Morgunblaðið - 29.12.1987, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
jólunum veljum við gjaman það sem
okkur þykir best á jólaborðið og
itað helst sem þjóðlegast. íslenska
akjötið er hráefni sem á fáa sína líka,
íeyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað
Spennandi lambastórsteik er tromp á
orðið. Hér er uppskrift af einni
Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu
jólasteik handa okkur með óskum um
gleðilega hátíð.
Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5
daga, helst í loftþéttum umbúðum.
Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið
leggbeinið. Skerið einnig mest af fitunni frá
ef lærið er of feitt. Stingjð um 2 sm djúp göt í
lærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og
kjötið utan af leggbeininu.
Skerið sellerístilkana og blaðlaukinn í
bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið
á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins
að taka lit. Bætið þá pipamum,
rósmarínkryddinu, sojasósunni,
sítrónusafanum og líkjömum útí og látið
þóvlltha1
[tíðai
Lambalæri
með Kahlua-sósu
Fyrir6-7.
1 meðalstórt lambalæri
2 msk matarolía
3 sellerístilkar
Vi blaðlaukur (púmdaukur)
1 tsk græn eða bvít piparkom
1 tskrósmarín (sléttMI)
2 dl Kahlua-kaffikkjör
2 msk Kikkoman sojasósa
safi úr 1 sítrónu
salt
2dIljóstkjötsoð
dökkur sósujafhari
MARKAÐSNEFND
sjóða í 3-5 mín. Kælið blönduna og hellið
henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið
lambalærið í pokann og bindið vandlega
fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum.
Takið utan um legginn á lærinu og sláið
pokanum með lærinu í nokkmm sinnum
þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn.
Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum
vel inn í holumar á kjötinu.
Geymið pokann með lærinu á köldum
stað í um einn sólarhring og snúið honum
öðm hvom og nuddið safanum vel inn í
lærið um leið.
Hitið ofninn í 220°C.
Takið lærið úr pokanum og skafið
kryddblönduna utan af með bakkanum á
borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið
með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir).
Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og
skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í
hæfilega stóra steikarskál eða skúffu og
leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í
ofninum þar til það er búið að fá á sig
fallegan lit. Minnkið þá hitann á ofninum
niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu
er kryddleginum sem eftir var ásamt
kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan
steikt í um 15-30 mín. í viðbót.
Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að
bera það fram á og geymið í heitum og
hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð.
Sigtið soðið úr steikarskálinni yfir í pott
og bragðbætið með salti og pipar eftir
smekk. Látið suðuna koma upp á soðinu og
þykkið það hæfilega með sósujafnara.
Berið kjötið fram með nýju, soðnu
grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að
skolaþvíniður.
SPENNANDl
——---gj
Japanskur
kvintett
í Bústaða-
kirkju
Á TÓNLEIKUM Kammermúsík-
klúbbsins í Bústaðakirkju þriðju-
daginn 29. desember kl. 20.30
leikur japanskur kvintett, The
Ensamble Forum. f þessari tón-
leikaferð halda hljóðfæraleikar-
arnir einnig tónleika í Helsinki í
Finnlandi, en ferðin er farin að
frumkvæði utanríkisráðuneytis
Japan.
Tónlistarmennirnir stunduðu
tónlistamám í heimalandi sínu, Jap-
an, en tveir þeirra hafa stundað
framhaldsnám á Vesturlöndum og
Ieikið þar í strengjakvartett og á
sinfóníuhljómleikum. Kvintettinn
hefur starfað um nokkurra ára
skeið við flutning á kammertónlist.
I frétt Kammermúsíkklúbbsins
segir: „Vesturlandabúar hafa oft
furðað sig á þeim skilningi, sem
framúrskarandi hljóðfæraleikarar
austurlanda hafa öðlast á vestrænni
tónlist, þótt aðrar tónlistarhefðir
liggi að baki. Veldur hér ef til vill
mestu um knýjandi þörf mannkyns
að eiga sér sameiginlegan tjáning-
armiðil, tónlistina.“
Höfn í Hornafirði:
KASK stærsti
saltfisk-
framleiðandi
landsins
Höfn, Hornafirði.
FIMM fyrirtæki á Höfn hafa tek-
ið á móti fiski til verkunar og
útflutnings á þessu ári. Lang-
stærstur aðili í fiskverkun er
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga,
KASK, hefur tekið á móti um
19.000 tonnum af ýmsum tegund-
um físks. Um 4500 tonn af síld
hafa borist til frystingar hjá kaup-
félaginu. Síldin er seld til Bretlands,
Frakklands og Tékkóslóvakíu að
mestu leyti.
Frystihús KASK skilar mestu
verðmæti af SÍS frystihúsum á
landinu. Þó háir mannekla frysting-
unni mjög verulega, þannig að í
frystinguna hafa ekki farið nema
rösk 5000 tonn á árinu.
Kaupfélagið er stærsti framleið-
andi saltfisks á landinu á þessu
ári. Um 9000 tonn hafa verið verk-
uð í salt, og er hann að mestu þegar
fluttur úr landi. Þessi u.þ.b. 9000
tonn gefa um 3300 tonn af verkuð-
um físki, en hann skiptist þannig
að 2500 tonn eru fullstaðin, en um
800 tonn eru verkuð í tandurfísk.
Rúm 240 tonn af humri bárust
til kaupfélagsins í sumar, 235 tonn
af slitnum humri sem seldur er á
Bandaríkjamarkað. Um 6 tonn af
óslitnum, heilum humri voru svo
verkuð fyrir Ítalíumarkað í sam-
vinnu við Dani. Þetta er svipaður
afli og áður.
Skinney hf. hóf síldarsöltun hér
í haust. Til þeirra bárust um 1900
tonn af síld, sem fyllir 13.300 tunn-
ur. Þar af eru sfldarflök 300 tunnur.
Vísir-Haukafell sem er útgerðar-
aðili bátanna Vísis SF-64 og
Haukafells SF-111 stóðu að sam-
eiginlegri saltfískverkun á vertíð-
inni í vetur. Lögðu þeir upp 916
tonn til þessarar framleiðslu.
Hrellir hf. flytur físk út í gámum.
737 tonn hafa á þann máta verið
flutt út frá Höfn og mest til Eng-
lands.
Ekki er ljóst hve mikinn afla
bátar og togari á Höfn hafa siglt
með á þessu ári. Garðey SF-22
hefur siglt með 213 tonn, Þórhallur
Daníelsson SF-71 með um 300
tonn. Fleiri hafa siglt og má ætla
að aflinn sé á bilinu 700-1000 tonn.
- JGG