Morgunblaðið - 07.01.1988, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988
Stykkishólmur:
Ungir sjálfstæðis-
menn funda
^ Stykkishólmi.
ÁRNI Sigfússon formaður SUS
og Sturla Böðvarsson bæjar-
stjóri boðuðu til fundar með
ungum sjálfstæðismönnum i
Stykkishólmi laugardaginn 2.
janúar sl. Var fundurinn hald-
inn á Hótel Stykkishólmi og var
fjölmennur.
Ræddu þeir félagar viðhorf og
stöðu flokksins í dag og gerðu
grein fyrir gangi þjóðmála. Skýrðu
þeir hin ýmsu mál sem efst eru á
baugi, svo sem staðgreiðslukerfi
skatta, fiskveiðitakmarkanir,
stöðu landbúnaðarins o.fl. Þá
ræddu þeir um áfall flokksins í
seinustu kosningum og þörf félaga
til að gera átök til að flokkurinn
gæti hafið nýja sókn til eflingar
flokksstarfi og um leið hagsmuna
þjóðarinnar. Eftir frumræður fóru
fram frjálsar umræður og tóku
margir þátt í þeim.
Fundarstjóri var Eygló Bjarna-
dóttir.
— Arni
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Frá fundi ungra sjálfstæðismanna sem haldinn r á Hótel Stykkis-
hólmi 2. janúar sl. Arni Sigfússon formaður SUS, Sturla Böðvarsson
bæjarstjóri og Eygló Bjarnadóttir fundarstjóri.
-en þekking margfaldar vinningslíkur
Höfuðmálið er að fylgjast með. Ef þú kynnir þér stöðu og árangur
liðanna stendurðu betur að vígi.
N /
\ ✓
V
ISLENSKAR GETRAUNIR
íþróttamiöstöðinni v/Sigtún - 84590
^ * % '
m
Grindavík:
Ahugi tak-
markaðurá
sfldarsöltun
Grindavík.
FREKAR dauft hljóð er í ráða-
mönnum síldarsöltunarstöðv-
anna í Grindavík vegna
væntanlegrar síldarsöltunar og
hafa þijú fyrirtæki af fimm
lýst yfir vilja til söltunar ef
þeim býðst síld.
Ástæðan er fyrst og fremst sú
að hver stöð fær minni hlut en
svo að þeim finnist taka því að
salta nú þegar vetrarvertíð er að
byrja, því enginn bátur frá
Grindavík hefur sótt um síldveiði-
leyfi, enda búa þeir sig nú sem
óðast til þorskveiða á net eða línu.
Þrátt fyrir minni áhuga í haust
en oft áður á sfldarsöltun varð
Grindavík í þriðja efsta sætinu
yfir söltunarhæstu staði landsins
með tæpar 29 þúsund tunnur á
eftir Eskifirði og Hornafirði. Sölt-
unarhæstu fyrirtækin hér á
nýlokinni vertíð voru Þorbjörn
með 8.682 tunnur, Hófsnes með
8.511 tunnur og Fiskanes með
8.432 tunnur.
Kr.Ben.
Leiðrétting
í forystugrein Morgunblaðsins í
gær um hættulegar bombur misrit-'
aðist föðumafn Guðmundar
Viggóssonar augnlæknis. Biðst
blaðið velvirðingar á þessum
mistökum.
Tollalækkanir og
hagstæð magninnkaup:
15 til 40% verðlækkun á
26 vörutegundum.
ESSELTE TÍMARITABOX
40% VERÐLÆKKUN
40% verðlækkun áður 277 pr. stk. nú 167,- pr. stk.
Hallarmúla 2, S 83211
VJterkur og
k/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!