Morgunblaðið - 12.08.1988, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 1988
Nokkrir hollenskir
stúdentar köstuðu
klæðum og klifr-
uðu upp á gos-
brunn í borginni
Haag. Með þessum
aðgerðum voru
þeir að mótmæla
niðurskurði á
námsstyrkjum sem
menntamálaráð-
herra landsins,
Deetman, fyrir-
skipaði. Boðskap-
urinn kom berlega
í ljós. „Við verðum
rúin inn að skinni“.
Ekki er vitað hvort
mótmælin hafi bo-
rið einhvern
árangur. Og hvort
þessi pjötlulausa
aðferð væri reyn-
andi við islenska
ráðherra er einnig
óvíst.
ORLANE
P A R I S
ORLANE kynning í dag frá
kl. 13.00-18.00.
Snyrtivöruverslunin Serína,
Kringlunni.
Talaðu við
okkur um
eldhústæki
Talaðu við
ohhur um
uppþvottavélar
ÆVINTÝRAMENNSKA
Brúarráp er hans iðja
Fyrir sumu fólki er ekkert fjall
of hátt og ekkert djúp of mik-
ið. Og fyrir umhverfíslistamanninn,
Keith Alexander, er engin brú of
löng. Ekki gengur hann ofanvert á
brúarsmíðinni heldur fer hann sem
leið liggur, undir þær.
Keith hefur þegar gengið 53 brýr
að neðanverðu, og yfir 40 af þeim
voru í hans heimaborg, Chicago í
Bandaríkjunum. Með próf í högg-
myndalist er hann ánægður með
þetta áhugamál sem hann segir
vera listgrein. 0g hann vill gjaman
hafa félagsskap. Yfir þijú hundruð
manns hafa farið með honum í þess-
ar gönguferðir. „Sumir em algjörar
gungur og snúa við strax" segir
Keith sem tekur tuttugu dollara
fyrir ieiðsögnina á hvert höfuð.
Sumum þeirra tekst að komast alla
leið, og vitað er um einn sem „ætl-
ar kannski aftur.“
Keith notar engin hjálpartæki,
hefur aldrei orðið fyrir slysi, en það
hafa komið vafasöm augnablik.
Eftir sjö klukkustunda leið yfir
brúna frá Marin County til San
Fransiskó komst hann ekki af
brúnni þegar á brúarenda kom, og
þurfti hann að skríða til baka, tvo
og hálfan kílómetra á 25 sentimetra
rönd, í 75 metra hæð yfir flóanum.
Móður hans, Anitu Alexander,
er hins vegar ekki skemmt. „Hann
er eini sonur minn og ég vil að
hann lifi. Sem betur fer er hann
góður sundmaður." Næst vill Keith
komast til Parísar, „en ekki kjafta
í mömmu“ á hann að hafa sagt.
Ekki banginn hann Keith.
SÉRBLAÐ
á fimmtudögum
Dýrari fasteignasalar
- en betri?
Gífurleg lóða-
eftirspurn
Auglýsingar í viðskiptablaðið
þurfa að hafa borist auglýsinga-
deild fyrir kl. 12.00.
á mánudögum.
- blað allra landsmanna
Osarfsuv