Morgunblaðið - 04.11.1987, Síða 72
ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA
1 GuÓjónÓ.hf.
1 / 91-2 7233 |
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
V erzlunarmanna-
félag Reykjavíkur:
Rættum
vaktir
VIÐRÆÐUR þafa átt sér stað
milli Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur og forráðamanna
verslunarhússins Kringlunnar,
þar sem félagið hefur kynnt hug-
myndir um vaktaf yrirkomulag þjá
afgreiðslufólki. Til þessa hafa við-
ræðumar verið bundnar við
Kringluna, en Magnús L. Sveins-
son, formaður verzlunarmanna-
félagsins, bjóst við að yrði af
frekari viðræðum yrðu þær við
Vinnuveitendasamband íslands.
Samkvæmt nýjum reglum um opn-
unartíma verslana í Reykjavík, sem
gengu í gildi um síðustu mánaðamót,
er lejffilegt að hafa verslanir opnar
- alla daga til klukkan 22 nema sunnu-
daga.
Magnús sagðist hafa lagt fram til-
lðgu þess efnis að fólk hefði frí einn
virkan dag í viku auk sunnudagsins
og sjöttu hverja helgi frí á laugar-
degi, sunnudegi og mánudegi. Þetta
fyrirkomulag hefði gefist nokkuð vel
í Þýskalandi.
„Við leggjum áherslu á að það
verði samið um vaktafyrirkomulag,
sem tryggi skikkanlega lengd vinnu-
tfma afgreiðslufólks og að það búi
við visst öryggi við það að eiga tvo
H* frídaga í viku, eins og aðrar stéttir,"
sagði Magnús L. Sveinsson.
Forseti Júgó-
slavíu stadd-
ur hérlendis
Forseti Júgóslaviu, Lazar Mojsov,
kom í einkaflugvél sinni til
Reykjavíkur klukkan 23:30 í gær-
kvöldi. Forsetinn, sem er á
heimleið eftir opinbera heimsókn
til Mexíkó og Kúbu, gisti í nótt á
Hótel Sögu. Hann gengur á fund
Vigdísar Finnbogadóttur forseta
_ íslands klukkan 11 i dag en heldur
síðan af landi brott.
í för með forseta Júgóslavíu eru
varaforseti landsins, Milos Milosavljo-
evic og utanríkisráðherrann Raif
Dizdarevic, auk átta embættismanna.
Morgunblaðið/Þorkell
F.inn háhyrninganna hífður úr gáminum, sem hann hafðist við i á leiðinni frá Seyðisfirði, inn í hús Sædýrasafnsins í Hafnarfirði.
Guðlaugur Bjamason fylgist með að allt gangi samkvæmt áætlun.
Sædýrasafnið í Hafnarfirði:
Háhyrninganna gætt dag og nótt
FJÓRUM háhymingum var í gær komið fyrir í húsi Sædýrasafns-
ins í Hafnarfirði, en þangað vora þeir fluttir á tveimur flutn-
ingabílum frá Seyðisfirði. Bíða dýrin nú þess að eiganda þeirra,
fyrirtækinu Faunu, takist að finna erlenda kaupendur. Oryggis-
gæsla verður í Sædýrasafninu dag og nótt meðan dýrin verða
hýst þar, en af samtölum Morgunblaðsins við þá, sem að þessu
stóðu, mátti ráða, að þótt enginn vildi kannast við hótanir var
greinilegt að menn töldu ástæðu til að hafa allan vara á.
Flutningalestin lagði af stað frá
Seyðisfirði klukkan 17 á mánudag
og var syðri leiðin ekin til Hafnar-
Qarðar í einni 20 tíma lotu. Tvö
dýr voru í sérhönnuðum gámi á
hvorum bíl og höfðu sjö menn
þann starfa að fylgjast með líðan
háhyminganna á leiðinni. Helgi
Jónasson, formælandi Faunu,
sagði að fenginn hefði verið er-
lendur sérfræðingur til að und-
irbúa ferðalagið og útbúa gámana
sem dýrin vom flutt í og einnig
yrði haft gott eftirlit með heilsu
dýranna meðan á dvölinni í Sæ-
dýrasafninu stæði. „Við höfum
fengið bæði innlenda og erlenda
sérfræðinga til að annast þann
þátt,“ sagði Helgi.
Að sögn Helga em öll dýrin enn
óseld og óvíst hvenær, hvemig eða
hvert þau verða flutt en hann
kvaðst bjartsýnn á að fljótlega
takist að selja þau öll enda hefur
Fauna gert viðskiptasamning við
kanadíska aðila, sem verða fyrir-
tækinu innan handar við að finna
kaupendur og _ganga fiá sölu-
samningum. Aætlað söluverð
hvers dýrs segir Helgi Jónasson
vera 4-5 milljónir króna.
Fjórhjólamenn teknir fyrir ólöglegan akstur í Elliðaárdalnum
Bifreiðaeftirlit ríkisins:
160 fjórhjól óskráð
TÆPLEGA 160 fjórhjól hafa
ekki verið skráð hjá Bifreiðaeft-
irliti ríkisins, því samkvæmt
innflutningsskýrslum vom 883
fjórhjól flutt inn fyrstu átta mán-
uði ársins, en hjá bifreiðaeftirlit-
inu hafa 725 t\jól verið skráð á
þessu ári.
Verulega virðist véra að draga
úr áhuga á fjórhjólum hér á landi
og til marks um það var aðeins eitt
~ ^ slíkt flutt inn í ágúst sl. Samkvæmt
skýrslum lögreglu hafa 12 slys orð-
ið vegna fjórhjóla á þessu ári, flest
alvarleg, en gmnur leikur á að þau
hafi verið mun fleiri, vegna þess
að hjólin em ekki öll skráð og slys-
in verða flest utan alfaraleiðar.
Einnig leikur gmnur á að ökumenn
þeirra séu ekki allir með réttindi,
en til þess að stjóma fjórhjólum
þarf að minnsta kosti skellinöðm-
próf, en aldurstakmark til þess er
15 ár.
Byggðastofnun býður líf-
eyrissjóðunum skuldabréf
Hyggst geyma peningana í bönkum og sparisjóðum á iandsbyggðinni
STJÓRN Byggðastofnunar sam-
þykkti í gær að bjóða lífeyrissjóð-
um og öðrum skuldabréf til 3, 6
eða 9 ára með 8,2—9% vöxtum.
Er þetta liður í innlendri láns-
fjáröflun stofnunarinnar á þessu
ári. Jafnframt ákvað stjómin að
stofnaðir verði tékkareikningar
hjá nokkmm bönkum og spari-
sjóðum á landsbyggðinni og láta
viðskipti stofnunarinnar á við-
komandi svæði renna sem mest
þar í gegn.
Skuldabréfin sem Byggðastofn-
un býður lífeyrissjóðum og öðmm
em verðtryggð með lánskjaravísi-
tölu og endurgreiðast í einu lagi.í
lok lánstímabilsins. Vextir af
þriggja ára láni em 9%, af sex ára
láni 8,7% og níu ára láni 8,2%. Á
níu ára bréfinu er gagnkvæmt upp-
sagnarákvæði eftir 6 ár með 6
mánaða fyrirvara.
Vextir af spariskírteinum ríkis-
sjóðs em nú 8—8,5% og lífeyrissjóð-
imir fá 7% vexti hjá Húsnæðisstofn-
un vegna skuldabréfakaupa á
næsta ári. Bjami Einarsson aðstoð-
arforstjóri Byggðastofnunar segir
að vaxtakjör taki mið af því sem
gengur og gerist hjá ríkinu. Ekki
hafí verið ætlunin að keppa við
ríkissjóð. Hann segir að Byggða-
stofnun hafi verið gert að Qár-
magna 255 milljónir kr. innanlands
á árinu en sagðist ekki reikna með
STJÓRN Byggðastofnunar sam-
þykkti á stjómarfundi á þriðju-
dag að verða við beiðni frá
Slippstöðinni á Akureyri um lán
til að smíða tvö 200 tonna skip,
sem ekki hefur verið samið um
sölu á, en reiknað er með að
að það markmið næðist að fullu.
Bjami sagði að tilgangurinn með
að stofna tékkareikninga úti á landi
væri að dreifa þeim peningum sem
Byggðastofnun ætti á hveijum tíma
út um landið. Til dæmis væri ætlun-
in að geyma á viðkomandi svæði
peningana sem fást að láni með
sölu skuldabréfa til lífeyrissjóða úti
á landi, þar til þeir verða notaðir
til útlána.
verði seld síðar í stað annarra,
sem úreldast.
Mun Byggðastofnun lána allt að
30 milljónir króna til hvors þeirra,
en Landsbanki íslands hefur sam-
þykkt að veita lán fyrir allt að 65%
af kostnaðarverði skipanna.
Slippstöðin á Akureyri:
Fær lán til að smíða skip