Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 1
64 SÍÐUR B OG LESBÓK
148. tbl. 76. árg.
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Óháð rannsókn Palme-málsins:
Sakamál höfðað
á hendur tveimur
lögreglumönmim
Stokkhóimi. Frá Claes von Hofsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÉRLEGUR saksóknarí sæn-
skra stjórnvalda ákvað i gær
að höfða sakamál á hendur
tveimur lögreglumönnum innan
öryggislögreglunnar, S&po.
Mennirnir eru grunaðir um að
hafa brotið öryggislög með þvi
að afhenda bókaútgefandanum
Ebbe Carlsson, sem rannsakaði
morðið á Olof Palme á eigin
spýtur, trúnaðarskjöl.
A sama tíma og saksóknarinn
kynnti fyrstu niðurstöður rann-
sóknar sinnar á málinu, sem varð
til þess að Anna Greta Leijons
dómsmálaráðherra varð að segja
af sér, birtist viðtal við Ebbe Carls-
son í tímariti, þar sem hann stað-
hæfír, að ríkislögreglustjórinn og
yfírmaður öryggislögreglunnar
hafí báðir verið samþykkir þeirri
ráðstöfun að smygla ólöglegum
hlustunarbúnaði inn í landið.
Noregur:
Ólafur
konungur
85 ára
Osló, frá Rune Timberlid, fréttaritara
Morgunblaðsins.
ÓLAFUR Nor-
egskonungur
verður 85 ára i
dag. Þrátt fyrir
háan aldur læt-
ur hann engan
bilbug á sér
finna. Hann
keppti i skiða-
göngu sl. vetur
og í siglingakeppni í Óslóarfirði
i þessarí viku.
Á þessu ári er 31 ár liðið frá því
Ólafur Noregskonungur tók við
völdum af föður sínum, Hákoni sjö-
unda, sem lézt árið 1957. Nýtur
hann jafnvel meiri hylli en faðir
hans. Tala Norðmenn gjaman um
Ólaf sem „Folkekongen".
Mikið verður um dýrðir í Ósló í
tilefni dagsins. Verða hátíðahöld frá
morgni til kvölds og m.a. munu
3.000 ungir íþróttamenn ganga
fylktu liði að höllinni og hylla kon-
ung. Er með því staðfest rækt hans
við íþróttir.
Hátíðahöldunum lýkur með
kvöldverði ríkisstjómarinnar í
Akershus-höll, en þangað er 360
gestum boðið. Þar verður konungi
afhent gjöf frá ríkisstjóminni, mál-
'verk«em sýnir er Hákon faðir hans
sneri heim eftir frelsun Noregs f lok
seinni heimsstyijaldar.
Ólafur froregskonungur er vænt-
anlegur til íslands í byijun septemb-
er.
Saksóknarinn kemst að þeirri
niðurstöðu, að lögreglustjóramir
séu báðir saklausir af þeim áburði,
að þeir hafí tekið þátt í leyni-
makki Carlssons. Aftur á móti lítur
hann svo á, að þeim hafí orðið á
mistök, þegar þeir létu undir höfuð
leggjast að gera saksóknumnum
í hinni opinberu rannsókn á
Palme-málinu viðvart um athafnir
Ebbe Carlsons, þar sem þeim hafí
verið kunnugt um, hvað var á
seyði.
Reuter
Borís Jeltsín, fyrrum leiðtogi Moskvudeildar sovézka kommúnistaflokksins, ræðir við fréttamenn fyrir
utan ráðstefnuhöllina i Kreml í gær, eftir að hafa beðið um uppreisn æru á ráðstefnu kommúnista-
flokksins, sem lauk í gær.
Gorbatsjov slítur ráðstefnu sovézka kommúnistaflokksins:
Flojsksmerm verða að
beijast fyrir umbótum
Stefnt að því að takmarka valdatíma sovézkra ráðamanna við 10 ár
Moskvu, Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, Sovétleið-
togi, sagði í gærkvöldi, er hann
sleit flokksráðstefnu sovézka
kommúnistaflokksins, að hún
værí sigur fyrir umbótastefnuna,
perestrojkuna, sem búin værí að
festa sig í sessi. Henni yrði fylgt
áfram og yrðu flokksmenn að
beijast fyrir framgangi hennar.
Brezka útvarpið, BBC, sagði ráð-
stefnuna hafa ályktað að stefnt
skyldi að þvi að takmarka vald-
atíma ráðamanna, þ.á.m. Gorb-
atsjovs, við 10 ár. Einnig að
stefnt skyldi að því að gera for-
setaembættið pólitiskara og
valdameira. Þá sagði brezka
blaðið Daily Telegraph að Alex-
ander Jakovlev, náinn samstarfs-
maður Gorbatsjovs, værí orðinn
hugmyndafræðingur flokksins í
stað Jegors Lígatsjovs.
í lokaræðunni vék Gorbatsjov
sérstaklega að gpagnrýni Borís
Jeltsíns, fyrrum leiðtoga Moskvu-
deildar kommúnistafíokksins, sem
talaði fyrr um daginn og bað um
uppreisn æru, en hann var sviptur
embætti og rekinn úr stjómmála-
ráðinu sl. vetur. Gorbatsjov sagði
Reuter
Skroppið yfir
Berlínarmúrinn
180 Vestur-Þjóðveijar flúðu
um stundarsakir yfir Berlin-
armúrínn til Austur-Þýska-
lands í gær er lögreglumenn
hugðust rýma landspildu þar
sem fólkið hafði haldið uppi
mótmælum frá 26. maí. Land-
svæðið, sem kallast „Lenne-
þríhyrningurinn“, tilheyrði
Austur-Þýskalandi þar til á
miðnætti á fimmtudagskvöld
er samningur milli ríkjanna
tveggja um makaskipti á tveim-
ur spildum lands gekk i gildi.
Af þessiun sökum höfðu vest-
ur-þýskir lögreglumenn ekki
getað rýmt svæðið þar sem
hópur umhverfisvemdarsinna
hafði haldið til i rúman mánuð
til að mótmæla áformum borg-
aryfirvalda í Vestur-Berlín um
að leggja þar hraðbraut. Aust-
ur-þýskir landamæraverðir
biðu fólksins handan múrsins
og var þvi gefinn morgunverð-
ur áður en það var flutt aftur
til sins heima.
að Jeltsfn hefði komið fram með
óeðlilegum hætti á ráðstefnunni og
sýnt dónaskap.
Jegor Lígatsjov, hugmyndafræð-
ingur Kremlarstjómarinnar og
næstvaldamesti maður kommún-
istaflokksins, hafnaði beiðni Jeltsíns
og sagði allt tal um deilur í flokkn-
um vera út í hött. Lígatsjov átti
mestan þátt í því að Jeltsín var
lækkaður í tign.
Að loknum umræðum í gær vom
samþykktar umfangsmiklar um-
bótatillögur, sem Gorbatsjov kynnti
í setningarræðu sinni á þriðjudag.
Hann sagði tillögumar marka upp-
haf nýrra tíma, einkum tillögur um
tilfærslu valds frá flokknum til ráð-
anna, sem em gmndvallareining í
sijómkerfí Sovétríkjanna.
í lokaskjali ráðstefnunnar sagði
að efnt skyldi til stjómarkosninga
í flokksdeildum kommúnistaflokks-
ins í haust; valdakerfí flokksins
skyldi breytt í samræmi við nýja
skiptingu valds og æðstaráðið
skyldi gera samþykktir ráðstefn-
unnar að lögum á haustfundi sínum
og gera viðhlítandi breytingar á
stjómarskránni. Einnig að nýtt
þjóðþing skipað 2.250 fulltrúum
skyldi halda sinn fyrsta fund í apríl
á næsta ári og að kosið skyldi til
nýrra þinga í hémðum, svæðum og
lýðyeldunum 15 haustið 1989.
í lok ræðu sinnar sagði Gorb-
atsjov að minnismerki um fóm-
arlömb ofsókna Jósefs Stalíns yrði
reist í Moskvu.
Sjá fréttir af flokksráðstefn-
unni á bls. 26 og 27, og grein,
„Byltingarkenndar tillögur..."
á bls. 21.