Morgunblaðið - 07.01.1988, Síða 55
heim allan. Þannig veitti Ragnar
það sem aldrei er hægt að þakka:
hann gaf mér ný augu til að sjá
undursamlega veröld sem ég vissi
ekki áður að væri til.
Og nú þarf að kveðja þennan vin
sem var líkt og andlegur faðir. Þá
leitar hugurinn til Siggu sem einnig
gaf vináttu sína og visku. Og til
bamanna þeirra, Onnu Aslaugar,
Sigríðar og Hjálmars. Við Bera
sendum þeim öllum og venslafólki
þeirra hugheilar samúðarkveðjur.
Njörður P. Njarðvík
„Isafjörður hefir fyrir mér brugð-
ið liti.“ Þannig segir í sérstæðri
minningargrein, sem Vilmundur
Jónsson, landlæknir, skrifaði um
konu nokkra á ísafirði árið 1939,
Sigríði Elísabetu Árnadóttur. Þessi
kona var eitt systkinanna frá
Hvammkoti og það þeirra, er „sá
tómt helstríð og hjálpaðist af“ þeg-
ar tvö önnur bárust í kaf og
drukknuðu í Kópavogslæk á heim-
leið úr kirkju árið 1874. Um þann
atburð orti séra Matthías Jochums-
son fagurt ljóð, þar sem hann lýsti
með eftirminnilegum hætti dauðan-
um við læk en lífínu við strá, er í
vanmætti sínum starir skjálfandi á
straumfallið. Minningu þessarar
konu sagðist Vilmundur Jónsson
eiga óvenjulega skuld að gjalda.
„Það er ýkjulaust mál“, segir hann,
„að engin manneskja, sem ég hefi
hitt á lífsleiðinni, hefir við jafnlitla
viðkynningu,- aðeins með persónu-
leika sínum, hóglátri návist sinni
og þögulli framgöngu, haft dýpri
áhrif á mig en hún eða orðið mér
geðþekkari. Allt fas hennar verður
mér ætíð minnisstætt sem ímynd
mannlegrar tignar og virðuleika,
hvað sem yfir dynur.“
Og nú hefur straumfall dauðans
tekið með sér Ragnar H. Ragnar —
og ísafjörður hefur brugðið liti.
Minningu hans á þessi bær óvenju-
lega skuld að gjalda, eins og
Vilmundur Jónsson minningu Sig-
ríðar frá Hvammkoti forðum. Með
persónuleika sínum, lífsstarfi og
reisn hefur Ragnar H. Ragnar
markað þau spor í vitund ísafjarð-
ar, að ekki mun fenna yfir, hvert
sem liggja kann vegur allrar verald-
ar. Fólkið í bænum mun geta sótt
dijúgan styrk í minningu þess stór-
brotna manns, er hingað kom á
miðjum aldri til þess að leggja tón-
list og menningu bæjarfélagsins lið.
Um þá liðveizlu í fjóra áratugi hef-
ur munað meira en frá verður sagt
í fáum orðum og ef til vill meira
en flestir ísfirðingar hafa enn gert
sér fulla grein fyrir. Fyrir hana
standa þó ekki aðeins ísfirðingar í
þakkarskuld. Mað verki sínu öllu
hefur Ragnar H. Ragnar auðgað
íslenzka menningu og aukið alin
við þann styrka stofn, er hún stend-
ur á.
ísafjörður hefur um langan aldur
skipað ákveðinn sess í vitund þjóð-
arinnar sem tónlistarbær. Slíkt
gerist ekki af hendingu eða duttl-
ungum en verður aðeins með
þrotlausu starfi — oft að vísu ótrú-
lega fárra. Tónskáldin Jón Laxdal
fyrir og um aldamót og síðan Jónas
Tómasson eldri og loks Ragnar H.
Ragnar eru þeir útverðir, sem öðr-
um fremur hafa skapað það nafn í
tónlistarmenningu landsins, er ísa-
fjörður hefur svo lengi notið.
Vissulega mun á stundum hafa
staðið styrr um Ragnar H. Ragnar,
eins og lætur að líkum með mann
svo stóran í sniðum og djarfhuga.
Um hitt hefur enginn efast, að hann
hafi jafnan gengið heill að hvetju
verki — oftast af eldlegri hugsjón.
Og það kenna okkur hin fomu
Hávamál, að „funi kveikist af funa“.
Sem kennari og skólastjóri Tónlist-
arskóla Isafjarðar, organisti ísa-
fjarðarkirkju og söngstjóri margra
kóra kveikti Ragnar funa hjá þeim,
sem vildu og gátu numið, og bjarmi
þess funa lýsir langt fram á veg.
Sú saga verður þó aldrei nema hálf-
sögð, ef ekki er nefnd til hennar
hin mikilhæfa eiginkona Ragnars,
Sigríður Jónsdóttir Ragnar frá
Gautlöndum. Þau hafa verið sem
einn maður í elju sinni og heimili
þeirra að Smiðjugötu 5 verið til
þess lagt nánast nætur og daga um
ársins hring í fjóra áratugi að vera
tónlistarmiðstöð ísafjarðar og skóli.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JANUAR 1988
Frú Sigríður stendur nú eftir með
þremur bömum þeirra, Önnu Ás-
laugu, píanóleikara, Sigríði, skóla-
stjóra Tónlistarskólans, og Hjálmari
Helga, tónskáldi, en þau hafa öll
haldið merki foreldra sinna á lofti
af þeirri sæmd og karlmennsku, er
aðeins sprettur úr göfugum jarð-
vegi. Þau hafa mikils notið og mikið
er nú frá þeim tekið. Styrkur þeirra
verður því meiri, sem minning um
heimilisföður og leiðtoga er svo
björt.
Einn er sá þáttur í lífshlaupi
Ragnars H. Ragnar, sem vert er
að minnast á og muna, svo samof-
inn sem hann var hinu listræna
eðli hans og vakandi huga, — bæk-
ur hans og bókasöfnun. Fáa menn
hef ég þekkt, er umgengizt hafa
verðugar bækur af jafn mikilli ein-
lægni og lotningu og Ragnar. Hann
bar fölskvalausa virðingu fyrir því
verki hugar og handa, er þær báru
vitni um, bæði að efni og ytra bún-
ing, og vom þau Sigríður samvalin
í því sem öðm. Ragnar átti sjálfur
vandað bókasafn og mikið, þar sem
ófáar bækur em taldar til fágæta.
Hitt er ekki minna um vert, að
hann lagði sig ævinlega fram um
að kynnast efni bóka sinna til sem
mestrar hlítar, var sílesandi, marg-
fróður og minnugur. í Pésa um
bækur og bókamann, sem Jóhann
Gunnar Olafsson, vinur Ragnars og
fyrmm bæjarfógeti á ísafirði, ritar
í tilefni af sextugsafmæli Ragnars
árið 1958, segir svo: „Bókasafn
Ragnars er mikið að vöxtum og
frábært, enda hefur hann verið öt-
ull safnari og ekki talið eftir sér
sporin, ef hann átti von í góðri bók.
Ragnar hefur ekki einkenni bóka-
ormsins, þó hann fái stundum
þunglyndisköst, vegna þess hve
báglega gengur að bæta við bóka-
safnið og fýlla í skörðin. Hann kann
bækur sínar og kannar þær og fer
höndum um þær í hvert skipti, sem
stund gefst frá öðm. Hann man
hverja fagra hugsun á blaðsíðum
þeirra, og hans einkunn er: Books
are a finer world within in the
world.“ Ragnar sökkti sér ekki að-
eins niður í þá liðnu tíð, er bækur
greina einlægt frá, heldur lagði
hann sig einnig fram um að kynna
sér nýjar hugsanir og framtíð-
ardrauma, nýjungar á sviði tækni
og vísinda. Áhugi hans á þeim efn-
um var brennandi, og oft var unun
að hlýða á eldlegar útleggingar
hans á þvi mannfélagi, er bíður
handan við ár og aldir.
Isafjörður hefur fyrir mér bmgð-
ið liti. Stundir í návist Ragnars H.
Ragnar vom auðnustundir og upp-
spretta fyrirheita og vona. Hann
kenndi ekki aðeins með lífsstarfi
sínu heldur einnig með persónuleika
sínum, bjartsýni og allri fram-
göngu, sem verður ætíð minnis-
stæð, eins og fas Sigríðar frá
Hvammkoti, sem ímynd mannlegr-
ar tignar og virðuleika, hvað sem
yfir dynur. Sá, sem kynnzt hefur
Ragnari H. Ragnar, verður ekki
samur maður á eftir.
Pétur Kr. Hafstein
Ragnar H. Ragnar var yndislegur
maður. Mér hefír alltaf fundist það
hafa verið forréttindi að hafa átt
hann að læriföður og vini. Hann
og Siggu hans.
Því gleymir enginn, sem hefír
upplifað að fá að læra hjá honum
á „pjano", spila með sveittum putt-
um á „samæfingum“ í Smiðjugöt-
unni, fá að ganga út og inn þar
eins og heima hjá sér og eignast
hann og Siggu að vinum á við-
kvæmasta skeiði lífsins, 15—20 ára.
Það var ekki einungis að maður
lærði á píanó og tónfræði hjá þess-
um einstöku hjónum, heldur var líka
numin heimspeki, saga og ég veit
ekki hvað í þijúkaffinu. Þá var
opið hús og þá var minn „maestro"
í essinu sínu. Hópurinn kringum
borðið át gat á sig af glóðvolgu,
nýbökuðu kökunum hennar Siggu
og bergði um leið af viskubrunni
þeirra beggja. Guð veit að ég hefði
ekki viljað missa af þessum Isa-
fjarðarárum.
Ég gæti týnt margar endurminn-
ingar til en ætla að eiga þær bara
fyrir mig. En það veit ég, að allir
nemendur og vinir Ragnars og
Siggu hafa álíka sögu að segja. Þau
gáfu svo mikið af sér.
Sigga hefir misst mest. Það var
ekki hægt að hugsa til eða nefna
Ragnar án þess að hún kæmi um
leið í hugann og það er erfítt að
vita til þess að eiga aldrei eftir að
hitta þau framar saman. En við
dauðann deilir maður ekki frekar
en dómarann. ísafjörður hefir líka
misst mikið, en börnin þeirra halda
og munu halda uppi merki föður
síns ásamt móður sinni.
Ég kveð minn góða vin Ragnar
H. með virðingu og sendi Siggu,
Önnu, Siggfu og Hjálmari og fólkinu
þeirra innilegustu kveðjur mínar og
alls míns fólks.
Selma Samúelsdóttir
Það tók undir í húsinu, hurð var
hressilega upp lokið og aftur látin,
því næst annarri hurð og í sól-
bjartri stofunni á Smiðjugötu 5 á
Isafirði stöð snögglega sjötugur
ungur maður, hárið sveipað af vind-
inum utandyra, augun hvöss og grá
undir brúnum, frakkinn blár, trefill-
inn hvítur með trafi, nótnataska
undir hendi. Þannig sá ég fyrst
tengdaföður minn, Ragnar Hjálm-
arsson frá Ljótsstöðum í Laxárdal.
Það eru nærri átján ár síðan
fúndum okkar bar saman, en sú
mynd sem mér þarna birtist af þeim
manni sem ég síðan bar gæfu til
að eiga samleið með stendur mér
enn ljóslifandi fyrir hugskotssjón-
um. Og í dag, þegar við fylgjum
honum síðasta spölinn, þá er það
fjörið sem bjó að baki augunum
gráu sem þrengir sér fram fyrir
allt annað, íjör fijórrar og kraftmik-
illar hugsunar, tæpitungulausra
skoðana og óbilandi trúar á að með
eljusemi, vitsmunum og skynjun á
allt sem fagurt er mætti fá tiltölu-
lega meingallað mannkyn til að
skilja gildi hins smáa og hugsa
stórt.
Ragnar kvaddi þennan heim, sem
hann elskaði svo mjög en uggði
einnig mjög um, á aðfangadag jóla.
Þegar kirkjuklukkur hringdu inn
hátíð lífs og ljóss var hann allur.
Lífshlaup hans var langt og ævin-
týri líkast. Hann fæddist á Ljóts-
stöðum í Laxárdal, S-Þingeyjar-
sýslu, ?8. september 1898, sonur
hjónanna Áslaugar Torfadóttur og
Hjálmars Jónssonar sem þar
bjuggu. Áslaug var dóttir Torfa
Bjarnasonar, búfrömuðar í Ólafs-
dal, og konu hans, Guðlaugar
Zakaríasdóttur frá Heydalsá.
Hjálmar var Mývetningur, sonur
Jóns Árnasonar, bónda á Skútu-
stöðum og konu hans, Þuríðar
Helgadóttur. Áslaug og Hjálmar
eignuðust 8 börn sem upp komust
og var Ragnar þeirra næstelstur.
í Laxárdal ólst Ragnar upp við
nið Laxár, sem „fegurst er allra áa
hér í heimi og þótt víðar væri leit-
að“, eins og hann sagði jafnan
sjálfur. Áin, hraunið, skógurinn,
sönglistin, dúkarnir sem móðir hans
sveipaði með borðin á Ljótsstöðum
og sóleyjar í varpa voru ævinlega
hans heimkynni. Þessi heimkynni
áttu sér með tímanum fyrst og
fremst stað í hugskoti hans. Það
fann ég þau skipti sem við gengum
saman ásamt litlum sonarsyni um
Ljótsstaðaland, sem nú er í eyði.
Ef til vill var dalinn hans hin síðustu
ár ekki síst að finna í dálitlum beiti-
lyngsvendi, sem móðir hans sendi
honum eitt sinn vestur um haf og
hann geymdi ávallt. Þegar menn
síðan hugðust sökkva þessum fagra
dal í þágu íslenskrar orkufram-
leiðslu á sjöunda áratugnum, reis
Ragnar upp öndverður og dalurinn
hans fær enn að syngja sinn óð til
himinsins ósnortinn þeirri hönd sem
allt metur til §ár.
Eftir námsdvöl í Samvinnuskól-
anum í Reykjavík og vetrarvist við
verslunarstörf á Húsavík hélt Ragn-
ar árið 1921 til Vesturheims, fyrst
til Kanada og síðar Bandaríkjanna,
knúinn þeirri löngun til menntunar,
til að skilja hugsanir og sköpunar-
verk manna og vita hvað væri
handan fj'allsins, sem einkenndi
hann til síðasta dags. Vestanhafs
var lífsbaráttan hörð, það var
kreppa og atvinnuleysi, en atvinnu-
leysi taldi Ragnar eitt mesta böl
sem menn gæti hent, þar sem það
svipti menn sjálfsvirðingunni að
vera einskis nýtir og ófærir um að
sjá sér farborða af eigin rammleik.
Talaði hann þar af reynslu. Hann
kynntist hungri og vonleysi, en
einnig hjálpsemi og góðvild og þetta
tvennt mótaði hann á sinn hátt.
Efnisleg gæði fundust honum þakk-
arverð, en ekki takmark í sjálfu
sér, það voru honum hins vegar
bæði hjálpsemi og góðvild.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður tókst
Ragnari að bijótast til náms og
afla sér staðgóðrar tónlistarmennt-
unar. Af viljastyrk og skapsmunum
var hann aldrei fátækur. Með
tímanum gerðist hann umsvifamik-
ill píanókennari, söngstjóri og
undirleikari — og ekki síst gleðinn-
ar maður. I dag slær ljóma á þessi
fjarlægu Ameríkuár. Á ljósmyndum
sjáum við vörpulegan mann, klædd-
an hvítum jakkafötum, halla sér upp
að rennilegum kádilják, slútandi
hattur á höfði, bros á vör. Við sjáum
söngstjórann sveifla heriöinni og
heyrum sönginn óma, við sjáum
skálaræður haldnar, blóm á borðum
og við sjáum hann drekka te úr
bollum með drekamyndum undir
fjarlægum tijám. Hann tók sér
nafnið Ragnar að eftirnafni til þess
að menn vestanhafs gætu ávarpað
hann að íslenskum sið með skírnar-
náfni og jafnframt fylgt þarlendri
venju að notast við eftirnafn til
þeirra hluta.
Þegar heimsstyijöldin síðari
braust út var Ragnar kominn til
Norður-Ðakóta í Bandaríkjunum og
þegar Bandaríkjamenn gengu síðan
til liðs við bandamenn gerðist Ragn-
ar sjálfboðaliði í her Bandaríkja-
manna, þá kominn á fimmtugsald-
ur. Fyrir Ragnari var þátttaka í
styijöldinni eðlilegur hlutur og ef
til vill sá þáttur í ævistarfi hans sem
honum sjálfum fannst mikilvægast-
ur. Ragnar trúði því að hið illa
væri til og léki lausum hala í veröld-
inni. Holdgervingu þess sá hann í
Hitler og nasismanum og hans
skoðun var að hin vondu öfl mætti
ekki láta afskiptalaus, gegn þeim
yrði að vinna með öllum ráðum til
að hið góða og fijálsa fengi þrifist.
í bandaríska hernum var Ragnar
þjálfaður til eyðimerkurhernaðar og
bjóst við að verða sendur til Afríku,
þar sem hersveitir Rommels sóttu
þá fram. Herdeildin hans var send
þangað og týndi þar nær hver mað-
ur lífi. Ragnari voru sköpuð önnur
örlög, hann steig aldrei á land við
sunnanvert Miðjarðarhaf. Formála-
laust og án útskýringa var hann
fluttur úr herdeild sinni og settur
um borð í herskip sem lét úr höfn
í Boston. Vissi enginn hermanna
hvert förinni væri heitið. Þegar líða
tók á siglinguna tóku menn eftir
að kólnaði í veðri og nótt eina heyr-
ir Ragnar hermenn á þiljum uppi
tala um að þeir sjái ísjaka. Hann
gengur upp á þiljur og svipast um
og í dimmri ágústnóttinni sér hann
Snæfellsjökul rísa úr sæ og bera
við himin. Eftir rúmlega tveggja
áratuga útivist var hann skyndilega
kominn heim, hafði ekki átt von á
því að líta ættland sitt aftur.
Ragnar lýsti því oft hve einkenni-
legt það var að standa á þilfari
myrkvaðs herskips, hermaður, sigla
inn Hvalljörð í dimmunni og finna
landið umlykja sig á nýjan leik.
Hans fyrstu verk eftir að hann steig
á land voru að hringja norður í
Laxárdal til móður sinnar og að
ganga upp á Þyril og horfa yfir
landið sem hann unni.
Á Islandi var Ragnar trúnaðar-
maður Bandaríkjahers meðan á
styijöldinni stóð og störf hans
margvísleg. Næmur á mannlegar
þarfir útvegaði hann eitt sinn heilan
bragga af vískíi handa hermönnun-
um að ylja sér við um jólin. Var
ekki örgrannt um að síðan fyndust
honum minni birgðir af bijóstbirtu
heldur smáar í sniðum.
Á stríðsárunum kynntist Ragnar
eftirlifandi konu sinni, Sigríði Jóns-
dóttur frá Gautlöndum í Mývatns-
sveit. Má segja að hann hafi leitað
langt yfir skammt að konuefni, því
tæplega hálf dagleið er á milli Gaut-
landa og Ljótsstaða í Laxárdal. Var
hjónaband þeirra upphafið að öllu
því sem á eftir kom. Á þeim grunni
reis heimilið á Smiðjugötu . 5 á
ísafírði, þegar Ragnar og Sigríður
fluttust þangað eftir þriggja ára
dvöl í Islendingabyggðum í Banda-
ríkjunum, og það var undirstaðan
ekki einungis undir velþekkt starf
Ragnars á ísafírði, heldur einnig
55
lífslist hans þar, gleði og andans
gjafmildi.
Ragnar hafði ákaflega gaman
af að ræða við fólk, ekki síst þá
sem voru á öndverðri skoðun við
hann sjálfan. Skoðanir hans á
heimsmálum og þjóðmálum verða
seint dregnar í dilka á þann veg
að þeim megi skipa í viðtekna
pólitíska skúffu af einhveiju tagi.
Hann hafði enda tilhneigingu til að
efast um eigin skoðanir á slíkum
hlutum um leið og margir voru
orðnir sammála honum. Þó er óhætt
að fuliyrða að hann hafi óttast of-
stjórn og heimsku meira en annað,
einkum ef þetta tvennt fór saman,
og þá meginreglu hafði hann,
fengna úr kínverskri speki, að þeir
stjórnendur sem fæstir fyndu fyrir
væru þeir ákjósanlegustu. En það
var ekki síst lifandi áhuginn sem
fólst í skoðunum hans, neistarnir
sem flugu, sem hrifu og voru í raun
lífsskoðun í sjálfu sér.
Oft var hann samt svartsýnn hin
síðari ár. Umhverfismál voru hon-
um hugleikin, hann sá gjörla að
hveiju stefndi með stórfelldri iðnað-
armengun og gróðureyðingu og var
óþreytandi við að afla upplýsinga
um þessi mál og koma þeim þangað
sem hann vonaðist til að þær mættu
einhveiju breyta. Uggði hann mjög
um framtíð manns og heims í þess-
um efnum.
Ragnar hafði til síðasth dags
brennandi áhuga á að vita og skilja
allt milli himins og jarðar. Hann
var víðlesinn, bókmaður og bóka-
safnari, áhugamaður um öll vísindi,
„hlutlaus" jafnt sem hlutdræg.
Hann var sannfærður um að innan
tíðar yrði eins konar þekkingarbylt-
ing, að menn myndu uppgötva nýjar
víddir í tilverunni, sem gæfu
splunkunýjan skilning á eðli manns
og heims og viðfangsefnum manns-
andans. Verst þótti honum að vera
orðinn of gamall til að geta vonast
til að lifa þann tíma, geta ekki sjálf-
ur tekið þátt í því undri. Má vera
að nú, þegar blæjunni sem skilur á
milli lífs og dauða hefur verið svipt
frá augum hans, hafi honum opn-
ast sú sýn sem hann þráði.
„Skyldi afí nú fá hörpu“ sagði
lítill drengur og bætti við — „ég
vona ekki, ég vona að hann fái
píanó, hann vill það örugglega
miklu heldur. Músíkin, uppspretta
gleði og fögnuðar, tjáning tilfinn-
inga og skynjunar, sem vart verða
í orðum bundin, var Ragnari upphaf
og endir allra hluta, í raun tilvistin
sjálf. Miklu ævistarfi er nú lokið.
Megi hinn skapandi máttur, neisti
þeirrar gleði sem í músíkinni býr,
fylgja Ragnari Hjálmarssyni frá
Ljótsstöðum hvar hann nú gengur.
Sigríður Dúna Kristinundsdóttir
„Munurinn á ykkur og rússnesku
píanósnillingunum er sá að á ykkar
aldri æfðu þeir sig í tvo tíma á
morgnana áður en þeir fóru í skól-
ann,“ sagði Ragnar eitt sinn á
samæfingu í stofunni í Smiðjugötu
5. Ég var þama að læra á klari-
nett og tók þetta ekki til mín, en
píanónemendum var greinilega
brugðið. Svona staðhæfing var ekki
brandari fyrir Ragnari heldur leit
hann á það sem gefið mál að nem-
endur hans hefðu tiltrú á sjálfum
sér, mikinn metnað og stefndu hátt.
Eitt sinn heyrði ég konu segja ann-
arri frá skiptum sínum við Ragnar.
Hún hafði komið dóttur sinni í Tón-
listarskólann og nú æfði stúlkan
verk löngu liðinna meistara öllum
stundum á píanóið. Ekki orðinn fló-
arfriður fyrir músík á heimilinu.
Konan kom að máli við Ragnar og
sagði honum að markmiðið með
píanónámi dótturinnar ætti að vera
það að hún gæti skammlaust. leikið
lögin í Islenska söngvasafninu í fyöl-
skylduboðum. Og hveiju svaraði
Ragnar? „Þá er hún í röngum skóla.
Eg get ekki litið á nemendur mína
sem neitt minna en séní!“
Nemendur Ragnars voru ekki
einungis píanónemendur í Tónlist-
arskólanum heldur kenndi hann
öllum söng í bamaskólanum og í
gagnfræðaskólanum. Og þótt við
værum kannski ekki vandræðalýður
þá var þetta enginn englahópur, svo
mikið er víst. Eitt sinn á árshátíð
gagnfræðaskólans klappaði hópur
stráka Önnu Áslaugu niður þar sem