Morgunblaðið - 02.07.1988, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988
Jeffrey A. Benson sendi-
herra Ástralíu á íslandi.
JEFFERY A. Benson,
sendiherra Ástralíu á íslandi
og Danmörku, segir að
skilningur sé að aukast í
Ástralíu á þeirri staðreynd að
hafið sé grundvöllur efnahags
íslendinga og utanríkisstefna
landsins sé þvi nátengd
sjávarútvegsmálum. Þvi fylgist
Astralir einnig grannt með
samskiptum íslendinga og
Bandaríkjamanna i
hvalamálinu, vegna þeirra
áhrifa sem það gæti haft á
samvinnu þjóðanna í
varnarmálum og sem hafi
þýðingu fyrir allan hinn
vestræna heim.
Morgunblaðið/Einar Falur
Skilningur að aukast á
því að hafið er grundvöll-
ur efnahags Islendinga
segir Jeffrey A. Benson sendiherra Ástralíu á íslandi
Ástralir hafa tvö undanfarin
ár borið upp ályktun gegn hval-
veiðum íslendinga í vísindaskyni
á ársfundum Alþjóðahvalveiðir-
áðsins, í fyrra skiptið einir en í
seinna skiptið með níu öðrum
þjóðum. Jeffrey A. Benson sendi-
herra Ástralíu á íslandi var stadd-
ur hér á landi fyrir skömmu, en
hann hefur aðsetur í Kaupmanna-
höfn. Morgunblaðið spurði hann
þá um þessa afstöðu Ástrala.
Benson sagðist vilja taka það
skýrt fram að þessum ályktunum
hefði ekki verið beint gegn íslandi
í þeim skilningi heldur gegn hval-
veiðum yfírleitt. Hins vegar sé
öðrum þjóðum að verða betur og
betur ijós þýðing hafréttarmála
fyrir íslendinga.
„Ég held að aðrar þjóðir séu
famar að gera sér betur grein
fyrir hvað þjóðemishyggja íslend-
inga er sterk," sagði Benson. „Það
virðist sem það valdi mjög sterk-
um viðbrögðum ef einhver stígur
á stóm tána á íslendingum ef svo
má segja og önnur lönd em ekki
viðbúin þessu. Ef þau settu sig
betur inn í gang mála hér hér
myndi þetta ekki koma þeim eins
mikið á óvart því þegar efnahagur
lands er jafn háður sjónum og
efnahagur íslands, verða öll mál-
efrii tengd sjónum mjög viðkvæm.
Ég hef reynt að segja mönnum
að fískveiðar og hafíð séu íslend-
ingum mjög mikilvæg og stjómi
í raun utanríkispólitík íslands og
tengslum þess við umheiminn en
þetta getur verið erfítt að skilja,"
sagði Benson. Hann sagði að
Ástralir gerðu sér ljósa þýðingu
íslands í vamarsamstarfí hins
vestræna heims og fylgdust því
grannt með samskiptum íslend-
inga og Bandaríkjamanna. Þar
virtist vera vilji hjá báðum aðilum
um að ná samkomulagi og Benson
sagðist ekki telja að neinn vildi
koma af stað meiriháttar deilum
vegna þessa máls, sem gætu haft
í för með sér vandamál varðandi
samband íslands og NATO þegar
haft er í huga hvað staða íslands
er þar mikilvæg því landið væri
nauðsynlegur þáttur í vamarkerfí
Bandaríkjanna og um leið hins
vestræna heims.
Benson sagðist síðan ekki trúa
því að Ástalir yrðu óbilgjamir í
þessu máli. „Vandamálið er að
tryggja pólitískt inngrip áður en
hlutimir em komnir í óefni. Það
á vissulega við um Bandaríkin og
ég held að það hafí þegar gerst
því mér skilst að Þjóðaröryggisr-
áðið í Washington leiki þýðingar-
mikið hlutverk í þessu máli.“
Hann sagði að Ástalir hefðu
talsverðan áhuga á umhverfísmál-
um þótt hvalir væru þeim ekki
ofarlega í huga. „Það er augljós-
lega mörgu ósvarað varðandi
hvali. Það er spuming hvaða áhrif
það hefur á fískistofna ef hval-
veiðum er hætt. Því er haldið fram
að ef hvölum flölgar mikið geti
þeir étið fískinn sem íslendingar
lifa á. Það em greinilega ekki
miklir hagsmunir hér í húfí vegna
hvalveiðanna sjálfra; þetta era í
raun veiðar til að stóma stofn-
stærðinni.
Við liggjum sjálfír undir ámæli
vegna veiða á kengúmm og
sléttuhestum. Það verður að halda
kengúmstofninum í skefjum
vegna þess að þær fjölga sér mjög
ört og ganga á beitarlönd sem
ætluð em fyrir sauðfé og naut-
pening.
Menn hafa haft miklar áhyggj-
ur af því víða um heim hvemig
farið er að því að drepa kengúm-
mnar. Umhverfisvemdarsinnar
vilja að kengúmdráp verði stöðv-
að. En það myndi þýða í raun að
kengúramar fengu Ástralíu til
umráða og sauðfjárrækt og naut-
griparækt væri úr sögunni.
Varðandi kengúmar em stað-
reyndimar mjög brenglaðar. Við
reynum að koma á framfæri upp-
lýsingum en við höfum við sama
vandamál að glíma og og fslend-
ingar: að margt fólk er einfaldlega
sannfært og vill ekki heyra nein
mótrök. En það er engin hætta á
að nokkur kengúyrategund verði
útdauð í Ástralíu. Það er í raun
landnámið í Ástralíu og ræktun
sem hefur skapað þennan vanda
því þegar beitilöndin batna fjölgar
kengúranum. Áður hélst stofn-
stærðin nokkumveginn í hendur
við beitarþolið," sagði Benson.
ísland og Ástralía em sitt hvom
megin á hnettinum en samt em
nokkur viðskipti milli landanna.
Frá Ástralíu er aðallega flutt
hingað hráál til vinnslu í álverinu
í Straumsvík, en einnig fást hér
ástralskir niðursoðnir ávextir og
nýfarið er að flytja hingað léttvín
frá Ástralíu. Þá hefur verið nokk-
uð um það að íslendingar flytjist
til Astralíu, aðallega vegna þess
að Ástralíumenn hafa komið til
íslands til að vinna í fískvinnslu
og fundið íslenska maka. Jeffrey
A. Benson sagði að um það bil
20 umsóknir um ástralskan ríkis-
borgararétt bæmst sendiráðinu í
Kaupmannahöfn á ári frá íslend-
ingum og einnig væm árlega
gefnar út um það bil 100 vega-
bréfsáritanir til íslendinga. Ben-
son taldi einnig að talsvert marg-
ir Ástralir hefðu komið til íslands
enda væm þeir miklir ferðamenn.
Um möguleika á auknum við-
skiptum milli landanna sagðist
Benson telja að möguleikar á út-
flutningi frá íslandi lægju í tækni-
þekking í fískiðnaði. Áhersla á
sjávarafurðir hefði verið að auk-
ast í Ástralíu og sjávarútvegur
þróast ört, sérstaklega eftir að
efnahagslögsagan var færð út í
200 mflur. „Við höfum veitt
rækju, humar og ræktað ostmr
og höfum séð hvað sjávarútvegur
Stur gefið af sér. Miðað við hvað
endingar hafa langa reynslu af
veiðum og hvað þeir búa yfir mik-
illi tækniþekkingu virðist augljóst
að þeir geti miðlað Áströlum af
henni. Hinsvegar væri sennilega
takmarkað hægt að selja íslensk-
an físk í Ástralíu," sagði Jeffrey
A. Benson.
Borgarsljórí heim;
sækir bækistöðvar ISI
BORGARSTJÓRI Reykjavíkur, Davíð Oddson, heimsótti fimmtudag-
inn 30. júní forystumenn íþróttasambands íslands og skoðaði húsa-
kynni sambandsins í Laugardal. Einnig kynnti hann sér rekstur og
útbúnað Lottóstarfseminnar sem er til húsa í bækistöðvum íþrótta-
sambandsins og átti viðræður við stjórn sambandsins.
Tilefnið var að fyrir nokkmm
dögum gaf borgin íþróttasamband-
inu tijáplöntur og hafa þær verið
gróðursettar fyrir framan bæki-
stöðvamar. Um leið notaði stjóm
íþróttasambandsins tækifærið og
ræddi við borgarstjóra um málefni
sem íþróttahreyfínguna.
Annars vegar vora áform um
frekari byggingarframkvæmdir í
Laugardalnum rædd, en nú er svo
komið að úthýsa þarf mörgum að-
ildarfélögum íþróttasambandsins
sökum húsnæðisþrengsla, að sögn
Sigurðar Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Iþróttasambands ís-
lands. Er þar einkum átt við skort
á skrifstofti- og félagsmálaaðstöðu
fyrir hin ýmsu aðildarfélög. Þá er
íslensk Getspá fyrir löngu búin að
sprengja utan af sér og þarf nauð-
synlega nýtt húsnæði undir sína
starfsemi, sagði Sigurður í samtali
við Morgunblaðið.
Stjóm íþróttasambandsins ræddi
einnig við borgarstjóra um næstu
íþróttahátíð íþróttasambands ís-
lands sem haldin verður 1990.
fþróttahátíðin er haldin á tíu ára
fresti og er fjölmennasta íþrótta-
hátíð sem hér er haldin. Hátíðin
1990 ber yfírskriftina „Æskan og
íþróttimar." Að sögn Sigurðar
Magnússonar lýsti borgarstjóri yfír
miklum áhuga á þessum málum og
sýndi þeim fullan skilning. Hann
sagði einnig að heimsókn borgar-
stjóra hefði verið ánægjuleg og góð
enda hafi samstarfið við borgina
gengið vel.
Morgunblaðið/Börkur
Stjórn ÍSÍ ásamt Davíð Oddsyni, borgarstjóra. F.v.s Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri, Katrín
Gunnarsdóttir, Jón Ármann Héðinsson og Hermann Sigtryggson stjómarmenn, Gísli Halldórsson, heið-
ursforseti ÍSÍ, Davfð Oddson, borgarstjóri og Sveinn Björasson, forseti ÍSÍ.