurbróður míns, Jakobs Þorsteinssonar. Jakob ólst upp í heimahúsum í stómm systkinahóp. Eins og þá var til siðs fór hann snemma að vinna fyrir sér. Á yngri ámm stundaði hann sjóróðra á opnum bátum við ísafjarðardjúp. Foreldrar Jakobs vom Þorsteinn Gíslason, bóndi og sjómaður frá Borg, og kona hans, Jóhanna María Jóhannesdóttir. Böm þeirra vom Jóhannes, Hafliði, Mikkalína, Gísli, Jakob, Kristjana, Guðjón og Marí- as. Jakob kveður síðastur systkina sinna. Jakob kvæntist 12. júlí 1924 Friðgerði Torfadóttur frá Hattar- dal. Friðgerður átti þá tvö böm, Alfreð Sigurðsson sem ólst upp á heimili þeirra, en hann andaðist 1965, og Guðrúnu Guðvarðardóttur sem ólst upp í Álftafirði, en hún býr nú ekkja í Eskihlíð 14. Þau FViðgerður og Jakob bjuggu sinn búskap á ísafirði. Friðgerður an- daðist árið 1943. Árið 1950 flutti Jakob til Reykjavíkur og hefur lengst af átt heima í Kirkjustræti 2. Hann tók þátt í starfi Hjálpræðis- hersins í Reykjavík. Jakob var sjómaður að atvinnu fratn eftir ámm, en eftir að hann kom til Reykjavíkur stundaði hann mest verkamannavinnu við höfnina. Jakob var ættrækinn, kynntist mörgum um sfna daga. Síðustu §ögur árin dvaldi Jakob á Hrafn- istu í Reykjavík. Þá var heilsa hans ur sínum og ólst upp með fjölskyldu hans. I Kanada var vemleg efnahags- kreppa á þessum ámm og átti fjölskyldan við ýmsa erfiðleika að etja í nýja landinu. íslenskur gjald- keri átti erfitt með að fá vinnu við sitt hæfi og stundaði aðallega vinnu við múrverk og trésmíðar. Guðni og mamma unnu langan og strang- an vinnudag á þessum ámm til að endar næðu saman. Fjölskyldunni vegnaði þó vel og smám saman batnaði hagurinn. Þau gátu keypt góðan bfl og lítið hús, krökkunum gekk vel í skólanum og margir góðir vinir vom stoð og stytta, þegar á reyndi. Það var mikið af íslendingum í Vancouver á þessum ámm og einnig íslensk kirkja og á heimili okkar komu oft íslenskir vinir til að rabba saman á kvöldin yfir kaffíbolla við eldhús- borðið. Mamma var kunn fyrir gestrisni og hafði ánægju af að umgangast fólk og veita aðstoð sína. Hún var að því leyti lík móður sinni. Árið 1959 varð þeim þó mjög erfítt og litlir atvinnumöguleikar urðu til þess að þau héldu aftur heim 1960. Það var löng ferð fýrir okkur fjögur, margra daga akstur með Greyhound-rútu frá Vancouver til New York-borgar, þar sem við vomm í nokkrar vikur áður en við fengum far með Goðafossi yfír Atl- antshafíð í febrúarmánuði. Gunnari varð ekki svefnsamt þar til hann sá landið rísa úr hafí. Skömmu eftir að við komum aftur heim til Reykjavíkur'fæddist elsku- leg systir okkar, Berglind. Nú hafði mamma loks eignast litlu telpuna, sem hún hafði svo lengi þráð, og var gleðin mikil í flölskyldunni. Þó var afkoman á íslandi ekki betri en ytra. Erfítt var að fá atvinnu farin að gefa sig. Hann naut mjög góðrar aðhlynningar á Hrafnistu og vil ég senda starfsfólki þar sér- stakar þakkir. Að leiðarlokum vil ég þakka fyr- ir samfýlgdina. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hijóta skalt. (Vald. Briem.) Guð blessi minningu Jakobs. Friðrik Friðriksson og kaupið var víst lágt. Húsnæði var erfítt að eignast og bjuggum við í mörgum leiguíbúðum, í Gnoð- arvoginum, Hvassaleiti og í Sörla- skjóli. Brátt kom í ljós að aim.k. fyrir okkar fyölskyldu voru fá tæki- færi í íslensku þjóðfélagi. Hugur mömmu og Guðna leitaði aftur yfír hafíð, en nú til Bandaríkjanna, þar sem allt virtist ganga betur. íslend- ingar höfðu komist frá Kanada til Kalifomiu og bréf þeirra og lit- myndir lýstu mikilli velmegun. Árið 1963 fékk fjölskyldan inn- flytjendaleyfí til Bandaríkjanna. Guðni og Friðrik fóru fyrst vestur um haf, en skömmu síðar fór mamma með Gunnar og Berglind litlu. Á flugvellinum stóð Guðrún amma með Gísla bróður okkar sér við hönd og þau veifuðu í kveðju- skyni. Eftir nokkrar vikur í New York flugum við öll til San Francisco. Það var blíður sumardagur er ijöl- skyldan ók frá flugvellinum í opnum bflum yfir Golden Gate-brúna til Marin-hrepps þar sem við bjuggum næstu 15 ár. Þó Guðni hefði lengst af starfað sem gjaldkeri sneri hann sér nú aðallega að húsamálningu til að sjá fjölskyldu sinni farborða. Með því að vinna langan vinnudag árum saman tókst honum að koma sér upp ágætu eigin fyrirtæki. Við gerðum það sem margir nútíma Islendingar í útlegð hafa gert í nýju landi, þ.e. öll fjölskyldan lagði fyrir fé og við keyptum lítið hús, endurbættum það og seldum innan árs með góðum hagnaði, keyptum stærra hús og höfðum sama hátt á uns nokkrum árum seinna að við eignuðumst mjög stórt hús í San Rafael með sundlaug og öllu því sem amerískt velferðarríki hefur upp á að bjóða. Mamma hafði kynnst amerísku þjóðlífí vel og hún vissi að við bömin ættum kost á betri skólum ef við byggjum í góð- um hverfum og hún sá til þess að svo yrði. Hún var mjög ákveðin í skoðunum og fylgin sér. Á síðari árum, þegar krakkamir voru farnir að heiman, fluttu Guðni og mamma til Palm Springs, í Suð- ur-Kalifomíu. Þau keyptu sér glæsilegt hús þar og þeim vegnaði vel. Undanfarin ár höfðu þau hjón- in tvisvar tækifæri til að fara heim til íslands í heimsókn og Gísli bróð- ir okkra kom líka seinni árin með fyölskyldu sína í heimsókn til þeirra í San Rafael. Það var mömmu mik- ið gleðiefni að geta endumýjað sambandið við Gísla son sinn eftir öll þessi ár. Guðni, eftirlifandi eiginmaður Hrafnhildar, mun búa enn um sinn í Palm Springs í Kalifomíu, en hef- ur sýnt áhuga á að flytja aftur til íslc.nds á komandi árum. Berglind er tannlæknanemi og vinnur á tann- læknastofu í Freemont, Norður- Kalifomíu, maður hennar er William Petmcci, tölvufræðingur. Friðrik er giftur Cindy Miller, sem er hjúkrunamemi, og eiga þau tvö böm, fimm ára telpu, Heidi Rae, og tveggja ára dreng, Lukas Leif. Friðrik stundaði nám í líffræði við Califomia State University og eftir fímm ára dvöl í Alphine í Texas- fylki við rannsóknir á Peregrin- fálkanum fyrir Chicuahuan Desert Research Institute hefur hann ný- lega sett á stofn eigið fyrirtæki í landslagsarkitektúr í Santa Rosa í Norður-Kalifomiu. Gunnar hefur gráður í hagfræði frá University of Califomia og frá The Graduate Faculty of the New School for Social Reserch í New York-borg, hann var aðstoðarpró- fessor í hagfræði við ríkisháskóla í Montana- og Colorado-fylkjum í fjögur ár og vann þar áður sem hagfræðingur fyrir Cheyenne-indí- ánaþjóðina í Montana í nokkur ár. Gunnar býr nú í New York þar sem hann vinnur við hagfræðirannsókn- ir. Gísli Grétar er giftur Unni Bimu Magnúsdóttur, snyrtifræðingi, og eiga þau níu ára son, Magnús Geir. Gísli nam húsasmíði og síðan byggingafræði í Kaupmannahöfn. Gísli er eigandi teiknistofunnar Kvarða í Reykjavík og gefur hann út ársritið Húsbyggjandinn. Guðrún, móðir Hrafnhildar, sem bjó lengi á Laugavegi 81 í Reykjavík og vann í Félagsprent- smiðjunni, býr nú í vistheimilinu Seljahlíð í Reykjavík. Börnin í Ameríku. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hiýhug við andlát eigin- konu minnar, móður og fósturmóður okkar, ömmu og langömmu, AÐALHEIÐAR ÁRNADÓTTUR frá Vestmannaeyjum, Kleppsvegi 118. Sérstaklega þökkum við laeknum og starfsfólki á deild 3 á Vifils- staðaspítala fyrir frábæra umönnun í langvarandi veikindum hennar. Ágúst Bjarnason, Birgir Sigurðsson, Jóna Kristjánsdóttir, iris Sigurðardóttir, Hafsteinn Ágústsson, Hörður Ágústsson, Margrét Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum samúð og vináttu vegna andláts og jarðarfarar, HELGAJ. HALLDÓRSSONAR fyrrverandi kennara, Vatnsholti 8. Guðbjörg Guðbjartsdóttir, Sigrún Helgadóttir, Ari Arnalds, Guðný Helgadóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Áslaug Helgadóttir, Jörgen H. Jörgensen, NicholasJ.G. Hall og barnabörn. Við þökkum samúð og + hlýhug við andlát og útför föður okkar. tengdafööur og afa, INGÓLFS GUÐMUNDSSONAR Helga Ingólfsdóttir, frá Lómatjörn. Sigurjón Þórhallsson, Alda Ingólfsdóttir, Jóhann Jóhannsson og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jaröarför, KRISTINS JÓHANNS ÁRNASONAR sklpstjóra. Freyja Jónsdóttir, Auðunn Kristinsson, Árni Kristinsson, Gunnar B. Árnason, Magnús Fr. Árnason. Lokað verður miðvikudaginn 4. nóvember vegna jarðarfarar BIRGIS GRÉTARSSONAR. Vélsmiðjan Klettur hf., Hafnarfirði. Lokað vegna jarðarfarar BARÐA GUÐMUNDSSONAR í dag miðvikudaginn 4. nóv. Blóm og kerti. Lokað vegna jarðarfarar BARÐA GUÐMUNDSSONAR í dag miðvikudaginn 4. nóv. Hlölla bátar. Jakob Þorsteins- son frá Borg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.