Morgunblaðið - 18.10.1988, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.10.1988, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 Olafur Ragnar Grímsson, gármálaráðherra: Skuldaskattur síð- ustu ríkisstjómar 5-9 milljarðar króna ÓLAFUR Ragnar Grímson, Qármálaráðherra, sagði á fimdi í Garðabæ um helgina að skuldareikningur siðustu rOdsstjóraar hljóðaði upp á 5-9 milljarða króna. Hver Qölskylda þurfi að borga hundruðir þúsunda í skatta á næstu árum vegna vanda atvinnufyr- irtækja og halla í ríkisQármálum sem skapast hefði undir þeirri stjórn. Það hafi hvarflað að sér að hafa sérstakan reit á skatt- seðli næsta árs til þess að þjóðin gæti gert sér grein fyrir upp- hæð þessara skulda. Nú verði hins vegar snúið við af þessari braut og tekj uafgangur verði á Qárlögum. Ólafur Ragnar lýsti aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og sagði meðal annars: „Það er misskilningur að þetta verði gert með því að dæla peningum almenn- ings inn f einhver Ólafur Ragn- vonlaus fyrirtæki arGrimsson til þess eingöngu að halda þeim á floti eigendum til ánægju og jafn- vel hagnaðar. Atvinnutryggingar- sjóðurinn sem nú hefur tekið til til starfa ber það glöggt með sér að það mun ekkert fyrirtæki fá fyrir- greiðslu úr þessum sjóði nema farið hafí fram strangt faglegt mat á að það hafí traustan rekstrargrundvöll eftir að meðferðinni verður lokið. Þau fyrirtæki sem hvort sem er eru dauðvona verður ekki bjargað." Stokka þyrfti upp rekstrarskipulag þessara fyrirtælcja, jafnvel að hafa eigendaskipti á sumum þeirra, til að þau yrðu lánshæf. ólafur Ragnar sagði að í kom- andi fjárlögum værí að fínna áherslubreytingu á sviði mennta- mála, heilbrigðismála og umhverfís- mála. „Aðkoma þessarar ríkis- stjómar að fslensku þjóðarbúi og ríkisfjármálunum f tíð ríkisstjómar Þorsteins Pálssonar er þó þannig að þess er ekki að vænta við þessar aðstæður að strax í upphafí að stór- ar upphæðir komi f þessa mála- flokka.“ Innan tíðar myndu liggja fyrir upplýsingar sem sýndu að stefna síðustu ríkisstjómar hefði ekki einungis leitt af sér hrun at- vinnulífsins í nær öllum landshlut- um, heldur einnig gífurleg yanda- mál í fjármálum hins opinbera, bæði í fjármálaráðuneytinu og f fagráðuneytum. ólafur Ragnar sagði að tfmamót hefðu orðið við sljómarskiptin, sem gætu orðið upphafíð að langvarandi samstarfí félagshyggjuafla á ís- landi, meðal annars vegna þess að ný kynslóð hefði tekið við í forystu Alþýðuflokks og Alþýðubandalags, sem hefði ekki með í farangrinum þá sögulegu erfíðleika sem staðið hefðu samstarfí þessarra flokka fyrir þrifum. ísaflörður: Fannst látinn GÍSLI Jósepsson, ísfirðingurinn sem saknað hafði verið frá þvi á miðvikudagskvöld, fannst iátinn síðdegis á sunnudag. Kafarar úr hjálparsveitunum á ísafírði og Hnífsdal fundu Gísla í ísaflarðarhöfn. Talið er að hann hafí fallið milli skips og bryggju er hann fór frá borði togarans Páls Pálssonar á miðvikudagskvöld. Gísli Jósepsson var 46 ára gam- all, matsveinn á Vfkingi III frá ísafirði. Hann lætur eftir sig eigin- konu og §ögur uppkomin böm. Ólafur Þ. Stephensen formaoui Heimdallar. Ljósmynd/Gunnar V. Andrésson Frá aðalfundi Heimdallar síðastliðinn laugardag. Fundurinn var sá næstfiölmennasti í sögu félagsins. Olafiir Þ. Stephensen endur- kjörinn formaður Heimdallar Á aðalfundi Heimdaliar sem haldinn var síðastliðinn laugardag var Ólafur Þ. Stephensen endurkjörinn formaður félagsins með 246 atkvæðum. Gunnar Jóhann Birgisson bauð sig fram gegn Ólafi og hlaut hann 222 atkvæði. Er þetta í fyrsta sinn í sögu Heimdallar, sem boðið er fram gegn sitjandi formanni félagsins. Alls greiddi 471 atkvæði I formannskjörinu, en 3 atkvæðaseðlar voru auðir. Fundurinn á laugardaginn var næst- fjölmennasti aðalfundur sem haldinn hefur verið í sögu Heimd- allar, en alls munu félagar i Heimdalli, sem búsettir eru í Reykjavík, vera rúmlega 1700 talsins. „Ég er auðvitað afar þakklátur Heimdellingum fyrir það traust sem þeir sýndu mér,“ sagði Ólafur Þ. Stephensen, formaður Heimd- allar, er hann var inntur álits á úrslitunum. „Það sem ég legg höfuðáherslu á nú er að þrátt fyrir skammvinna misklíð gangi Heimdellingar nú sameinaðir til verks. Það er verk að vinna; nú þurfum við að taka hressilega á móti vinstri stjóminni og byggja upp Sjálfstæðisflokkinn fyrir næstu þingkosningar og borgar- stjómarkosningar. Þar má enginn Heimdellingur skorast undan og ég hlakka til að vinna með fólki, sem er tilbúið að leggja fram hugmyndir og starfskrafta af heil- um hug.“ Gunnar Jóhann Birgisson sagði að f hans huga skildi fundurínn fyrst og fremst tvennt eftir. „í fyrsta lagi tel ég að sú gagnrýni sem fram kom á stjómina hafí verið réttmæt, en mitt framboð átti rætur að rekja í gagmýni á vinnubrögð síðustu stjómar. Þó svo að sigur hafí ekki unnist þá vona ég að þetta verði til að veita ákveðið aðhald. í öðm lagi tel ég að miðað við hvemig að þessum fundi var staðið þá verði menn að setjast niður og gera sér betur grein fyrir leikreglunum. Ég von- ast til að þetta framboð mitt verði til að auka kraftinn í félaginu og kalli á breytt vinnubrögð og menn fari að átta sig á því að það þarf að hafa fyrir hlutunum. Eg vil að lokum taka það fram að ég stend ekki f neinum persónulegum ill- deilum við Ólaf Þ. Stephensen og óska ég honum velfamaðar í starfí," sagði Gunnar Jóhann Birgisson. Samningsrétturinn er stærsti áfanginn - segir Kristján Thorlacius, sem nú lætur afformennsku 1BSRB eftir 28 ár „ÉG FER heim á fostudag, ég hef ekki ákveðið annað,“ sagði Kristján Thorlacius og hló við, þegar hann var spurður hvað tæki nú við, þegar hann lætur af formennsku BSRB. Hann kvaðst engar áætlanir hafa gert og þegar hann var spurður hvort hann ætlaði að skrifa ævisöguna, neitaði hann því ákveðið: „Nei, ég kem aldrei til með að skrifa bók.“ Kristján varð formaður BSRB árið 1960 og hefiir þvi gegnt þvi starfi í 28 ár, þegar hann hættir nú á 35. þingi sambandsins. Morgun- blaðið ræddi við Kristján i til- efni þessara tímamóta og bað 35. þing BSRB: Krislján Thorlacius hættir „ÉG SKAL hefia mál mitt á þvi að tilkynna ykkur að ég gef ekki kost á mér í kosningu til formanns BSRB,“ sagði Kristján Thorlacius formaður samtakanna þegar hann setti 35. þing BSRB í gær. Þing- ið er haldið I ráðstefnusal ríkisins að Borgartúni 6 í Reylq’avik og sækja það rúmlega 200 fulltrúar aðildarfélaga. 49 félög eiga aðild að BSRB og telja þau á sautjánda þúsund félagsmanna. í setningar- ræðu sinni lagði Kristján sérstaka áherslu á að þakka Guðrúnu Ámadóttur framkvæmdastjóra BSRB mikilsverð störf hennar, eink- um að jafiiréttismálum. Guðrún hefur gefið kost á sér til for- mennsku í samtökunum, en kosið verður um formann á siðasta degi þingsins, næstkomandi föstudag. Kristján Thorlacius setti þingið og bauð sérstaklega velkomna inn- lenda og erlenda gesti frá launþega- samtökum. Sfðan tilkynnti hann að hann gæfi ekki kost á sér í form- annskjöri. Kristján hefur gegnt for- mennsku í samtökunum allt frá árinu 1960, eða í 28 ár. í ávarpi sínu við þingsetninguna sagði Kristján meðal annars: „Fyreta stórmálið sem hlýtur að liggja fyrir okkur, og liggja okkur öllum á hjarta, er afriám samningsréttar sem fyrrverandi og núverandi ríkis- stjóm hafa framkvæmt og sú lqara- skerðing sem fylgt hefur í kjölfarið og mun halda áfram á næstunni. Þessar aðfarir ríkisstjómarinnar hljóta að sýna mönnum fram á hvílik nauðsyn það er að móta heild- aretefnu í Iq'aramálum og standa fast saman um hana.“ Kristján nefndi sfðan nokkur helstu mál, sem koma munu til kasta þingsins. Þar á meðal að taka afstöðu til málefna lífeyrissjóða opinberra starfsmanna, jafnréttis- mál og lagabreytingar. Fyrir þing- inu liggur tillaga frá fulltrúum Starfsmannafélags Selfosskaup- staðar um að kjömir fulltrúar í trún- aðarstörfum á vegum sambandsins silji ekki lengur en í þijú kjörtíma- bil, það er í níu ár. Kristján gagn- rýndi þessa tillögu og sagði meðal annare: „Með því að samþykkja þessa tillögu um lagabreytingu værum við að vísa á bug hæfum einstaklingum sem fúsir eru að starfa fyrir samtökin af áhuga og fómfýsi." Kristján þakkaði í lok ræðu sinnar stjóm og starfsfólki BSRB ánægjulegt samstarf á liðnum ámm og lýsti þingið sett. 35. þing BSRB stendur til fostudags. Því lýkur með kjöri formanns og stjómar. Þrír hafa gefíð kost á sér til for- mennsku, Guðrún Árnadóttir, Ög- mundur Jónasson og Örlygur Geire- son. liann að riQa upp markverðustu áfangana í starfi BSRB í hans formennskutíð. „Mér fínnst þetta | langur tími sjálf- um, en ég er sáttur við þetta tímabil. Ég hefði ekki verið í þessu trúnaðar- starfí í samtökun- um svo lengi, ef | ég hefði ekki haft áhuga á þessum v . ... málum. Ég hef átt T, . því láni að fagna, Th°rlaC1US að hafa getað komið mörgum af mínum áhugamálum fram, þannig að ég er fullkomlega sáttur við mitt starf og mína féiaga," sagði Kristján. Hann var spurður, hveija hann teldi vera mikilsverðustu áfangana í hans formennskutíð. „Ég tel alveg tvímælalaust að það sé samnings- rétturinn, sem við fengum fyrst 1962, fyretu skrefíin voru stigin þá. Við sömdum við þáverandi ijár- málaráðherra, Gunnar Thoroddss- en, um að bandalagið fengi tak- markaðan samningsrétt. Síðan gengur það mál áfram og við fáum næsta áfanga 1973, við fáum verk- fallsrétt 1976 og síðan enn einn áfangann í lok áre 1986, þar sem samningsrétturinn færist til félag- anna. Þá er kominn svipaður samn- ingsréttur og ASÍ félögin búa við. Ég tel þetta nánast stærsta málið sem við höfum flaliað um, þetta er grundvallaratriði. Ég verð að segja, að það er mikil ógæfa að núverandi ríkisstjóm skuli, eins og reyndar hefur skeð áður, ráðast að þessum helga rétti stéttarfélaganna og af- nema hann. En það er vonandi éi eitt, því að ég hef þá trú, að sam- tök Iaunafólks bijóti þessa aðför á bak aftur, þannig að ríkisstjómir hugsi sig um tvisvar í framtíðinni, áður en þær afnema samningsrétt. Það er pólsk aðferð, en á ekki heima á íslandi. Þú spyrð um önnur stór mál. Ég tel að annað það stæreta sé orlofs- heimilin. Þar höfum við gert stórá- tak og mjög ánægjulegt. Við eigum nú 102 hús ásamt tilheyrandi þjón- ustuaðstöðu. Það er mjög ánægju- iegt að hafa tekið þátt í að koma þessu upp. Ekki síst vegna þess að þetta er aðstaða sem er sköpuð fyrir bamafjölskyldur sem ekki hafa tækifæri til að fara í dýr sum- arferðalög." Kristján var spurður hvort hann teldi samtökin sterk nú, þegar hann lætur af formennsku og hvemig honum lítist á framtíð samtakanna. „Ég tel að ég skilji við samtökin sterk. Framtíðin byggist auðvitað á því hvað félögin vilja gera, hvemig þau vilja hafa þessi samtök. Þau hafa fullt frelsi tii þess að semja sjálf eða hafa samflot um samn- inga. Ég er þeirrar skoðunar að þau eigi að hafa samflot, gera heildar- samnnga og hafa fullt fijálsræði til að semja um sín sérmál. Þannig er fullur grundvöllur til að þessi sam- tök verði í framtíðinni með fullan styrkleika," sagði Kristján Thorlac- ius að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.