Morgunblaðið - 21.12.1988, Síða 1
80 SIÐUR B
11
STOFNAÐ 1913
292. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
UNICEF vill átak
gegn bamadauða
Vínarborg. Reuter.
BARNAHJÁLP Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hvatti til þess i gær
að haldinn yrði leiðtogafundur helztu ríkja heims til þess að takast
á við það sem stofiiunin kallar óþarfa barnadauða af völdum fátækt-
ar, afskiptaleysis og sjúkdóma.
í skýrslu, sem UNICEF sendi frá
sér í gær um stöðu bama, sagði
að þörf væri meiriháttar átaks á
borð við Marshall-aðstoðina, sem
Bandaríkjamenn veittu htjáðum
Evrópuríkjum eftir stríð, til þess
að vinna bug á fátækt í heiminum.
Mikilsverður árangur hefði
náðst í því að draga úr bamadauða
á síðastliðnum 20 áram. Gífurleg
Byltingu aístýrt í Súdan:
Gripið til
neyðarlaga
í Khartoum
Khartoum. Reuter.
STJÓRN Súdans lýsti í gær yfir
neyðarástandi í Khartoum, höf-
uðborg landsins, en um helgina
komst upp um áform manna, sem
hugðust steypa stjórninni.
Að sögn blaðsins al-Sudani
komst á sunnudag upp um bylting-
aráform „kynþáttahatara", en það
er hugtak, sem yfirvöld hafa notað
um menn, einkum úr suðurhluta
landsins, er tekið hafa þátt í aðgerð-
um er beinst hafa gegn stjóm lands-
ins.
Að sögn embættismanna var for-
ingi byltingarmanna ofursti í stjóm-
arhemum. Blaðið al-Usbu, sagði
hins vegar að forsprakkar bylting-
armanna væru fyrrverandi stjóm-
málamenn og fyrram yfirmenn í
her landsins, sem verið hefðu hlið-
hollir Jaafar Nimeiri, forseta, sem
herinn steypti af stóli 1985.
Gripið er til neyðarlaga í Kharto-
um á sama tíma og deilur magnast
innan samsteypustjómar Sadeqs
al-Mahdis, forsætisráðherra. Emb-
ættismenn sögðu að nauðsynlegt
hefði verið að lýsa yfir neyðar-
ástandi til þess að bijóta byltingar-
öflin að fullu á bak aftur. Lögregla
hefur m.a. fengið víðtæka hand-
tökuheimild.
skuldasöfnun fátækra ríkja í
Afríku, Asíu og rómönsku
Ameríku, ógnaði hins vegar þeirri
þróun og hefði jafnvel snúið henni
við í einstaka tilfelli.
Þriðja hvert Afríkubam ætti við
hungur að stríða og fjögur af hveij-
um 10 undir fimm ára aldri bæra
merki vannæringar.
„í dag deyja að jafnaði 14 millj-
ónir bama árlega úr algengum
sjúkdómum og vegna vannæringar.
Koma mætti í veg fyrir flest dauðs-
fallanna með til þess að gera ein-
földum og ódýram aðferðum,"
sagði í skýrslunni.
Að sögn fulltrúa UNICEF mætti
koma í veg fyrir dauða flestra bam-
anna með bólusetningu, sem kostar
um 25 krónur íslenzkar, og fimm
krónu þrúgusykursdrykk, sem
kæmi í veg fyrir vessaþurrð, er
væri helzta dánarorsök bama er
þjást af bráðri steinsmugu.
Frá Betlehem
Reuter
Vegna jólahátíðarinnar verður öflug öryggisgæzla í ísrael. Myndin var
tekin í gær af vel vopnuðum lögreglumönnum úr landamæraverðinum
á leið til varðstöðva í Betlehem, fæðingarborgar frelsarans.
Sjá ennfremur „Sharon liamast gegn samstarfi við Verka-
mannaflokkinn" á bls. 34.
Líbanon:
Rauðikross-
inn hættir
hjálparstarfi
Genf. Reuter.
Alþjóðarauðikrossinn ákvað í
gær að hætta hjálparstarfi í
Líbanon vegna hótana gegn
starfsmönnum stofiiunarinnar.
Er það í fyrsta sinn í 125 ára
sögu samtakanna að ákvörðun
af þessu tagi er tekin.
Rauðikrossinn hefur sinnt hjálp-
arstarfi í Líbanon frá því borgara-
styijöld braust út þar i landi fyrir
13 áram. Starfsmenn samtakanna
yfirgáfu landið í gær í framhaldi
af ákvörðun höfuðstöðva þeirra í
gær.
í tilkynningu Rauðakrossins
sagði að líf starfsmanna samtak-
anna í Líbanon, 17 að tölu, hefðu
verið í bráðri hættu vegna hótana
öfgamanna. Þar sem allir aðilar
átakanna í Líbanon leggðu ekki
blessun sína yfir starfsemi samtak-
anna þar ættu þau ekki annarra
kosta völ en hætta henni. í lok
síðustu viku slepptu líbanskir
mannræningjar starfsmanni
Rauðakrossins, sem þeir höfðu
haldið í mánuð.
Skýrsla OECD um ástand og horfiir í efiiahagsmálum:
Aukimií hagsæld spáð
í vestrænum ríkjum
ísland eina OECD-ríkið þar sem spáð er samdrætti vergrar landsframleiðslu
París. Reuter.
EFNAHAGS- og framfarastofii-
unin (OECD) birti í gær skýrslu
um ástand og horfiur í efiiahags-
málum þar sem sagði að vestræn
ríki stæðu nú frammi fyrir meiri
hagsæld en í hálfan annan áratug.
Fyrir ári sagði stofhunin sömu
ríki hugsanlega vera á leið inn í
Endur-
nærðir
Ár hvert fer
fram öskur-
keppni í Tókýó
og var myndin
tekin þegar
leikurinn stóð
sem hæst hjá
Yoko Matsuda,
stúlku, sem fór
með sigur af
hólmi. Öskur
hennar mældist
107,7 desibel.
Keppendur
þykjast endur-
nærðir að ösk-
urkeppni lok-
inni og tilbúnir
að ganga á vit
nýs árs.
Reuter
kreppu. t spá OECD um þróun
vergrar landsframleiðslu á næstu
árum er i öllum tilvikum gert ráð
fyrir aukningu, nema á Islandi.
Þar mim hún dragast saman á
þessu ári um 1,5% og jafii mikið
á þvi næsta, að mati sérfræðinga
stofiiunarinnar.
Samkvæmt skýrslu OECD jókst
iðnaðarframleiðsla um 4% að jafnaði
f hinum 24 aðildarríkjunum stofnun-
arinnar frá því á miðju síðasta ári.
Var sú aukning fyrirséð að vissu
marki þar sem áður höfðu fjárfest-
ingar í iðnaði aukizt jafnt og þétt.
Samkvæmt spám OECD verður
hagvöxtur í aðildarrílq'um að meðal-
tali 4% á þessu árí, 3,25% á næsta
ári og 2,75% árið 1990. í spám, sem
birtar voru í júní sl, var spáð minni
vexti en nú er gert.
Fyrir réttu ári var spá stofnunar-
innar á aðra leið. Hún var birt tveim-
ur mánuðum eftir hranið á verð-
bréfamarkaði í New York. 1 spánni
sagði að „viðvarandi órói á fjár-
magnsmarkaði gæti jafnvel kallað
kreppu yfir aðildarríkin og hærri
vexti“.
Þrátt fyrir góðan hagvöxt sögðu
sérfræðingar OECD að atvinnuleysi
yrði áfram hlutfallslega mikið og að
til verri vegar horfði hvað verðbólgu
snerti. Verðlag færi hækkandi og
næmi verðbólga, miðað við heiminn
allan, nú fjórum prósentum.
Einnig sagði í skýrslu stofnunar-
innar um horfur í efnahagsmálum
að vissrar óvissu gætti vegna ójöfn-
uðar f viðskiptum Bandaríkjamanna
annars vegar og Japana og Vestur-
Þjóðveija hins vegar.
Sjá ennfremur „Efiiahagsspá
OECD“ á bls. 32.
Afinælissöngurinn
skiptir um eigendur
New York. Reuter.
SÖNGLAGIÐ Hún [Hann] á afinæli í dag, sem sungið hefiir verið
S afinælisveizlum v(ða um heim, hefiir verið selt Warner-fjölmiðl-
unarfyrirtækinu, að sögn stórbiaðsins New York Times. Láta
mun nærri að höfundarþóknun eiganda lagsins nemi um einni
milljón doUara á ári, eða um 45 milljónum íslenzkra króna.
Samkvæmt Heimsmetabók arlaun. Wamer-fyrirtækið hefur
Guinness er afmælislagið eitt
þriggja vinsælustu sönglaga, sem
sungin era á ensku. Hin era „Auld
Lang Syne“ (Hin gömlu kynni
gleymast ei) og „For He’s a Jolly
Good Fellow".
Höfundarrétturinn að afmælis-
söngnum hefur verið í eigu banda-
ríska fyrirtækisins Birchtree.
Lagið er oft flutt á stað eða við
tækifæri þar sem flytjendum ber,
tæknilega séð, að greiða höfund-
nú samið um kaup á Birchtree
og afmælissöngnum þar með, að
sögn New York Times, fyrir 25
milljónir dollara, eða jafnvirði 1,1
milljarðs króna.
Afmælislagið var samið fyrir
tæpri öld af systranum Patty og
Mildred Hill í Louisville í
Kentucky. Textinn var ritaður
seinna og er höfundarréttur á
honum til ársloka 2010.