Morgunblaðið - 21.12.1988, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐYIKUDAGUR 21. DESEMBER 1988
dönsku
herra- og dömu-
inniskórnir
komnir aftur.
Hagstætt verð.
Póstsendum.
FALKON
(’fa&hiorifocmen.
Dönsku
smoking
fötin komin
aftur
Nú einhneppt
og tvíhneppt
Verðaðeinsfrá
kr. 9.950,- ^
j
i
Aldrei meira
úrval af
herraskyrtum,
herrapeysum,
velorsloppum
og innisettum
[LeoGemellj)
QEísIP
9
Stækkun og
sérhæfing
Alþjóðleg samtök rit-
stjóra Intemational
Press Institute gefa út
tímarit, IPI Report, þar
má oft lesa hugieiðingar
felagsmanna nm þróun
Qölmiðlunar í einstökum
löndum eða á heimsmæli-
kvarða. I síðasta hefti er
grein eftir Francisco
Pinto Balsemao, útgef-
anda og fyrrum ritstjóra
portúgalska vikuritsins
Expresso, en hann var á
fyrstu árum lýræðis í
Portúgal • forsætisráð-
herra lands sins. í grein-
inni sem ber yfirskrift-
ina: Flestar þjóðir heims
búa við ritskoðun, ræðir
hann þróun fjöímiðlunar
á síðari árum og upplýs-
ingabyltinguna svo-
nefhdu. Hann segir, að á
upplýsingaöldinni séu
Qögur megineinkenni.
I fyrsta lagi hafi hug-
takið upplýsing fengið
viðtækari merkingu en
áður. í öðru lagi sé sér-
hæfingin mun meiri en
áður. Nú megi finna út-
varpsstöðvar sem sér-
hæfi sig í fréttum eða
klassiskri tónlist, það séu
tíl sjónvarpsstöðvar sem
sinni aðeins ákveðnu
þema, svo sem íþróttum
eða barnaefiii, og blöðin
séu að verða sifellt sér-
hæfðari.
Þriðja einkennið sé að
myndir eru látnar koma
í stað orða og einkum
ritaðs máls. Telur Bals-
emao mikilvægt að við
áttum okkur á þessu og
þeirri staðreynd, að við
erum nú farin að horfa
eða skoða sifellt meira
en að lesa og tala. Þessu
fylgi svo það, sem vest-
ur-þýski rithöfimdurinn
Hans Magnus Enzens-
berger kallar „annars
stigs ólæsi“. Það er að
segja að einstaklingur
getur lesið — hann er
ekki ólæs i hefðbundnum
skilningi — en hann lað-
ast einkum að myndum,
að slgánum; ekki aðeins
til að horfa á sjónvarp,
Bylting ífjölmiðlun
Hér hjá okkur ríkir nú byltingarskeið í fjölmiðlun, þegar unnið
er að því að finna nýtt jafnvægi eftir að einokun ríkisins á út-
varpsrekstri hefur verið afnumin. Slíkir umþóttunartímar eru oft
erfiðir og sést það hvað best á stöðu Ríkisútvarpsins. Einka-
stöðvarnar takast einnig á við vandamál og það er oft erfiðara
að halda í horfinu heldur en að vera í stöðugum vexti. Þegar
litið er á einka-hljóðvörpin veldur vonbrigðum, hve illa þeim
hefur gengið að veita viðunandi fréttaþjónustu. Jafnvel það sem
á að kallast fréttir eða fréttatengt efni ber augljós merki auglýs-
ingaskrumsins. í Staksteinum í dag er litið til umræðna um stöðu
fjölmiðla á alþjóðavettvangi.
heldur tíl þess að skoða
myndbönd, myndbanda-
leiki og svokallaðan tele-
text, það er lesmál sem
rennur ettir skjánum.
Kenning Enzensbergers
er sú, að annars stigs
ólæsa sé auðvelt að haíá
áhrif á og stjóma með
myndum og þá geti
stjómmálamenn auð-
veldlega leikið sér með.
Fjórða einkennið á
hinum nýja upplýsinga-
heimi er jákvætt, sam-
hliða þvi sem (jölmiðla-
einingamar verða stærri
geta smærri aðilar látið
meira að sér kveða en
áður. Balsemao telur það
hættulega þróun að stór-
fyrirtæki myndi alheims-
bákn. Á hinn bóginn ger-
ist það á sama tínm, að
hver sá sem vill útvarpa
getur það; tækjabúnað-
urinn er að verða sífellt
ódýrari.
Stöðugur
þrýstingur
Samhliða þeirri þróun
sem að ofan er lýst telur
Balsemao, að fjölmiðlar
verði fyrir þrýstingi og
þar gerir hann greinar-
mun á tvennu: beinum
pólitískum þrýstingi og
fjárhagslegum. Hann
minnir á, að í meirihluta
þeirra 160 ríkja sem eru
á jarðarkringlunni ríki
ritskoðun. Flestar þjóðir
heims búi við ófrjálsa
Qölmiðlun, hvort heldur
hún byggist á því að efni
fjölmiðla sé skoðað af
fulltrúum ríkisins, áður
en það kemur fyrir sjónir
almennings, eða vegna
þess að miðlamir eru í
eign ríkisins.
Ríkið getí beitt fjöl-
miðla Qárhagslegum
þrýstíngi með ýmsu mótí
og séu jafnvel dæmi um
hann í lýðræðisríkjum.
Aðferðirnar séu ýmsar. í
löggQöf um Qölmiðla sé
unnt að setja íþyngjandi
ákvæði. Þá geti stjómar-
athafiiir l^omið misjafh-
lega niður á fjölmiðlum,
eins og þegar ríkisvaldið
túlkar ákvæði um fjár-
hagsstuðning til blaða.
Til marks um óbeinan
þrýsting af hálfu ríkisins
nefnir hann dæmi frá
Portúgal, þar sem boðað
hefur verið afhám ríkis-
einokunar á sjónvarps-
rekstri en ríkisstjómin
dregur við sig að leggja
fram frumvarp um það
efini.
Hann minnir á viðleitni
til að setja alþjóðareglur
um auglýsingar I sjón-
varpi. Evrópubandalagið
hafi sett reglur um kvóta
fyrir efhi af evrópskum
uppruna — það sé bannað
að kaupa nema takmark-
að efhi frá öðrum mörk-
uðum. Og sfðan segir
Balsemao orðrétt:
„Ég tel ýmsar af þess-
um regliun bráðnauðsyn-
legar. Stöðvar eins og
Sky og Super Channel
likjast helst sjóræningja-
stöðvum. En kvótamir
eiga ekki eftir að koma
að miklu gagni fyrir smá-
þjóð eins og mina. Við
fyrstu sýn virðast þeir
geta glætt evrópska
framleiðslu. En sé litíð
nánar á þá kemur f ljós,
að Portúgalir yrðu
dæmdir til að kaupa
frekar efiii af stórum
Evrópuþjóðum eins og
Bretum og Vestur-Þjóð-
veijum en Bandaríkjmi-
um og Brasilfu, og þetta
myndi ekki leysa neinn
vanda við framleiðslu á
þjóðlegu dagskrárefiii í
Portúgal.“
Er húsið
of stórt?
Hvers vegna ekki að njóta eignanna! Ef t.d. hús
er selt og íbúð, sem er 3 milljón krónum ódýrari
er keypt, er hægt að hafa 25 þúsund krónur
skattíausar tekjur á mánuði án þess að skerða
höfuðstólinn.
Kynnið ykkur kosti Sjóðsbréfa 2 hjá starfsfólki
VIB.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF.
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími68 15 30