Morgunblaðið - 12.11.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1988
23
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Láttu vélina velja eða
treystu á eigin tölur. Sumir
nota afmælisdaga, aðra
dreymir tölumar. Kannski
rætist stóri draumurinn
þinn á laugardaginn.
n
Og ekki er öll nótt úti
þótt þú fáir ekki milljónir
1 þetta sinn. Ef heppnin er
með getur bónustalan
fært þér hundruð þúsunda.
Mundu bara að vera með.
Ekki þarf að gylla gull
Tilurð Ljóðaár-
bókar 1988
eftirSigurð
Valgeirsson
Vegna tveggja greina Guðmund-
ar Guðmundarsonar þar sem hann
fer ófögrum orðum um Ljóðaár-
bókina 1988, nefndina sem valdi
ljóðin og íslensku skáldin 75 sem
eiga verk í bókinni, langar mig til
að útskýra í nokkrum orðum tilurð
hennar.
Almenna bókafélagið fékk á
síðasta árin til liðs við sig nefnd
skipaða þeim Berglindi Gunnars-
dóttur, Jóhanni Hjálmarssyni og
Kjartani Árnasyni til að ritstýra
ljóðaárbók. Fljótlega var haldinn
blaðamannafundur þar sem lýst var
eftir ljóðum í væntanlega bók. Hon-
um var síðan fýlgt eftir með auglýs-
ingum í blöðum og urðu rúmlega
200 manns við því boði að senda
inn verk sín. Úr ljóðum þeirra var
valið og var árbókin gefin út síðast-
liðið vor.
Ekki kom fram í neinu er sagt
var eða auglýst um tilgang bókar-
innar að ljóðabókinni væri ætlað
að halda uppi því sem Guðmundur
nefnir: kyndil ljóðstafa og ríms.
Markmiðið með tiltækinu var að
gefa þverskurð af íslenskri ljóða-
r
Sigurður Valgeirsson
gerð árið 1988 — ekki 1888 þó að
við höfum átt góð skáld þá ekki
síður en nú.
Almenna bókafélagið gefur út
bækur, skáldsögur, ljóð og leikrit,
án þessi að einblína á hvenær þau
eru skrifuð eða form þeirra. Eina
skilyrði sem við setjum er að verkin
séu góð og að þau eigi erindi til
samtímans. Á það jafnt við um
„Mér fínnst Guðmund-
ur verða að gera sér
grein fyrir því að í öll-
um góðum skáldskap
er leyndardómur eða
gáta sem við erum að
ráða aftur og aftur,
eftir aldri og þroska,
alla ævi.“
Ljóðabókina 1988 sem bókina
Ferskeytluna sem væntanleg er
frá forlaginu á næstu dögum.
I Ferskeytlunni er vísa eftir Jón
úr Vör, en hann hefur eins og flest-
ir vita meðal annars skrifað bókina
Þorpið. Vísa Jóns er svona:
Ekki þarf að gylla gull,
gullið verður ætíð bjart;
ailtaf verður bullið bull
þótt búið sé í rimað skart.
Mér finnst viðhorf Guðmundar
til skáldskaparins rangt. Hann velur
nokkur ljóð Ljóðaárbókarinnar
1988 og leitast við að gera lítið úr
þeim. Þá biður hann um sönnur
.fyrir því að ljóðin séu góð. Mér
finnst Guðmundur verða að gera
sér grein fyrir því að í öllum góðum
skáldskap er leyndardómur eða
gáta sem við erum að ráða aftur
og aftur, eftir aldri og þroska, alla
ævi. Þeir sem vilja fá nákvæman
leiðarvísi um hvort ljóð sé gott,
hvers vegna það er gott, um hvað
það fjalli og þar fram eftir’götun-
um, eru betur settir með kross-
gátublaðið en ljóðabók með nútíma-
ljóðum.
Það er ekki' ætlun mín að fara
að skattyrðast við Guðmund Guð-
mundarson á síðum Morgunblaðsins
og keppa um hvor getur snúið bet-
ur úr úr texta hins og gert líkingar
þar sem nafnorðið leir er burðarás-
inn. Mér finnst ég vera orðinn of
gamall til þess.
Tilfinningatitringurinn í skrifum
Guðmundar og reiði finnst mér þó
sýna ótvírætt að Ljóðaárbókin 1988
er vel heppnað verk, verk sem
hreyfir við mönnum eins og góður
skáldskapur á að gera.
Mér er ljúft að geta þess hér að
undirbúningur næstu árbókar er
þegar hafinn.
Höfundur er útgúfustjóri AI-
menna bókafélagsins.
Ertu ibilahugleiðinaum?
ídrgminMúPÍíh
Metsölublað á hveijum degi!
SAFIR
Ódýr, rúmgóðurfjölskyldubíll
a góðu verði. Eins og aðrir
Lada bílar hefur Lada Safir
reynst afbragðsvel hér á
landi, enda kraftmikill og
sterkur.
Veldu þann kost,
sem kostar minna!
Opið 9-18,
laugard. 13-16.
Bifreiðar og
landbúnaðarvólar hf.
Ármúla 13,
Suðurlandsbraut 14.
Sími681200.
Okkar
jólastjömur
em á sama verði
ogífyrra,^
Spáðu í kúlumar
kannski brosir