Morgunblaðið - 18.10.1988, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988
Fríkirkjudeilan í augum stuðnings-
manna séra Gunnars Björnssonar
Eigendur Öreindar sf., Baldur
Þór Sveinsson og Sigurður Gunn-
arsson rafeindavirkjameistarar.
Nýtt raf-
einda-
fyrirtæki
NÝTT fyrirtæki, Öreind sf., hef-
ur tekið til starfa á Nýbýlavegi
12 í Kópavogi.
Pyrirtækið annast almenna við-
gerðarþjónustu á myndbandstækj-
um, sjónvörpum, hljómtækjum o.fl,
alla þjónustu við móttökubúnað
gervihnatta, sölu og þjónustu á loft-
netskerfum, og þjónustu við Harr-
is/3M telefaxtæki.
(Fréttatilkynning)
eftir Matthías
Kristiansen
Norðmenn eiga sér málshátt sem
segir eitthvað á þá leið að sumir
ljúgi hraðar en þeir hugsi. Ekki
veit ég hvort þetta á við það fólk,
sem nú skipar það brot safnaðar-
stjómar Fríkirkjunnar sem enn sit-
ur, en það er ekki langt frá því.
Það myndi æra óstöðugan að elta
ólar við allar þær rangfærslur sem
þetta fólk hefur látið frá sér fara
um mál séra Gunnars Bjömssonar,
svo hér mun ég aðeins leitast við
að svara þeim ásökunum sem ljót-
astar virðast vera. Sumar hafa
komið fram í fjölmiðlum og aðrar
í þeim óhróðurspésum sem stjómin
kaus að kalla safnaðarblöð. Þar
hefur verið klifað á því að sannleik-
urinn væri sagna bestur, en eitt er
að vísa veginn, annað að fara hann.
1) Þegar ný stjóm tók við í lok
maí, lét hún það verða sitt
fyrsta verk að reka Gunnar
vegna samstarfsörðugleika.
Hið rétta að þessi stjóm hafði
ekkert samband haft við prest-
inn þegar ákvörðunin var tekin.
2) Stjómin segir séra Gunnar
hafa lýst því yfír að hann hafí
gert samkomulag við stjómina
vegna brottrekstrar 1985 til
þess eins að halda embættinu.
Hið rétta er að hann lýsti því
yfír síðar að það eina sem út
úr þeim samningi hafí komið,
væri það að hann hélt embætt-
inu. Þáverandi stjóm hafí ekk-
ert gert til þess að bæta sam-
komulagið.
3) Stjómin. segir séra Gunnar
hafa hindrað kirkjukór
Fríkirkjunnar í að syngja við
jarðarfarir. Hið rétta er að
kirkjukórar í Reykjavík syngja
aldrei við jarðarfarir.
4) Stjómin segir að greiddir
reikningar 9. júní 1987 hafí
verið einkaneysla séra Gunn-
ars. Hið rétta er að þar var
um samningsbundna hluti að
ræða, sem söfnuði bar að
greiða.
5) Safnaðarstjóm segir prest hafa
vasast með ávísanahefti. Hið
rétta er að hann fór í banka
með einstakar ávísanir undir-
„Hinn fjölmenni hópur
stuðning’smanna hættir
ekki að berjast fyrir
réttlætinu og ef stjórn-
in heldur að henni sé
nú óhætt að drekka sig-
urskál, skjátlast henni
illilega.“
ritaðar af gjaldkera til þess að
greiða ýmsa reikninga fyrir
söfnuðinn.
6) Safnaðarstjóm segir prest hafa
hækkað laun sín í prófastslaun
(um ca. 2.000 kr.) án sam-
þykkis stjómar. Hið rétta er
að þetta var fastmælum bundið
við ráðningu en aldrei efnt.
7) Safnaðarstjóm segir að Gunn-
ari hafí verið greitt fyrir aðstoð
við dreifíngu safnaðarblaðs.
Hið rétta ér að nokkrir ungling-
ar voru fengnir til þess að sjá
um þetta.
8) Safnaðarstjóm kallar 1. tbl.
7. árgangs áróðursblað séra
Gunnars. Hið rétta er að það
er blað með kveðju formanns,
upplýsingum um gerðir stjóm-
ar, minningargrein um látinn
kirkjuvörð og ýmislegt úr safn-
aðarstarfi. Til samanburðar
má benda á tvö blöð Bertu og
félaga, sem em einn samfelldur
áróður og óhróður um séra
Gunnar.
9) Safnaðarstjóm segir að ekki
hafí fengist samþykki fyrir við-
gerðum á prestsbústað. Hið
rétta er að það var samþykkt
á stjómarfundi.
10) Safnaðarstjóm segist hafa
stutt uppsögnina gildum rök-
um. Hið rétta er að hún bygg-
ir að mestu leyti á óstaðfestum
slúðursögum og ummælum
rifnum úr samhengi. A meðan
viðkomandi ekki gangast við
ummælum og staðfesta þau,
verður að líta á þau sem hrein-
an róg.
11) Stjómin leggur á það mikla
áherslu að prestur hafí ráðið
einhveiju um fjármuni safnað-
JÁRNAMENN!
BYGGINGA-
VERKTAKAR!
Vorum að fá sendingu af
JÁRNAKLIPPUM
Höfum einnig
fyrirliggjandi:
Mótahreinsivélar.
Rafstöðvar.
Rafmagnstalíur.
Flísasagir.
Steypuhrærivélar.
Verkstæðiskrana.
Loftþjöppur.
SALA-SALA-SALA-SALA
LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA
VÉLA- OG'PALLALEIGAN
Sími687160.
Fosshálsi 27,
Reykjavík.
arins. Hið rétta er að þau eru
alfarið í höndum gjaldkera og
því er verið að hengja bakara
fyrir smið.
12) Safnaðarstjóm heldur því fram
að prestsfrúin hafí gengið er-
inda prestsins og verið að
skipta sér af kómum. Hið rétta
er að hún sté ekki fæti sínum
á kórloftið eftir 1985 þegar hún
var flæmd burt úr kómum.
13) Berta Kristinsdóttir titlar sig
formann safnaðarstjórnar. Hið
rétta er að formann er einung-
is hægt að kjósa á safnaðar-
fundi.
14) Stjómin segir allar gerðir sínar
löglegar. Hið rétta er að margt
er undarlegt á seyði og til
dæmis mun a.m.k. einn maður
vera tilbúinn að koma fram og
votta að Berta hafí fengið hon-
um tvo kjörseðla á aðalfundi
1988.
15) Stjómin segir að prestur hafí
skemmt allt safnaðarstarf
síðan hann tók við. Hið rétta
er að safnaðarstarf hefur löng-
um verið svo dauft að t.d. var
sent út bréf 1974 með hug-
mynd um að leggja niður söfn-
uðinn. M.a. hefur skortur á
safnaðarheimili staðið safnað-
arstarfí fyrir þrifum.
16) Stjómin segir að nýir meðlimir
hafí gengið í söfnuðinn til þess
að styðja séra Gunnar. Hið
rétta er að þeir hafa gengið í
söfnuðinn vegna þess að þeir
vildu heyra guðs orð af vörum
prestsins og tóku því þessa
ákvörðun.
17) Berta Kristinsdóttir segir að
fundurinn 12. september hafi
ekki verið haldinn til þess að
ræða uppsögn prestsins. Hið
rétta er að 70 safnaðarmeðlim-
ir fóm fram á fund til þess að
ræða einmitt það mál.
Hér er nú búið að fara yfír bróður-
partinn af þeim ásökunum sem
beint er sérstaklega gegn prestin-
um. Það er sláandi að þegar allt
þetta er skoðað í samhengi kemur
í Ijós hversu furðulegur, órökstudd-
ur, fátæklegur og óþverralegur rök-
stuðningur safnaðarstjómar var
fyrir þessari umdeildu ákvörðun,
enda er stjómin ekki lengur starf-
andi nema að nafninu til. Formaður
og þrír til viðbótar eru horfnir af
vettvangi og hafa þvegið hendur
sínar. Safnaðarstjóm hefur í öllum
sínum málflutningi reynt að láta
það líta svo út sem hér væri prest-
ur í deilu við söfnuð sinn, þegar
hið rétta er að safnaðarstjóm með
fámenna klíku á bak við sig er að
deila við mikinn meirihluta þeirra
safnaðarmeðlima sem láta sig kirkj-
una einhveiju varða. Langstærstur
hluti þeirra sem styðja séra Gunnar
og gera honum kleift að beijast
áfram fyrir kalli sínu og starfs-
heiðri eru nefnilega þeir sem mest
og dyggast hafa sótt Fríkirkjuna
undanfarin ár.
Það er líka athyglisvert að stjórn-
in auglýsti skoðanakönnun sína fyr-
ir hátt í hálfa milljón króna í dag-
blöðum og bauð fólki að aka því á
kjörstað. Hins vegar virðist hún
kæra sig kollótta um kirkjusókn,
samanber fjölda kirkjugesta í tveim
guðsþjónustum samtals sunnudag-
inn eftir kosningar (u.þ.b. 70
manns).
Þeim, sem líta þetta mál hlutlaus-
um augum, fínnst ekki einleikið
hversu upptekin þessi safnaðar-
stjóm er af fjármálum og misferli.
Það mun væntanlega koma í ljós
hvemig þeim málum er farið í hlut-
lausrí og nákvæmri rannsókn. Eitt
er þó víst, að hinn fjölmenni hópur
stuðningsmanna hættir ekki að
beijast fyrir réttlætinu og ef stjóm-
in heldur að henni sé nú óhætt að
drekka sigurskál, skjátlast henni
illilega.
Höfundur er stuðningsmnður sr.
Gunnars i Fríkirkjusöfnuðinum.
5.1! d,fe tiMEHrufrKWU
THORPAC - POKAR og ILAT
í ÖRBYLGJUOFNINN
SKILA MATNUM Á DISKINN
MEÐ ÖLLUM
NÆRINGAREFNUM
OG RÉTTU BRAGÐI.
FRYSTINN
THORPftC
HICROWAVE
Cook-in bag's
20 Boiling Bags
THORPftC
MiCROWAVE
Cook-'mbags
10 Roasting
Bags
Dreifing: I. Guðmundsson og Co. hf. Sími: 24020.
i