Morgunblaðið - 29.12.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
33
himog
‘yðibýli
r er í baksýn.
l myndinni, en til hægri sést niður
laugardaginn 26. desember, annan
í jólum, eða um þremur sólarhring-
um eftir að Sigurjón og Þórunn
lögðu af stað frá Djúpadal. Bíllinn
var fastur í skafli rúma tvo kfló-
metra fyrir ofan bæinn Klett í
Kollafirði, og var önnur keðjan far-
in af hjólinu, og skóflan stóð við
hlið bílsins.
Það voru þeir Guðmundur Hjart-
arson, verkstjóri á Reykhólum, og
íftir að hann hafði verið dreginn
(nti sést brekkan upp Klettshálsinn,
upp.
Theódór Guðmundsson á Brekku,
sem komu að bflnum mannlausum
í brekkunni þar sem þeir voru á
ferð til að kanna ástand vega. Þeir
óku niður að bænum Kletti til að
spyija hvort fólkið þar kannaðist
eitthvað við ferðir bflsins, en það
hafði einskis orðið vart.
Theódór hafði heyrt um bíl sem
lenti í erfiðleikum á Ódrjúgshálsi á
Þorláksmessu, og fóru þeir Guð-
mundur því inn að Djúpadal, og
þótti Samúel Sakaríassyni þá sem
ekki myndi vera allt með felldu um
ferðir fólksins á Þorláksmessu, og
var lögreglunni á Patreksfirði gert
aðvart um kvöldmatarleytið.
Spor rakin að
Illugastöðum
Lögreglan bað Guðmund og The-
ódór að grennslast nánar fyrir um
hvort þeir fyndu einhveijar vísbend-
ingar um hvað hefði orðið um fólkið
í bflnum á meðan hún leitaði upplýs-
inga um eigendur bflsins. Þeir
fundu tvenn spor uppi á hálsinum
og röktu þau niður í Skálmarfjörð,
en týndu þeim síðan. Þéir höfðu að
svo búnu aftur samband við lögregl-
una á Patreksfírði um kl. 10-11 á
laugardagskvöldið og voru hjálpar-
sveitir kallaðar til þá um miðnættið.
Leitarmenn frá þremur björgun-
Leitarmenn á staðnum þar sem
Ifk Siguijóns og Þórunnar fund-
ust. Myndin er tekin úr flugvél
um hádegisbil á sunnudag.
arsveitum í Barðastrandarsýslu
voru komnir á vettvang um sexleyt-
ið á Sunnudagsmorguninn, og hófst
skipulögð leit þegar um birtingu.
Veður var þá orðið gott, og hægt
var að rekja spor frá bflnum eftir
veginum upp Klettshálsinn og niður
í Skálmarfjörð, allt að afleggjara
að eyðibýlinu Illugastöðum, en það
er um 6 kflómetra leið frá bflnum.
Þau Siguijón og Þórunn voru ein-
ungis um 150 metra frá Ilhigastöð-
um þegar þau sneru við, en þau
hafa að öllum líkindum ekki séð þá,
og virðast hafa ákveðið að snúa við
fremur en að halda áfram í aðra
hvora áttina við vegamótin.
Leitarmönnum gekk verr að
rekja sporin sem lágu til baka í átt
að bflnum, en rétt fyrir hádegi fund-
ust lík þeirra Siguijóns og Þórunnar
skammt frá hvoru öðru; lík Þórunn-
ar um 4 metra frá veginum, en lík
Siguijóns 50 metrum utar. Þau
virðast þó hafa gengið eftir vegin-
um á leiðinni til baka, og þau hafa;
verið komin rúmlega hálfa leið frá
þeim stað þar sem þau sneru við í
átt að bflnum þegar þau hafa ör-
magnast. Hvórugt þeirra var klætt
I skjólfatnað, óg þau voru húfu- og
vettlingalaus þegar þau fundust.
Um það leyti sem líkin fundust
var þyrla Landhelgisgæslunnar
komin á staðinn, en' álls tók 21
maður þátt í leitinni; frá Björgunar-
sveitinni Blakki á Patreksfirði,
Slysavamafélaginu á Réykhólum,
og Hjálparsveit skáta á Barða-
strönd, auk lögreglumanna frá
Patreksfirði.
Voru örskammt frá
upplýstum bæ
Eins og áður sagði varð bfllinn
sem þau Siguijón og Þórunn voru
á fastur um tvo_ kflómetra fyrir ofan
bæinn Klett. Útiljós eru á Kletti,
og sést bærinn vel frá veginum á
leiðinni, en hins vegar sést ekki til
hans frá þeim stað þar sem bfllinn
festist. Vestur af Klettshálsinum
eru hins vegar rúmir 50 kflómetrar
að næsta byggða bóli,.sem er Fossá
á Hjarðamesi, en eins og áður sagði
em um 6 km að eyðibænum Illuga-
stöðum, og um tveir km í viðbót
að eyðibýlinu Skálmardal. Þá eru
einnig um 6 km frá bflnum að eyði-
býlinu Kvígindisfirði, en Siguijón
og Þómnn gengu fram hjá afleggj-
aranum þangað.