Morgunblaðið - 07.01.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988
37
Málefni kaupskrárnefndar:
Heyrir alfarið undir
utanríkisráðuneytið
- segir Jóhanna Sigurðardóttir
JÓHANNA Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðherra, segir að
kaupskrárnefnd, sem fylgist með
og úrskurðar um kaupgjald
starfsmanna varnarliðsins, heyri
alfarið undir utanríkisráðuneyt-
ið og utanríkisráðherra. Fulltrú-
ar starfsmanna á Keflavíkur-
flugvelli sendu miðstjórn ASÍ,
utanríkisráðherra og félags-
málaráðherra erindi seint á
síðasta ári, þar sem óskað er
eftir breytingum á núverandi
fyrirkomulagi kaupskrárnefnd-
ar.
„Málefni kaupskrárnefndar
heyra alfarið undir utanríkisráðu-
neytið og utanríkisráðherra, sem
skipar nefndina. Það er því hans
að taka á þessu máli,“ sagði Jó-
hanna í samtali við Morgunblaðið
aðspurð um viðbrögð hennar við
erindi starfsmanna varnarliðsins.
Hún sagði að einhver ár fyrir árið
1952 hefði þetta heyrt undir félags-
málaráðherra, en með breytingu á
lögum um yfirstjórn mála á svæði
varnarliðsins frá 1954 hefðu þessi
mál verið sett í hendurnar á ut-
anríkisráðherra og utanríkismála-
ráðuneyti.
Morgunbladið/Árni Sæberg
Aðstandendur samkeppninnar, f.v.: Björn Agústsson, Viðar Hauksson
og Axel Eiriksson frá ÍJrsmíðafélagi íslands, Franch Michelsen úr
dómnefnd og Birna Einarsdóttir frá Iðnaðarbankanum.
Samkeppni barna um hönnun úra
Verðlaunaúrið
framleitt í Sviss
ÚRSMÍÐAFÉLAG íslands og Iðn-
aðarbankinn halda samkeppni 6
til 16 ára barna um hönnun úra
og nefnist hún „Úrið mitt“.
Keppni þessi er samnorræn og
hljóta höfundar þriggja bestu til-
lagna hvers lands ferð til Sviss.
Þar verða sigurlaunin afhent en
verðlaunaúrið verður framleitt
af svissneskri úraverksmiðju.
Tilgangurinn með þessari sam-
keppni er að skapa norrænt úr eins
og böm á Norðurlöndunum óska
sér, að sögn aðstandenda keppninn-
ar. Samkeppnin er fyrir börn á
aldrinum 6 til 16 ára og verður kepp-
endum skipt niður í tvo aldurshópa,
6 tíl 11 ára og 12 til 16 ára. Má
hver keppandi aðeins senda inn eina
tillögu, teikningu eða líkan að úri.
Veitt verða þrenn verðlaun í hvorum
aldurshópi auk þess sem höfundar
frumlegustu tillagnanna fá sérstak-
ar viðurkenningar. Besta tillagan úr
hvorum flokki, auk þeirrar frumle-
gustu, munu síðan keppa við tillögur
frá hinum Norðurlöndunum. Úr
verður framleitt af úraverksmiðju í
Sviss eftir verðlaunatillögunni.
Tillögunum ber að skila í næsta
útibú Iðnaðarbankans eða til úr-
smiðs fyrir 6. febrúar næstkomandi.
Umferðin í
Reykjavík:
Slysum fjölg-
aði lítillega
Frá álfabrennu Fáksmanna fyrir nokkrum árum.
> __________
Alfabrenna Fáks
HIN árlega álfabrenna hesta-
mannafélagsins Fáks verður
laugardaginn 9. janúar og hefst
kl. 16.00 á Víðivöllum í Víðidal.
Álfakóngur kemur ríðandi inn á
svæöið ásamt drottningu sinni og
Qölmennu fylgdarliði. Kveikt verður
á brennunni kl. 16.30 og flugeldum
skotið á loft.
Fákskonur verða með veitingar
í félagsheimili félagsmanna. Allir
eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Dansleikur verður haldinn í fé-
lagsheimilinu þá um kvöldið og
hefst hann kl. 23.00.
Umferðarslysum í Reykjavík
fjölgaði lítillega milli áranna
1986 og 1987, samkvæmt tölum
lögreglunnar í Reykjavík. Slö-
suðum fjölgaði úr 245 í 250.
19 hinna slösuðu voru börn en
14 börn slösuðust 1986. Alls
y biðu 4 bana í umferðinni í
Reykjavík árið 1987, einum
fleira en árið áður.
Alls urðu útköll lögreglunnar í
höfuðborginni vegna umferðar-
óhappa 7160 talsins, en árið áður
voru þau 6715. Framan af stefndi
í enn meiri fjölgun óhappa milli
ára enda fjölgaði bifreiðum meira
en nokkru sinni áður. I kjölfar
umferðarátaks sem gengist var
fyrir í september og októbermán-
uði tókst hins vegar að snúa
þróuninni við og á síðasta fjórð-
ungi ársins fækkaði umferðaró-
höppum um tæp 15% frá sama
tíma árið 1986.
Sýknaður af ákæru
um okur í Sakadómi
MAÐUR var nýlega sýknaður í
Sakadómi Reykjavíkur af ákæru
um okur. Dómarinn taldi ekki
fyllilega sannað að hann hefði
gerst sekur um lánveitingar
gegn okurvöxtum, of langur
timi leið frá þvi að málinu var
vísað frá og þar til það kom
aftur fyrir dóm og loks taldi
dómarinn að þar sem málið
hefði verið ónýtt með frávísun
félli ný málshöfðun um sjálfa
sig þar sem ný lög hafa verið
sett í stað eldri okurlaga.
Málavextir voru þeir, að í mars
1986 var maðurinn ákærður fyrir
að hafa lánað Hermanni Björgvins-
syni 115 sinnum peninga árin 1984
og 1985 og áskilið sér og tekið við
hærri vöxtum en leyfilegt var.
Þann 26. janúar 1987 féll ríkissak-
sóknari frá ákærum varðandi lán
sem veitt voru eftir 11. ágúst 1984
og var sú ákvörðun í samræmi við
dóm Hæstaréttar, sem taldi að
hámarksvextir hefu ekki verið aug-
lýstir með réttum hætti af Seðla-
banka íslands. Þá stóð eftir af
ákæru 12 meint peningalán
mannsins til Hermanns Björgvins-
sonar, frá 18. janúar 1984 til 17.
júlí sama ár.
Við rannsókn fyrir dómi kom í
ljós, að ákærði hafði aldrei verið
yfirheyrður um þessi 12 ákæruat-
riði sem eftir stóðu. Dómarinn
ákvað því að vísa málinu frá dómi
þann 2. júlí sl. vegna rannsóknar-
galla. Framhaldsrannsókn hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins leiddi
til þess að ný ákæra var gefin út
varðandi lánveitingarnar 12 og var
maðurinn sakaður um að hafa
áskilið sér tæpar 69 þúsund krónur
í vexti umfram það sem leyfílegt
var.
Maðurinn hélt því fram að tólf
ávísanir, sem voru taldar greiðslur
á vöxtum til hans frá Hermanni,
hefðu verið endurgreiðslur Her-
manns vegna verðbréfaviðskipta
ákærða við hann. Hermann sagði
sjálfur að hann gæti ekki borið á
móti því að einhveijir tékkanna
kynnu að vera vegna verðbréfavið-
skiptanna.
Vegna þessa taldi dómarinn ekki
fyllilega sannað að maðurinn hefði
gerst sekur um lánveitingar gegn
okurvöxtum. Þá taldi hann málið
einnig fyrnt. Það stafar af því, að
þegar máli er vísað frá dómi og
þannig ónýtt verður að taka það .
fyrir aftur innan þriggja mánaða,
samkvæmt 5. mgr. 82. greinar
hegningarlaga. Máli þessu var hins
vegar vísað frá 2. júlí, en ný ákæra
barst dómara ekki fyrr en 5. októ-
ber. Loks benti dómari á, að á
síðasta ári hefðu verið sett ný
vaxtalög, sem leystu okurlögin af
hólmi. I þessum nýju lögum er
bráðabirgðaákvæði, sem kveður á
um að refsiákvæði okurlaganna
skuli halda gildi sínu um opinber
mál, sem ekki hafi hlotið fullnaðar-
dóm við gildistöku nýju laganna.
Dómarinn taldi, að þetta tiltekna
mál hafí hlotið fullnaðardóm með
frávísunardóminum, þar sem dóm-
urinn gat ekki séð fyrir hvort '
hugsanleg framhaldsrannsókn
kynni að leiða til útgáfu nýrrar
ákæru. Málið hafi því í raun verið
höfðað eftir gildistöku nýju lag-
anna og þannig faliið um sjálft sig.
Dóminn kvað upp Helgi I. Jóns-
son, sakadómari.
Utanríkisráðuneytið um vatnsból á Suðurnesjum:
Olía hefur seytlað
niðnr í grunnvatn
HÉR FER á eftir í heild frétta-
tilkynning frá utanríkisráðu-
neytinu um ástand vatnsbóla á
Suðurnesjum:
„Dagana 16.—18. desember sl.
var gerð rannsóknarborun á olíu-
geymslusvæði varnarliðsins,
vestan við Móahverfi í Ytri-
Njarðvík, sunnan bæjarmarka
Keflavíkur, þar sem talið er að
75 þúsund lítrar af gasolíu hafi
runnið úr lekri leiðslu í október
og nóvember. Tilgangurinn með
þessari jarðborun var að fá vissu
fyrir því, að öll olían hefði tapast
á þessum stað, og til að gæta að
því hvort hugsanleg olíumengun
hefði náð grunnvatnsborði.
Á borstað er yfirborð berg-
grunns á 2,9 m dýpi, en alls var
borholan 16,0 m djúp. Grunn-
vatnsborð reyndist vera á 14,5 m
dýpi. Að borun lokinni var steypt
niður á fast berg, til að koma í
veg fyrir að olía gæti komist nið-
ur um holuna.
Við athuganir á borstað og
rannsóknir á borkjarna kom í ljós
að olía hefur seytlað niður í grunn-
vatn. Vatnssýni voru tekin og eru
enn í rannsókn. Hugsanlegt er,
að greina megi hvort þetta sé
afleiðing lekans í haust, eða merki
eldri mengunar.
Jón Jónsson, jarðfræðingur, var
viðstaddur rannsóknarborunina
sem fulltrúi sérstaks vinnuhóps,
sem varnarmálaskrifstofa ut-
anríkisráðuneytisins setti á lag-
gimar í nóvember sl. til að
samræma aðgerðir vegna olíulek-
ans. Hann skilaði bráðabirgða-
skýrslu um borunina hinn 21.
desember sl. og lokaskýrslu 30.
desember sl., þar sem gerð er
grein fyrir mengununni, en jafn-
framt tekið fram að ólíklegt sé
að vatnsból Njarðvíkinga og
Keflvíkinga séu í yfirvofandi
hættu. Til að gæta fyllsta öryggis
komu fulltrúar varnarliðsins og
sveitarfélaganna tveggja saman
hinn 23. desember sl. og lögðu
grunninn að neyðaráætlun um
samtengingu vatnsveitna. Tilað
fá annað sjálfstætt álit sérfræð-
inga á grunnvatnsflæði á þessum
slóðum, gerði Orkustofnun sam-
kvæmt beiðni varnarmálaskrif-
stofu hinn 28. desember sl.,
bráðabirgðaskýrslu byggða á
þeim upplýsingum sem fyrir
liggja. Þessi skýrsla var afhent
hinn 5. janúar sl.og niðurstöður
hennar eru samhljóða áliti Jóns
Jónssonar, þ.e. að hvorki straum-
ur né stefna grunnvatns gefi
tilefni til ótta um neysluvatn
mengist. skyndilega. Vamarliðið
er að undirbúa jarðboranir á
svæðinu í samráði við varnar-
málaskrifstofu og sveitarfélögin.
Er þeim ætlað að tryggja eftirlit
með útbreiðslu mengunarinnar og
hugsanlega dælingu olíumengaðs
vatns úr jarðlögum.
Frá því að kunnugt varð um
mengun grunnvatns á olíu-
geymslusvæðinu og reyndar allt
frá því að fyrst varð vart við olíu-
lekann hinn 6. nóvember sl. hefur
heilbrigðisfulltrúi sveitarfélaga á
Suðurnesjum fylgst náið með
vatnsbólum í Njarðvík og
Keflavík. Hann hefur jafnframt
starfað í fyrrnefndum vinnuhópi
sem hefur átt reglulega fundi með
fulltrúum varnarliðsins. Allt frá
byijun starfsins hefur hópurinn
litið til varanlegra lausna þar sem
mengunarhættan er annars veg-
ar, þ.á m. gerðar nýs vatnsbóls
fyrir Njarðvíkinga. Þessi kostur
er enn til athugunar.
Vegna þeirrar mengunarhættu
sem fylgir mikilli starfsemi á
varnarsvæðinu á vegum vamar-
liðsins, flugfélaga o.fl., er nú í
undirbúningi viðamikil úttekt á
grunnvatni á svæðinu.
Utanríkisráðuneytið,
6. janúar 1987.