Morgunblaðið - 29.12.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1987
63
Skák:
Jóhann vann jóla-
mót Utvegsbankans
JÓHANN Hjartarson vann ör-
uggan sigur á jólahraðskákmóti
Útvegsbanka Islands hf. sem
haldið Var í 8. skipti sl. sunnudag
í afgreiðslusal aðalbankans við
Lækjartorg í Reykjavík. Jóhann
fékk 14'/2 vinning, en Friðrik
Ólafsson, sem kom næstur, fékk
12'/2 vinning. Alls tóku 18 skák-
menn þátt í mótinu.
Aðrir verðlaunahafar voru Karl
Þorsteins, sem fékk IIV2 vinning,
og Hannes Hlifar Stefánsson og
Sævar Bjamason sem fengu 11
vinninga. Þessir fimm skákmenn
skiptu á mílli sín 75 þúsund krónum
sem bankinn veitti í verðlaun. Auk
þess afhenti Gísli Ólafsson formað-
ur bankaráðs bankans Þráni
Guðmundssyni forseta Skáksam-
bands íslands 100 þúsund krónur
til styrktar skáklistinni.
í næstu sætum eftir verðlauna-
höfum urðu Jón L. Ámason með
IOV2 vinning, Margeir Pétursson
með 10 vinninga og Davíð Ólafs-
son, Elvar Guðmundsson og Ingvar
Ásmundsson með 9 vinninga.
Morgunblaðið/Bjarni
Jóhann Hjartarson, sigurvegarinn á jólahraðskákmóti Útvegsbank-
ans, teflir við Elvar Guðmundsson.
Morgvnblaðið/SPB
Séra Sighvatur Karlsson sóknarprestur skirði lítið barn í Húsavík-
urkirkju á jólunum.
Hvítjól á
Húsavík
Húsavik.
HVÍT jól, friðar jól og gleði-
leg jól áttu Húsvíkingar að
þessu sinni, en þó heyrandi
og hugsandi um hörmungar
víða í fjarska, sem snertu
suma.
Allan desembermánuð hafði
verið hér einmuna blíða, stillt
veður og úrkomulaust að heita
má allan mánuðinn og auð jörð
á láglendi. Margir höfðu óskað
hvítra jóla og þeim varð að ósk
sinni, því að á Þorláksmessu
gekk á með slydduéljum og
frosti er á daginn leið, svo að
kvöldi var orðin hvít jörð. Á
aðfangadag var svo hríðarhragl-
andi af norð-austri og hálf
leiðinlegt veður þá fjölmennt var
til aftansöngs í Húsavíkurkirkju.
Hún var þétt setin, en þó urðu
menn ekki frá að hverfa vegna
rúmleysis, því veður mun eitt-
hvað hafa dregið úr kirkjusókn.
Á jóladag var komið hið feg-
ursta veður, þá sóknarprestur-
inn séra Sighvatur Karlsson
boðaði til hátíðarmessu kl.
14.00. Logn en kalt, 10 stiga
frost og hélst sú frostharka báða
jóladagana, en á þriðja í jólum
fór að draga úr frosti.
Greiðfært var um alla vegi svo
að fjölskyldur gátu farið óhindr-
að milli ættingja og vina, sem
hér er siður á jólum og að kvöldi
annars jóladags til skemmtana
á dansleiki, sem voru vel sóttir
og fóru hið besta fram.
— Fréttaritari
Evrópumót
unglinga í skák:
Þröstur
Þórhalls-
son er í
12.-15 sæti
ÞRÖSTUR Þórhallsson gerði
jafntefli við nngverska al-
þjóðameistarann Csaba Hor-
váth í 9. umferð Evrópumót^^
unglinga í skák, sem nú stend- 1
ur yfir í Arnheim í Hollandi.
Þröstur er í 12.-15. sæti með
41/2 vinning. Fjórar umferðir
eru eftir af mótinu.
Þröstur vann Italann Fabio
Bellini í 6. umferð mótsins og
gerði jafiitefli við Rui Damaso
Almeida frá Portúgal í þeirri 7.,
en í 8. umferð tapaði Þröstur
fyrir Dragan Kosic frá Júgó-
slavíu.
Sovétmennirnir Boris Gelfand
og Vassilij Ivantsjuk berjast um
sigurinn á mótinu, með 8 og 7V2
vinning. í 3-4. sæti eru Joriá^
Brenninkmeijer frá Hollandi og
Lars Bo Hansen frá Danmörku
með 6 vinninga. Ivantsjuk er
núverandi Evrópumeistari en
Gelfand hefur aldrei teflt áður á
vesturlöndum. Raunar hefur.
hann aðeins tekið þátt í einu al-
þjóðlegu móti í Sovétríkjunum en
þar stóð hann sig svo vel að hann
er skráður með 2510 ELO stig.
Smálog-
ar hér
og þar
SLÖKKVILIÐIÐ í
Reykjavík var kvatt út 15
sinnum frá þvi á aðfanga-
dag og fram á sunnudags-
kvöld. Ekki urðu þó neinir
stórbrunar, ef frá er skil-
inn eldur i mötuneyti
Hampiðjunnar á laugar-
dag.
Slökkviliðið slökkti eld í
sinu, ruslatunnum, pottum,
stórsteikum, smákökum og
fleiru. Þá þurfti eitt sinn að
aðstoða fólk vegna vatnsleka
í íbúð.
Leitað að manni
síðan á að-
fangadagskvöld
Selfossi.
IUÖRGUNARSVEITIR frá Sel-
fossi, Eyrarbakka og Þorláks-
höfn hafa siðan á aðfangadags-
kvöld leitað manns frá
Þorlákshöfn sem saknað var þá
um kvöldið.
Bifreið mannsins fannst við
Sogsbrú og hafa björgunarsveitar-
menn leitað þar i kring og niður
með ánni. Leitin hefur ekki borið
árangur.
— Sig. Jóns.
rw~\
Oö PIOIMEER
ÚTVÖRP
örbylgjuofnar fyrir hækkun
4(mj ~
1 ****** —
tosmiba
30 \ n *T .'6
w ■.
# 8
UirjHti cr
10 geróir at ofnum.
Verð frá kr. 16.900.
Kr. 15.990 stgr.
Einar Fanestveit & Co .hf.
BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆOI