Morgunblaðið - 07.01.1988, Page 1

Morgunblaðið - 07.01.1988, Page 1
80 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 Thatcher tekurtíl hendinni Margaret Thatch- er forsætisráð- herra Bretlands er nú á ferðalagi um Afríku. Eftir við- ræður við forseta Kenýu, Daniel arap Moi, kynnti hún sér landbúnað í vesturhluta landsins. Hér sést Thatcher höggva sprota af sykur- reyr. í dag kemur forsætisráðherr- ann til Nígeríu. Rcuter 4. tbl. 76. árg. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Óeinkennisklædd lögregla fer ómjúkum höndum um fíkniefnasala í miðborg Óslóar. Reuter Norðursjór: Reknet og olía ógna sjófuglum Kaupmannahöfn, frá Nils Jörjjfen Bruun SAMTÖK sem beita sér fyrir verndun sjófugla í Noregi, Svíþjóð og Danmörku krefjast þess að reknetaveiðar verði bannaðar á svæðum þar sem mikið er af sjófuglum. Að sögn samtakanna hefur langvíum fækkað gífurlega í Nor- egi undanfarin tuttugu ár vegna fréttaritara Morgunblaðsins. loðnuveiða með reknetum. Sjó- fuglastofninn allur er sagður vera í'hættu vegna þessa. Á ársþingi samtakanna í Osló var áskorun send til ríkisstjórna landanna þriggja og þess farið á leit að olíu- leit í Barentshafi verði hætt þar eð sjófuglum stafi hætta af olíu- mengun á því svæði. Sovétríkin: Borg og torg svipt nafni Brezhnevs •• * Oryggisráð SÞ gagnrýnir Israel: Að sögn sovésku fréttastofunnar Tass tóku miðstjóm kommúnista- flokksins, forsætisnefnd Æðsta ráðsins og ríkisstjómin ákvörðun um að áðurnefndir staðir skyldu ekki lengur bera nafn Brezhnevs. Þess í stað verða gömlu nöfnin tekin upp að nýju. Nú mun iðnaðarborgin heita Naberezhníje Tsjelníj, úthverfíð í Moskvu Tsjeríjomushkíj-hverfi og torgið í Leníngrad Krasnogvar- deiskaja-torg. Endumafngift hverf- isins í Moskvu var á sínum tíma einkar óvinsæl meðal Moskvubúa sem kenndu Brezhnev um fæðuskort um þær mundir, undir lok áttunda áratugarins. . Síðan Gorbatsjov hófst til valda í Sovétríkjunum hefur markvisst verið unnið að því að endurskoða opinbert álit manna á Brezhnev. Einnig hafa Moskvu, Rcutor. STJÓRNVÖLD í Sovétríkjunum sviptu í gær iðnaðarborg á bökk- um Volgu, úthverfi í Moskvu og stórt torg í Leníngrad nafni Leon- ids Brezhnevs, hins látna leiðtoga landins. Sá háttur að borgir, sam- yrkjubú, verksmiðjur og jafnvel ísbrjótar væru nefndir eftir leið- toga Sovétríkjanna komst í tísku undir stjórn Stalíns. Khrústsjov lagði þennan sið niður en síðasta áratuginn á valdaskeiði Brezhn- evs sem lést árið 1982 tók að bera á þessu aftur. sagnfræðingar í vaxandi mæii kraf- ist þess að gömul og söguleg örnefni verði hafin til vegs að nýju. hætta við að vísa 9 Palestínuaröb- um úr landi. Israelskir hermenn skutu á mótmælendur og særðu fjóra menn. Yitzhak Rabin varnarmálaráð- herra sagði á þjóðþinginu í gær að nærri tvö þúsund Palestínu- arabar hefðu verið handteknir síðan óeirðimar brutust út þann 9. desember. Eru það mun fleiri en stjórnin hefur hingað til viljað viðurkenna. Að sögn Rabins hefur helmingur þeirra verið látinn laus aftur en þijú hundruð manns hafa hlotið dóm, þar af hafa sex verið sekir fundnir. Talsmenn hersins neituðu ásökunum palestínskra lögmanna um að föngum hefði verið gefið raflost til að knýja fram játningar. Sjá frétt á bls. 30. - segja talsmenn ísraelsstjórnar ins sagðist einnig vonsvikinn yfir því að Bandaríkjamenn hefðu greitt ályktuninni at- kvæði. Fulltrúi Yitzhaks Shamirs for- sætisráðherra sagði að þetta myndi þó ekki hafa áhrif á sam- skipti ríkjanna. Bandaríkjamenn tóku í sama streng; Shimon Peres utanríkisráðherra ísraels sagði á hinn bóginn að hér væri á ferðinni „gróf stefnubreyting í samskiptum ríkjanna". Óeirðir færðust í vöxt í gær á Gaza-svæðinu og vesturbakka Jórdanár eftir að ljóst var að ísra- elsmenn hygðust ekki verða við áskorun Oryggisráðsins um að Jerúsalem, Reuter. ÍSRAELSMENN sögðust í gær harma ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem gagn- rýndi harkaleg viðbrögð þeirra við óeirðunum á herteknu svæð- unum. Þeir sögðu að ályktunin ýtti einungis undir „öfgasinnuð öfl á yfirráðsvæði Israels“. Talsmaður utanríkisráðuneytis- Noregur: Glæpum fjölgar í höfuðborginni Ósló, Reuter. LOGREGLA í Ósló er nú að sligast undan síauknu álagi vegna glæpa og ofbeldis í borg- inni. Arne Huuse, yfirmaður glæparannsóknardeildar lög- Dollarinn hækkar enn New York, Reuter. GENGI Bandaríkjadals hækkaði enn í gær á mörkuð- um í Evrópu og í Banda- ríkjunum. Það gerðist þegar fréttir bárust um að stjórnir sjö iðnríkja hefðu gert með sér leynilegt samkomulag um aðgerðir til að styrkja gjald- miðilinn ef gengi hans færi undir 130-jena mörkin. Talið er að Vestur-Þjóðveij- ar, Japanir og Bandaríkjamenn hafi samþykkt á fundi fyrir jól- in að leggja sem svarar fimm milljörðum Bandaríkjadala til hliðar hvert um sig til að kaupa dollara ef gengisfall gjaldmið- ilsins héldi áfram. í New York seldist dalurinn á 1,6490 vest- ur-þýsk mörk og 129,60 jen í gær. reglunnar, sagði í samtali við Reuters-f réttastof una að á síðasta ári hefðu verið slegin öll met hvað varðar dauðsföll tengd eiturlyfjum og fjölda skotvopna sem lögreglan hefur gert upptæk. „Við höfum mikl- ar áhyggjur af því hvort við getum ráðið við ástandið,“ sagði Huuse ennfremur. Fyrir tíu árum var Óslóborg með tæplega hálfa milljón íbúa, eins og friðsælt sveitaþorp. En auður sem streymt hefur til borg- arinnar í kjölfar olíuvinnslunnar í Norðursjó hefur breytt Ósló í heimsborg með öllum hennar skuggahliðum. Huuse sagði að lögreglunni hefði á síðasta ári borist 71 tilkynning um bruna eða helmingi fleiri en árið 1986. Fíkni- efni voru gerð upptæk 2.543 sinnum og 27 manns létust af völdum ofneyslu eiturlyfja. Nauðgunum fjölgaði um 20% á síðasta ári og svipaða sögu er að segja af vopnuðum ránum. Nú er svo komið að hver lög- regluþjónn í 1.400 manna sveit Óslóarlögreglunnar verður að vinna 300 yfirvinnutíma á ári til að unnt sé að sinna öllum verkefn- um. Hörmum ályktun sem ýtir undir öfgahópa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.