Morgunblaðið - 18.10.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988
23
„ Astæða þessa er að
hluta til sú að eigin
vinna við húsbyggingar
er enn skattfrjáls en að
auki ræður byggjand-
inn fólk til sín í vinnu,
og geti nú hver og einn
fyrir sig, hve stór hluti
þeirrar vinnu skilar sér
í nýja fína staðgreiðslu-
kerfínu okkar. Sá er
þessar línur ritar er að
minnsta kosti þeirrar
skoðunar, að þar sem
ekkert eftirlit er og
sjálfsagt varla hægt að
koma því við, væri
óeðlilegt ef byggjand-
inn þægi ekki að halda
útgjöldunum niðri í
stað þess aðgreiða
hluta vinnulauna til
ríkisins.“
þig við að búa þröngt nægir þessi
fjármögnun fyrir allt að helmingi
fullbúinnar íbúðar, en ef aðstæður
þínar eru t.d. þær að fjölskyldan
er stór en launin ekki mjög lág ertu
verr settur. Mismuninn verður síðan
að brúa eins og hver best getur og
vegna skorts á öðrum raunhæfum
möguleikum verður „byggingar-
skyldan" þrautalendingin.
2. Lánakjör félags-
lega kerfisins
Verkamannabústaðir auk bygg-
ingasamvinnufélagsins Búseta og
e.t.v. einhveijir fleiri fá fram-
kvæmdalán, sem nægja fyrir allri
fjármögnun byggingarfram-
kvæmda jafnóðum og þær falla til.
Framkvæmdalájp „sérhópa“ al-
menna kerfisins eins og t.d. aldr-
aðra, ef veitt eru, nægja fyrir u.þ.b.
einum þriðja framkvæmdakostnað-
ar. Kjörin á lánum „félagslega"
kerfisins — hver skyldu þau vera?
Jú, þau eru vaxtalaus með öllu,
þ.e. vextir eru 0%. Hér er semsagt
um að ræða hreina niðurgreiðslu á
þessum íbúðum, sem varlega áætl-
að nemur 10% á byggingartíma og
er þá ekki verið að tala um hin
afar hagstæðu kjör á langtíma-
lánum, þ.e. lán til 40 ára með 2%
vöxtum, sem veldur í raun hærri
vöxtum í almenna kerfinu. Nú er
ekki lagður neinn dómur á það hvort
þessar íbúðir eigi að njóta þessara
kjara eða ekki, en það er nauðsyn-
legt í umræðunni um húsnæðismál
að fólk geri sér grein fyrir því að
framleiðsla samkvæmt „félagslega"
kerfinu er niðurgreidd stórlega á
meðan aðrar íbúðabyggingar eru
framleiðslulega settar á guð og
gaddinn.
3. Skattamál — „Svartur
byggingamarkaður"
Eins og sagði í upphafi þessarar
greinar er tilefni hennar m.a. það
að eitt stærsta verktakafyrirtæki
landsins hefur gefist upp á að
byggja íbúðir og bendir þess í stað
fólki á að byggja sjálft. Ástæða
þessa er að hluta til sú að eigin
vinna við húsbyggingar er enn
skattfrjáls en að auki ræður byggj-
andinn fólk til sín í vinnu, og geti
nú hver og einn fyrir sig, hve stór
hluti þeirrar vinnu skilar sér í nýja
fína staðgreiðslukerfinu okkar. Sá
er þessar línur ritar er að minnsta
kosti þeirrar skoðunar, að þar sem
ekkert eftirlit er og sjálfsagt varla
hægt að koma því við, væri óeðli-
legt ef byggjandinn þægi ekki að
halda útgjöldunum niðri í stað þess
að greiða hluta vinnulauna til ríkis-
ins. Bæði er að samviskusemi okkar
eru takmörk sett hvað varðar holl-
ustu við sameiginlega sjóðinn þegar
við sjáum hve „vel“ er stundum
farið með fé úr honum, nú og svo
er hitt að hið opinbera neyðir okkur
einfaldlega til þess að greiða sem
allra fæstar krónur þar sem tæki-
færin til þess að afla langtímafjár-
magns, nema fyrir hluta nýbygg-
ingarinnar okkar, eru engin.
Samtök byggingariðnaðarins
gefa út fínar stefnuyfirlýsingar um
það að stefnt skuli að því að bygg-
ingariðnaðurinn fullklári allar íbúð-
ir og að íbúðaframleiðsla sé iðn-
aður. Því miður eru framangreind
atriði þess valdandi að þetta stenst
engan veginn og þess vegna verður
áfram „byggingarskylda" einstakl-
ingsins á Islandi, nema hjá þeim
sem vilja og geta aðstæðna sinna
vegna komist að í „félagslega" kerf-
inu, nema við tökum höndum saman
og lagfærum þessi mál.
í undirbúningi hefur verið afar
merkilegt frumvarp til laga um svo-
kölluð húsbréf. Ég veit ekki hvað
þeirri vinnu líður, en staðreyndin
er sú að okkar nágrannaþjóðir hafa
einmitt leyst fjármögnun íbúða-
bygginga með svokölluðum hús-
bréfum, þ.e. almennum langtíma-
skuldabréfum með ríkisábyrgð.
Byggingariðnaðurinn á enn þá von
að hægt sé að standa þjóðhagslega
vel að framleiðslu íbúðar, hvort sem
er í sambýli eða sérbýli.
Fólkið í landinu gæti tæplega
fengið betri kjarabót en húsnæðis-
kerfi, sem virkar þannig, að hægt
sé að mestu að afnema „byggingar-
skylduna" sem kvöð. Vonandi verða
alltaf til einstaklingar sem vilja
byggja sjálfir og finnst það gaman,
en vestrænt þjóðfélag býður víðast
hvar upp á aðra valkosti. Á það
ekki að gilda fyrir ísland?
Höfundur er foratjóri Ármanns-
fieUshf.
GULLVERNDALMENNRA
NÝ
OG BETRI LEIÐ
TIL VERNDAR
Með Gullvernd Almennra Trygginga er hleypt af stokkunum nýjung sem
tekur til fleiri þátta en aðrar eldri vátryggingar.
Gullverndin býður upp á meiri vernd og mjög hagstæð iðgjöld.
í Gullverndinni er ný Fjölskyldutrygging, auk nýrrar Fasteignartryggingar.
Með Guliverndinni býðst þér ný leið
til verndar fjölskyldunni og heimilinu.
Fjölskyldutryggingin byggir á gömlu Heimilistryggingunni en
er mun víðtækari. Hún innihqldur nú endurbætta innbústryggingu og
víðtækari ábyrgðartryggingu en við bætast m.a. eftirtaldar nýjungar:
farangurstrygging, brots/hrunstrygging og greiðslukortatrygging. Nýja
Fjölskyldutryggingin er byggð upp með hliðsjón af þörfum
nútímafjölskyldu - hún er því vátrygging
sem er sniðin fyrir þig og þitt fólk.
Vertu gulltryggður með Gullvernd Almennra.
AUK/SlA K104-83