Morgunblaðið - 07.01.1988, Page 17

Morgunblaðið - 07.01.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988 17 Hildur Magnúsdóttir hjúkrunar- fræðingur. Rauði Kross íslands: Hjúkrunar- fræðingnr til starfa í Thailandi HILDUR Magnúsdóttir hjúkrun- arfræðingur hélt til Thailands á vegum Rauða Kross íslands 4. janúar sl., þar sem hún mun dvelja næstu sex mánuði við störf á sjúkrahúsi í fl+ottamannabúð- um í Khao-I-Dang á landamærum Kamputseu og Thailands. Hildur Magnúsdóttir tók þátt í námskeiði fyrir sendifulltrúa sem RKÍ hélt í Munaðamesi sl. vor í samvinnu við aðalstöðvar Rauða krossins í Genf, að því er segir í fréttatilkynningu frá RKÍ, en hún er tuttugasti sendifulltrúi sem send- ur er héðan til starfa í Thailandi. Sjúkrahús Alþjóða Rauða kross- ins í Khao-I-Dang flóttamannabúð- unum er skurðsjúkrahús, en auk erlendra lækna og hjúkrunarfræð- inga er flest starfsfólkið úr hópi flóttamanna, að því er segir í frétt- atilkynningunni. Yfir 200 þúsund manns dveljast í flóttamannabúðum á landamærum Thailands og Kamp- utseu, og hafa flestir þeirra verið þar um árabil. Asmundarsalur: Sýningá lokaverkefn- umarkitekta SÝNING á lokaverkefnum ný- lega útskrifaðra arkitekta verður opnuð í kvöld, 7. janúar, í Ásmundarsal, Freyjugötu 41, í húsi Arkitektafélags íslands. Á sýningunni gefur að líta loka- verkefni fólks sem á að baki langt nám í ólíkum skólum í ólíkum lönd- um. Þau sem eiga verk á sýningunni eru: Andrés Narfi Andrésson, Hafdís Hafliðadóttir, Halldóra Bragadóttir, Helgi Már Halldórs- son, Hjördís Sigurgísladóttir, Ólöf Flygenring, Pálmi Guðmundsson og Ragnar Olafsson. í tengslum við sýninguna kynna höfundamir verk sín. Helmingur verkanna verður kynntur strax eftir opnun sýningar- innar í kvöld kl. 20.00, hinn helmingurinn verður kynntur fímmtudaginn 14.janúarkl. 20.00. Sýningin verður opin virka daga kl. 17.00-21.00 og um helgar kl. 14.00-18.00. Henni lýkur sunnu- daginn 17. janúar. ^/^pglýsinga- síminn er 2 2480 Umboðsmaður Alþingis ekki tekinn til starfa enn Umboðsmaður Alþingis hefur ekki hafið störf enn, þó að lög um embættið hafi tekið gildi þann 1. janúar. Að sögn dr. Gauks Jörundssonar, sem kjör- inn var af Alþingi til starfsins, hefur ekki verið ákveðið hvar embættið mun hafa aðstöðu, og Alþingi á eftír að setja nánari reglur um starfsmannafjölda og aðra tilhögun starfsins. Dr. Gaukur kvaðst ekki geta sagt hvenær hann myndi taka til starfa, en það yrði þá auglýst. Friðrik Ól- afsson, skrifstofustjóri Alþingis, sagði að þessa dagana væri verið að ganga frá ákvörðun um hvar embætti umboðsmanns Alþingis fær skrifstofu. Hann sagðist reíkna með að starfsmenn embættisins yrðu ekki færri en þrír, en ráðning starfsmanna væri í höndum dr. Gauks. Fróóleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! ALFABRENNA Fáks verður á félagssvæðinu Víðivöllum í Víðidal laugardaginn 9. janúar og hefst kl. 16 Álfakóngur og drottning hans ásamt fylgdarliði mæta á svæðið. Veitingar í félagsheimilinu. Dansleikur um kvöldið hefst kl. 23.00. Diskótek. Hestamannafélagið Fákur 99 TOLLMEISTARINN ER TILBÚINN...EN ÞÚ? 1« HUGBÚNAÐARPAKKI FYRIR TOLLAFGREHÐSLU Forritiö er afar einfalt í notkun og hannaö af Níels Einarssyni. Tollmeistarinn er tilbúinn meö öllum þeim breytingum sem tóku gildi þann 1. jan. 1988. (Já, nú er óhætt að kasta öllum eldri tollforr- itum!) Forritiö, sem er afgreitt á nafn fyrirtækisins, gengur á allar IBM samhæfðar F'C tölvur. Notandinn er leiddur gegnum völundarhús nýju tollalaganna hratt og örugglega. 'IXILLNEISTARIXN • Auðvelt í notkun, leiðir þig áfram • Endurskoðar með athugasemdum • Rétt unnin tollskýrsla flýtir afgreiðslu • Margar útfærslur verðútreikninga • Tollvörugeymslu - úttektir • Eftirsöluþjónusta BERK> TOLLMEISTARINN SAMAN VK> ÖNNUR FORRfT! Komiö, skoöiö og sannfærist um hvaö Tollmeistarinn vinnur auöveldlega fyrir kaupinu sinu. HJÁLPUM TOLLYFIRVÖLDUM Tollmeistarinn er allsherjarlausn fyrir innflytjendur. Hann er seldur á skrifstofú okkar í Ármúla 17 A. •Pantaðu í dag og tollafgreiösluáriö veröur auöveldara frá upphafi. TOLLMEISTAUINN Vínnur fyrir kaupinu sínu! #. TOIJJIIiISTAlUIVN _________________ Opiö frá kl. 8 - 22 Sími: 91-685223 Ármúli 17 A (austurhliö),Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.