Morgunblaðið - 17.12.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
pltfgl Útgefandi mltlftfcffr Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoöarritstjórl Björn Bjarnason.
Fulltrúar rltstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Batdvin Jónsson.
Rltstjórn og skrifstofur: Aöalstrætl 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Askrlftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 55 kr. eintakiö.
Stöðugleiki
skiptir mestu
Að mörgu leyti eru horfur
í efnahagsmálum okkar
íslendinga ískyggilegar, þeg-
ar horft er til næsta árs. Það
er samdóma álit sérfróðra
manna, að komið sé að lokum
þess tímabils góðæris, sem
ríkt hefur um tveggja ára
skeið. Gengisfall Bandaríkja-
dals veldur verulegum erfíð-
leikum í útflutningsatvinnu-
vegum okkar, hugsanlegt er
talið, að fískverð fari lækk-
andi og gert er ráð fyrir
minni þorskafla á næsta ári
en þessu.
Þjóðhagsstofnun telur, að
viðskiptahallinn í ár verði
töluvert meiri en áætlað
hafði verið og fyrirsjáanlegur
er mikill halli á viðskiptum
við útlönd á næsta ári. Af
þessum ástæðum öllum er
töluvert um það rætt, hvort
hægt verði að halda óbreyttu
gengi íslenzku krónunnar.
Þar að auki eru kjarasamn-
ingar lausir um áramót og
blikur á lofti í þeim efnum.
Það er umhugsunarefni,
að við ráðum litlu, sem engu,
um flesta þá þætti í efna-
hagsmálum okkar, sem valda
erfíðleikum nú. Við ráðum
að sjálfsögðu engu um geng-
isþróun Bandaríkjadáls.
Raunar er það skoðun virtra
flármálablaða, að ríkisstjóm-
ir Bandaríkjanna og annarra
helztu iðnríkja heims ráði
heldur engu um það, hvemig
gengi Bandaríkjadals þróist,
markaðurinn sjálfur sé
öflugri. Við ráðum litlu um
þróun fískverðs á útflutn-
ingsmörkuðum okkar. Það
er augljóst, að við höfum
spennt bogann svo hátt í
fískverði, að gamlir við-
skiptamenn leita nú leiða til
þess að nota annan físk en
íslenzkan físk. Þeir, sem bezt
þekkja til á útflutningsmörk-
uðum, telja að verðlækkun á
físki geti verið í aðsigi.
Við ráðum heldur engu um
olíuverð á heimsmörkuðum.
En fyrir tveimur árum varð
verðhrun á olíu til þess að
gjörbreyta ástandi og horf-
um í íslenzku efnahagslífí á
örfáum vikum en þá kom
einnig til sögunnar hækkandi
fískverð og lækkandi vextir
á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum. Síðustu daga hafa
ítrekaðar fréttir borizt um,
að nýtt verðhrun á olíu geti
verið á næsta leiti. Þótt olían
hafí lækkað eitthvað að und-
anfömu, kemur það tæpast
í ljós fyrr en á næstu vikum
og jafnvel mánuðum, hvort
um raunverulegt verðfall á
olíu verður að ræða. Fari svo
breytir það hins vegar mjög
aðstöðu útgerðarinnar til
þess að búa við óbreytt gengi
og hefur margvísleg jákvæð
áhrif önnur á efnahag okkar
og atvinnulíf.
Sumir sérfræðingar í
Bandaríkjunum spá því, að
Bandaríkjadalur eigi enn eft-
ir að falla í verði um 10-30%.
Reynslan hefur sýnt, að spár
svonefndra sérfræðinga eru
sjaldnast mikils virði. Hitt
er alveg ljóst, að áframhald-
andi verðfall á Bandaríkjadal
mundi vega upp á móti hugs-
anlegri verðlækkun á olíu í
okkar efnahagskerfí.
Kjami málsins er hins veg-
ar sá, að við erum svo háðir
ytri aðstæðum, Islendingar,
í efnahags- og atvinnumál-
um, að við getum í raun litlu
ráðið um það, hvort við búum
við góðæri eða stríðum við
erfíðleika. Tilhneigingin er
hins vegar rík til þess að
gera út á góðærið og helzt
fyrirfram. Meðan svo er
munum við búa við miklar
sveiflur í okkar efnahag.
í eina tíð litu menn svo
á, að öllu skipti, að gengið
væri „rétt“ skráð, hvað svo
sem í því hugtaki felst. Síðan
kom óðaverðbólgan til sög-
unnar og þá beindist öll
athygli að því að ráða niður-
lögum hennar. Nú er svo
komið, að þjóðin hefur
reynslu af þvi að búa við
nokkum stöðugleika. Afleið-
ingin er sú, að stöðugleiki í
efnahagslífínu er nú mikil-
vægara markmið í hugum
margra atvinnurekenda en
t.d. „rétt“ gengi. Við þurfum
að halda þannig á málum
næstu mánuði, að þessi stöð-
ugleiki haldist.
Morgunblaðið/Theodór
Leikendur frá Þjálfunarskólanum, Stjömugróf, flytja iátbragðleikinn
„Síðasta blómið“. F.v.: Pétur Johnson, tæknimaður, Ingibjörg Amadótt-
ir, Sigfús Svanbergsson, Ingveldur Ólöf Ragnarsdóttir og Gunnar
Gunnbjörnsson.
Úr leikþættinum „Sólin og vindurinn", f.v. Sigfús Svanbergsson, Ing
björg ÁjTiadóttir, Þorbjörg Guðlaugsdóttir, Hildur Davíðsdóttir, Hildt
ikarsdóttir og Birgitta Harðardóttir.
Innlifun og einbeitni
Borgarnesi
LEIKHÓPUR frá Þjálfunar-
skólanum Stjörnugróf í
Reykjavík sýndi tvo leikþætti á
tíu ára afmælishátíð Þroska-
hjálpar Vesturlands sem haldin
var á Hótel Borgaraesi.
Leikhópurinn flutti verkin „Sólin
og vindurinn" og „Síðasta blóm-
ið“. Sýndu leikendumir mikla
innlifun og einbeitni við flutning
þessara þátta og fognuðu áhorf-
endur þeim vel og innilega. Að
sögn Péturs Johnson, tæknimanns
og blaðafulltrúa leikhópsins, hefur
hópurinn flutt þessa leikþætti við
ýmiss tækifæri. Leikstjóri hópsins
var Sigríður Eyþórsdóttir og tóku
eftirtaldir leikendur þátt í sýning-
unni: Birgitta Harðardóttir,
Gunnar Guðbjömsson, Hildur
Davíðsdóttir, Hildur Óskarsdóttir,
Ingibjörg Amadóttir, Ingveldur
Ólöf Ragnarsdóttir, Sigfús Svan-
bergsson og Þorbjörg Guðlaugs-
dóttir.
- TKÞ
Ályktun um bjórmálið frá 133 læknum:
Ekkí ástæða til að ætla að íslenska
þjóðin missi fótfestuna í áfengis-
málum þó leyfð verði sala bjórs
NÝLEGA birtist í Morgunblaðinu áskorun nokkurra
prófessora við læknadeild Háskóla íslands til þing-
manna um bjórfrumvarp það sem nú liggur fyrir
Alþingi. í áskorun þessari er gefið í skyn, að sam-
þykkt frumvarpsins muni ieiða til mikillar aukningar
áfengisneyslu í landinu og margvíslegra vandamála
sem tengjast ofdrykkju. Þar sem svo er að skilja, að
þessi áskorun sé birt í nafni læknastéttarinnar, viljum
við undirritaðir sjúkrahúslæknar og heimilislæknar
benda á eftirfarandi:
Það er ekki verið að takast á um,
hvort áfengisneysla á íslandi verði
leyfð eða ekki. Það hefur hún verið
og verður um fyrirsjáanlega
framtíð. Það er því um að ræða,
hvort leyfa eigi mildasta form
áfengra drykkja, en ekki eingöngu
þau sterkustu. Hvergi er að finna
vísbendingar um, að neysla bjórs
sé skaðlegri heilsu manna en aðrar
tegundir áfengis. Sú skoðun að
bjómeysla muni alfarið bætast ofan
á aðra neyslu er órökstudd, og
benda einu hliðstæður erlendis til
þess að heildameyslan muni lftið
breytast, að því tilskildu, að bjór
verði seldur á sama hátt og annað
áfengi. Þá er líklegt að neyslan
beinist frekar að veikari drykkjum
og frá þeim sterkari. Að áliti al-
þjóðaheilbrigðisstofiiunar eru
virkustu ráð, til að stjóma heildar-
neyslu, markviss verðstýring og
takmörkun dreifíngar, en ekki bann
á einstökum tegundum.
Ýmsar rannsóknir benda til að
samband heildameyslu og Ifkam-
legra og félagslegra afleiðinga
ofdrykkju sé ekki eins einfait og
gefið er í skyn í ályktun prófess-
oranna. Nýlega birtist í Læknablað-
inu faraldsfræðileg rannsókn um
skorpulifur á íslandi, þar sem
greinilega er sýnt fram á, að tíðni
skorpulifrar hefur minnkað á sama
tfma og heildameysla áfengis í
landinu hefur vaxið. Svipuð þróun
virðist hafa átt sér stað í Banda-
rfkjunum á undanfömum árum. Þá
er einnig ljóst, ef litið er til faralds-
fræðilegra rannsókna, að lítið
samband er milli heildameyslu
áfengis og Qölda drykkjusjúkra.
Þannig er hlutfall drykkjusjúkra
svipað á íslandi og f Bandaríkjunum
þrátt fyrir mun meiri neyslu þar.
Hlutfall drykkjusjúkra er og svipað
á íslandi og í Svíþjóð og Noregi, en
í þeim löndum er bjór leyfður með
líku fyrirkomulagi og fyrirhugað
er hér á landi.
Við undirritaðir teljum því ekki
ástæðu til að ætla, að fslenska þjóð-
in muni missa fótfestuna í áfengis-
málum, þó leyfð verði sala bjórs í
áfengisútsölum.
Arnaldur Valgarösson, Reykási 1, Rvk.,
Atli Dagbjartsson, Máinabraut 8, Kóp.,
Ami Bjðmason, Bl&túni 4, Beaaast.hr.,
Ami Kriatinsaon, Kaplaskjólsvegi 62, Rvk.,
Ami T. Ragnarason, Vesturgötu 86b, Rvk.,
Arsæll Jónsson, Deildarísi 4, Rvk.,
Áageir Jónaaon, Markarflöt 29, Gbæ,
Ásgeir Karlsson, Hofsvallagötu 49, Rvk.,
Ásgeir Theodórs, Bleikjukvfsl 24, Rvk.,
Ástráður Hreiðarsson, Hofgörðum 26, Seltj.
Baldur Fr. Sigfósaon, Safamýri 19, Rvk.,
Bjami Hannesson, Lindarflöt 46, Gbæ,
Bjðm Árdal, Holtaseli 26, Rvk.,
Bjöm Júlíusson, Stóragerði 11, Rvk.,
Bjöm Magnússon, Blómvallagötu 10, Rvk.,
Bragi Guðmundsaon, Fjóluhv. 16, Hf,
Börkur Aðalsteinsson, Háaleitisbr. 96, Rvk.,
Daniel Guðnason, Sævarlandi 8, Rvk.,
Eggert Jóhannsson, Dynskógum 6, Rvk.,
Egill Jacobsen, Unnarbraut 9, Seltj.,
Einar Oddsson, Hrauntungu 85, Kóp.,
Einar Steingrlmsson, Granaskjóli 81, Rvk.,
Einar Thoroddsen, Þingholtsstr. 17, Rvk.,
Eirfkur Benjamínsson, Krfuhólum 2, Rvk.,
Eyþór Björgvinsson, Laugalæk 20, Rvk.,
Friðrik K. Guðbrandsson, Frostaskj. 82, Rvk.,
Friðþjófur Bjömsson, Skriðuseli 7, Rvk.,
Geir ólafsson, Álftamýri 36, Rvk.,
Gizur Gottskálksson, Holtabúð 5, Gbæ,
Gfsli Vigfússon, Háaleitisbraut 80, Rvk.,
Grétar Olafsson, Bergstaðastræti 62, Rvk.,
Grétar Sigurbergsson, Miðleiti 10, Rvk.,
Guðjón Baldursson, Skaftahlfð 14, Rvk.,
Guðjón Lámsson, Smáraflöt 49, Gbæ,
Guðjón Sigurbjömsson, Safamýri 16, Rvk.,
Guðmundur Benediktsson, SeOugranda 20, Rvk.,
Guðmundur I. Eyjólfsson, Lálandi 17, Rvk.,
Guðmundur F. Guðjónsson, Sæbraut 8, Seltj.,
Guðmundur B. Jóharmsson, Stuðlaseli 27, Rvk.,
Guðmundur M. Jóhannesson, Hjallaaeli 1, Rvk.,
Guðmundur Jónmundsson, Dalsbyggð 4, Gbæ,
Guðmundur Oddsson, Valiarbraut 12, Seltj.,
Gunnar A. Baarregaard, Brekkubæ 80, Rvk.,
Gunnar Biering, Geitlandi 8, Rvk.,
Gunnar H. Guðmundsson, Smáraflöt 18, Gbæ,
G. Snorri Ingimarsaon, Dalbraut 8, Rvk.,
Hafsteinn Sæmundsson, Breiðvangi 18, Rvk.,
Halldór Steinsen, Tjaraarflöt 11, Gbæ,
Haraldur Briem, Beykihlfð 83, Rvk.,
Haukur Ámason, Langholtsvegi 112B, Rvk.,
Hjalti A. Bjömsson, Drápuhlfð 84, Rvk.,
Hlédfs Guðmundsdóttir, Fellsmúla 7, Rvk.,
Hannes Finnbogason, Hlfðarbyggð 8, Gbæ,
Hjörtur Sigurðsson, Bergstaðastr. 68, Rvk.,
Hrafnkell Helgason, VffilBstöðum, Gbæ,
Hróðmar Helgason, Reynimel 62, Rvk.,
Hörður Beigsteinsson, Eiðistorgi 8, Selij.,
Höskuldur Baldursson, Hvassaleiti 129, Rvk.,
Ingimundur Gfslason, Rauðagerði 29, Rvk.,
Ingvar Kristjánsson, Mýrarási 9, Rvk.,
Jóhann Guðmundsson, Mávanesi 14, Gbæ,
Jóhann L. Jónasson, Hofteigi 8, Rvk.,
Jóhann Ragnarsson, Sjafnargötu 6, Rvk.,
Jóhannes Bjömsson, Tómasarhaga 46, Rvk.,
Jóhannes Gunnarsson, Þrastariundi 11, Gbæ,
John Benedikz, Bergstaðastræti 42, Rvk.,
Jón Þ. Hallgrfmsson, Búlandi 27, Rvk.,
Jón V. Högnason, Sörlaskjóli 16, Rvk.,
Jón Nfelsson, Selbraut 17, Seltj.,
Jón L. Sigurðsson, Fjólugötu 8, Rvk.,
Jón B. Stefánason, Geitlandi 1, Rvk.,
Jðnas Magnússon, Miðleiti 1, Rvk.,
Katrfn Fjeldsted, Hólatorgi 4, Rvk.,
Kjartan Magnússon, Hrfsmóum 1, Gbæ,
Kjartan Magnússon, Miðbraut 27, Seltj.,
Knútur Bjömsson, Hjallabraut 19, Hf.,
Kristinn Jóhannsson, Lindarseli 9, Rvk.,
Kristján Erlendsson, Vaðlaseli 12, Rvk.,
Kristján Eyjólfsson, Hringbraut 10, Rvk.,
Kristján Róbertsson, Breiðvangi 68, Hf.,
Kristján Sigurðsson, Hjallalandi 24, Rvk.,
Kristján Sigurjónsson, Kjartansgötu 10, Rvk.,
Kristján Steinsson, Laxakvfsl 27, Rvk.,
Leifur Bárðareon, Reynimel 26, Rvk.,
Magni Jónsson, Heiðarási 12, Rvk.,
Magnús Guðmundsson, Háaleitisbr. 86, Rvk.,
Magnús R. Jónasson, Hvassaleiti 70, Rvk.,
Magnús ólafsson, Stigahlfð 69, Rvk.,
Niels Chr. Nielsen, Hávallagötu 61, Rvk.,
ÓlafurömAmarson, Vfkurströnd 11, Seltj.,
Ólafur Einarsson, Helgubraut 11, Kóp.,
Ólafur Eyjólfsson, Öldutúni 8, Hf.,
Ólafur Bjamason, Geitlandi 17, Rvk.,
Ólafur Gunnlaugsson, Selvogsgr. 23, Rvk.,
Ólafur Jónsson, Hellulandi 4, Rvk.,
Óskar Ambjamareon, Hjarðarhaga 34, Rvk.,
Páll Ammendrup, Brautarási 16, Rvk.,
Páll Ásmundsson, Hvassaleiti 181, Rvk.,
Páll Eirfksson, Amartúni 17, Gbæ,
Páll Stefánsson, Hjallaseli 7, Rvk.,
Páll Þórhallsson, Hagamel 43, Rvk.,
Pétur Lúðvfgsson, Reynimel 86, Rvk.,
Reynir Tómas Geirsson, Safamýri 91, Rvk.,
Sigmundur Magnússon, Steinavör 4, Seltj.,
Sigurður Bjömsson, Bergstaðastr. 78, Rvk.,
Sigurður Guðmundsson, Álftamýri 69, Rvk.,
Sigurður Þ. Guðmundsson, Barðaströnd 1, Seltj.,
Sigurður V. Sigurjónsson, Markarfl. 28, Gbæ,
Sigurgeir Kjartansson, Langholtsv. 76, Rvk.,
Stefán Dalberg, Nesbala 60, Seltj.,
Stefán Jónsson, Prestbakka 11, Rvk.,
Stefán Carlson, Reyðarkvísl 18, Rvk.,
Stefán Ólafsson, Vfðimel 68, Rvk.,
Stefán Skaftason, Blikanesi 17, Gbæ,
Steinn Jónsson, Selbraut 12, Seltj.,
Svavar Haraldsson, Vogalandi 18, Rvk.,
Sævar Halldóreson, Vesturbrún 21, Rvk.,
Uggi Agnarason, Frostaskjóli 19, Rvk.,
Viðar Hjartaraon, Barðaströnd 47, Seltj.,
Viktor Sighvatsson, Barónsstfg 63, Rvk.,
Þóra F. Fisher, Sörlaskjóli 26, Rvk.,
Þorgeir Jónsson, Sunnubraut 29, Kóp.,
Þórarinn Amóreson, Suðurhólum 8, Rvk.,
Þórarinn ólafsson, Smáragötu 10, Rvk.,
Þórarinn Sveinsson, Hvassaleiti 88, Rvk.,
Þórður Sverrisson, Ægisfðu 92, Rvk.,
Þórir Helgason, Sunnuvegi 11, Rvk.,
Þórir Ragnarsson, Lundarbrekku 8, Kóp.,
Þorkell Bjamason, Fomuströnd 10, Seltj.,
Þorvaldur V. Guðmundsson, Vfðihv. 22, Kóp.,
Þráinn Rósmundsson, Þveráraeli 22, Rvk.,
Þröstur Laxdal, Háaleitisbraut 21, Rvk.,
öm S. Amaldsson, Sæbraut 19, Seltj.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
31
Óskir félaga á Suðumesjum um breytingar á kaupskrámefnd:
Fulltrúi Suðumesja-
manna sitji í nefndinni
ERINDI fundar trúnaðarmanna,
starfsfólks og starfsmanna stétt-
arfélaga starfsfólks varnarliðs-
ins um breytingar á kaupskrár-
nefnd, sem haldinn var á
mánudaginn var, verður sent í
dag til miðstjóraar ASÍ, félags-
mála- og utanrikisráðherra, að
því er Magnús Gíslason, formað-
ur Verslunarmannafélags
Suðuraesja, sagði f samtali við
Morgunblaðið i gær.
í erindinu er farið fram á það
við miðstjóm ASÍ að hún hlutist til
um eftirfarandi breytingar á kaup-
skrámefnd í samráði við þau
ráðuneyti, sem hafa með málið að
gera. I fyrsta lagi að skipan og
starfsaðferðum kaupskrámefndar
yrði breytt. í öðru lagi að fulltrúi
launþega í nefndinni sé á hveijum
tíma Suðumesjamaður í fostu starfí
á vegum launþegasamtakanna og
sé hann vel inn (kjaramálum starfs-
manna á vegum vamarliðsins. í
þriðja lagi að kaupskrámefnd verði
settar fastar starfsreglur til dæmis
um hámarkslengd á afgreiðslu
mála. í §órða lagi að fulltrúi frá
hverjum vinnuhópi, sem hefur lagt
mál fyrir nefndina, geti setið fundi
hennar og í fimmta lagi að verði
ágreiningur um afgreiðslu nefndar-
innar verði hægt að fara fram á
starfsmat eða skjóta málinu til
gerðardóms.
í bréfum til ráðherra utanríkis-
og félagsmála, segir að vegna
óánægju starfsmanna hjá vamarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli með
skipan og starfsaðferðir kaupskrár-
neftidir og viðbrögð starfsmanna-
halds vamarliðsins við ýmsum
málum á flugvellinum í gegnum
árin, sé farið fram á viðræður sem
fyrst við ráðuneytin. Hjálagt er sent
erindi fundarins til miðstjómar ASÍ.
Magnús sagði að ástæðan fyrir
því að bréfin yrðu ekki send fyrr en
í dag væri sú að ákveðið hefði ver-
ið að gefa fulltrúum tveggja félaga
kost á að skrifa undir erindið, en
nú væri ljóst að þau myndu ekki
gera það. Hann sagði að bréf frá
Asmundi Stefánssyni, forseta ASÍ,
til verkalýðsfélaga á Suðumesjum,
gæfi ekki ástæðu tíl þess að endur-
skoða málið. í erindi fundarins
væru reifaðar hugmyndir starfs-
manna og verkalýðsfélaga á
svæðinu, en auðvitað þyrfti að ræða
þessi mál nánar, því margt væri
óljóst. Mikið riði hins vegar á að
breytingar yrðu gerðar, því mikil
óánægja væri rfkjandi meðal starfs-
fólks á vellinum.
Bréf forseta ASÍ kom til Verslun-
armannafélags Suðumesja í gær.
Þar em reifaðar hugmyndir um
fjölgun í kaupskrámefnd og að
annar fulltrúi launþega sé fulltrúi
verkalýðsfélaganna á Suðumesjum
og viðstaddir fundi nefndarinnar
verði trúnaðarmaður félags sem
málið snerti og fulltrúi starfs-
mannahalds vamarliðsins.
Ásmundur Stefánsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að lengi
hefði rfkt mikil óánægja með fyrir-
komulag launaákvarðana þjá
vamarliðinu hjá starfsliði þess og
ýmsir aðilar hefðu rætt það við
hann, bæði af hálfu einstakra
verkalýðsfélaga og einstakra
starfshópa. Hann hefði reifað hug-
myndir um breytingar í samtölum
við ýmsa aðila á svæðinu og hefði
haft það í bígerð í nokkum tíma
að kanna hug félagana á Suðumesj-
um almennt. Samþykki fyrir því
hefði hann fengið á miðstjómar-
fundi ASÍ á fímmtudaginn í síðustu
viku.
Börnin fájólagrein að skilnaði
SKÓGRÆKTARFÉLAG
Reykjavíkur gengst fyrir jólatrés-
sölu, nú sem endranær, & athafna-
svæði sfnu á Fossvogsbletti,
skamrnt neðan við Borgarspítal-
ann.
Þar eru seldar allar helstu tegund-
ir jólatijáa sem á boðstólum hafa
verið hérlendis auk greina og úti-
kerta og er þá fátt eitt talið. Opið
er frá 8-21 alla daga fram til jóla.
Skógræktarfélagið hefur undan-
farið, í samvinnu við Hópferðir
Péturs, tekið á móti bömum frá dag-
heimilum og leikskólum 5 borginni.
Þar hefur þeim verið sýnd tré og
gróður og gefin jólagrein að skiln-
aði. Þegar sagt var frá þessu
framtaki í blaðinu í gær var talað
Morgunblaöíð/BAR
Magnús Magnússon garðyrkjufræðingur og Hólmfrfður Geirsdóttir
garðyrkjufræðingur leiðbeina viðskiptavinum um val á jólatrjám.
um Skógrækt ríkisins í stað Skóg- hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á
ræktarfélags Reykjavíkur og eru því.
Karpov á góða möguleika á sigri
Margeir Pétursson
Það var gtfurleg spenna f gær-
dag, alls staðar þar sem skák er
tefld, og henni létti sfður en svo
þegar næstsfðasta einvfgisskák
Karpovs og Kasparovs fór f bið f
Sevilla f gær. Eins og allir vita
er staðan f einvfginu jöfn 11-11
og þar sem Kasparov heldur
heimsmeistaratitlinum á jöfnu,
þarf Karpov sárlega á sigri að
halda. í gær fékk hann sitt sfðasta
tækifæri með hvftu mönnunum
og það nýtti hann sér vel, hann
hafði betra tafl allan tfmann og
' þegar skákin fór f bið voru vinn-
ingsmöguleikar hans mjög góðir.
Það er þó augfjóslega mikil bar-
átta eftir þar til vinningurinn er
tryggður, en sólarmerid f stöð-
»inni benda til þess að svo fari,
verði Karpov ekki á f messunni.
Stórmeistarar í Sevilla voru að
vfsu ekki á einu máli um biðstöð-
una, þegar kappamir stóðu upp ftá
skákboiðinu f gærkvöldi. „Staðan
er nokkum veginn í jafnvægi," sagði
Josif Dorfman, helsti aðstoðarmaður
Kasparovs. „Hvor er með betra? Ég
hef enga hugmynd um það,“ sagði
enski skákbókahöfundurinn Raym-
ond Keene við fréttamann Reuters
fréttastofunnar. Sovéski stórmeist-
arinn Tamas Georgadse, sem þjálfar
spænska landsliðið, sagði meiri lfkur
á sigri Karpovs, en hollenska stór-
meistaranum Hans Ree fannst að
Kasparov hefði frumkvæðið.
Þegar staðan er skoðuð nokkuð
ganumgæfilega kemur hins vegar f
ljós að þótt stórskotalið svarts viið-
ist vel staðsett nú, nær Karpov að
hrekja það á flótta með nákvæmum
tilfæringum f næstu leikjum og jafn-
framt nær hann að bæta eigin stöðu.
Þegar þessu er lokið koma nokkuð
hreinur Ifnur i stöðuna, biskup
I Karpovs er mun virkari en andstæð-
ings hans og peðastaðan þar að
auki miklu hagstæðari. í höndum
Anatoly Karpovs ættu þessir stöðu-
yfirburðir að nægja til vinnings.
Strax í upphafí skákarinnar í gær
var ljóst að nú yrði látið sverfa til
stáls. Karpov byrjaði strax á sál-
fræðilegum skæruhemaði er hann
hóf taflið með enskum leik, 1. c2-c4,
i fyrsta sinn i einvígjum sínum við
Kasparov, en heimsmeistarinn hefur
einmitt sjálfur komið á óvart með
því að notast við þá byijun sem aðal-
vopn sitt í þessu einvígi.
23. einvígisskákin:
Hvftt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
F.imki leikurinn
1. c4 — c6
Karpov hefur ekki svarað enska
leiknum á þennan hátt i einviginu,
heldur yfirleitt með 1. — e5.
2. Rf3 — Rf6 8. Rc3 - dB 4. cxd6
- Rxd6 6. d4 - Rxc8 6. bxcS -
g€ 7. e3
Eftir 7. e4 er komin upp vel þekkt
staða úr Gmnfeldsvöm, en Karpov
velur rólegri leið. Hann veit að skot-
grafahemaður á best við (núverandi
stöðu.
7. - Bg7 8. Bd8 - 0-0 9. 0-0 -
Dc7 10. Hbl — bG
Það er aldrei komið að tómum
kofunum hjá Kasparov i byijana-
fræðunum. Þetta er endurbót á skák
sovésku stórmeistaranna Tal og
Vaganjan á afmælismóti byltingar-
innar 1977, sem tefldist 10. — Hd8
11. De2 - Rc6?! 12. Be4 - e6 13.
dxc6 — h6 14. c4 og hvítur fékk
betri stöðu.
11. De2 - Hd8 12. Be4 - Ba6 13.
c4 —Rc614. d& - f615. Bd8 - e&
Kasparov hefur teflt af sfnum
venjulega léttleika og svar Karpovs
er þvingað, þvi 16. dxc6 — e4, 16.
Rg6 — e4 16. Bc2 - Hxd5 eða 15.
dxe6 — Rb4 em allt slæmir kostir.
16. e4 — Rd4 17. Rxd4 - cxd4
18. Bg6 - Hf819. Hfcl - Hac8T!
Þessi leikur er ónákvæmur, enda
leiðréttir Kasparov stöðu hróksins
þremur leikjum síðar. Mun eðlilegra
virðist 19. — Hf7 strax.
20. Bd2 - Hf7 21. a4! - fxe4
Eftir að svartur gefur á þennan
hátt eftir kröfur sinar um reitinn e4
er ljóst að hvfta staðan er þægi-
legri. Það skiptir ekki máli þótt
Karpov þurfi að drepa með drottn-
ingu á e4.
22. Dxe4 - Hcf8 23. f8 - Bc8 24.
a5 - Bf5 25. De2 - He8 26. Be4
- Bf8 27. Dd8 - Bc6 28. Hal -
Dd7 29. Hel - Dc8
Kasparov hefúr lagst í vöm og á
ekkert betra en að biða átekta eftir
færi. Staða hans er nokkuð traust,
en stóri gallinn er sá að svartreita-
biskup hans er óviricur.
30. Khl - Hc7 81. Habl - Kg7
32. Hecl
• b C d • I fl h
í þessari stöðu ákveður Kasparov
að taka af skarið og reynir að skapa
sér gagnfæri. Ástæða þess að hann
velur þetta augnablik til að skipta
upp á e4 er vafalaust sú að hvitur
getur ekki svarað með 33. Dxe4
vegna 83. — Ba8 84. Hel — bxa6
og svartur vinnur peð.
32. - Bxe4t? 38. fxe4 — Hf7 84.
Dg3 — bxa5
Aftur skiptir heimsmeistarinn upp
til að reyna að auka gagnfæri sin i
tfmahrakinu, en með þessu er hann
að taka mikla áhættu. í framhaldinu
vofa yfir honum tvö samstæð frfpeð
á c4 og d& og það er hugsanlegt
að með þessum uppskiptum hafi
hann endanlega brennt allar brýr
að baki sér.
36. Bxa6 - Hf4 36. Hel - D&6
37. Bd2 - Hf7 38. DdS - Hef8
39. h8 — Hf2 40. Hal - Df6
• b c d • f flh
Þetta er staðan sem allt veltur á
um það hvor verður heimsmeistari
fram til 1990. Karpov gaf sér góðan
tima fyrir biðleikinn, sem mér sýnist
að hljóti að veröa 41. Hglt, sem
hótar óþyrmilega 42. Bel og svartur
missir tök sin á f linunni. Karpov
hefur stöðulega yfirburði sem felast
í betri biskup hans og tveimur sam-
stæðum frípeðum á c4 og d5. Nái
hann þar að auki frumkvæðinu, sem
gerist t.d. með þvi að hann sölsi til
sín f línuna, þá eru litlar líkur á að
Kasparov geti varið svörtu stöðuna.
Vinni Karpov þessa skák þegar
hún verður tefld áfram í dag, má
búast við annarri álíka spennandi á
föstudaginn. Þá verður það Ka-
sparov sem á allt að vinna. Takist
heimsmeistaranum hins vegar að
hanga á jafntefli, er fremur ólíklegt
að Karpov nái að vinna aiðustu skák-
ina á svart.