Morgunblaðið - 21.12.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER,1988
—
15
Menn og hestar
Békmenntir
Sigurjón Björnsson
Jódynur.
Hestar og mannlíf i
Austur-Skaftafellssýslu I.
Guðmundur Birkir Þorkelsson
bjó tíl prentunar.
Bókaforlag Odds Björnssonar,
Akureyri. 1988. 255 bls.
Árið 1977 ákvað hestamannafé-
lagið Homfirðingur að efna til rits
um sögu homfirska hestsins. Skip-
uð var nefnd, sem svo fékk Guð-
mund Birki Þorkelsson til að vinna
með sér og búa efnið til prentunar.
Nefndin ákvað að víkja nokkuð frá
hinum upphaflegu fyrirmælum. Um
það segir í formála: „Nefndin tók
strax þá ákvörðun að efnið skyldi
sótt til allrar sýslunnar frá Skeiðará
í vestri og að Lónssveit í austri og
það skyldi ekki eingöngu bundið
við sögu félagsins og kynbótastarf-
ið heldur skyldi einnig kappkostað
að gefa sem besta mynd af daglegu
starfí manna og hesta eins og þar
var á þeim tíma sem félags- og
ræktunarsagan gerist. Það fer ekki
á milli mála að samgöngumar skipi
mikið rúm því þar reyndi hvað
mest á.“
Rit þetta, sem er fyrra bindi af
tveimur, miðast við tímabilið fram
til 1950. Verður seinna bindið fram-
hald þess.
í þessu bindi er að fínna 20 rit-
gerðir og frásagnaþætti, mislanga
og ólíka að efni. Höfundar em
nokkm færri, því að tveir þeirra
eiga fleiri en einn efíiisþátt: Þor-
steinn Jóhannsson á Svínafelli á
eitt kvæði og þrjár greinar og Eg-
ill Jónsson á Seljavöllum á þtjár
ritgerðir.
Tvær fyrstu greinar bókarinnar
eftir Egil Jónsson, Ræktun hrossa
í Hornafirði í upphafi aldar og
Ættir og erfðir, er prýðisgóð bók-
arbyijun. Þar em merkustu hrossin-
fyrr á öldinni kynnt. Við kynnumst
vel eiginleikum þeirra, ættartengsl-
um, afkvæmum og skyldleika. Þetta
er flarri því að vera þurr lestur, því
að frásögnin er breið. Engu að síður
er ættfræðin á sínum stað og henni
er þjappað saman í þijár afar vel-
gerðar ættartöflur. Þegar við þetta
bætist ágæt ritgerð Þorsteins Jó-
hannssonar um Hrossakyn í Öræf-
um og þriðja grein Egils Jónssonar
um Hrossaræktarfélag Horna-
Qarðar, hefur lesandinn fengið
góða gmnnfræðslu til að skilja bet-
Guðmundur Birkir Þorkelsson
ur framhaldið. Þar ber mest á ýmiss
konar frásögnum af ferðalögum,
erfiðleikum, svaðilfömm, kjarki og
dugnaði manna og hesta. Oftast
nær kemur hesturinn mikið við
sögu, þessi þrekvaxna og þrekmikla
vitskepna, sem Skaftfellingar og
Homfirðingar hafa lagt stund á að
hreinrækta.
Bókinni lýkur á stórmerkri og
Iangri ritgerð Páls Þorsteinssonar
á Hnappavöllum um Samgöngur í
Skaftafellssýslu. Er það vissulega
viðeigandi endir á þessari athyglis-
verðu bók.
Ég hlýt að dást að því hversu
miklu og góðu efni hefur verið safn-
að til þessarar bókar og hversu vel
því er saman raðað til að mynda
úr samstæða heild. Og sannarlega
er stfllinn ekki loppinn hjá þeim
Skaftfellingum. íslenska þeirra er
oftast með ágætum. Talsvert marg-
ar myndir em í ritinu af mönnum,
hestum og staðháttum. Þær em
flestar gamlar og því oft fremur
óskýrar, en vissulega góðar heimild-
ir engu að síður.
Það er enginn vafí á að þessi bók
verður heimamönnum kærkominn
jólalestur og raunar fjölmörgum
fleirum, ekki síst hestamönnum.
Margir líta til Homafjarðar úr þeim
flokki.
Svo er ekki annað en bíða fram-
haldsins. Má ég minna útgefendur
á að gleyma þá ekki skrám yfír
hross og menn fyrir bæði bindin.
XJöfðar til
XJL fólks í öllum
starfsgreinum!
Sendum öllum, sem dvöldu hjá okkur í
sumar, bestu jóla- og nýárskveÖjur.
Stamadis og fjölskylda,
Hótel Anixis.
100% ANGORA
Bamafatnaðurinn frá Fínull er
íslensk hágæðavara
úr 100% angóruull,
Hann er:
• mjúkuroghlýr
• stingurekki
• einangrarfrábærlegavel,
jafnvel þótt hann blotni
• létturísér.
100% angóruull ereinn besti
hitagjafi sem völ erá.
FRAMLEIÐSLA - HEILDSALA - SMÁSAL4
V/ÁAFOSSVEG-SÍMI91-666006
ÚTSÖLUSTAÐIR
REYKJAVlK: Álafossbúðin, Vesturgötu 2 • Árbæjarapótek, Hraunbæ 102B • Breiðholtsapótek, Módd • Droplaugarstaðir,
verlsun • Ellingsen, Grandagarði • Garðsapótek, Sogavegi 10 • Heilsumarkaðurinn, Hafnarstræti 11 • Holtsapótek, Lang-
holtsvegi 84 • Ingólfsapótek, Kringlunni • Lyfjabúðin Iðunn, Laugavegi 40 • Madam, Glæsibæ • Skátabúðin, Snorrabraut 60
• Sportval, Kringlunni • Veiðlvon, Langholtsveg! 111» KÓPAVOGUR: Bergval, Hamraborg 11» GARÐABÆR: Apótek
Garðabæjar • HAFNARFJÖRÐUR: Apótek Norðurbæjar, Miðvangi • Hafnarfjarðarapótek, Strandgötu 34 • KEFLAVlK:
Vinnufatabúðin, Hafnargötu 32 • MOSFELLSBÆR: Apótek Mosfellsbæjar • Flnull hf. v/Álafossveg • AKRANES: Sjúkra-
húsbúðin • STYKKISHÓLMUR: Hólmkjör • BÚÐARDALUR: Kaupfélag Hvammsfjarðar • (SAFJORÐUR: Sporthlaðan •
BOLUNGARVlK: Einar Guðfinnsson hf. • FLATEYRI: Brauögerðin • PATREKSFJÖRÐUR: Verslun Ara Jónssonar •
TÁLKNAFJÖRÐUR: Bjamabúð' • HÓLMAVlK: Kaupfólag Steingrlmsfjarðar • VARMAHLÍÐ: Kaupfélag Skagfirðinga •
SAUÐÁRKRÓKUR: Skagfirðingabúð • SIGLUFJÖRÐUR: Veiðafæraversl. Sig. Fanndal • AKUREYRI: Parls, Hafnarstræti
• DALVlK: Dalvíkurapótek • Verstunin Kotra • ÓLAFSFJÖRÐUR: Valberg • HÚSAVlK: Bókaversl. Þórarins Stefánssonar •
MÝVATN: Verslunin Sel, Skútustöðum • EGILSSTAÐIR: Kaupfélag Hóraðsbúa • SEYÐISFJÖRÐUR: Verslun E.J. Waage
• HÖFN: Kaupfélag A-Skaftfellinga • HELLA: Rangárapótek • SELFOSS: Vöruhús KÁ • HVERAGERÐI: Heilsubúðin,
Heilsuhæli NLFl • Olfusapótek • VESTMANNAEYJAR: Mozart.
RISAEÐLUR
OG
RISAEDLLS 9 5 f |E|
Jt^-isaeðlur, fljúgandi skriðdýr og
aðrar furðuskepnur — undraheimur
sem eitt sinn var. Þessi fyrirbæri
vekja ótal ntargar spurningar. Hvers
vegna urðu risaeðlurnar aldauða?
Hver er uppruni mannsins? V ísinda-
menn hafa skyggnst með spæjara-
augum aftur í gráa forneskju og
svara spurningum. Fjarlæg fortíð
verður lífi gædd á litríkum
myndum, kortum og línuritum.
Þetta er saga hnattarins okkar í
milljónir alda.
IÐUNN
Brœðraborgarstíg 16 ■ sími 28555