Morgunblaðið - 01.03.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988
45
Einar Ólafsson
fulltrúi — Minning
Fæddur 12. nóvember 1912
Dáinn 23. febrúar 1988
Fregnin um andlát hans kom
mér ekki á óvart, því að svo hrjáð-
ur var hann orðinn af ólæknandi
sjúkdómi, þegar ég síðast vissi til.
Einar Olafsson var fæddur í
Keflavík þann 12. nóvember 1912.
Foreldrar hans voru hin kunnu og
merku hjón Ólafur J.A. Ólafsson,
kaupmaður í Keflavík, útvegsbóndi
og póstafgreiðslumaður þar, og
Guðrún Einarsdóttir. Ólafur var
einkabarn merkishjónanna, Am-
bjamar Ólafssonar, fyirum vita-
varðar á Reykjanesi, síðar kaup-
manns í Keflavík, og konu hans
Þórunnar Bjamadóttur. Guðrún,
móðir Einars, var fædd í Sand-
gerði, dóttir Einars Sveinbjömsson-
ar, útvegsbónda þar, og konu hans
Guðrúnar Bjamadóttur frá Geld-
ingaholti í Skagafirði. Um Guðrúnu,
ömmu Einars, hafði Skagfirðingur-
inn Indriði Einarsson, skáld og rit-
höfundur, þau orð, að hún hafi ver-
ið fyrirkonuleg í sjón og með gáfuð-
ustu konum sem hann hafði talað
við, og ennfremur að hún hafí verið
kvenskörungur og ættarskart. Hún
var af Reynisstaðarætt.
Ólafur, faðir Einars, andaðist
árið 1941, 56 ára að aldri, en móðir-
in, Guðrún, árið 1970 83 ára.
í eftirmælum um Guðrúnu segir
m.a. gagnkunnugur heimilisvinur
þeirra og sveitungi, Bragi læknir
Ólafsson: „Þau hjón, Olafur og
Guðrún, voru tvímælalaust með
allra glæsilegustu hjónum, sem þá
byggðu Keflavík, og heimili þeirra
varð brátt eitt af glæsilegustu og
jafnframt gestrisnustu heimilum
byggðarlagsins þar sem ríkti jöfn-
um höndum fijálsleg glaðværð og
hóglát alvara. Fjöldi vina, kunn-
ingja og sveitunga áttu þar margar
ánægjustundir fyrr og síðar, og all-
ir sóttust eftir kynnum við þessi
göfugu hjón.“
Þau hjónin Ólafur og Guðrún
eignuðust tvö böm auk Einars, sem
var þeirra elstur, Þórunni, sem býr
í Keflavík, ekkja eftir Helga S.
Jónsson verslunarmann og Arn-
björn, sem einnig er búsettur þar,
fyrrverandi bókari hjá Rafveitu
Keflavíkur.
Ungur hleypti Einar heimadrag-
anum til náms og mennta, hinn
gjörvulegasti í sjón og reynd með
hið ákjósanlegasta veganesti, sem
hann hlaut á uppeldisárunum á
höfðingsheimili, sæmdar foreldra,
og bar hann ávallt síðan svipmót
síns heima í dagfari öllu og fram-
komu.
Framhaldsnám stundaði hann í
fyrstu við Flensborgarskóla í Hafn-
arfirði. Lauk gagnfræðaprófi 1930
og settist um haustið í 4. bekk
Menntaskólans í Reykjavík, mála-
deild. Hann útskrifaðist sem stúd-
ent þaðan sumarið 1933. Sama ár,
síðsumars, hóf hann nám í verslun-
arfræðum við Niels Brocks Hand-
elsskole í Kaupmannahöfn og lauk
prófi þar ári síðar.
Þá voru dapurlegir tímar hjá
þjóðunum, kreppuárin alræmdu.
Viðskiptalíflð drepið í dróma, allt
framtak lamað og framkvæmdir í
lágmarki. Þá bar hæst úrræða- og
atvinnuleysi hér á landi sem og hjá
öðrum þjóðum. Voru þetta óbjörgu-
leg ár og hvimleið ungum mönnum
í broddi manndóms, vel menntuðum
og vel búnum til að takast á við
hæfileg verkefni.
Næstu árin, að námi loknu,
stundaði Einar ýmis tilfallandi störf
í heimabyggð sinni. En árið 1944
réðst hann sem starfsmaður við
embætti lögreglustjóra í Keflavík,
en þá var lögreglustjóri þar Alfreð
Gíslason, síðar bæjarfógeti í
Keflavík frá 1949—1961. Er mér
kunnugt um að samstarf fógeta og
fulltrúa, þeirra Alfreðs og Einars,
var jafnan með miklum ágætum,
einlæg vinátta þeirra á milli og fjöl-
skyldna þeirra.
Við þessi embætti bæði vann
Einar í 32 ár uns hann árið 1976,
sextíu og fjögurra ára, let af störf-
um. Síðan vann Einar í Sparisjóði
Keflavíkur á meðan heilsa og þrek
leyfði, raunar fram til hins seinasta.
Árið 1949 þann 17. desember
kvæntist Einar í Hellerup í Dan-
mörku eftirlifandi eiginkonu sinni,
Liss Jelstrup. Var faðir hennar,
Christian Jelstrup, yfirvélstjóri,
lengi á Grænlandsförum konung-
legu Grænlandsverslunarinnar
dönsku. Hann var fæddur á eynni
Saint Croix, danskri nýlendu þá, í
Vestur-Indíum. Var eiginkona
hans, móðir Liss, Elna Jelstrup.
Rann henni í æðum íslenskt blóð,
þar sem móðir hennar var Vil-
helmína, dóttir Stefáns Gunnlaugs-
sonar, landfógeta og bæjarfógeta í
Reykjavík og Ragnhildar Bene-
diktsdóttur, yfirdómara og skálds
Gröndals, systur Helgu, konu
Sveinbjamar Egilssonar, rektors,
móður Benedikts skálds Gröndals
yngra.
Ég þykist mega segja að sanni
vinur minn, Einar Ólafsson, hafi
gengið til móts við mikla lífsham-
ingju sína þegar forsjónin leiddi
saman vegu þeirra hjónanna, þvf
að Liss reyndist honum alla tíð hin
vænsta kona í hvívetna, myndarleg,
sköruleg húsfreyja og hinn elsku-
legasti förunautur um langan veg,
í nær fjögurra áratuga samfylgd.
Þau áttu fallegt og hlýlegt heimili,
bæði fyrr og síðar þar sem gott var
að koma og njóta samfunda við
gestrisna, alúðlega húsbændur, þar
sem andaði friði og góðvild að gest-
um og gangandi.
Þau eignuðust 3 mannvænleg
böm, vel menntuð og fáguð, Ólaf
Jón, lækni, sem býr í Kópavogi,
kvæntur Guðbjörgu Halldórsdóttur.
Á hann eina dóttur frá fyrra hjóna-
bandi. Annað bam þeirra er Mar-
ianna, til heimilis í Keflavík, gift
Þorsteini Marteinssyni, verslunar-
stjóra þar, og eiga þau þijá syni.
Yngst er Guðrún, til heimilis í
Reykjavík, gift Einari Páli Svavars-
syni, framkvæmdastjóra, og eiga
þau eina dóttur. Hefur Guðrún lok-
ið BA-prófí í frönsku og málvísind-
um.
Einar Ólafsson var góðum gáfum
gæddur eins og hann átti kyn til,
vörpulegur og vel á sig kominn.
Trúr var hann og skyldurækinn,
hreinljmdur og áreiðanlegur. Hann
var námsmaður góður, tungumála-
maður, og þurfti ekki að hafa mik-
ið fyrir. Löngu eftir að námsárum
lauk tók hann að leggja stund á
framhaldsnám í frönsku. Hann unni
mjög franskri tungu og menningu
og dvaídi oft lengur og skemur í
Frakklandi, þegar hann hafði tóm
til og tækifæri. Öðrum þræði var
Einar heimsmaður og naut sín vel
á góðum stundum með félögum og
vinum, hinsvegar fátalaður alvöru-
maður, sem hvorki flíkaði sjálfum
sér né skoðunum og tilflnningum.
Hann var umhyggjusamur heimilis-
faðir, natinn í starfi heima og heim-
an og átti erfitt með að þola kæru-
leysi og hirðuleysi í fari þeirra sem
hann hlaut að eiga samskipti við.
Mikill og traustur vinur var hann
vinum sínum og hug hans og hjarta
.áttu ástvinir hans, því að hús hans
og heimili var honum það athvarf,
skjól, þar sem hann fékk notið þess
næðis og yndis sem var honum hve
dýrmætast, ekki síst hin síðari árin
þegar aldurínn færðist yflr og sjúk-
leikinn sótti að.
Við Einar vorum sessunautar í
skóla, nánir vinir alla tíð síðan, og
þó að samfundir yrðu strjálli með
dögum og árum, var aldrei nema'
vík milli vina.
Einar Ólafsson andaðist á heim-
ili sínu þriðjudaginn 23. þ.m. á sjö-
tugasta og sjötta aldursári. Dagur
er að kveldi kominn, lífssól hans
hnigin þessa heims.
Við bekkjarsystkinin hans og vin-
ir biðjum honum fararheilla og
Guðs blessunar. Eiginkonu hans,
frú Liss, bömum þeirra, systkinum
hans og öðrum ástvinum vottum
við samúð okkar og vonum að þau
megi styrk standa í vályndi veðra-
brigðum mannlífsins um ókomin ár. ’
Fari minn góði vinur heill.
Grímur Grímsson
SUMARLITIR198*
T3Íodroqa snyrtivömr
Áugnskuggar
Litir: Orchid Flowers
Country Flowers
Áugnlína
Litir: Grátt og Avocado
Kinnalitur þurr
Lidr: Iris og Peach
Yaralitír
Litir: Hyacinth og Peach
Naglalakk
Litír: Hyacinth og Peach
Hyljari
Litir: Natural og Tan
rr
Útsölustaðir: Brá, Laugavegi 74,
Stella, Bankastræti 3, Ingólfs Apótek, Kringlunni,
Lilja Högnadóttir, snyrtistofa, Akranesi,
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki,
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri,
Vestmannaeyja Apótek ,Vestmannaeyjum,
Snyrtistofan, Hótel Loftleiðum.
c^tella
Einu sinni T3iodroqa alltaf "Biodroqa
Bankastræti 3.
S. 13635.
HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ
Síðasta hraðlestrarnámskeið vetrarins
hefst 16. mars nk.
Viljirþú margfaida hraöa iestrarhraða þinn,
hvort heldur er vlð lestur námsbóka eða fag-
urbókmennta, skaltu skrá þlg strax á nám-
skelðlð.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091
(ath: nýtt símanúmer).
Hraðlestrarskólinn.