Morgunblaðið - 18.10.1988, Side 56

Morgunblaðið - 18.10.1988, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 Austur-Eyjafi 811: Brúin á Skógá endur- byggð í þriðja sinn Holti. Flugbjörgunarsveit Austur-Eyfellinga endurbyggði nú i haust i þriðja sinn göngubrú yfir Skógá við Landnorðurtungur á gönguleið- inni yfir Finunvörðuháls. Þetta starf flugbjörgunarsveitarinnar hefiir frá upphafi ailt verið unnið í sjálfboðavinnu. Eftir dauðaslys sem varð í Skógá ar. Skálinn á Fimmvörðuhálsi, sem 1982, þegar útlendingur fórst er hann reyndi að vaða Skógá á vaði árinnar á leiðinni yfir Fimmvörðu- háls, réðst Flugbjörgunarsveit Austur-Eyfellinga í að reisa göngu- brú yfir ána, sem var vönduð tré- brú. Brúin brotnaði undan snjó- þunga veturinn eftir. Þá var ráðist í að byggja brúna upp á ný með stálbitum sem Vegagerð ríkisins gaf. En einnig stálbitamir urðu að láta undan snjóþunganum sl. vetur. Nýlega lauk svo flugbjörgunar- sveitin við göngubrúna í þriðja sinn og voru fengnir öflugir stálbitar frá vegagerðinni sem ætlast er til að standist snjóþungann. Flugbjörgunarsveit Austur-Ey- fellinga hefur það sem sérstakt við- fangsefni að fylgjast með leiðinni yfir Fimmvörðuháls. Baldvin Sig- urðsson í Eyvindarhólum, formaður sveitarinnar, sagði að í sumar hefði orðið að setja þrisvar upp stikur á gönguleiðinni yfír jökulinn, því hann hefði bráðnað miklu meira í sumar en venja væri. Margt fólk færi þessa leið á sumrin og í sum- ar hefðu Fjalla-hestar farið með fólk reglubundið um helgar ríðandi upp með Skógá og síðan yfir jökul- inn. Hins vegar bæri það oft við að fólk færi þessa leið vanbúið á haustin og jafnvel á vetuma og væri þá sveitin kölluð út til hjálp- sveitin byggði 1975 og sér um, hefði oft komið fólki vel, jafnvel svo vel að það hefði sótt lífbjörg sína til hans. Baldvin vildi vara fólk við að fara þessa leið að haust- og vetrarlagi, nema vera vel búið til ferðar og að það hefði fyrir- hyggju um ferðatilhögun, þannig að fólk í byggð vissi nákvæmlega um ferðaáætlun og gæti látið vita ef eitthvað færi úrskeiðis. Rigning og rok í byggð gæti verið versti kafaldsbyiur þama uppi eða slydda, sem mörgum ferðamanninum væri hvað verst. — Fréttaritari Morgunblaðið/Grímur Gíslason Guðný Guðlaugsdóttir og Jens Kristinsson veittu viðurkenningu sinni viðtöku úr höndum Eyglóar Ingólfsdóttur formanns HUN-nefndar- innar og Arnaldar Bjamasonar bæjarstjóra. Vestmannaeyjar: 10% KYNNINGAR AFSLÁTTUR HÚSA SMIÐJAN SJÍÚRMDG) 16 Sfrltl 687700 Sigurgeir Siguijónsson, Fiskiðjunni, Eyjólfur Martinsson, ísfélaginu, og Sigurður Einarsson, Hraðfrystistöðinni, veittu viðurkenningum viðtöku fyrir hönd fyrirtækjanna. Jónína ÍS 93, hinn nýi bátur Brimennss á Flateyri. Nýr bátur til Flateyrar NÝR bátur kom til Flateyrar mánudaginn 3. október. Eigenda- skipti urðu á Jónfnu ÍS 93 frá Flateyri og Ver NS 400 frá Bakka- firði og um leið urðu nafnaskipti á bátunum. Skipstjóri á Jónínu er Guðmundur Helgi Kristjánsson. Báturinn er 75 tonna eikarbátur, smíðaður I Danmörku 1960 en fyrir fimm árum var hann að miklu leyti endurbyggður. Jónína ÍS 93 hefur góðan kvóta og verður gerð út á línuveiðar. Aflinn verður að hluta til unninn í Kambi hf., dótturfyrirtæki Brimness hf., og hjá Hjálmi hf. á Flateyri. Þess má svo bæta við til gamans að 3. október fyrir þremur árum skrifuðu Brimnesmenn undir kaup- samning á sínum fyrsta báti og nú 3. október sigldi í höfn annar bátur þeirra undir sama nafni, sem er nafn móður og tengdamóður eigendanna, en alls hafa 4 bátar heitið hennar nafni innan íjölskyldunnar. - Magnea Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir Guðmundur Helgi Krístjánsson, skipstjóri og eigandi, Guðmundur Njálsson, vélstjóri og eigandi, Jónína Hjartardóttir, sem báturinn er skírður eftir, og Hinrik Kristjánsson, framkvæmdastjóri. Viðurkenningar veitt- ar fyrir snyrtimennsku Vestmannaeyjum. Heilbrigðis-, umhverfis og náttúruverndamefiid Vestmannaeyja- bæjar veitti fyrir skömmu einstaklingum og fyrirtækjum viðurkenn- ingar fyrir snyrtimennsku og góða umgengni í nágrenni sínu. Araald- ur Bjaraason, bæjarstjóri, og Eygló Ingólfsdóttir, formaður HUN- nefiidarinnar, afhentu viðurkenningarnar i kaffisamsæti sem boðið var tíl í Hótel Þórshamri. í ræðu sem bæjarstjóri hélt við þetta tækifæri kom fram að til- gangurinn með viðurkenningum sem þessum væri að örva fólk til bættrar umgengni og umhugsunar um umhverfismál. Bæjarstjóri sagði að sem betur fer hefði orðið breyt- ing á hugsunarhætti fólks gagnvart umhverfis og náttúruvemdarmál- um, frá því sem áður var. Núna skipuðu þau mál stóran sess í hug- um fólks, en fyrir fáum árum létu flestir þau sig litlu skipta. Sagðist bæjarstjóri vonast til að viðurkenn- ingar þær er afhentar yrðu mættu verða viðtakendum frekari hvatning til áframhalds á sömu braut. Viðurkenningu fyrir skemmtileg- asta heildarsvip og snyrtilegt um- hverfi hjá einstaklingum hlutu hjón- in Guðný Guðlaugsdóttir og Jens Kristinsson Höfðavegi 37. Það fyr- irtæki sem hlaut viðurkenningu fyr- ir snyrtilegasta umhverfið og skemmtilegasta svipinn var Kaup- félagið við Goðahraun. Fengu báðir þessir aðilar viðurkenningarskjöl og blómvendi að launum. Vallargata var valin snyrtileg- asta gatan og skýrði bæjarstjóri frá því að viðurkenningarskilti, með áletruninni fegursta gatan, yrði sett upp við báða enda götunnar, innan tíðar. Þá voru ísfélaginu, Hraðfrystistöðinni og Fiskiðjunni veittar viðurkenningar fyrir al- menna snyrtimennsku í næsta ná- grenni fískvinnsluhúsa sinna. - G.G.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.