Morgunblaðið - 18.10.1988, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988
>
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og
afa,
ÁGÚSTS ÞÓRARINSSONAR,
Höfðagötu 11,
Stykkishólml.
Marfa Bœringsdóttlr,
Árþóra Ágústsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson,
Harpa Ágústsdóttir, Gunnar T ryggvason
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við fráfall og útför
HALLDÓRS SIGVALDASONAR,
Gilhaga.
Sérstakar þakkir til lœkna og starfsfólks á Sjúkrahúsi Húsavíkur
fyrir góða umönnun. Einnig þakkir og kveðjur til starfs- og vist-
fólks Dvalarheimilinu Hvammi, Húsavík.
Laufey Guðbjörnsdóttir,
Brynjar Halldórsson,
Arnþrúður Halldórsdóttir
og fjölskyldur.
AÐ HÆTTA
AÐ REYKJA
Nú bjóðum við 8 vikna námskeið með sérfræðing-
um okkar í reykbindindi og alhliða líkamsþjálfun.
Námskeiðið kostar það sama og
1 PAKKI AF
SÍGARETTUM Á
DAG í 10 VIKUR
Stórkostlega bætt heilsa er því góð fjárfesting.
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71
Ægir Þór Jóhannes
son - Minning
Fæddur 18. október 1968
Dáinn 27. september 1988
Hinn 27. september síðastliðinn
barst okkur sú harmafregn að
frændi okkar og vinur hefði látist
af slysförum. Mann setur hljóðan
við slíka fregn. Hvers vegna eru
ungir menn kvaddir á brott úr þess-
um heimi? En huggun harmi er það
gegn að þeir sem guðimir elska
deyja ungir.
Ægir fæddist 18. október 1968
í Grundarfirði. Þar bjó hann með
foreldrum og systkinum sínum til
10 ára aldurs en fluttist þá til Ól-
afsvíkur. Þar bjuggu hann og fjöl-
skylda hans er þetta hörmulega slys
varð. Ægir lauk grunnskólaprófi í
Ólafsvík. Síðan lá leið hans út á
vinnumarkaðinn. Hann reyndi fyrir
sér við fískvinnslu og sjómennsku
en komst fljótlega að því að það
höfðaði ekki til hans. Fór hann þá
austur á Selfoss og lærði þar á
vinnuvélar. Þá lá leiðin aftur vestur
til Ólafsvíkur og var hann hefíl-
stjóri hjá Vegagerð ríkisins.
Ægir var lífsglaður ungur dreng-
ur, félagslyndur en samt skemmti-
lega feiminn. Ægir, systir hans og
félagar í Ólafsvík voru stofnendur
unglingadeildarinnar innan slysa-
vamadeildarinnar Sæbjargar í Ól-
afsvík. Sýnir það vel hug hans til
hjálparstarfa þó ungur væri.
Það var alltaf gaman þegar
Ægir kom í heimsókn til Grindavík-
ur því þá var alltaf eitthvað
skemmtilegt gert. Nú síðast kom
hann þann 3. september og þá var
skroppið á ball í Keflavík. Því kvöldi
munum við aldrei gleyma.
Það er sárt að sjá á eftir góðum
vini sem Ægir var en það er þó
huggun að hann skilur eftir í hugum
okkar fagrar og ljúfar minningar,
og mun hann lengi lifa í hugum
okkar sem glaðværi og góði dreng-
urinn sem hann var.
Ykkur foreldrum Ægis, Jóhannes
Amberg og Þorbjörgu Berg, og
systkinum, Kristínu, Hafrúnu og
Birgi, og öðmm vandamönnum,
vottum við og fjölskyldur okkar
innilegustu samúð og biðjum Guð
að styrkja ykkur og vemda í þess-
ari raun. Við vitum að Ægir bíður
rólegur samfunda við okkur öll.
Kallið er koraið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaður viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem)
Guð blessi ykkur öll.
Stella og Geiri
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfílegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar em
birtar aftnælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
fltogptstMitfrtö
Metsölublað á hveijum degi!
■. iiM ■ im iiM 1 m ......... ■■ ■ ■ 1 ■ . " . .......................
raðauglýsingar — raðauglýsingár — raðauglýsingar
Vopnafjörður
Almennur stjórn-
málafundur verður
haldinn í félagheim-
ilinu Miklagaröi
fimmtudaginn 20.
október kl. 20.30
um stjórnmálavið-
horfið og stefnu
Sjálfstæðisflokks-
ins. Á fundinn koma
alþingismennirnir
Kristinn Pétursson og Halldór Blöndal. Umræður og fyrirspurnir
verða á eftir framsöguræðum. Fólk er hvatt tíl að mæta.
Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins iAusturlandskjördæmi.
Árnessýsla
Sjálfstæðlskvenna-
félagið Árnessýslu
heldur félagsfund I
sjálfstæðishúsinu á
Selfossl þriðjudag-
inn 18. október nk.
kl. 20.30. Gestlr
fundarins veröa
Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæð-
isflokksins og
Arndfs Jónsdóttir
varaþingmaður.
Fundurinn er opinn öllu sjálfstæðlsfólkl.
Stjórnin.
Félag sjélfstæðismanna
Langholti
Vinnufundur vegna stefnuskrérréðstefnu Sjélfstæðisfélaganna í
Reykjavik 22. október veröur haldin f kjallara Valhallar, Héaleitis-
braut 1, kl. 20.30 mlövikudaginn 19. október 1988.
Á fundinum verður farið yfir drög að élyktunum fyrir réðstefnuna.
Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka virkan þétt f mót-
un stefnu Sjélfstæðisflokksins f Reykjavfk.
Sjórnin.
Flokksráðsfundur og
formannaráðstefna
Boðað er til flokksráðsfundar og formannaráðstefnu f Reykjavík laug-
ardaginn 12., og sunnudaginn 13. nóvember nk.
Fundurinn verður á Hótel Sögu og é dagskrá fundarins verða umræð-
um um stjórnamálaviðhorfið og flokksstarfið framundan.
Flokksráðsmenn og formenn eru eindregið hvattlr til að mæta á
fundinn.
Fundurinn og fundarefniö verður nánar kynnt f auglýsingum og bréf-
lega.
Miðstjórn.
Bakkafjörður
- Skeggjastaðahreppur
Almennur stjórn-
málafundur verður
haldinn í grunnskól-
anum föstudaginn
21. október kl.
20.30 um stjórn-
málaviðhorfið og
stefnu Sjálfstæðis-
flokksins. Á fundinn
koma alþingismenn-
irnir Kristinn Péturs-
son og Halldór Blöndal. Umræður og fyrirspurnir verða á eftir fram-
söguræðum. Fólk er hvatt til að mæta.
Stjóm kjördæmisráðs SJálfstæðisflokksins fAusturlandskjördæmi.
Hella:
í brimgarði vinstri stjórnar
■\juiuoDiiiiaiau ojöii-
stæðisflokksins á
Suðurlandi boðar tll
almenns stjórn-
málafundar f Laufa-
felll á Hellu (Grlll-
8kálanum) fimmtu-
dagskvöldlð 20. okt.
kl. 21.00.
Alþingismennirnir,
Þorsteinn Pálsson, ___________________________
formaður Sjélfstæðlsflokkslns, og Eggert Haukdal, ræða mélln
Umræður og fyrirspurnir verða að loknum framsöguræðum.
Fólk er hvatt til að mæta á fundlnn.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi.
Ahrif efnahagsráðstafan-
anna á iðnaðinn
Iðnaðarnefnd SJálf-
staaðlsflokkslns
heldur fund um of-
angreint afnl f Val-
höll þrlðjudaglnn
18. októbar kl.
17.00.
Málshefjendur
verða:
Haraldur Sumar-
llðason, form.
Landssambands iðnaðarmanna.
Vfglundur Þorstalnsson, form. Félags fslenskra iðnrekenda.
Fundurinn er öllum oplnn. Við hvetjum allt áhugafólk um iðnað og
atvinnumál eindreglð til að mæta, þar sem þetta er gott tækffærl tll
að bera saman bækur f málefnum Iðnaðarins, sem virðist eiga und-
Ir högg að sækja.
Iðnaðarnefnd Sjálfstæðisflokksins.