Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 14

Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 Jeffrey A. Benson sendi- herra Ástralíu á íslandi. JEFFERY A. Benson, sendiherra Ástralíu á íslandi og Danmörku, segir að skilningur sé að aukast í Ástralíu á þeirri staðreynd að hafið sé grundvöllur efnahags íslendinga og utanríkisstefna landsins sé þvi nátengd sjávarútvegsmálum. Þvi fylgist Astralir einnig grannt með samskiptum íslendinga og Bandaríkjamanna i hvalamálinu, vegna þeirra áhrifa sem það gæti haft á samvinnu þjóðanna í varnarmálum og sem hafi þýðingu fyrir allan hinn vestræna heim. Morgunblaðið/Einar Falur Skilningur að aukast á því að hafið er grundvöll- ur efnahags Islendinga segir Jeffrey A. Benson sendiherra Ástralíu á íslandi Ástralir hafa tvö undanfarin ár borið upp ályktun gegn hval- veiðum íslendinga í vísindaskyni á ársfundum Alþjóðahvalveiðir- áðsins, í fyrra skiptið einir en í seinna skiptið með níu öðrum þjóðum. Jeffrey A. Benson sendi- herra Ástralíu á íslandi var stadd- ur hér á landi fyrir skömmu, en hann hefur aðsetur í Kaupmanna- höfn. Morgunblaðið spurði hann þá um þessa afstöðu Ástrala. Benson sagðist vilja taka það skýrt fram að þessum ályktunum hefði ekki verið beint gegn íslandi í þeim skilningi heldur gegn hval- veiðum yfírleitt. Hins vegar sé öðrum þjóðum að verða betur og betur ijós þýðing hafréttarmála fyrir íslendinga. „Ég held að aðrar þjóðir séu famar að gera sér betur grein fyrir hvað þjóðemishyggja íslend- inga er sterk," sagði Benson. „Það virðist sem það valdi mjög sterk- um viðbrögðum ef einhver stígur á stóm tána á íslendingum ef svo má segja og önnur lönd em ekki viðbúin þessu. Ef þau settu sig betur inn í gang mála hér hér myndi þetta ekki koma þeim eins mikið á óvart því þegar efnahagur lands er jafn háður sjónum og efnahagur íslands, verða öll mál- efrii tengd sjónum mjög viðkvæm. Ég hef reynt að segja mönnum að fískveiðar og hafíð séu íslend- ingum mjög mikilvæg og stjómi í raun utanríkispólitík íslands og tengslum þess við umheiminn en þetta getur verið erfítt að skilja," sagði Benson. Hann sagði að Ástralir gerðu sér ljósa þýðingu íslands í vamarsamstarfí hins vestræna heims og fylgdust því grannt með samskiptum íslend- inga og Bandaríkjamanna. Þar virtist vera vilji hjá báðum aðilum um að ná samkomulagi og Benson sagðist ekki telja að neinn vildi koma af stað meiriháttar deilum vegna þessa máls, sem gætu haft í för með sér vandamál varðandi samband íslands og NATO þegar haft er í huga hvað staða íslands er þar mikilvæg því landið væri nauðsynlegur þáttur í vamarkerfí Bandaríkjanna og um leið hins vestræna heims. Benson sagðist síðan ekki trúa því að Ástalir yrðu óbilgjamir í þessu máli. „Vandamálið er að tryggja pólitískt inngrip áður en hlutimir em komnir í óefni. Það á vissulega við um Bandaríkin og ég held að það hafí þegar gerst því mér skilst að Þjóðaröryggisr- áðið í Washington leiki þýðingar- mikið hlutverk í þessu máli.“ Hann sagði að Ástalir hefðu talsverðan áhuga á umhverfísmál- um þótt hvalir væru þeim ekki ofarlega í huga. „Það er augljós- lega mörgu ósvarað varðandi hvali. Það er spuming hvaða áhrif það hefur á fískistofna ef hval- veiðum er hætt. Því er haldið fram að ef hvölum flölgar mikið geti þeir étið fískinn sem íslendingar lifa á. Það em greinilega ekki miklir hagsmunir hér í húfí vegna hvalveiðanna sjálfra; þetta era í raun veiðar til að stóma stofn- stærðinni. Við liggjum sjálfír undir ámæli vegna veiða á kengúmm og sléttuhestum. Það verður að halda kengúmstofninum í skefjum vegna þess að þær fjölga sér mjög ört og ganga á beitarlönd sem ætluð em fyrir sauðfé og naut- pening. Menn hafa haft miklar áhyggj- ur af því víða um heim hvemig farið er að því að drepa kengúm- mnar. Umhverfisvemdarsinnar vilja að kengúmdráp verði stöðv- að. En það myndi þýða í raun að kengúramar fengu Ástralíu til umráða og sauðfjárrækt og naut- griparækt væri úr sögunni. Varðandi kengúmar em stað- reyndimar mjög brenglaðar. Við reynum að koma á framfæri upp- lýsingum en við höfum við sama vandamál að glíma og og fslend- ingar: að margt fólk er einfaldlega sannfært og vill ekki heyra nein mótrök. En það er engin hætta á að nokkur kengúyrategund verði útdauð í Ástralíu. Það er í raun landnámið í Ástralíu og ræktun sem hefur skapað þennan vanda því þegar beitilöndin batna fjölgar kengúranum. Áður hélst stofn- stærðin nokkumveginn í hendur við beitarþolið," sagði Benson. ísland og Ástralía em sitt hvom megin á hnettinum en samt em nokkur viðskipti milli landanna. Frá Ástralíu er aðallega flutt hingað hráál til vinnslu í álverinu í Straumsvík, en einnig fást hér ástralskir niðursoðnir ávextir og nýfarið er að flytja hingað léttvín frá Ástralíu. Þá hefur verið nokk- uð um það að íslendingar flytjist til Astralíu, aðallega vegna þess að Ástralíumenn hafa komið til íslands til að vinna í fískvinnslu og fundið íslenska maka. Jeffrey A. Benson sagði að um það bil 20 umsóknir um ástralskan ríkis- borgararétt bæmst sendiráðinu í Kaupmannahöfn á ári frá íslend- ingum og einnig væm árlega gefnar út um það bil 100 vega- bréfsáritanir til íslendinga. Ben- son taldi einnig að talsvert marg- ir Ástralir hefðu komið til íslands enda væm þeir miklir ferðamenn. Um möguleika á auknum við- skiptum milli landanna sagðist Benson telja að möguleikar á út- flutningi frá íslandi lægju í tækni- þekking í fískiðnaði. Áhersla á sjávarafurðir hefði verið að auk- ast í Ástralíu og sjávarútvegur þróast ört, sérstaklega eftir að efnahagslögsagan var færð út í 200 mflur. „Við höfum veitt rækju, humar og ræktað ostmr og höfum séð hvað sjávarútvegur Stur gefið af sér. Miðað við hvað endingar hafa langa reynslu af veiðum og hvað þeir búa yfir mik- illi tækniþekkingu virðist augljóst að þeir geti miðlað Áströlum af henni. Hinsvegar væri sennilega takmarkað hægt að selja íslensk- an físk í Ástralíu," sagði Jeffrey A. Benson. Borgarsljórí heim; sækir bækistöðvar ISI BORGARSTJÓRI Reykjavíkur, Davíð Oddson, heimsótti fimmtudag- inn 30. júní forystumenn íþróttasambands íslands og skoðaði húsa- kynni sambandsins í Laugardal. Einnig kynnti hann sér rekstur og útbúnað Lottóstarfseminnar sem er til húsa í bækistöðvum íþrótta- sambandsins og átti viðræður við stjórn sambandsins. Tilefnið var að fyrir nokkmm dögum gaf borgin íþróttasamband- inu tijáplöntur og hafa þær verið gróðursettar fyrir framan bæki- stöðvamar. Um leið notaði stjóm íþróttasambandsins tækifærið og ræddi við borgarstjóra um málefni sem íþróttahreyfínguna. Annars vegar vora áform um frekari byggingarframkvæmdir í Laugardalnum rædd, en nú er svo komið að úthýsa þarf mörgum að- ildarfélögum íþróttasambandsins sökum húsnæðisþrengsla, að sögn Sigurðar Magnússonar, fram- kvæmdastjóra Iþróttasambands ís- lands. Er þar einkum átt við skort á skrifstofti- og félagsmálaaðstöðu fyrir hin ýmsu aðildarfélög. Þá er íslensk Getspá fyrir löngu búin að sprengja utan af sér og þarf nauð- synlega nýtt húsnæði undir sína starfsemi, sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið. Stjóm íþróttasambandsins ræddi einnig við borgarstjóra um næstu íþróttahátíð íþróttasambands ís- lands sem haldin verður 1990. fþróttahátíðin er haldin á tíu ára fresti og er fjölmennasta íþrótta- hátíð sem hér er haldin. Hátíðin 1990 ber yfírskriftina „Æskan og íþróttimar." Að sögn Sigurðar Magnússonar lýsti borgarstjóri yfír miklum áhuga á þessum málum og sýndi þeim fullan skilning. Hann sagði einnig að heimsókn borgar- stjóra hefði verið ánægjuleg og góð enda hafi samstarfið við borgina gengið vel. Morgunblaðið/Börkur Stjórn ÍSÍ ásamt Davíð Oddsyni, borgarstjóra. F.v.s Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri, Katrín Gunnarsdóttir, Jón Ármann Héðinsson og Hermann Sigtryggson stjómarmenn, Gísli Halldórsson, heið- ursforseti ÍSÍ, Davfð Oddson, borgarstjóri og Sveinn Björasson, forseti ÍSÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.