Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
C 9
Fjórða
bíndí fhig-
annála
komið út
ÚT ER komið fjórða hefti Anná-
la íslenskra flugmála, sem
Arngrímur Sigurðsson hefur
skrásett.
I heftinu eru skráðir annálar þriggja
ára, 1936 til 1938, en áður eru
annálar áranna 1917-1936 komnir
út í þremur heftum. íslenska flug-
sögufélagið gefur fjórða heftið út,
en fyrri heftin gaf bókaútgáfa
Æskunnar út.
Fjórða bindið hefst á stofnun
Svifflugfélags íslands, en félagið
var stofnað í Reykjavík 10. ágúst
1936. í bókinni er að finna allt, sem
ritað var um flug frá þeim degi til
ársloka 1938.
Bókin er 190 blaðsíður og prýdd
Fyrsta bók
í nýjum
bókaflokki
SUÐRI hefur gefið út söguna
Huldumaður eftir Palma Har-
court.
Huldumaður eftir Palma Har-
court er fyrsta bókin í nýjum
bókaflokki sem nefnist Spennusög-
ur Suðra.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Huldumaður segir frá Hugh
Merryck, sem er fénginn til að graf-
ast fyrir um dvalarstað Austur-
Þjóðverja, sem flúði til Vestur-
Evrópu. Mikið er í húfi. Lausn
gátunnar kemur lesandanum á
óvart þegar rás atburðanna rís sem
hæst og spennan er sem mest.“
María og
Margrét
eftir De-
forges
ísafold hefur sent fiá sér bókina
María og Margrét eftir frönsku
skáldkonuna Régine Deforges í
þýðingu Sigurðar Pálssonar skálds.
Sjö gömul póstkort, fundin hjá
fombókasala í byijun aldarinnar í
smábæ í Suður-Frakklandi, gáfu
Régine Deforges hugmyndina að
skáldsögunni María og Margrét.
Bókin fjallar um ástríðufullt sam-
band tveggja kvenna, samband sem
hefði getað svipt þær heimilum
sínum — jafnvel gert þær útlægar
— hefði það uppgötvast.
Bókin er í kiljuformi 146 bls. að
stærð.
Andvari 1987
kominn út
rúmlega 200 myndum og teikning-
um. Kápumynd er af TF-ÖRN,
fyrstu flugvél Flugfélags _ Akur-
eyrar, forvera Flugfélags íslands
og síðar Flugleiða.
ANDVARI fyrir árið 1987, tíma-
rit Bókaútgáfu Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins, er kominn
út.
Aðalgrein Andvara er æviágrip
Ólafs Jóhannessonar fyrrum for-
sætisráðherra (1913—1984) eftir
Ingvar Gfslason ritstjóra, fyrrum
menntamálaráðherra, en annað efni
ritsins er: Þijú ljóð eftir Þuríði
Guðmundsdóttur, Skapandi tryggð
eftir Ástráð Eysteinsson, Gljáin eft-
ir Baldur Óskarsson, í leit að eigin
spegilmynd eftir Matthías Viðar
Sæmundsson, íslensk orðmyndun
eftir Baldur Jónsson, Guðsmenn og
grámosi eftir Gunnar Krisjánsson,
Lífemislist og lítið eitt fleira eftir
Siguijón Bjömsson, Um heimsá-
deilu og stráksskap eftir Véstein
Ólason, Jónas frá Hriflu og upphaf
Framsóknarflokksins eftir Helga
Skúla Kjartansson og Jónas Guð-
laugsson eftir Harry Saiberg.
Ritstjóri Andvara er Gunnar
Stefánsson bókmenntafræðingur.
Þetta er 112. árgangur ritsins sem
er að þessu sinni 171 bls. að stærð,
prentað í Prenthúsinu.
lólaojafir barnanna
Kermit, Svínka, Andrés Öi
Mikki Mús og Mína dansa
hvaða lag, sem er, söng eð
Dásamlegir dansfélagar
Jolaverð 1.980.- kr
pegar Bangsi Bestaskinn
syngur og talar. hreyíir hann
augun og
Bestaskinn, besti vmur alira
bama.
Jólaverð 4.900,- kr.
■
SKIPHOLTl 19
SÍMI29800