Morgunblaðið - 17.12.1987, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
Fanginn og dómarinn
Þáttur af Sigurði skurði og Skúla
sýslumanni eftir Asgeir Jakobsson
BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá í
Hafnarfirði hefur gefið út bók-
ina Fanginn og dómarinn -
Þáttur af Sigurði skurði og Skúla
sýslumanni eftir Ásgeir Jakobs-
son.
Fanginn og dómarinn er saga
um fiskimann vestur á Fjörðum,
sem var grunaður af almenningi
um manndráp. Rannsóknardómar-
inn, sem fékk mál hans til með-
ferðar, kastaði höndum til
rannsóknarinnar og tók manninn
fastan að vilja almennings og beitti
hann harðýðgi til játningar. Stjóm-
völd hófu útaf því málarekstur gegn
rannsóknardómaranum og sá mála-
rekstur blandaðist sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar á þessum tíma um
aldamótin og varð hitamál með
þjóðinni. Dómarinn notaði sakaða
manninn til vamar sér sem „al-
ræmdan illræðismann" og vísan
morðingja og hafði þar með sér
almenningsálitið, sem ekki þekkti
alla málavöxtu og taldi dansklund-
uð stjómvöld nota þennan morð-
ingja til að klekkja á rannsóknar-
dómaranum, sem var ákafur
þjóðfrelsismaður. Framhaldsrann-
sókn í máli hins sakfellda leiddi í
ljós, að enginn gmndvöllur var fyr-
ir málssókn gegn honum og málið
aldrei tekið til dóms, og maðurinn
því hvorki dæmdur né sýknaður og
almenningur lifði áfram í þeirri trú
að maðurinn væri morðingi, sem
ekki væri hægt að sanna á sök eða
eins og það var orðað: „Varla sá
maður í landinu, sem ekki taldi
hann morðingja," og svo er enn,
því að enn er málið á döfinni; skrif-
aðar um það bækur og samin um
það leikrit og trúlega væntanleg
kvikmynd og enn gengið út frá því
sama í allri umfjöllun að maðurinn
hafi verið morðingi, sem ekki sann-
aðist á sök.
ÁSCEIR
JAKOBSSON
Síðara bindi Heimsmynd-
ar á hverfanda hveli
ÞATTURAF
SICURÐI SKURÐI
OG SKÚLA
SÝSLUMANNI
SKUCCSJÁ
Fanginn og dómarinn er bók
skrifuð til að sýna að maðurinn var
algerlega saklaus af morðákærunni
og það hafí verið sök dómarans, sem
fékk málið í upphafí til rannsóknar,
að morðingjanafnið festist á mann-
inn með þjóðinni og í stað þess að
sýkna manninn strax greip dómar-
inn til þess óyndisúrræðis að nota
hann sem vfsan morðingja í mála-
rekstri sínum og baráttu við stjóm-
völd.
Fanginn og dómarinn er 240 bls.
að stærð. Bókin var sett og prentuð
í Prisma, Hafnarfírði, en bundin í
Bókfelli. Kápu gerði Auglýsinga-
stofa Þóru Dal, Hafnarfirði.
(Fréttatilkynning)
ÚT ER komið hjá Máli og menn-
ingu síðara bindi af verki
Þorsteins Vilhjálinssonar eðlis-
fræðings, Heimsmynd á hverf-
anda hveli.
_ í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í fyrra bindinu var fjallað um
heimsmynd vísinda frá öndverðu til
Kópemikusar, en hér er haldið
áfram þar sem frá var horfíð og
þróuninni fylgt fram yfír daga New-
tons. Sagt er frá trúvillingnum
Gíordanó Brúnó sem predikaði sól-
miðjukenninguna á ofanverðri 16.
öld og fjallað um danska stjömu-
fræðinginn Týchó Brahe og Þjóð-
veijann Jóhannes Kepler og
kenningar þeirra. ítarlegast er sagt
frá merkilegum æviferli Galileó
Galileis, vísindaafrekum hans og
útistöðum við Páfagarð en loks
víkur sögunni að Isaac Newton sem
fullkomnaði byltingu Kópemikusar
með aflfræði sinni. Frásögnin dreg-
ur glöggt fram tengsl vfsinda við
þjóðfélag og almenna sögu.“
Þetta síðara bindi Heimsmyndar
á hverfanda hveli er 419 bls. að
stærð, prýtt fjölda mynda og skýr-
ingarteikninga. Teikn hannaði kápu
og Prentsmiðjan Oddi prentaði.
Bók um sorg og sorg-
arviðbrögð gefin út
ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Bros hf. hef-
ur gefið út bókina Þegar ástvin-
ur deyr eftir C.S. Lewis í þýðingu
sr. Gunnars Björnssonar.
í kynningu frá útgefanda segir:
„Bókin fjallar um sorg og sorgarvið-
brögð. Höfundur hugleiðir sorgina,
trúna, ástina, lífíð og tilveruna í
TIL VALIN JÓLAGJÖF
tilefni af dauða eiginkonu sinnar. í
sorg sinni lendir höfundur í miklum
andlegum þrengingum gagnvart
öllu umhverfí sínu og tilvem og
hann velur þann kostinn að kryfja
sjálfan sig til mergjar í andlegum
skilningi. Bókin er einstakur vitnis-
burður um uppgjör einstaklings á
þeim andlegu þrengingum sem
mörgum reynast svo erfíðar við frá-
fall ástvinar."
KÚLULJÓS
kr. 957,-
KRINGLUNNI -SiMI (91)685868
Læknis-
ráð, Eriks
Miinsters
VASAÚTGÁFAN hefur gefið út
1. bindið af Læknisráðum Eriks
MUnsters, sem er læknir í Dan-
mörku og skrifar fasta pistla í
Ekstrablaðið og Familie Journal.
í fyrsta bindi, sem Vasaútgáfan
sendir frá sér, er fjallað um kvef,
vetrarslen og allskonar smitsjúk-
dóma, sem einkum hijá mannfólkið
á vetuma.
Ifyrsta bindi læknisráða er 192
bls. og skiptist í 35 kafla með mynd-
um og skýringartextum. Þorsteinn
Thorarensen íslenskaði með ráðgjöf
Eydísar Svanbjamardóttur. Bókin
er prentuð í Samprenti hjá Nör-
haven í Vébjörgum.
VIGDIS GRIMSDOTTIR
kaldaljós
„Kaldaljós er óöur til fegurðar, trúnaðar,
grimmdar, óvenjulega margslungin saga, saga ást-
ar og dulúðar og þó raunsæis. Unnin af mikilli list.
Henni skal ekki líkt við neitt.“
Jóhanna Kristjónsdóttir Morgunblaðinu
„Þessi skáldsaga Vigdísar er án efa eitt athyglis-
verðasta skáldverk sem jólabókaflóðið færir okkur
í ár... hér er ósvikið listaverk á ferðinni."
Soffía Auður Birgisdóttir Helgarpóstinum.
Svartáhvítu
Jólamessa
á snældu
SNÆLDA með upptöku á jóla-
messu er fáanleg f Kirkjuhúsinu
en nokkuð er um að þeir sem
hyggjast veija jólunum erlendis
hafi spurst fyrir um upptöku á
jólamessu á Biskupsstofu.
í frétt frá Biskupsstofu segir að
ýmsir vilji einnig senda vinum og
ættingjum erlendis slíka snældu.
Snældan geymir aftansöng sem
sjónvarpað var á aðfangadagskvöld
fyrir nokkmm ámm. Það er Dr.
Sigurbjöm Einarsson sem predikar
og kór Menntaskólans við
Hamrahlíð sem annast sönginn
undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdótt-
ur.