Morgunblaðið - 29.12.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
31
JOL VIÐA UM HEIM
Kína:
„Trúin blómstrar að nýju“
Mikil kirkjusókn kristinna manna og jólakortasala með ólíkindum
Peking. Reuter.
KRISTNIR menn í Kína, lítill
en vaxandi söfnuður, fjöl-
menntu sem aldrei fyrr til messu
í kirkjum ag kapellum í borgum
landsins á þessu jólum.
Um 5.000 manns voru við messu
í dómkirkju kaþólskra manna í
Peking og hafði verið komið fyrir
þar stóru jólatré. Endurómaði
kirkjan af hinum hefðbundnu jóla-
sálmum og biskup kaþólskra í
Peking, Pu Tieshan, hvatti trú-
bræður sína til að elska hver annan
og sameinast í baráttunni fyrir
betri heimi. Önnur 30.000 kaþól-
skra manna sóttu messu í öðrum
kirkjum í Peking og um 6.000
mótmælendur.
Grænar grundir
á skíðasvæðum
ZUrich, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara
FERÐAMENN gripu í golfkylfur
og tennisspaða í stað þess að
festa á sig skíði á sumum stöðum
í Ölpunum yfir hátíðirnar.
Vorblí-
ða ríkir á meginlandi Evrópu og
það þarf að fara hátt í fjöllin eða
á jökla til að komast í snjó.
Göngustígar voru opnaðir og
skíðakennarar sýndu skugga-
myndir á stöðum þar sem skíða-
lyftur voru ekki settar í gang
yfir jólin.
Flestar lyftur á skíðasvæðum
sem íslendingar kannast við í Aust-
um'ki, eins og td. í Mayrhofen,
Kitzbuhel og Zell am See, gengu
jrfir hátíðirnar þótt snjórinn væri
ekki mikill. Þar var margt um
manninn eins og endranær um jól.
Upplýsingasjálfsvari í Kitzbuhel
Morgfunblaösins.
varaði fólk í gær við löngum biðröð-
um við helstu lyfturnar.
Hótel- og verslunareigendur á
lægri skíðasvæðum í Sviss kvarta
ekki enn þótt snjóinn vanti. Fáir
gestir hafa hætt við að koma þrátt
fyrir hlýindin og hafa nú góðan tíma
til að gæða sér á mat og versla í
snjóleysinu. En ástandið getur orðið
svart fyrir þá sem lifa af skíðaí-
þróttinni ef það snjóar ekki í janúar.
Veðurhorfurnar næstu daga lofa
ekki góðu fyrir skíðafólk. Hæð yfir
suðvestur Evrópu kemur í veg fyrir
snjókomu það sem eftir er af þessu
ári og fyrstu tvo daga næsta árs.
Verulegt snjóleysi hrjáði Svisslend-
inga síðast veturinn 1971/72. Þá
mældist ekki nema einn meter af
snjó í 2.540 metra hæð um miðjan
febrúar.
Xinhua-fréttastofan kínverska
hafði það eftir Fu biskup, að kaþ-
ólskir menn í Kína væru nú 3,3
milljónir talsins og snerust árlega
til trúarinnar um 30.000 manns.
Kaþólskir menn og mótmælendur
sættu miklum ofsóknum í Kína
fyrst eftir valdátöku kommúnista
og í menningarbyltingunni
1966-76 þegar kirkjunum var lok-
að en nú eru tímamir miklu
umburðarlyndari. „Trúin blómstrar
að nýju í Kína,“ sagði í fréttum
Xinhua.
Jólakortasala var mjög mikil að
þessu sinni en hún var með öllu
óþekkt í Kína fyrir fáum árum. í
einni bókaverslun í Peking voru
seld 400.000 kort og kvaðst versl-
unarstjórinn ekki hafa haft tíma
til að reikna út hagnaðinn.
„Ég er ekki kristin en mér líka
jólakortin með mynd af Maríu mey
og litlum englum. Mér finnst ein-
hver heilagleiki fylgja þeim,“ sagði
Zhao Huanhong, skólastúlka í Pek-
ing og þrýsti tveimur kortum að
brjósti sér.
Israelskir hermenn með alvæpni á verði við Jötutorg í Betlehem á
--------- aðfangadag.
Jólaboðskapur páfa
um frið og gleði
Páfagarði, Betlehem, London. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi talaði til milljóna rómversk-kaþólskra manna
í miðnæturmessu sinni i St. Péturskirkjunni á aðfangadagskvöld. í
predikun sinni fjallaði páfi um frið og gleði. Hundruð pílagríma
söfnuðust saman við fæðingarstað Jesú í Betlehem á aðafangadag,
en gífurleg úrkoma og óeirðir undanfarnar tvær vikur drógu veru-
lega úr umfangi hátíðahaldanna. Elizabeth II Englandsdrottning
gagurýndi IRA, Irska lýðveldisherinn, í jólaræðu sinni.
Sovétríkin:
Jólin eru
Moskvu. Reuter.
Jóladagur var bara venjulegur
vinnudagur fyrir flesta Sovét-
menn en Tass-fréttastofan sagði
þó frá því, að kaþólskir menn
hefðu fjölmennt til messu á að-
f angadagsk völd.
Messað var í kirkju heilags
Loðvíks í Moskvu og annarri, ka-
þólskri kirkju í Lvov í Úkraínu og
var mikill fjöldi viðstaddur á báðum
stöðunum. í Eystrasaltsríkjunum
7. janúar
var hins vegar haldið upp á jólin
með sama hætti og gerist á Vestur-
löndum enda er fólk þar almennt
kaþólskt eða mótmælendatrúar.
Sagði í fréttum Tass, að kirkjusókn
hefði verið meiri en nokkru sinni. \
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan
heldur sín jól 7. janúar en þó er
yfirleitt mest um dýrðir um ára-
mót. Þá eru gjafir gefnar og dansað
í kringum áramótatré.
Um 10.000 manns voru viðstödd
miðnæturmessu páfa og var henni
•útvarpað og sjónvarpað beint til 42
landa í fimm heimsálfum. Messu-
skrúði páfa var gylltur og hvítur, —
í litum gleði og vonar. A Péturstorg-
inu stóð gríðarmikil jata við hliðina
á 28 metra háu ljósum prýddu jóla-
tré. Páfi minntist orða engilsins,
sem birtist fjárhirðunum á Betle-
hemsvöllum og sagði: „Sjá, ég boða
yður mikinn fögnuð."
„í dag endurómar þessi boðskap-
ur í kirkjum í öllum heimshornum,"
sagði páfi.
Hermenn voru meðfram öllum
götum í Betlehem og á húsaþökum
í nágrenni Jötu-torgs, þar sem
Fæðingarkirkjan stendur. Strangt
eftirlit var með öllum, sem fóru inn
á torgið. Að minnsta kosti 22 Pa-
lestínumenn hafa fallið fyrir
byssukúlum ísraelskra hermanna á
Vesturbakkanum og Gasasvæðinu
undanfarnar tvær vikur og allt að
200 manns hafa særst. Öryggisráð-
stafanir vegna mótmælaaðgerð-
anna og gífurleg úrkoma settu svip
sinn á hátíðarhaldið í borginni.
Elizabeth II Bretadrottning brá
út af venju í jólaræðu sinni og gagn-
rýndi IRA óbeint fyrir sprengjutil-
ræðið í Enniskillen, þar sem ellefu
manns létu lífið. „Það hendir allt
of oft, að menn leiðast út í of-
stæki, miskunnarleysi og ofbeldi
vegna tryggðar við land sitt, kyn-
þátt eða trú, eða jafnvel fótböltafé-
lag,“ sagði drottningin í jólaræðu
sinni í sjónvarpinu.
Þó að hún nefndi IRA ekki á
nafn sérstaklega, talaði hún um
sprengjutilræðið í Enniskillen í
síðasta mánuði sem dæmi um slíkt
ofbeldi.
Bankubréf Landsbankans eru 1,2ja, 3ja
og 4ra ára bréf. Ársávöxtun er 9,25%-9,5%
umfrám verðtryggingu.
Örugg langtímabréf til 6,7, 8,9, og 10 ára.
Ársávöxtun 8,5-9,25% umfram
verðtryggi'ngu.
Ný spariskírteini ríkissjóðs til 2ja, 4ra
og 6 ára. Ársávöxtun 7,2-8,5% umfram
verðiryggingu.
Eldri spariskírteini ríkissjóðs kaupum við
og seljum í gegnum Verðbrcfaþing íslands.
Ársávöxtun er nú um 8,7%. Kaup- og
söluþóknun, aðeins 0,75%.
Skuldabréfin fást í verðbréfadeild
Aðalbanka og í útibúum bankans um land
allt. Nánari upplýsingar veita Verðbréfa-
viðskipti, Fjármálasviði, Laugavegi 7,
símar 27722 (innanhússsími 388/392)
og 621244.
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
10,8% ÁYÖXTUN UMFRAM
VERÐTRYGGINGU
Landsbankinn
býður örugg
skuldabréf
Skuldabréf Lýsingar hf., 3. flokkur 1987.
Bréfin eru til 2ja, 3ja og 4ra ára og eru
í 100.000,- kr. einingum. Ársávöxtun
umfrarn verðtryggingu er 10,8%.