Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988
27
Jakovlev aðal-
hugmyndafræð-
ingur flokksins
Staða Jegors Lígatsjovs enn óljós
Moskvu, The Daily Telegraph.
JEFREM Sokolov, flokksformaður í Hvita-Rússlandi, skýrði frá
verkaskiptingn hinna 13 félaga í stjóramálaráðinu, aðalvaldastofn-
un sovéska kommúnistaflokksins, á blaðamannaf undi á fimmtudag-
inn. Það kom á óvart að Aleksandr Jakovlev, einn dyggasti stuðn-
ingsmaður Gorbatsjovs. flokksleiðtoga, er nú orðinn aðalhug-
myndafræðingur flokksins en Jegor Lígatsjov gegndi áður þess-
ari stöðu sem er ein af þeim valdamestu í landinu. Lígatsjov er
talinn fremsti keppinautur Gorbatsjovs um völdin og fram til
þessa hafa stjóramálaskýrendur verið sammála um að hann gengi
næstur Gorbatsjov að völdum. Þvi fer fjarri að Lígatsjov sé úr leik
I valdabaráttunni þar sem hann gegnir augljóslega mikilvægum
embættum á flokksráðstefnunni.
Orðrómur hefur lengi verið á
kreiki um stöðuhækkun Jakovlevs
sem hefur verið nefndur einn af
helstu höfundum „glasnost“-stefn-
unnar er felur í sér aukið upplýs-
ingastreymi og opinskáar umræð-
ur. Lígatsjov hefur oft látið í ljós
að hann telji „glasnost" vera að
fara úr böndunum.
Hvað sem líður umræddum
stöðubreytingum þá er ljóst að
Lígatsjov gegnir valdamiklu emb-
ætti á flokksráðstefnunni; hann
veitir forstöðu 27 manna ráði sem
hefur umsjón með „skipulagsmál-
Reutcr
ÞRÍR valdamestu menn Sovétríkjanna sjást hér stinga saman nefj-
um á flokksráðstefnuhni i Moskvu. Frá vinstri Jegor Ligatsjov, Alek-
sandr Jakovlev og Míkaíl Gorbatsjov.
um“. Einnig er hann í óljósum
tengslum við 27 manna málefna-
nefnd og loks 43 manna kjörbréfa-
nefnd er hugsanlega ákveður
hveijir fá að stíga í ræðustól.
Erfitt er að meta til hlítar völd
hans en Lígatsjov virðist enn þá
vera talinn annar í valdastiganum.
í umræðum á ráðstefnunni eru
það ýmist fylgjendur „glasnost"
sem hafa töglin og hagldimar eða
afturhaldsmenn blása til gagn-
sóknar. Niðurstaðan verður vart
ljós fyrr en búið er að túlka loka-
ræðu Gorbatsjovs flokksleiðtoga.
Andófsmaður:
Glasnost er aðeins
blekkingarleikur
Segir lífið í fangabúðum verra en áður
Jerúsalem, Reuter.
AVRAHAM Shifrin, 63 ára gamall fyrrum sovéskur gyðingur en
nú ísraeli, sem dvaldi í fangelsum og þrælkunarbúðum í Sovétríkj-
unum í 10 ár, segir skilyrði fanga hafa versnað í tíð Gorbatsjovs.
Fangar fái minna að borða, enga matarpakka frá ættingjum sínum
fyrri helming refsivistarinnar og fái sjaldnar að hitta ættingja
sina en áður.
„Þetta er eintóm blekking, leik-
sýning fyrir Vesturlandabúa. Gor-
batsjov hefur leikið á umheiminn.
Lífíð í fangabúðunum er orðið
harðneskjulegra," sagði Shifrin,
sem búið hefur í ísrael síðan 1970,
í samtali við fréttamann Reuters.
„í hveijum fangabúðum leynast
pólitískir fangar. Sérstakar búðir
fyrir pólitíska fanga hýsa 5000 til
6000 fanga," bætti hann við.
Hann sagði einnig að í stjóm-
artíð Gorbatsjovs hefðu um 170
þekktir, pólitfskir fangar verið
látnir lausir, meðal þeirra nokkrir
trúmenn. Hins vegar væru eftir
sem áður yfir eitt hundrað þúsund
trúaðir í fangabúðum víðs vegar
um Sovétríkin.
Shifrin hefur ritað bækur um
ástand fangelsismáia í Sovétríkj-
unum og verið mjög virkur í barát-
tunni fyrir hagsmunum samvisku-
fanga. Um ráðstefnuna í Moskvu
sagði Shifrin: „Þeir tala um glæpi
Stalíns og Brezhnevs en minnast
ekki á framferði sovésku leyni-
þjónustunnar, KGB, á okkar
tímum."
Wörner tekinn við
Manfred Wömer, fyrrum vamarmálaráðherra Vestur-Þýskalands, tók
í gær við af Carrington lávarði sem framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins. Fór athöfnin fram í aðalstöðvum bandalagsins í Bruss-
el. Að baki Wömer, sem er lengst til vinstri, er Marcello Guidi, að-
stoðarframkvæmdastjóri NATO, og Wolfgang Altenburg, hershöfð-
ingi og formaður hermálanefndarinnar.
Ófriðurinn í Nicaragua:
Parkinson
á uppleið
London. Reuter.
CECIL Parkinson orkuráðherra
verður skipaður formaður einn-
ar af mikilvægustu stjómar-
nefndum Bretlands. Þykir það
sýna, að hann standi traustum
fótum á vettvangi stjórnmálanna
þrátt fyrir vandræðin vegna ást-
armála, sem hann lenti í fyrir
fimm árum, að þvi er bresk dag-
blÖð sögðu í gær.
Embættismenn vildu ekkert láta
eftir sér hafa um frásagnir fjöl-
miðla, en blöð og sjónvarp sögðu,
að Margaret Thatcher forsætisráð-
herra hefði ákveðið að skipa Parkin- _
son formann „stjömu-deildarinn-
ar“, sem gerir út um ágreiningsmál
milli fjármálaráðuneytisins og ann-
arra ráðuneyta vegna fjárveitinga.
Stöðu þessari gegndi áður Whit-
elaw lávarður, sem sagði af sér
embætti varaforsætisráðherra fyrir
nokkrum mánuðum af heilsufars-
ástæðum.
Bandarflgamenn hafa í
hyggju breytta stefnu
Guatemala-borg, Reuter.
LEIÐTOGAR kontra-skæruliða í
Nicaragua segja Bandaríkja-
stjórn hafa í hyggju að taka upp
breytta stefnu gegn stjóra
sandinista í Nicaragua. í gær
lauk þriggja daga för Georges
Shultz, utanrikisráðherra
Bandarikjanna, um Mið-Ameríku
er hann ræddi við Oscar Arias,
forseta Costa Rica, en sá síðar-
nefndi er höfundur áætlunar,
sem við hann er kennd, um leiðir
til að binda enda á ófrið i þessum
heimshluta.
Shultz ræddi við nokkra leiðtoga
hreyfingar kontra-skæruliða á
fímmtudag. Aifredo Cesar, einn
leiðtoganna, sagði á blaðamanna-
fundi í Guatemala-borg að Banda-
ríkjamenn hygðust taka upp breytta
stefnu gagnvart stjóm sandinista í
Nicaragua. Áformað væri að veita
kontra-skæruliðum að nýju hemað-
araðstoð ef sandinistar virtu ekki
gildandi vopnahlé og tefðu fyrir
frekari friðarsamningum. Myndi
fjárveiting í þessu skyni vera lögð
Óuló, Reuter. ,
NORÐMENN eru undir þrýstingi
frá bandariskum stjóravöldum
um að hætta fyrirhuguðum
hrefnuveiðum. Talsmaður
Bandaríkjastjórnar sagði í gær
að Bandaríkjamenn myndu
hætta innflutningi á fiski frá
Noregi ef af veiðunum yrði.
Norðmenn hættu hvalveiðum í
ágóðaskyni á síðasta ári. Þeir ætla
að veiða 37 hrefnur í vísindaskyni
á þessu ári. Alþjóða hvalveiðiráðið
hefur lýst hrefnu alfriðaða og efast
ráðið um réttmæti veiða Norð-
manna. Bandaríkjamenn hafa haft
afskipti af hvalveiðum Japana og
íslendinga vegna fyrirhugaðra
vísindaveiða.
„Okkur þykja þessi viðbrögð
Bandaríkjamanna harkaleg vegna
þess að þetta gæti þýtt mikið flár-
hagslegt tjón fyrir norskan fiskiðn-
að, ef sett yrði bann á innflutning
á norskum físki,“ sagði talsmaður
norska utanríkisráðuneytisins,
Lasse Seim.
inn á sérstakan reikning og yrði
hún afhent skæruliðum án tafar
gerðust stjómvöld í Nicaragua sek
um samningsbrot. Með þessu móti
vildu Bandaríkjamenn þrýsta á
sandinista um að ganga til friðar-
viðræðna við skæruliða. Nýverið
slitnaði upp úr viðræðum hinna
stríðandi fylkinga en báðar hafa
þær hins vegar lýst yfir því að
vopnahlé, sem gekk í gildi 1. apríl
síðastliðinn, verði virt.
í máli Alfredos Cesars kom einn-
ig fram að Bandaríkjamenn hygð-
ust bjóða sandinistum efnahagsað-
stoð gégn því að lýðræði yrði inn-
leitt í landinu. Bandarískir embætt-
ismenn vildu ekki tjá sig um ein-
staka liði áætlunar Bandaríkja-
manna en George Shultz sagði í
Hondúras á fimmtudag að tilgang-
urinn með ferð hans væri sá að
kynna nýjar leiðir til lausnar vanda
Mið-Ameríkuríkja. Shultz vildi ekki
láta uppi hvort Bandarikjamenn
hygðust á ný taka upp hemaðarað-
stoð við skæruliða en henni var
hætt í febrúarmánuði eftir að
Norðmenn fluttu á síðasta ári
út fisk til Bandaríkjanna fyrir 1,3
milljarða norskra króna (svarar til
9 milljarða ísl. kr.).
Sendiherra Bandaríkjanna í Ósló
hefur beðið norska utanríkisráðu-
neytið um nánari upplýsingar um
vísindaveiðamar, sem skilað verði
fyrir 1. ágúst næstkomandi, að sögn
talsmanns Bandaríkjastjómar. í
beiðni sendiráðsins er þess getið að
samkvæmt bandarískum lögum sé
heimilt að seija viðskiptabann á
þjóðir sem bijóti alþjóðlegar sam-
þykktir um friðun hvala.
Norsk yfirvöld hafa farið þess á
leit við Bandaríkjastjóm að teknar
verði upp viðræður milli landanna
um hvalveiðar og friðunarlög, að
sögn talsmanns Bandaríkjastjómar.
„Við viljum að Norðmenn endur-
skoði ákvörðun sína. Það er misráð-
ið af þeim að ætla að gera áætlan-
ir um veiðar f framtíðinni á þessu
stigi málsins," sagði talsmaðurinn.
Bandaríkjaþing hafði neitað að
samþykkja frekari flárveitingar í
þessu skyni.
ER ALLT
Á FLOTI?
RÆSI-
RENNUR
TILVALDAR FYRIR
BÍLASTÆÐI,
VINNUSALI,
VÖRUSKEMMUR,
GARÐA OG
ALLSTAÐAR ÞAR
SEM VATNSELGS
ER VON.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
W VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SfMAR 686455 - 685966
S38S LYNGHÁLSI 3 SfMAR 673415 - 673416
Bandar íkj astj ór n
krefst upplýsinga
- um hrefnuveiðiáætlun Norðmanna