Morgunblaðið - 01.03.1988, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988
53
Guðrún var félagslynd og hafði
gaman og gagn af samskiptum við
gott fólk. Hún átti margt fólk að
vinum og kunningjum, var oft í
símasambandi við það, einnig heim-
sóknum eða það til hennar. Hún
var glöð og glettin í sínum hóp og
oft orðheppin og lét engan eiga hjá
sér. Hún hafði gott útsýn yfir mann-
hafíð og þekkti marga, því hún var
mannglögg. Einnig þurfti hún að
fá fréttir og fylgdist vel með, hún
var alltaf með á nótunum.
Guðrún var ófeimin við að segja
fólki til syndanna ef henni líkaði
ekki lífemið, oft á hvatlegan hátt,
en hressilegan svo eftir var tekið.
Hún vildi unga frændfólkinu vel
sem dvaldi hjá henni, en hún gat
sagt því meiningu sína. Reyndar
kunni unga fólkið vel að meta hana
og skildi hvað hún vildi, hún vildi
því vel. Þetta varð til þess að hún
átti unga fólkið að tryggðarvinum
sem marga fleiri.
Það komu margir vinir að sjúkra-
beði hennar, og höfðu mikla samúð
með henni, enginn þó eins oft og
Guðfinna Agnarsdóttir. Hún átti
ófá sporin á sjúkrahúsið til hennar.
Eitt er víst að Guðrún ætlaði svo
sannarlega að launa þann stóra
greiða. Eg heyrði að hún hefði haft
á orði að hún þyrfti að bjóða henni
með sér í skemmtiferð. Guðfínna á
sérstakar þakkir fyrir sinn frábæra
vinarhug, svo og aðrir þeir sem
lögðu lykkju á leið sína til að heim-
sækja þessa veiku konu. Guðrún
var ekkert á því að kvarta, hún
kvartaði ekki og það virtist fjarri
huga hennar að hverfa strax frá
þessu lífi, hún ræddi þau mál hreint
ekki. Það var annað sem hún hafði
efst í huga. Hún seldi bílinn sinn
og hafði á orði að kaupa nýjan.
Hún var svo hrifín af íbúð sonar
síns á Akranesi og var þar ef stund
gafst milli stríða og kunni vel við
sig. Það svo að hún talaði um að
selja íbúðina í Reykjavík og kaupa
á Akranesi, reyndar lagði hún drög
að því að fá vinnu hjá atvinnurek-
anda á Akranesi, þegar batinn
kæmi. Það var í þessum dúr sem
viðræðumar urðu að vera við þessa
veiku konu, þar sem dauðinn beið
við næstu dyr. Guðrún Jónsdóttir
verður mörgum minnisstæð, henni
verða sendar margar hlýjar þakkar-
kveðjur við leiðarlok. Sömuleiðis
mundi hún flytja samferðavinunum
heitar þakkarkveðjur fyrir alla
tryggðina og nærgætnina. Þá ber
fyrst að hafa í huga hjúkrunarfólk-
ið og lækna Borgarspítalans, sem
allt lagði í sölumar til að létta henni
þungar stundir. Enginn komst þó
nær hjarta hennar en einkasonurinn
og dóttir hans, sem ber nafn þeirra
beggja, Guðrún Ósk Óskarsdóttir.
Við blessum öll minningu Guðrúnar
Jónsdóttur og biðjum Guð að varð-
veita anda hennar um ókomna tíð.
Valgarður L. Jónsson
Haust er í heimi
harmur mig sló.
Fýkur ullhvít fífa
fram yfír mó.
Huga minn hélar
haustsins grafarró.
Fýkur ullhvit fífa
fram yfír mó.
Þannig kvað ágætt skáld, Jón I.
Bjarnason, á jarðarfarardegi
Kennedys forseta Bandaríkjanna. Á
útfarardegi Guðrúnar Jónsdóttur í
dag færist haustblær yfir þanka
þeirra, sem hana þekktu. Hún var
góð kona, sem sárt er saknað. Frá
því leiðir okkar lágu saman fyrir
tveimur og hálfum áratug hefur
mér verið ljóst, að hún var um
margt sérstök. Framkoma hennar
einkenndist af mannlegri reisn og
hugprýði, sem ekkert bugaði. Já-
kvæð viðbrögð og lífsgleði voru sem
leiðarljós. Þess nutu allir, sem áttu
hana að og hún vermdi með góð-
vild og trygglyndi.
Segja má að hún hafi sífellt kom-
ið á óvart, frá því fyrsta til hins
síðasta erfiða sjúkleikatímabils. Svo
virtist oft sem hún teygaði lífsins
unaðssemdir á undraverðan hátt.
Fyrirvaralaust hafði hún einn dag-
inn ákveðið ferðalag á sólarstrendur
eða hún var búin að kaupa nýjan
bíl eða eitthvað annað, án þess að
hinn minnsti fyrirvari væri á hafð-
ur. Þegar ég kom til hennar á
sjúkrahúsið tveim vikum áður en
hún lést, sagðist hún vera svolítið
slöpp, hún hafði drifíð sig í hár-
greiðslu einhvers staðar á efri hæð-
um sjúkrahússins og tæplega þolað
það umstang allt. En fallega rauð-
brúna hárið hennar bar þess vitni,
að um það hafði verið farið fag-
mannlegum höndum. Engum orðum
Skagaströnd:
Nýr framkvæmda-
stjóri Marska hf.
Slcagaströnd
Á FUNDI hluthafa Marska hf.
nú nýlega var ákveðið að auka
hlutafé fyrirtækisins um 15 millj-
ónir króna. Hluthafarnir þrír,
Skagstrendingur hf. Hólanes hf.
og Rækjuvinnslan hf. munu hver
um sig leggja fram 5 milljónir
króna.
Rekstur Marska hf. hefur gengið
erfiðlega að undanfömu og standa
nú yfir gagngerar breytingar hjá
fyrirtækinu. Nýr framkvæmda-
stjóri, Jens Pétur Kristinsson, hefur
verið ráðinn í þrjá mánuði til reynslu
en hann starfaði áður sem rekstrar-
ráðgjafi hjá Iðntæknistofnun.
Heimir Fjeldsted sem verið hefur
framkvæmdastjóri Marska og
Rækjuvinnslunnar hefur látið af
störfum hjá báðum fyrirtækjunum
og ekki hefur enn verið ráðinn
maður í stað hans hjá Rækjuvinnsl-
unni. Samanlögð velta Marska hf.
og Rækjuvinnslunnar hf. var um
150 milljónir króna á síðasta ári.
var eytt í löngu samtali okkar um
sjúkdóminn, sem þó var að vinna
bug á líkamskröftum hennar. Öll
hugsunin var þá sem alltaf fyrr
bundin einkasyninum, sem hún unni
svo mjög, svo og sonardóttur og
nöfnu. Þrá Guðrúnar var að eignast
eitthvert' árabil á síðasta skeiði
æfinnar, sem varið skyldi með
Óskari syni hennar á Akranesi.
Auðvitað var öllum ljóst á þessum
tíma, Guðrúnu máske líka, að það
gat ekki orðið. En skaplyndi hennar
stóð hvorki þá né endranær til upp-
gjafar. Þannig var Guðrún Jóns-
dóttir. Hún átti óbifanlega bjartsýni
og dugnað.
Það er mikið lífslán að eiga góða
vini og samstarfsmenn. Það syrtir
í lofti við fráfall þeirra. Hún Guðrún
okkar var einstök. Minning hennar,
flekklaus og fögur, verður geymd
í þakklátu hjarta.
Við, fyrrum samstarfsmenn
hennar í Elfur við Laugaveginn,
vottum Óskari, syni hennar, Guð-
rúnu Ósk, augasteininum hennar,
og svo öllum skyldmennum og vin-
um einlæga samúð.
Sigurður E. Haraldsson
FISKI; OG
Cf jnct i in
, SfL UUUjUiiL UH
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
n imi il^
FYRIR ALLA
SNORRABRAUT
Blazer-jakkar— Kr. 7.500.-
Buxur__________Kr. 2.890-
Skyrtur_________Kr. 1.780.-
Rúskinnsjakkar..Kr. 8.900.-
Leöurjakkar_____Kr. 14.900.-
Komið til Reykjavíkur og sjáið Vesalingana
Uppfœrsla Þjóðleikhússins á söngleiknum „Vesalingarnir" nýfur
almennrar viðurkenningar ■ Arnarflug innanlands hf. útvegar miða,
hótel og flyfur ykkur suður.
' ARNARFLUG