Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 67

Morgunblaðið - 04.11.1987, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987 67 Konur Til Velvakanda. Dag nokkum árið 1924 þusti hópur unglingsstúlkna upp þrönga stigana sem liggja áð áheyrenda- pöllum Alþingis. Þær voru komnar til þess að hlusta á ræðu einu kon- unnar sem fram til þess tíma hafði setið Alþingi íslendinga sem lqorinn þingmaður. Hún hét Ingibjörg H. Bjamason. Þama stóð hún í ræðu- stólnum, virðuleg, hnarreist og glæsileg og flutti mál sitt skýrum rómi. — Við vissum að sumir þing- menn áttu það til að tala til hennar með rustaskap og þursalegu við- móti. Þó var bót í máli að hún gat öðlast stuðning hjá forsætisráð- herra, því rólega prúðmenni og vitmanni Jóni Magnússyni. Það var hann sem að lokum rak endahnút- inn á sjálfstæðismálið með samn- ingunum 1918. En mikið fannst okkur samt þessi eina kona vera einmana. Vei þeim eina, stóð í Prédikaranum. Varla hefur nokkurri okkar á þessari tíð dottið í hug að við ættum eftir að sjá á annan tug kvenna slá ljóma og lit yfir sali hins háa Al- þingis. En svona er nú loksins komið og mátti satt að segja ekki seinna a Alþingi vera. Þó að svo fámennri þjóð sem íslendingar eru veitir sannarlega ekki af að sérhver þegn fái tæki- færi til að gera þjóð sinni það gagn sem frekast má. Árum saman hefir mátt lesa í blöðum fréttir af náms- árangri skólafólks. Þar hafa stúlkur oft raðað sér í efstu sætin ár eftir ár. Maður hefír spurt: Hvað varð um allar þessar duglegu og gáfuðu stúlkur? Lengi vel sagði fátt af þeim, en skólabræður þeirra tóku forystu í þjóðlífinu, þótt lærdómsaf- rekin væru ekki alltaf í besta lagi. Sá skemmtilegi tími sem við nú lifum gefur færi á að horfa við og við í sjónvarpinu beint inn á Al- þingi. Yfírleitt munu deilur þing- manna vera með rólegra yfírbragði en gerðist fyrr á öldinni. Tilkoma kvennanna sýnir þó stundum nokkum mun á því hvort það eru karlar sem deila hver við annan eða hvort þeir tala til kvenn- anna. Sem sé, þegar karlar eru á öndverðum meiði þá tala þeir í lá- réttri línu til andstæðingsins, þeir standa líkingalega séð á sama palli. En þegar þeir deila við konu þá ligg- ur línan nærri lóðrétt, konan virðist standa á lægri palli. Þó era margir þingmenn prúðir í reiði sinni, sem betur fer flestir. En samt sér maður „rastikusinn" og þursann reka upp hausinn við og við. Hér er alls ekki átt við tilfínn- ingamanneskjuna, sem berst af eldmóði fyrir máli sínu og það jafn- vel svo að hún á erfítt með taumhaldið á ríkum skapsmunum. Þess háttar manngerð fylgir ekki þursaskapur. Frægasta dæmi um slíkar eldsálir er gamli Benedikt Sveinsson sýslumaður. Hann kvað hafa þeytt af sér gleraugunum út í sal, tárast svo sem hrykki hagl- kom af vöngum, og loks stokkið út og hent hurðum. Þessi maður er talinn vera almesti mælskumaður sem á Alþingi hefur setið. En hann var ekki í hinum leiðinlega og drýldna þursaflokki. Það hlægir mig I elli minni að sjá og heyra flokk hinna gáfuðu og vitru kvenna sem nú loksins hefur útrýmt einmanaleikanum sem umlukti fyrstu þingkonumar. Svo kvað Einar Benediktsson: Vort land er í dögun af annarri öld. Nú ris elding þess tíma, sem fáliðann virðir. Sigurveig Guðmundsdóttir ÓKEYPIS BÆKLINGUR Starfsframi, betri vinna, betri laun Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum starfsf rama og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón- ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskó!ann! Líttu á listann og sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír- teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö ÓKEYPIS BÆKLING sendan íflugpósti. (Setjið kross í aðeins einn reit). Námskeiöin eru öll áensku. □ Tölvuforritun □ Ratvirkjun □ Ritstörf □ Bókhald □ Vélvirkjun □ Almennt nám □ Bifvólavirkjun □ Nytjalist □ Stjórnun fyrirtœkja □ Garóyrkja □ Kjólasaumur □ Innanhúa- arkitektúr □ Stjórnun hótela og veitingastaöa □ Blaóamennska □ Kœlitsakni og loftræsting Nafn: Heimílisfang:.......................... ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High Street, Sutton, Surrey SM11PR, England. m m m m m-m mmmmmmummmmmummmmmmmmmummm Jakkar og terelynekápur Ný sending af ullarjökkum í mörgum litum. Verð kr. 4.500,- Terelynekápur verð kr. 3.800,- Úlpur loðfóðraðar með hettu, verð kr. 3.800,- Kjólar í fjölbreyttu úrvali, verð frá kr. 1.600,- Dalakofinn, Linnetstíg 1, Hafnarfirði, sími 54295. tungumál eða stærðfræði? 5 vikna námskeið hjá Mími gefa þér tækifæri til að bæta árangurinn. Skólinn verður skemmtilegri og prófin engin hindrun. 9. nóv. — 10. des. tvisvar í viku. Upplýsingar og innritun í s. ma 10004/21655/11109 i r IÁNANAUSTUM 15H X' ■f J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.