Morgunblaðið - 29.12.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
41
Gunnar Einars-
son - Kveðjuorð
Fæddur 16. desember 1904
Dáinn 16. desember 1987
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gledd’ og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Innihald þessa sálms finnst okkur
eiga vel við þegar við minnumst afa
okkar Gunnars Einarssonar, sem
jarðsunginn var í gær, 28. desem-
ber, frá Fossvogskapellu.
Afi var fæddur 16. desember
1904 að Hvammsvík í Kjós og var
því 83 ára þegar hann lést á af-
mælisdaginn sinn 16. desember sl.
Afi var kvæntur Aðalheiði Jóns-
dóttur og bjuggu þau lengst af að
Morastöðum í Kjós, þar sem þau
tóku við búskap af Einari langafa
okkar. Afi og amma eignuðust 11
börn sem öll eru á lífi og var því oft
í miklu að snúast á stóru heimili.
Afi var alla tíð heilsuhraustur og
léttur í lund. Hér áður fyrr stund-
aði hann sjómennsku og sótti
vertíðar suður með sjó, jafnframt
búskapnum. Það var oft mann-
margt að Morastöðum, sérstaklega
á sumrin og mikill gestagangur, en
það er einmitt frá þessum árum í
Kjósinni, sem við systurnar eigum
okkar bestu minningar. Þar sen
við, á okkar uppvaxtarárum, áttum
alltaf öruggt athvarf og dvöldum
nær því á hverju sumri og oft þess
á milli lá leiðin í Kjósina, svo sem
í páskafríum. Alltaf var okkur jafn-
vel tekið og vorum eins og eitt af
þeirra börnum, að okkur finnst,
þegar við lítum til baka. Afi og
amma hættu búskap að Morastöð-
um 1969 og fluttu til Reykjavíkur
að Hjarðarhaga 60 og hafa búið
þar síðan. Það hljóta að hafa orðið
mikil viðbrigði fyrir þau að flytjast
á mölina. Eftir komuna til
Reykjavíkur vann afi hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands og Trésmiðjunni
Víði. Eftir að hann hætti að treysta
sér til vinnu utan heimilis hafði
hann sína aðáldægrastyttingu af
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
prjónaskap. Þær voru ófáar lopa-
peysurnar sem afi og amma
framleiddu í sameiningu. Síðia
hausts veiktist afi og varð það að
lokum hans banalega. Þegar komið
er að þáttaski'um í lífi ömmu okk-
ar, sem á nú um sárt að binda,
ásamt öllum börnum, tengdabörn-
um, barnabörnum og barnabarna-
börnum, koma upp í huga okkar
orð spámannsins Kahlil Gibran:
„Þegar þú ert sorgmarddur skoðaðu þá
aftur huga þinn og þú munt sjá að þú
grætur vegna þess sem var gleði þín.“
Hvíli elsku afi okkar í friði.
Aðalheiður og
Guðrún Valgeirsdætur
Niðjar hjón-
anna í
Vörum með
jólafagnað
NIÐJAR Halldórs Þorsteinsson-
ar og Kristjönu Kristjánsdóttur
Vörum í Garði halda jólafagnað
laugardaginn 2. janúar nk.
Jólafagnaðurinn verður í Golf-
skálanum í Leiru og hefst kl. 14.00.
Jólahraðskák-
mót í kvöld
TAFLFÉLAG Selljarnarness
heldur sitt árlega jólahraðskák-
mót í kvöld kl. 20.00.
Mótið fer fram í Valhúsaskóla.
Eftir áramótin verður starfsemin
flutt að hluta til að Austurströnd 3
og munu fimmtudagsæfingar verða
þar kl.20.00.
ÞVOTTAVÉLAR
Getum afgreitt
fyrir hækkun
þessar vinsælu
Blomberg
þvottavélar
Gerð OM 818
Verð kr. 31.500
Kr. 29.925 stgr.
Fáðu þér
vandaða
þvottavél
fyrir
hækkun
Tæknileg lýsing:
4.5 kg þurrttau
(danskur staðall)
- 44 lítra vatnsnotkun
30-90 gráðu hitastilling
400-800 snúninga vinding.
Ullar-og gardínukerfi.
Eínar Farestveit & Co .hf.
BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆOI
^oTv^/öhp
flö PIONEER
HUÓMTÆKI
f upphafi skal endingu skoða...
Miele heimilistækin frá Vestur-Þýskalandi.
Heimsþekkt fyrir tæknilega fullkomnun^
hönnun og afburða endingu.
Veldu Miele — annað er málamiðlun.
JÓHANN ÓLAFSS0N &C0.HF
Sundaborg 13 — sími (91)688588
Miele þvottavélar.
Þvo og vinda vel.
Þvottavélar með níu líf.
Miele þurrkarar.
Nákvæm rakastilling.
Miele uppþvottavélar.
Hljóðlátar.
Skila skínandi hreinu.
Miele ryksugur.
Vandaðar og vinna vel.
Settu gæðin á oddinn,