Morgunblaðið - 07.01.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988
7
Of hraður akstur í Reykjavík:
Konur í mikl-
umminnihluta
Kærum vegna umferðarbrota
fjölgar um 40% milli ára
Á NÝLIÐNU ári svipti lögrcglu-
stjórinn i Reykjavík 170
ökumenn ökuleyfi til bráða-
birgða vegna alvarlegra hrað-
akstursbrota. „Af þessum fjölda
voru aðeins sárafáar konur, í
mesta lagi 5-10,“ sagði Sturla
Þórðarson, deildarlögfræðing-
ur umferðarmála hjá lögregl-
unni í Reykjavík á blaðamanna-
Grindavík:
Aflabrögð í
tregara lagi
Grindavík.
FYRSTI netabáturtinn sem
lagði á nýbyijuðu ári, Kópur
GK, dró tveggja nátta á
þriðjudag og fékk tæp fimm
tonn af blönduðum fiski, en
netin voru skammt frá El-
dey.
Netabátar voru svo almennt
að leggja í gær og fyrradag
um allan sjó, eins og Gunnar
á Þorsteini GK orðaði það.
Línubátarnir eru einnig byijað-
ir en afli er í tregara lagi eða
tvo til þrjú tonn á eina uppsetn-
ingu. Mikill skortur er á beit-
ingamönnum og veldur það
sumum bátum vandræðum enn
sem komið er.
Kr.Ben.
fundi, sem lögreglustjóri hélt í
gær til að kynna kæru- og slysa-
tölur liðins árs. Kærum vegna
umferðarlagabrota fjölgaði um
rúm 40% frá fyrra ári.
Enn er ekki búið að fullvinna
tölur um alöurssskiptingu öku-
manna og skiptingu eftir kynjum
í þeim tæplega 15 þúsund tilfellum
sem kært var vegna brota á um-
ferðarlögum árið 1986 en fram
kom að hlutur kvenna væri sáralít-
ill, menn giskuðu á 5-10% í mesta
lagi og að yngstu ökumennirnir,
17-25 ára, kæmu mun oftar við
sögu en aðrir, ekki síst í alvarle-
gustu hraðakstursmálunum.
Á liðnu ári kærði lögreglan í
Reykjavík ökumenn vegna 14834
brota í umferðinni. Það er rúmlega
40% fjölgun frá árinu 1986 en þá
voru 10545 ökumenn kærðir. Ekki
eru talin með brot vegna ólöglegra
bifreiðastaða. Fjölgunina má að
miklu leyti rekja til skipulags-
breytinga sem gerðar voru gerðar
hjá lögreglunni á seinni hluta árs-
ins og fólust í því að þátttaka
almennrar deildar lögreglunnar í
umferðarlöggæslunni var aukin,
ratsjár voru settar í fleiri eftirlits-
bíla og hraðamælingar að nætur-
lagi margfaldaðar frá því sem
áður var. Einnig var breytt vinnu-
brögðum við fyrrgreindar bráða-
birgðasviptingar og átti það þátt
í að fleiri voru sviptir réttindum
voru sviptir vegna hraðaksturs-
brota en ella.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
TRAKTOR í TJÖRNINA
Starfsmenn Reykjavíkurborgar ætluðu að gleðja böm höfuðborgarinnar í gærdag og ryðja snjónum af
Tjöminni. En þá vildi svo óheppilega til ísinn brast undan traktomum.
Hertar innheimtuað-
gerðir lögreglusekta
UM LEIÐ og innheimta stöðumælasekta í Reykjavík færist frá lög-
reglu til skrifstofu Reykjavíkurborgar hyggst lögreglustjóri herða
innheimtu þeirra sekta sem hann annast eftir sem áður, einkum sekta
vegna ýmissa umferðarlagabrota, svo sem of hraðs aksturs, van-
rækslu á skoðun, aksturs á móti rauðu Ijósi og skyldra brota.
„Þegar stöðumælasektirnar fær-
ast til borgarinnar hefst sérstakt
átak í innheimtu annarra sekta. Oll-
um sem eiga hjá okkur ógreiddar
sektir vegna umferðarlagabrota
verður eftir sem áður gefin tækifæri
til að mæta hingað í viðtal, og færa
fram athugasemdir," sagði Böðvar
Bragason lögreglustjóri, „en verði
kvaðningum ekki sinnt, geta menn
átt von á heimsóknum frá einkennis-
klæddum lögreglumönnum annað
hvort heim eða á vinnustað."
Þessi bréyting tekur gildi með
nýjum umferðarlögum, 1. mars
næstkomándi. Jafnframt því að
stöðumálin færast til borgarinnar
fylgir stöðumælasektunum lögveð í
viðkomandi bíl sem þýðir að skráður
eigandi verður ábyrgur fyrir greiðslu
stöðusekta í stað þess að nú er þeim
beint til ökumanna. Mál af þessu
tagi voru um það bil 80 þúsund á
síðasta ári.
Penninn heíur látið útbúa sérstakar möppur með millispjöldum til að
auðvelda heimilisbókhaldið. Með því að nota þessar möppur er
heimilisbókhaldið alltaí í röð og reglu, og hœíilega sundurliðað.
Skattaframtalið verður líka auðveldara.
Þetta nyja heimilisbókhald er útbúið i samráði við löggilta endur-
skoðendur. Það tekur mið af staðgreiðslukeríinu
en er umíram allt einíalt og auðvelt. Það kemur ein mappa í
stað margra úlpuvasa. g ■■■■■■
i I J-jrlittili
j Hallarmúla 2, sími 83211
Austurstra^ti 10, sími 27211
Kringlunni, sími 689211
Nú geta öll heimlli
eignast reiknivél með strimli
íyrir heimilisbókhaldið.
Verð aðeins kr. 2.650,-
Er liYÍttimin i vasanum
grænu iil|>u imi ?
á