Morgunblaðið - 17.12.1987, Síða 53
MORGUNBLAÐE), FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987
Minning:
Guðrún Ragna
Guðmundsdóttir
Fædd 13. febrúar 1921
Dáin 6. desember 1987
Fermingarsystir, vinkona og
frænka er dáin. Andlát hennar bar
snöggt að enda þótt vitað væri að
hún gengi með ólæknandi sjúkdóm.
Guðrún var fædd á Snæfoksstöð-
um í Grímsnesi þar sem foreldrar
hennar bjuggu um ára bil. Stuttu
eftir fermingu fluttist hún með for-
eldrum sínum að Læk í Hraungerð-
ishreppi. Átján ára fór hún á
Héraðsskólann á Laugarvatni og
var þar einn vetur. Ekki varð af
lengri skólagöngu þrátt fyrir mikla
námshæfileika. Næst fór hún til
Hafnarfjarðar og lærði þar kjóla-
saum.
Fundum okkar bar fyrst saman
þegar við vorum 9 ára. Fór þá
mamma með mig að Snæfoksstöð-
um til að heimsækja Þórunni, ömmu
Guðrúnar, sem ég kallaði líka ömmu
vegna þess að hún fóstraði upp
föður minn og var honum alla tíð
sem besta móðir. Svo djúpt liggja
þessar rætur að föðuramma mín,
Rannveig Sveinsdóttir, var fermd
frá foreldrum Þórunnar.
Amman varð víst ekki mikið vör
við þessa heimsókn því ég varð
strax mjög upptekin af Guðrúnu,
sem allt vildi sýna mér. Hænumar
sýndi hún mér meðal annars og þá
mundi ég að fyrsta hænueggið
borðaði ég þegar ég var fjögurra
ára og var það einmitt frá Snæfoks-
stöðum. Ég man enn hvað Guðrún
var tápmikil stelpa með hvíta
svuntu og með tvær þykkar, dökkar
fléttur. Seinna lét hún klippa sig
og gaf hún mér þá aðra fléttuna.
Nokkrum sinnum kom ég að
Snæfoksstöðum eftir þetta. T.d. var
ég þar 3 síðustu vikur skólagöngu
minnar í bamaskóla og var með
því að notfæra mér gamalt boð.
Haustið 1934 kom Guðmundur, fað-
ir Guðrúnar, í heimsókn að Hömmm
og bauð foreldrum mínum að ég
mætti dvelja á Snæfoksstöðum um
veturinn þegar kennt væri í Önd-
verðamesi og ganga þá í skóla með
bömunum hans. Af þessu varð ekki
líklega vegna þess að ég var mjög
ánægð í heimavistinni á Bijánsstöð-
um.
1. apríl 1935 var skólagöngu
minni lokið en eftir átti að kenna
1 mánuð í Öndverðamesi. Mér
fannst það hræðileg tilhugsun að
geta aldrei farið í skóla framar, svo
ég bað pabba að leyfa mér að fara
að Snæfoksstöðum og verða þar
þessar vikur sem eftir voru fram
að prófí. Það leyfí var auðfengið.
Þessum vordögum gleymi ég
aldrei. Það var svo gaman bæði
heima á Snæfoksstöðum og í skól-
anum í Öndverðamesi. Seinna þetta
vor vomm við Guðrún saman í
spumingum á Mosfelli i 10 daga og
í júní aðra 10 daga á sundnám-
skeiði í Reykholti í Biskupstungum
í boði Kvenfélags Grímsneshrepps.
Sumarið 1936 fékk faðir hennar
slægjur í Hamralandi og var hún
þar með honum við heyskapinn.
Yfír eina helgi vom þau á Hömmm
og þá fengum við stelpumar að
fara saman á Borgarball 15 ára
gamlar. Snemma vetrar 1937 vor-
um við mánaðartíma saman á
saumanámskeiði sem kvenfélagið
hélt í Klausturhólum.
Eftir þetta skildust leiðir í bili.
Báðar giftumst við ungar og sett-
umst að í Reykjavík, Guðrún í
vesturbænum en ég fyrir innan
bæinn. Ekki fór það svo að við
misstum alveg hvor af annarri, því
eitt sinn kom sonur hennar til mín
með námsbókina sína og bað mig
um smá aðstoð fyrir próf. Fyrir
þetta lítilræði saumaði Guðrún fyrir
mig vandaðan samkvæmiskjól og
þóttu mér vinnubíttin góð því hún
var frábær saumakona.
Þó er mér minnisstæðust heim-
sókn Guðrúnar til okkar hjónanna
l júní 1985 og sá timi sem þá fór
í hönd. Hún átti von á frænku sinni
og manni hennar frá Ameríku.
Frænkuna langði að vita eitthvað
um ætt sína hér á landi og bað
Guðrún mig því að fara á Þjóð-
skjalasafnið og tína saman smá
ættartölu. Þetta gerði ég með mik-
illi ánægju og í þessari ferð varð
ég þess vísari að Guðrún og Jean
frænka hennar voru líka ættaðar
frá Hömrum og að langamma þeirra
hét Ingibjörg.
Mánudaginn 8. júlí hringdi Guð-
rún og bauð okkur hjónunum að
koma í te með Jean frænku sinni.
Við brugðum skjótt við og fórum í
þetta skemmtilega boð. Þessi vika
sem Jean og Bill dvöldu hér á landi
er mér alveg ógleymanleg. Eitt
kvöldið bauð Guðrún til mikillar
veislu fyrir ættingja og vini og auð-
vitað fórum við austur að Hömrum
saman.
En brátt dró ský fyrir sólu. Næst
þegar ég hitti Guðrúnu trúði hún
mér fyrir því að hún hefði farið í
rannsókn vegna óþæginda í baki
og að þessi rannsókn hefði leitt í
ljós að hún gengi með krabbamein.
Framundan var lyíjameðferð í þeirri
von að geta átt fáein ár eftir.
Veikindum sínum tók hún með
sömu reisn og öðru sem hún varð
fyrir á lífsleiðinni. Hún seldi nú
stóru fallegu hæðina sína og keypti
sér minni íbúð, gerði hana vel í
stand og átti þar mjög fallegt heim-
ili 2 síðustu árin.
Það er stutt síðan við Guðrún
eyddum kvöldstund saman. Fyrst
fórum við á fund en á eftir bauð
hún mér upp á kaffí og heimabakað-
ar kökur. Við sátum lengi jrfír
kaffíbolla í fallegu stofunni hennar
og töluðum um lífið og tilveruna
og jafnvel dauðann.
Hún sagði mér að hún væri lækni
sínum mjög þakklát fyrir hvað hann
reyndi að lofa sér að fylgjast með
hvemig gengi hveiju sinni.
Nú skiljast leiðir um sinn. Um
leið og ég þakka Guðrúnu æviianga
t
Frændi okkar,
ÁSGEIR BJARNÞÓRSSON
listmálari,
lóst á heimili sínu Droplaugarstöðum miðvikudaginn 16. desember.
Systkinabörn.
t
Bróðir okkar,
ÁGÚST DANfELSSON,
lóst á Elliheimilinu Grund 5. desember sl.
Útförin hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hins látna.
Systkinin.
t
Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞORBJARGAR GUÐLAUGAR BJÖRNSDÓTTUR,
Hvassaleiti 38,
Raykjavfk,
fer fram ( Dómkirkjunni fimmtudaginn 17. des. kl. 15.00.
GuArún Þ. Elnarsdóttir, Jóhann E. Ólafsson,
Birna Einarsdóttlr, Þórir Slgursteinsson,
Auður Inga Einarsdóttir, Guðmundur öm Guðmundsson
og barnabörn.
t
Faöir og fósturfaðir,
EMIL B. JÓNASSON
fyrrv. umdæmisstjóri Pósts og síma,
frá Seyðisfirði,
andaöist í Landakotsspítala 11. desember.
Hann veröur jarösettur föstudaginn 18. desember frá Fossvogs-
kirkju kl. 13.30.
Anna Katrfn Emllsdóttir,
Halldóra Jóna Stefánsdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN JÓNSSON, ~~
Bragagötu 16,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 17. desem-
ber kl. 13.30.
Kristfn Guðjónsdóttir, Karl Sigurbjörnsson,
GuAjón GuAjónsson, Slv GuAjónsson
Jón Adolf Guðjónsson, Ingibjörg Sigurðardóttir,
og barnabörn.
tiyggð og vináttu' sendi ég ástvinum
hennar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Guð blessi minningu hennar.
Ingibjörg Tönsberg
í dag verður jarðsungin Guðrún
Ragna Guðmundsdóttir, Gunna á
Kapló, eins og við ávallt kölluðum
hana.
Kynni okkar Guðrúnar hófust
fyrir 28 árum en þá var ég 5 ára
gamall drengur. Um syipað leyti
hófst vinátta mína og Áma, eins
af sonum Guðrúnar.
Það var strax í upphafí sem ég
fékk mikið dálæti á Guðrúnu og
allt vildi hún fyrir mann gera það
sem hún gat. Það má segja að ég,
smápollinn af Hringbrautinni, hafí
gjörsamlega fallið fyrir henni. Allt-
af vom það síðustu orð Gunnu til
mín eftir margra klukkutíma leik í
garði hennar eða uppi á háaloftinu
góða: „Bóbó minn. Þú kemur svo
bara þegar þú villt." Þessi orð vom
sögð með slíkri ró og vinsemd að
það varð til þess að heimili Gunnu
og Steina var fyrir mig nokkurs
konar varaheimili og það er víst að
oft kom það sér vel að eiga slíkt
innhlaup. En ég bjó á þeim tíma á
Hringbraut, aðeins 100 metmm frá
Kaplaskjólsvegi 1.
Vinátta okkar Gunnu hélst í öll
ssi ár og aldrei brá skugga fyrir.
mörg ár heimsótti ég Gunnu á
aðfangadagskvöld og nú rifjast upp
fyrir mér hversu mörg og notaleg
þau kvöld urðu. Umræðuefnið var
sem oftast litlu pollamir í hverfínu.
Henni þótti svo vænt um okkur alla,
53
litlu KR-ingana. Margsinnis hef ég
sagt við mitt fólk að enn þann dag
í dag veit ég ekki um þá mann-
eskju sem hefur mátt þola jafn
mikla erfíðleika og Guðrún, en þeir
sem þekkja til vita gjörla hvað við
er átt. En þrátt fyrir allt þá var
ávallt stutt í brosið.
Guðrún missti tvo eiginmenn á
lífsleiðinni auk eins sona sinna,
Magnús. Eftir að Guðrún missti
seinni mann sinn, Stein Ámason
árið 1976, hóf hún störf á Hótel
Sögu en margir muna eflaust eftir
henni þar sem starfsmanni til fjölda
ára í Grillinu. Var hún mikils metin
af starfsfólki sínu þar.
Eitt veit ég, sem Guðrún sætti
sig aldrei við, en það var flutningur
þeirra Steins frá Kaplaskjólsvegin-
um að kröfu borgaiyfírvalda, þar
sem átti að rífa húsið vegna skipu-
lagsbreytinga. Þau urðu því að_ -
flytja á Hjarðarhaga árið 1970 og
yfírgáfu hús sitt með miklum trega
og söknuði. En verst af öllu var að
húsið var aldrei rifíð og stendur enn
þann dag í dag á sínum stað og
gat Guðrún aldrei skilið þessar að-
farir borgaryfírvalda í hennar garð.
Fyrir hönd fjölskyldu minnar er
lengi bjó á Hringbraut 91, tel ég
mig hér með kveðja elskulega vin-
konu er mér þótti svo innilega vænt
um. Fari Guðrún mín í Guðs friði
og megi það bros sem ávallt fylgdi
henni verða hennar aðalsmerki í
nýjum heimkynnum.
Sonum Guðrúnar, þeim Guð-
mundi Áma og Theodór, og ættinei-m
um öllum, votta ég samúð mína og
megi minningin um góða móður lifa
með ykkur öllum.
Baldur Ómar Frederiksen
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma,
JÓNA KRISTBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR,
Hringbraut 80,
Reykjavik,
sem andaðist í Landakotsspítala 14. desember, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. desember kl. 10.30 árdegis.
Stelngrfmur Pótursson,
Tom Björn Rawllnson, Vera Rawllnson,
Ólafía Mary Andreasen, Peter Andreasen,
Bryon Rawlinson, Margrét Jóhannesdóttir,
Linda Rawlinson,
Stefán Rawlinson, Marfa Hermannsdóttlr
og barnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GRÉTA BALDVINSDÓTTIR,
StapasfAu 13 G, Akureyri,
lólst 11. desember. Útför hennar verðurfró Glerárkirkju laugardag-
inn 19. desember kl. 13.30.
EiAur
Ásdís EIAsdóttir,
AuAur EIAsdóttir,
Birna EIAsdóttir,
Baldvin Hreinn EIAsson,
EIAur GuAni EIAsson,
Harpa Dfs Haraldsdóttlr.
EIAsson,
Haraldur öm Arnarson,
Sveinn Benediktsson,
Walter Ehrat,
Sofffa Pótursdóttir,
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
INGVAR ÞORLEIFSSON,
Kirkjubraut 30,
Akranesi,
andaðist í Landspítalanum 4. desember.
Útförin hefur farið fram.
Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinóttu.
Valdfs Ingimundardóttir,
Þórey Ingvarsdóttir, Ingi Mór Ingvarsson,
Linda Ingvarsdóttir, Glssur fslelfsson,
GuAmundur Ingvarsson, Jórunn Birgisdóttir
og barnabörn.
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar frá kl. 14.00 fimmtudag-
inn 17. desember vegna jarðarfarar ÞORBJARGAR
GUÐLAUGAR BJÖRNSDÓTTUR, Hvassaleiti 38,
Reykjavik.
Kristjánsson hf.,
umboðs- og heildverslun,
Ingólfsstræti 12, Rvfk.