Morgunblaðið - 07.01.1988, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS „
ivuttfMn'm'HlL
Þessir hringdu . . .
Skautasvell á
Tjörnina
Gamall Reykvíkingur hringdi:
„Nú er Tjömin öll ísilögð eftir
frostið undanfarna daga. Ég vil
beina því til borgaryfirvalda að
láta gera gott skautasvell í norðu-
renda Tjamarinnar eins og gert
hefur verið. Einnig þyrfti að koma
upp einhverri aðstöðu fyrir fólk
sem vill stunda skautaíþróttina
þama. Ekki þyrfti miklu til að
kosta, t.d. mætti flytja vinnuskúr
á staðinn."
Meira þungarokk
Þungarokkari hringdi:
„Tónlistarsmekkur þeirra sem
ráða ferðinni hjá nýju
útvarpsstöðvunum er óneitanlega
nokkuð einhæfur og fylgja þær
því miður að mestu leyti þein-i
stefnu sem rás 2 mótaði illu heilli
í upphafi. Alls kyns undanrennu-
músík er flutt frá morgni til
kvölds og reyndar allar nætur.
Ærlegt þungarokk heyrist hins
vegar alltof sjaldan. Stjórnendur
þessara útvarsstöðva ættu að taka
sig á og hafa nokkra þætti í viku
þar sem flutt væri þungarokk ein-
göngu."
Hefur
skattbyrðin
aukist?
F.S. hringdi:
„Ég hef verið fremur fylgjandi
staðgreiðslukerfí skatta en hitt
en nokkuð bregður mér í brún nú
þegar ég kynnist því að eigin
raun. Er það ekki rétt hjá mér
að skattar hafí verið hækkaðir
töluvert með tilkomu þessa kerfís?
Ég hélt að látið yrði nægja að
setja á matarskatt þó gömlu
skattarnir yrðu ekki hækkaðir
líka. Gaman væri að sjá nákvæ-
man samanburð á þessum tveimur
skattkerfum og úttekt á því
hversu mikið skattbyrði þjóðar-
innar hefur aukist að undanf-
örnu.“
Látið ekki hundana ganga lausa
Til Velvakanda.
Ég sá mig tilneydda að skrifa
nokkrar línur í Velvakanda út af
skoðanakönnun sem Skafís vann
fyrir skrifstofu borgarstjóra um
hundahald. Þar kemur fram að 66%
Reykvíkinga sem tóku afstöðu í
könnuninni telja að tekist hafi vel
með þessa tilraun en 33,8% telja
hana hafa tekist illa. Ég ætla að
taka það fram að ég er ekki á
móti hundahaldi ef farið er eftir
settum reglum um hundahald.
í götunni sem ég bý í er allt fullt
af hundum, flestir ganga þeir laus-
ir og oft hef ég séð þá glefsa að
bömunum og urra. Það er ekkert
grín að vera bam í þessu hverfi og
vera hræddur við hunda.
Dóttir mín sem er sex ára kemur
oft og iðulega hlaupandi heim
skjálfandi úr hræðslu og segir mér
frá hinum og þessum hundi sem
gengur laus. Og ekki fer hún aftur
fyrr en ég hef sannfært hana um
að hundurinn sé farinn. Þetta skap-
ar oft vandræði þegar hún er á
leiðinni í skólann.
Fyrir rúmu ári var hún ekki hald-
in þessari ofsahræðslu við hunda.
Þá skeði það að hún og vinkona
hennar fóru að elta hund sem býr
hér í götunni, og hljóp hann út á
stóra umferðargötu hér í grennd
við okkur, og hún hljóp á eftir hund-
inum og varð fyrir bíl. Það var
bara fyrir snarræði ökumanns að
hún varð ekki undir bílnum heldur
skall hún á hliðarspegli bflsins og
fékk heilahristing. Börn blindast oft
í hita ieiksins. En þið hundaeigend-
ur ættuð ekki að gefa þeim færi á
að leika sér svona.
Hvemig væri að birta tölur um
hunda sem em skráðir hjá borginni
og hvað margir hundar em í eigu
fólks í borginni, ekki sakar að fá
birtar reglur um hundahald. Að lok-
um, kæm hundaeigendur, hafíð
hundanna inni hjá ykkur ef þið eig-
ið ekki ólar handa þeim.
Móðir
Fæðingarorlof verði
jafnt fyrir allar konur
Draumvísa
Til Velvakanda
Ömmu mína dreymdi vísu sem
hún hefur aldrei heyrt áður eða les-
ið. Vísan er henni mjög hugleikin
og ef einhver kannast við vísuna
væri gaman að vita hvaðan hún er.
Vísan er svona:
Lestu bréfið, látu það svo rata
bjartan, glaðan eldinn á,
svo enginn maður fái að sjá.
Jónína Bjarnadóttir
Skrif ið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, em ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistía og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Til Velvakanda
Undanfama daga hefur staðið
yfír kynning á breyttu fyrirkomu-
lagi fæðingarorlofs. Þar á meðal
er lenging fæðingarorlofs um einn
mánuð og aukin réttindi maka
bænda. Samt virðist mér að einn
hópur kvenna hafi algerlega orðið
útundan eins og áður en það em
heimavinnandi húsmæður. Heldur
háttvirtur ráðherra virkilega að
húsmæður nái ekki 1032 dagvinnu-
stundum á heilu ári? (þ.e. tæplega
þrjár klukkustundir á dag!)
Nei, samkvæmt þessum nýju
reglum eins og þeim gömlu fá hús-
mæður aðeins um það bil einn þriðja
af því sem útivinnandi konur fá.
Hugsið ykkur mæður með böm á
skólaaldri, böm sem sífellt em að
fara í skólann eða koma hpim.
Stundartöflur í sumum skólum em
ekki beint til að hrópa húrra fyrir.
Yngri börnin komast ekki í leik-
skóla fyrr en um þriggja ára aldur
og hvar eiga þau að vera þangað
til? Og sem betur fer emm við líka
til sem viljum og langar til þess að
vera hjá bömunum okkar fyrstu
árin (ekki bara ijóra mánuði) og
viljum við sannarlega ekki vera
flokkaðar þriðja flokks þjóðfélags-
þegnar vegna þess.
Hið nýja staðgreiðslukerfi skatta
gerir okkur ekki einu sinni kleift
að nýta fullan persónuafslátt ef við
emm svo ósvífnar að afla ekki
tekna, þ.e. beinharðra peninga, til
heimilisins. Er ekki tímabært að
leiðrétta þetta misrétti? Auðvitað á
fæðingarorlof að vera jafnt fyrir
allar konur.
H.Þ.
a
KASKÓ
skemmtir
MÓDELSAMTÖKIN
S Ý N A.
HUGLEIDA fSm HOTEL
AAguigMyrir kr. 200.-
Byijendanámskeid hjá karatedeild
Gerplu eru að hefjast.
Kennt verður Shotokan karate.
Æft verður á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum í íþróttahúsi
Gerplu, Skemmuvegi 6, Kópavogi.
Innritun í síma 74925 eftir kl. 16.00.
Byrjendanámskeið í
KARATE
Þjónustumiöstöð EIMSKIPS í
Sundahöfn er vettvangur góöra
atvinnutækifæra.
Þessa dagana leitum við að
starfsmönnum til framtíöarstarfa
í eftirfarandi stööur:
1. Lyftarastörf
2. Vörumóttaka (8 tímar á dag)
3. Almenn störf á hafnarsvæði
4. Afleysingastarf í smurstöð
Hjá okkur er góður vinnuandi,
næringaríkt mötuneyti og lifandi
starfsmannafélag.
Ef þú hefur áhuga á góðri vinnu
með mikla framtíðarmöguleika
þá skaltu hringja í síma 689850
Framtíðar-
starfið
færðu hjá