Morgunblaðið - 13.12.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
C 19
Morgunblaðið/Þorkell
Rafn Stefánsson afgreiðir viðskiptavini í Fiskbúðinni Sæbjörg í
Dunhaga.
söluskatti á físki. Hann sagði að
svo virtist sem aðgerðir ríkisstjóm-
arinnar beindust að því að auka
sölu á fjallalambi. Læknar legðu
þó áherslu á að breyta þurfí neyslu-
venjum fólks og hvetji það til að
neyta hollustufæðis, þar á meðal
físks. Nú væri aftur á móti lagður
hár söluskattur á þessa hollu fæðu
og á sama tíma væri kjöt greitt
niður. Hann bætti því við að þessar
aðgerðir kæmu helst niður á lág-
launafólki og þá aðallega öldruðum,
sem hefðu margir hveijir ekki efni
á kaupa kjöt og margir þeirra væru-
þar að auki hættir að geta borðað
það.
Rafn sagði ennfremur að svo
gæti farið að svindlað verði á sölu-
skattinum, til að mynda gætu
mötuneyti tekið upp á því að kaupa
físk án þess að greiða söluskatt.
Helgi Helgason, verslunarmaður í
Fiskverslun Hafliða Baldvinssonar,
var hins vegar á þeirri skoðun að
söluskatturinn myndi skila sér í
ríkissjóð. Hann sagði hins vegar að
ef til vill væri raunhæft að leggja
8% söluskatt á físk en 25% væri
alltof há skattlagning. Hann benti
á að á sama tíma og gert sé ráð
fyrir að dilkakjöt hækki ekki, og
annað kjöt aðeins um 10-15%, væri
fískur gerður að munaðarvöm.
Hann taldi að sala á öllum fískteg-
undum myndi minnka, að minnsta
kosti fyrst um sinn. Hann sagði þó
að ekki væri vist að þessi skattlagn-
ing tæki gildi og hann taldi ekki
útilokað að áformin um söluskatt á
matvæli væm aðeins lögð fram til
að ríkisstjómin hefði eitthvað að
semja um í komandi kjarasamning-
um.
Eins og í Þýskalandi
í stríðinu
Fisksalamir vom sammála um
að líklega hefði fólk almennt ekki
enn gert sér grein fyrir hversu
mikla hækkun væri hér um að ræða.
Ingunn Jónsdóttir, viðskiptavinur í
Fiskverslun Hafliða Baldvinssonar,
var á sama máli og sagði í stuttu
samtali við Morgunblaðið að yegna
vinnu sinnar hefði hún ekki haft
tíma til að fylgjast með umræðunni
um söluskatt á matvæli, en þegar
físksalinn tjáði henni að ýsan myndi
hækka upp í 300 krónur kílóið sagði
hún að það væri alltof mikil hækk-
un. Hún sagðist þó ekki gera ráð
fyrir að hætta að kaupa físk eftir
hækkunina.
Viðskiptavinur í Fiskbúðinni
Sæbjörg sagði að fískur væri það
sem þjóðin lifi á og hækkunin bitni
helst á fátæka fólkinu sem hefði
ekki efni á að borða físk og yrði
að borða kjöt. Hann hefði oft séð
ellilífeyrisþega tína til smápeninga
upp á búðarborðið og biðja físksal-
ann um dálítið minna flak til að
peningamir dygðu.
Elísa Tómasson var sammála
þessu og sagði að peningar ellili-
feyrisþega dygðu varla þótt þeir
væm alltaf að reyna að kaupa það
allra ódýrasta. Hún sagði að ekki
myndi ástandið batna ef lagður
yrði söluskattur á matvæli og hún
lýsti ástandinu sem hörmung. Hún
hefði aldrei upplifað annað eins og
þó hefði hún búið í Þýskalandi á
stríðsámnum. Þá hefði verið skort-
ur á vömm en ekki hefði vantað
peninga til að kaupa þær. Nú væri
aftur á móti nægar vömr en skort-
ur á peningum. «
OPNUM
ÞER DYR AÐ NYRRIVEROLD
Með auknum viðskiptum og þarafleiðandi hagstæðari
samningum við hin ýmsu flugfélög heimsins, getum við
boðið viðskiptavinum okkarýmis ódýr sérfargjöld tii fjar-
lægari staða.
Við höfum á að skipa starfsfólki með áralanga reynslu í skipulagningu ferða til
fjarlægari staða. í Austurlöndum fjær bjóðum við alla almenna ferðaþjónustu í
samvinnu við eina virtustu og stærstu ferðaskrifstofuna þar. Hvort sem þú ert
að fara í viðskiptaerindum eða einkaerindum þá líttu við og láttu okkur skipu-
leggja fyrir þig ferðina. Hótel, flug, bílaleigubílar, skoðunarferðir o.fl. Örugg og
fyrsta flokks þjónusta okkar nær alla leið.
Hér á eftir eru nokkur dæmi um ódýr
sérfargjöld er við bjóðum víðs vegar um
heim:
EVRÓPA - JÓLAFARGJÖLD
Reykjavík-Glasgow-Reykjavík 14.040,-
Reykjávik-London-Reykjavík 16.150,-
Reykjavík-Osló-Reykjavík 18.490,-
Reykjavík-Gautaborg-Reykjavík 18.630,-
Reykjavík-Kaupm.höfn-Reykjavik 18.790,-
Reykjavík-Stokkhólmur-Reykjavík 21.440,-
AUSTURLÖND FJÆR
Bangkok 45.820,-
Singapore 49.770,-
Hong Kong 52.450,-
Tokyo 54.230,-
Seoul 69.210,-
HongKongogTaipeisaman 70.060,-
SUÐUR AMERÍKA
Rió 54.230,-
BuenosAires 56.300,-
ÁSTRALÍA
Sydney 82.680,-
Við bjóðum einnig hina vinsælu
DELTA PASSA innan Bandaríkjanna
Reykjavík-New York-Los Angeles-
New York-Reykjavik 30.630,-
Reykjavik-New York-Bahamas-
NewYork-Reykjavík 38.030,-
Reykjavík-New York-Alaska-
NewYork-Reykjavík 38.030,-
Reykjavík-New York-Hawaii-
New York-Reykjavik 41.730,-
Reykjavík-New York-Mexico City-
NewYork-Reykjavík 38.410,-
Þetta eru aðeins örfá dæmi um samsetningu.
UMHVERRS HEIMINN Á 30 DÖGUM
Þarf aðeins að bóka fyrstu tvö flugin,
ótakmarkað stopp 111.670,-
pr.gengi og verð á flugi 27.11 '87.
Suðurgata 7
sími 624040