Morgunblaðið - 20.02.1988, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988
61
FOLX
■ BOCHUM sigraði Borussia
Dortmund með tveimur mörkum
gegn einu á útivelli í vestur þýsku
úrvalsdeildinni í knattspymu í
fyrrakvöld.
■ FLENSBORGARSKÖLINN í
Hafnarfirði mun standa fyrir hinu
árlega Bersamóti í handknattleik,
fyrstu vikuna í mars. Keppt verður
í íþróttahúsinu við Strandgötu, en
rétt til þátttöku eiga allir mennt-,
framhalds-, og fjölbrautaskólar í
landinu. Nánari upplýsingar gefa
Hörður, í síma 52033 og Leifur, í
síma 51031.
■ PORTSMOUTH stendur
mjög illa þessa dagana og skuidir
liðsins eru mjög miklar. Liðið skuld-
ar 627.000 pund í skatta, en alls
munu skuldir liðsins nema tæpri
milljón punda. Þrátt fyrir það eru
forráðamenn liðsins bjartsýnir.
„Þetta er ailt í lagi ennþá. Við þurf-
um að ganga frá nokkrum formsat-
riðum, en félagið verður ekki gert
upp,“ sagði Martin Polden lög-
fræðingur félagsins. Hann sagði að
ein helsta ástæðan fyrir slæmri
stöðu félagsins væri hve fáir áhorf-
endur mættu á leiki liðsins. „Ef að
önnur lið fengju jafn fáa áhorfendur
og við þá ættu þau einnig í vand-
ræðum." Hann vildi ekkert segja
um hvort Portsmouth myndi reyna
að selja leikmenn til að greiða þess-
ar skuldir.
■ Júrgen Sparwasser hefur
verið ráðinn þjálfari Eintracht
Frankfurt í v-þýsku Bundeslig-
unni. Sparwasser lék í mörg ár
með austur-þýska landsliðinu og
skoraði m.a. sigurmark A-Þýska-
lands í óvæntum sigri yfir V-
Þjóðveijum í heimsmeistara-
keppninni 1974. Sparwasser ákvað
að verða eftir í V-Þýskalandi, í
síðasta mánuði, en þar var hann í
keppnisferð.
IÞROTTIRUM HELGINA
Mikid um að vera
að verður nóg um að vera á
íþróttasviðinu um helgina.
Stórviðburðir helgarinnar eru
Evrópuleikur Vfkings gegn so-
véska meistaraliðinu ZSKA
Moskvu og 3. deild Evrópukeppn-
innar í borðtennis. Hér fer annars
listi yfír það sem upp á er boðið:
HandknattMkur
Eins og áður sagði mætá Víking-
ar sovéska liðinu ZSKA Moskvu
í Laugardalshöll. Leikurinn hefst
kl. 20.30 á sunnudagskvöld og
er fyrri viðureign iiðanna í 8-liða
úrslitum Evrópukeppni meistara-
liða.
Fjórir leikir eru á dagskrá í 1.
deild karla. í dag mætast annars
vegar Þór og KR í íþróttahöllinni
á Akureyri og hins végar Breiða-
blik og KA í Digranesi í Kópa-
vogi. Báðir leikimir hefjast kl.
14.00. Á morgun leika svo FH
og Stjaman í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði og hefst viðureign
þeirra kl. 20.00. Síðasti leikurinn
verður á mánudagskvöld og eig-
ast þá við ÍR og Valur í íþrótta-
húsi Seljaskóla. Baráttan þar
hefst kl. 20.00.
í 1. deild kvenna verða þrír leikir
á morgun. Þetta em leikir sem
frestað var vegna ferðar landsliðs-
ins til Finnlands og Sviþjóðar fyr-
ir skömmu. í Seljaskóla mætast
Þróttur og Valur kl. 19.00 og á
sama stað hefst leikur KR og
Sijömunnar kl. 20.15. Þar á eft-
ir, kl. 21.30 mætast svo Fram og
Víkingur, einnig í Seljaskólanum.
KðrfuknattMkur
Einn leikur verður í dag í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Haukar
fá Grindavík í heimsókn í Hafnar-
QuAjón Amason verður í eldlinunni
á morgun gegn Stjömunni.
flörðinn kl. 14.00. UÍA og Léttir
mætast í 1. deild karla á Egils-
stöðum í dag kl. 14.00 og í 1.
deild kvenna mætast ÍS og ÍR í
íþróttahúsi Kennaraháskólans kl.
20.00 á mánudagskvöld.
Borðtonnls
3. deildin verður haldin í
Reykjavík um helgina. Mótið fer
fram í íþróttahúsi Kennaraháskól-
ans. Setningarathöfn hefst kl.
9.00 fyrir hádegi f dag og fyrsti
leikurinn hefst svo 15 mínútum
síðar. Keppni hefst svo aftur kl.
9.00 í fyrramálið. Nánar er greint
frá keppninni annars staðar f blað-
inu í dag.
Badmlnton
fslandsmót unglinga fer fram í
dag og á morgun. Keppt verður
f Laugardalshöll og hefst keppni
kl. 10.00 báða dagana. Keppendur
em 190 talsins frá 10 félögum.
Keppt er í fjórum aldursflokkum
drengja og stúlkna í einliðaleik,
tvíliða- og tvenndarleik. Yngstu
keppendumir em 10 ára og þeir
elstu 18. Búast má við hörku í
öllum flokkum þar sem keppnis-
gleðin verður í fyrirrúmi að vanda.
SkfM
Keppt verður í norrænum greinum
á Ólafsfírði í dag og á morgun. í
stökki, og göngu, 15 km með
frjálsri aðferð og 10 km með hefð-
bundinni aðferð. keppt er í flokk-
um fullorðinna. Þá er unglinga-
mót í alpagreinum á Dalvík í dag
og á morgun, keppt er f flokki
13-14 ára.
Blak
Úrslitakeppni íslandsmótsins
hefst í dag. Þá leika KA og Þrótt-
ur í karlaflokki kl. 14.30 í fþrótta-
húsi Glerárskóla á Akureyri og á
morgun eigast við HK og ÍS kl.
14.00 í Digranesi. Á eftir þeim
leik mætast svo UBK og ÍS f
kvennaflokki, kl. 15.45.
í bikarkeppni kvenna verður einn
leikur í dag: Völsungur mætir
Víkingi kl. 15.45 á Húsavík.
Kaila
Safeway-mót verður haldið um
helgina í Keilusalnum í Öskjuhlíð.
Keppni í dag hefst kl. 12.00 í fjór-
um flokkum — f tveimur karla-
og tveimur kvennaflokkum. í öðr-
um karlaflokknum verða kepp-
endur að hafa að minnsta kosti
160 í meðaltal og 140 í hinum, en
í kvennaflokknum 150 og hinn
Pálmar SlgurAsson og félagar
taka á móti Grindvíkingum f dag.
er fyrir þá sem eru með undir
því. Þá verður ungiingakeppni á
morgun í Öskjuhlíðinni og hefst
hún kl. 10.00. Keppni verður einn-
ig á morgun f kvennadeild og
hefst hún kl. 12.30.
Vsggtonnls
Á morgun, sunnudag fer fram
þriðja Raquetballmót vetrarins.
Mótið er eitt af ^órum mótum á
vegum eftirtalinna aðila: Stjöm-
unnar FM-102,2, Dansstúdíó Sól-
eyjar og Veggsport hf.
Mótið á sunnudaginn verður hald-
ið í Dansstúdíó Sóleyjar og hefst
kl. 13.00. Þátttaka tilkynnist í
Veggsport hf. í síma 19011 eða
í Dansstúdfó Sóleyjar f síma
687701 fyrir kl. 13.00 í dag.
KNATTSPYRNA
Knattspyrnudómarafélag Suðurnesja:
Káií Gunnlaugsson
fékk afreksbikarinn
KÁRI Gunnlaugsson knatt-
apyrnudómari úr Keflavfk fókk
afreksbikar Knattspyrnudóm-
arafólags Suðurnesja fyrir
árið 1987. Bikarinn er gefinn
af Útvegsbanka íslands í
Keflavfk og afhenti Indriði Jó-
hannsson blkarinn fyrir hönd
bankans.
Kári Gunnlaugsson er eftilvill
þekktari sem knattspymu-
maður en dómari, því hann lék í
12 ár með 1. deildarliði BBK. Kári
sagði f samtali við
Bjöm Morgunblaðið að
Blöndal hann hefði tekið
skrífar dómarapróf fyrir 3
árum. Hann hefði
síðan dæmt sem unglingadómarií 2
ár og f fyrra hefði hann dæmt sem
héraðsdómari og þá fengið að dæma
leiki í 3. deild. „Næsta skrefíð er
að fá réttindi sem landsdómari og
síðar meir að dæma í 1. deild. Dóm-
arahlutverkið á vel við mig og ég
fínn að sú reynsla sem ég á að
baki sem leikmaður f 12 ár kemur
til góða f starfinu.
Þetta er f annað sinn sem sem af-
reksbikarinn er veittur.í fyrra hlaut
Bjami Ástvaldsson bikarinn. Magn-
ús Gíslason sem átti sæti í valnefnd
sagði að margir hefðu verið kallað-
ir, en fáir útvaldir og hann vonaði
að útnefningin yrði Kára til hvatn-
ingar.
MoFgunblaðið/Bjöm Blöndal
Kórl Ounnlaugsson tekur við afreksbikamum úr hendi Indriða Jóhannsson-
ar fulltrúa Útvegsbanka íalands í Keflavík.
AXLARTÖK
Morgunblaðið/Júlíus
OarAar Vllhjálmsson, UÍA, sigr-
aði f fyrsta axlatakarmótinu hér á
landi, en það fór fram um sfðustu
helgi, Með umsögninni um mótið birt-
ist hins vegar ekki mynd af Garðari,
eins og ráðgert var, heldur af Guð-
brandi Sigurðssyni. Hér á meðfylgj-
andi mynd er Garðar, til hægri, ásamt
William Baxter, Skota sem var gestur
á mótinu. Beðist er velvirðingar á
þessu.
ÞJÁLFARIÓSKAST
Handboltaliðið Kyndill í Færeyjum óskar
eftir að ráða þjálfara.
Upplýsingar veittar í síma 90298-14356
hjá Herborgu Johansen eftir
kl. 15 næstu daga.
Firma- og hópakeppni
UMFA í knattspyrnu
helgina 27.-28. febrúar í íþróttahúsinu að Varmá.
Þrenn verðlaun. Þátttökugjald kr. 5.000,-
Nánari upplýsinar og skráning:
Á daginn: 621177 — Hörður.
667406 —Jóhann.
Á kvöldin: 667266 - Hilmar.
Knattspyrnudeild UMFA
- þar sem knattspyrna er list.
SPÁDU Í UÐÍN
SP/LAÐU MEÐ
Hægt erað spá í leikina símleiðis og
greiða fyrirmeð kreditkorti.
Þessi þjónusta er veittalla föstudaga frá kl. 9:00
til '17:00 og laugardaga frá kl. 9:00 til 13:30.
Síminn er 688 322
llá ÍSLENSKAR GETRAUNIR
- eini lukkupotturínn þar sem þekking
margfaldar vinningsiíkur.
Tvöfaldur
pottur
LEIKVIKA 25
Lelkir 20. febrúar 1988
1 ársenal - Man.-United'
2 Birmingham - Nott’m Forest1
3 Newcastle - Wimbledon1
4 Port Vale - Watford1
5 Q.P.R. - Luton1
6 Charlton - Sheffield Wed.2
7 Oxford - Derby2
8 Blackburn - Aston Vllla3
9 Millwall - Oldham3
10 Shetfield United - Barnsley3
11 Shrewsbury - Swindon3
12 Stoke-Leeds3
K
1 X 2