Morgunblaðið - 29.12.1987, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
57
SÍMON ÍVARSSON OG ORTHULF PRUNNER
Sígild tónlist
ámyndbönd
Fyrsta íslenska tónlistarmynd-
bandið með sígildri tónlist
hefur litið dagsins ljós. Símon Ivars-
son, gtarleikari og Orthulf Prunner,
organisti, leika þijú stutt verk,
„Vaknið, Síons verðir kalla" og tvo
þætti úr konsert í D - dúr eftir
Vivaldi. Það kvikmyndagerðin Sýn
sem framleiðir myndbandið sem er
tekið upp í Dómkirkjunni. Það er
gert eftir plötu sem þeir félagar
hafa nýverið gefíð út með verkum
eftir Bach, Vivaldi og Rodrigo.
„Myndbandið er hugsað bæði
sem uppfyllingarefni og efni sem
hægt er að sýna í heild sinni. Við
höfum hug á því að vinna það bet-
ur og nýta til tónlistarfræðsíu,"
sagði Símon í samtali við Folk í
fréttum. „Hugmyndin er upphaf-
lega mín en Sýn ýtti á um útkomu.
Þeir höfðu mikinn áhuga á þessu
og vissu að hann var einnig fyrir
hendi í sjónvarpi. En það fer auðvit-
að eftir móttökunum hvort fram-
hald verður á. Myndband sem þetta
hefur ekki verið gert áður svo það
er óvíst hvar í dagskránni það á
heirna."
Þegar Simon er spurður hvemig
hafí gengið að fjármagna mynd-
bandið, segir hann það vissulega
hafa verið erfitt. „Það er óhemju-
dýrt að gera myndbönd og sígild
tónlist er yfirleitt ekki fjármögnuð
af útgáfufyrirtækjum. Við leituðum
því til ýmissa fyrirtækja, auk þess
sem Sýn bauð okkur að geyma
launakostnaðinn í von um að hann
skilaði sér aftur seinna.“
Orthulf Prunner og Símon ívarsson í Domkirkjunni í Reykjavík.
KROSSINN
Morgunblaðið/BAR
Systkinahópurinn samankominn í Krossinum í Kópavogi. F.v.: Sól-
veig, Þórey, Sigríður, Ingibjörg (efst), Hrefna, Loftur og Karl
Guðnabörn.
A krossgötum
A
Avegum Krossins kom nýlega
út hljómplata með kristilegri
popptónlist sem heitir „Á kross-
götum“. Það vakti athygli blaða-
manns að flytjendur eru sjö
systkini á aldrinum 19 til 35 ára,
þau Ingibjörg, Hrefna, Þórey,
Karl, Loftur, Sólveig og Sigríður
Guðnabörn. Við spjölluðum stutt-
lega við Hrefnu og Ingibjörgum
um tildrög þess að svo stór systk-
inahópur gæfi út plötu.
„Þetta er nú reyndar ekki í
fyrsta sinn sem við komum nálægt
plötugerð, fýrir nokkrum árum
kom út plata sem þrjár elstu sys-
tumar sungu saman á og hét
„Gleðifregn". Það var fyrsta plat-
an sem kom út hérlendis með
kristilegri popptónlist en nú hafa
margir fylgt í kjölfarið. Hugmynd-
ina á maður Sólveigar en hann á
hlut í Stúdíói Stefí, þar sem platan
var síðan tekin upp. Við syngjum
ekki öll saman á plötunni, heldur
eitt lag hvert fyrir sig.“
Lögin eru flest eftir Hjalta
Gunnlaúgsson og Hákon Möller.
Upptökstjóri plötunnar er Birgir
Jóhann Birgisson og hann hefur
einnig samið um helming text-
anna. „Móðir okkar hefur samið
nokkra auk okkar. Við erum alin
upp á miklu tónlistarheimili, faðir
okkar samdi mikið af lögum og
móðir okkar textana við. Sjálf
höfum aðeins dundað okkur við
að semja. Okkur fannst kominn
tími til að syngja um eitthvað
annað en ástina," segja þær syst-
ur. /
Þær eru að lokum spurðar
hvemig hafi gengið að ná öllum
hópnum saman? „Það gekk alveg
ágætlega, okkur gengur líka vel
að vinna saman. Við erum ólík en
samrýnd, getum ekki án hvors
annars verið."
AS E A Cylinda
þvottavélar*sænskar og sérstakar
Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir
þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind-
ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu-
og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein-
kenna ASEA. Gerðar til að endast.
Í3ár /FQniX
Hátúni 6A SiMI (91)24420
/rOíllX
ábyrgð
*svt„:
X
*
Hjálparsveit skáta
Reykjavík
Reykvíkingar
Versliðvið
vana menn
FlugeldamarkaÖir:
FLUGELDASALA
Í20ÁR **.*'.'’
Skátabúðin, Snorrabraut 60.
Fordhúsið Framtíð, við Faxafen.
Sýningarsalur Bifreiða og
Landbúnaðarvéla, Suðurlandsbraut 12.
Verslunarmiðstöðin í Mjódd, Breiðholti.
Seglagerðin Ægir, Örfirisey.
Bílaborgarhúsið, Fosshálsi 1.
Við Kringluna.
Á Háskólavellinum.
Við Miklagarð.
Við verslunina Grafarvogi.
FLUGELDASALA
I20ÁR