Morgunblaðið - 10.11.1988, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988
15
WALDGRAVE SÚPA kr.275,-
(Súpa kvöldsins)
NÆR ÖLDUNGIS GÓMSÆTT
HREKKJUSVÍN í POKA kr.995,-
(Innbakaður grísavöðvi með osti,
sveppum og kryddj urtasósu)
RISTUÐ SMÁLÚÐA HJÁ RICK
OGRANSÝ kr.795,-
(Ristuð smálúðuflök með pöstu,
hrísgrjónum og kræklingasósu)
KOMDU OG FÁÐU ÞÉR
RUGULKOLLU Á BARNUM
Amarhóll RESTAURANT
opinn á kvöidin frá kl. 18:00,
þriðjud. til laugard.
pantanasími 18833
Hverfísgötu 8-10
LAUGAVEGI 54
(í sama húsi og Quadro)
Nokkur orð um byggingarkostnað
Athugasemd við fréttir um byggingarkostnað
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá
Gunnari S. Björnssyni, formanni
Meistara og verktakasambands
byggingamanna:
I Mbl. sunnudaginn 6.11. eru
settar fram villandi upplýsingar um
byggingarkostnað, sem nauðsyn-
legt er að leiðrétta. í heimilisblaði,
sem fjallar um fasteignir, er því
haldið fram sem afdráttarlausum
sannleik, að það kosti 38.824,- á
fermetra að byggja íbúð í fjölbýlis-
húsi, en 54.108,- í einbýlishúsi.
Upplýsingar blaðsins eru fengnar
úr riti Rannsóknastofnunar bygg-
ingariðnaðarins og Hagstofu Is-
lands, en láðst er að geta þess, sem
þar stendur fremst í ritinu að „Hafa
skal hugfast að ekki er raunhæft
að bera byggingarkostnað vísitölu-
húss saman við byggingarkostnað
annarra húsa nema kynna sér alla
uppbyggingu og frágang og bera
saman efnis- og verklýsingar."
Sannleikurinn er sá að vísitala
fjölbýlishúss er hin opinbera vísitala
og þegar hún var sett áleit hið opin-
bera það sitt hagsmunamál að hún
yrði sem lægst. Þess vegna er við-
miðun þessarar vísitölu ekki dæmi-
gert fjölbýlishús heldur ódýrara,
óvandaðra og „hagkvæmara" fjöl-
býlishús en íslendingar myndu vilja
búa í nú. Eins og fram kemur í
vísitöluritinu er meginhlutverk
visitöluútgáfiinnar að sýna hlut-
fallslegar breytingar á bygging-
XJöfóar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
arkostnaði og einstökum þáttum
hans. Auk þess er a.m.k. einum
veigamiklum þætti byggingar-
kostnaðar sleppt í vísitöluhúsinu
sem er fjármögnunarkostnaður, en
það vita þeir best sem hafa verið
að byggja sér íbúð að er heldur
óraunhæft.
Sannleikurinn er sá að bygging-
arkostnaður einstakra húsa verður
ætíð breytilegur eftir gerð húsa, en
sjaldan eða aldrei næst sú hag-
kvæmni éða notuð þau „gæði“ eins
og í vísitöluhúsinu, enda átti það
hús meðal annars að þjóna pólitísk-
um tilgangi.
Þar að auki er öll umræða um
byggingarkostnað íbúða enn rugl-
ingslegri en vera þyrfti hér á landi,
þar sem engar einhlítar reglur eru
í huga fólks um hvað átt er við
þegar rætt er um 100 fermetra
íbúð. í umræddri frétt Morgun-
blaðsins er fullyrt að 100 fm íbúð
kosti 3,9 milljónir króna. Hér er
verið að ræða um 100 fm brúttó,
þ.e. meðtalin er sameign, gangar,
geymsla o.þ.h.
íbúð sem er 100 fm skv. brúttó-
skilgreiningu er því gjarnan 65—70
fm skv. venjubundinni skilgrein-
ingu. Nýlega hefur verið gerð könn-
un af tæknideild Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins á raunkostnaði bygginga
eins og hann reynist m.v. tilboðs-
verð í útboðum tæknideildar. Stofn-
unin komst að því að raunhæft við-
miðunarverð án fjármagnskostnað-
ar væri eftirfarandi á september-
verðlagi: Fjölbýlishús 70—80 fm
íbúð kr. 50.080,- pr. fm, raðhús/-
parhús 80—90 fm kr. 61.500,- pr.
fm, einbýlishús 80—90 fm kr.
64.600,- pr. fm.
Fréttaflutningur eins og hér um
ræðir er ákaflega varhugaverður
og raunar vítaverður þegar Morg-
unblaðið er annars vegar. Meistara
og verktakasambandið fagnar
raunhæfum fréttum og umræðum
um byggingarkostnað. Það er nauð-
sjmlegt að íslendingar nýti sem
best það mikla fé sem varið er til
húsbygginga hér á landi. Umræður
og fréttir sem byggjast á þekkingu
eru því af hinu góða, en þessi mál
eru allt of mikilsverð til þess að um
þau sé fjallað af vanþekkingu. Því
er vert að undirstrika nauðsyn þess
þegar um slíka hluti er fjallað að
það sé gert á grundvelli réttra upp-
lýsinga og af fullkominni kunnáttu
um grunn þeirra upplýsinga sem
byggt er á.
DýöurARNARHÓLL
sérstakan matseðil
á föstudags- og laugardags-
kvöldum - fyrir og eftir
sýningu.
REGNBOGAKÆFA aÖRU kr. 325,-
(Regnbogakæfa með hunangssósu)
ISLENSKIR
STRAIJMAR
í ÍVÝRRI
TÍSKURIJD
Punkturinn er ný tískuverslun á
miðjum Laugavegi. Þar eru föt eftir
unga og kraftmikla íslenska
hönnuði í öndvegl.
Björg Ingadóttir og Valgerður
Torfadóttir eru meðal fremstu
fatahönnuða okkar íslendinga, og
Punkturlnn selur föt eftir þsr.
Kynntu þér ferska strauma i íslenskri fatahönnun í Punktinum.
PUNKTURINN